Morgunblaðið - 26.03.2011, Qupperneq 11
blása ætti hárið með rúllub-
ursta til þess að fá lyftingu í
rótina og við fyrstu sýn virt-
ist þetta leikur einn. Þegar
kom að mér að prófa var
raunin önnur. Mér tókst að
flækja burstann í hárinu og
hárreyta greyið Tinnu, sem er
sem betur fer ekki hársár. Ef
svo er hefur henni í það
minnsta tekist að fela skelf-
inguna afar vel. Erfiðast var að
athafna sig með fullar hendur af
græjum og tólum. Ég blés hárinu á
Tinnu í allar áttir, jafnvel mínu eig-
in hári, og mér tókst meira að segja
að flækja eigið hár í viftunni á hár-
blásaranum. Eftir herlegheitin var
ég komin með verk í framhandlegg-
inn vegna þyngsla blásarans og orð-
in stíf í öxlum eftir ankannalega lík-
amsstöðu. Mér tókst í fyrsta sinn á
minni lífsfæddri ævi að gera fasta
fléttu, en sökum fagurfræðilegra
sjónarmiða ákváðum við að losa um
fléttuna og krulla hárið þess í stað
með sléttujárni. Útkoman varð
hreint út sagt glæsileg og Tinna
gekk út með bros á vör og vor í
hjarta. Að lokum fékk ég að setjast
í stólinn og skarta nú æðisgengnum
krullum á la Andrea.
í fegrun
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2011
Aragrúa af kennslumynd-
böndum í hárgreiðslu er að
finna á YouTube. Hér á eftir
fylgja nokkur stikkorð sem
gagnast gætu við leit að slíkum
myndböndum.
Blow dry (Blástur)
Round brush
Straight
Volume
Curls (Krullur)
Flat Iron
No Heat
Braids (Fléttur)
French
Fishtail
Scarf
Heart Shaped
Updo
Blástur,
krullur,
fléttur
SJÁLFSKENNSLA
til þess að sjá
myndskeiðið þar
sem Rebekka Líf
fer á kostum í
hárgreiðslu-
störfum.
Skannaðu kóðann
Ég blés hárinu á
Tinnu í allar áttir,
jafnvel mínu eigin
hári, og mér tókst
meira að segja að
flækja eigið hár í
viftunni á hárblás-
aranum.
Nú er lag að líta inn á sýninguna
Heilsa & hamingja sem verður í
Smáralind um helgina. Á sýningunni
munu sérfræðingar um líkamlega og
andlega heilsu gefa almenningi góð
ráð. Þar verða meðal annarra sál-
fræðingar, ráðgjafar á sviði sjón- og
heyrnlækninga, skódoktor, ráðgjafar
um reykleysi, næringu, hreyfingu og
slökun, ýmis félagasamtök, einka-
þjálfarar, framleiðendur íslenskra líf-
rænna matvara, hugvitsmenn og selj-
endur ýmiss konar heilsuvarnings.
Eymundur Magnússon frá fyrirtæk-
inu Móður jörð ætlar m.a. að kynna til
leiks nýja korntegund á sýningunni,
lífrænt ræktað heilhveiti. Eymundur
var einn af þeim fyrstu sem hófu líf-
ræna ræktun á Íslandi og hann er
brautryðjandi í kornrækt.
Endilega …
… kíkið á Heilsu
og hamingju
Ljósmynd/Páll Stefánsson
Hollusta Hér reiðir Eymundur fram
girnilegar kræsingar á góðum degi.
blástur í íslenska fossa, meðal
annars þá sem urðu á vegi hans
meðfram Skógá í klakaböndum
þegar hann gekk upp á Fimm-
vörðuháls í vetur til að skoða gos-
stöðvarnar í Eyjafjallajökli. Siggi
Anton er mikill útivistarmaður og
lætur ekki hjá líða að nefna foss
þann sem margir kalla konung ís-
lenskra fossa, Dynjanda við Arnar-
fjörð, en fossinn sá var honum of-
arlega í huga þegar hann hannaði
nýja spegilinn Fall.
„Vestfirðir eru á topp tíu listan-
um í ár hjá Lonely Planet og Gull-
foss einn af tíu flottustu foss-
unum samkvæmt erlendum
fjölmiðlum. Fall kemur því á hár-
réttum tíma,“ segir Siggi Anton en
á vefsíðunni hans segir að einfald-
leiki línu og forms einkenni hönn-
un hans.
Hann segir hönnun mjög mikil-
væga í tilfinningalegri tilvist hvers
einstaklings, og eigi að þjóna þeim
tilgangi að lyfta huga fólks.