Morgunblaðið - 04.05.2011, Síða 17

Morgunblaðið - 04.05.2011, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2011 VM – ÞING UM MÁLEFNI LÍFEYRISSJÓÐA Á G ra nd H óte l l au g a rd a g i n n 7 . m a í 2 0 1 1 Skráning á vm@vm.is og í síma 575 9800 Flutt verða fjögur erindi frá kl. 10:00 til 12:00: um kosti og galla kerfisins og hvort blikur séu á lofti um að kerfið muni ekki ganga upp. Eftir erindin verður boðið upp á léttan hádegisverð. Pallborðsumræður hefjast eftir hádegisverð og standa í einn til tvo tíma. Fundarstjóri: Sigurjón M. Egilsson Fyrirlesarar: 1. Einar Beinteinn Árnason n Sjálfbærni lífeyriskerfisins og uppgjörsaðferðir. 2. Ólafur Ísleifsson n Fjallar um stöðu sjóðanna í gegnum áföll og uppsveiflur. 3. Lilja Mósesdóttir n Fjallar um sína sýn á velferðar og lífeyriskerfi. 4. Marinó Örn Tryggvason n Þarf að breyta réttindakerfi lífeyrissjóðanna? Milli 17:00 og 19:00 verður boðið upp á léttar veitingar í húsakynnum VM að Stórhöfða 25. (4. hæð.) Framtíð lífeyrissjóða – Standast loforðin? F É L A G V É L S T J Ó R A O G M Á L M T Æ K N I M A N N A - Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - 575 9800 - www.vm.is Sambandsstjórn Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, kom sam- an til fundar á laugardag sl. og samþykkti stjórnin ályktun þess efnis að gera þurfi stórátak í hækk- un örorkulauna. „Hvetja samtökin velferðarráðherra til dáða í þessu efni eftir yfirlýsingar hans í vik- unni um að það sé algerlega óhjá- kvæmilegt að hækka bæturnar. Samtökin taka undir með Öryrkja- bandalagi Íslands að ástandið sé skelfilegt hjá alltof stórum hópi ör- yrkja og krefjast aðgerða af hálfu stjórnvalda. Þar skal fyrst telja al- mennar hækkanir örorkulauna og að full viðurkenning fáist á auka- kostnaði sem fólk með hreyfihöml- un og aðrir öryrkjar verða fyrir,“ segir í ályktuninni. Sjálfsbjörg vill að örorkulaun hækki Í dag, miðvikudag kl. 12-13, standa Alþjóðamálastofnun Háskóla Ís- lands og utanríkisráðuneytið fyrir opnum fundi með Eiju-Leenu Lin- kola frá finnska utanríkisráðuneyt- inu í stofu 101 í Odda. Fundurinn fer fram á ensku. Fjallað verður um undirbúning finnsku stjórnsýslunnar fyrir inn- göngu í Evrópusambandið og hag- nýta nálgun á það hvernig undir- búningur stjórnsýslu fyrir inngöngu í Evrópusambandið geng- ur fyrir sig. Fundur um ESB Kristinn Haukur Skarphéðinsson, dýravistfræðingur á Náttúrufræði- stofnun, flytur erindi sitt Saga geir- fuglsins á Hrafnaþingi í nýju húsi stofnunarinnar í Urriðaholti í dag kl. 15:15. Í fyrirlestrinum mun Kristinn Haukur rekja sögu geirfuglsins hér á landi og segja frá uppsetta fugl- inum sem keyptur var á uppboði í London og er varðveittur á Náttúru- fræðistofnun Íslands. Hann kom til landsins rúmum mánuði áður en Danir skiluðu fyrstu handritunum hingað vorið 1971. Leifar fuglanna sem drepnir voru í Eldey eru varð- veittar í dönsku safni líkt og margir íslenskir náttúrugripir, þar á meðal hamir sjaldgæfra fugla. Saga geirfuglsins STUTT Hin landsfræga grágæs sem ber einkennis- stafina SLN er komin á sínar heimaslóðir á Blönduósi í a.m.k. tólfta sinn. Þessi gæs ásamt 120 öðrum gæsum var merkt við sýsluskrifstofuna sumarið 2000 og er orðin sú einasta úr þessum hóp, fyrir utan gæs sem ber fótamerkið AVP, sem snýr aft- ur frá Skotlandi eftir vetrardvöl. Það er svo merkilegt að hægt hefur verið að ganga að SLN vísri á lóðinni fyrir framan hús eldri borgara í Hnitbjörgum og Flúðabakka, nán- ar tiltekið á lóðinni við Héraðshælið. Það er ljóst að með komu þessarar gæsar er þungu fargi af mörgum létt því íbúarnir þarna í kring hafa fylgst með henni af mikilli ánægju sumarlangt og fram á haust þar til hún flýgur með unga sína og karl aftur til Skotlands. jonsig@vortex.is Morgunblaðið/Jón Sigurðsson SLN er komin öllum til gleði Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Gunnar Þór Grétarsson, 31 árs karlmann, í tveggja ára fangelsi fyrir allmörg brot. Alvarlegust voru árás á lögreglumann við skyldustörf og vopnað rán. Jafn- framt var manninum gert að greiða tæpar 400 þúsund krónur í sakar- kostnað. Maðurinn á að baki sakarferil frá árinu 1998 og hefur alls 17 sinnum verið dæmdur fyrir brot gegn al- mennum hegningarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og umferð- arlögum. Einnig hefur hann sjö sinnum gengið undir dómsáttir vegna brota á lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum. Dæmdur í tveggja ára fangelsi Borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkti í gær tillögu fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins um að staðið yrði fyrir sérstakri viðburðadagskrá í október í Reykjavík í tilefni þess að 25 ár eru liðin frá því að leiðtoga- fundur Ronalds Reagans Banda- ríkjaforseta og Mikhaíls Gorbatsj- offs, leiðtoga Sovétríkjanna, var haldinn í Höfða dagana 11.-12. októ- ber 1986. „Þetta var atburður sem markaði tímamót, ekki bara í sögu Reykjavíkur og Íslands, heldur líka í kalda stríðinu og mannkynssögunni. Ég tel að við eigum að gera allt til að halda minningu fundarins á lofti, bæði til að minna okkur sjálf á hversu mikilvægur viðburður þetta var og til að efla ferðaþjónustu og koma Reykjavík á kortið sem ákjós- anlegum fundarstað,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi. Minnast leiðtoga- fundarins í október Höfði Reagan og Gorbatsjoff í Reykjavík árið 1986.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.