Morgunblaðið - 04.05.2011, Page 18

Morgunblaðið - 04.05.2011, Page 18
BAKSVIÐ Andri Karl andri@mbl.is Á næstu dögum verður úr því skorið fyrir Hér- aðsdómi Reykjavíkur hvort ákæruvaldið hafi á ný gerst sekt um hroðvirkni við gerð ákæru- skjals í Baugsmáli, að þessu sinni skattahlut- anum. Verjendur ákærðu reyndu í gærmorgun að fá málinu vísað frá dómi á þeirri forsendu að ákæran væri svo óskýr að hún stæðist ekki skilyrði laga. Settur ríkislögreglustjóri segir hana nægilega skýra til að sakborningar geti haldið upp í vörnum í málinu. „Ákæran á að móta grundvöll í málinu. Ef orðið yrði við kröfum verjenda yrði ákæran óskýrari,“ sagði Helgi Magnús Gunnarsson, settur ríkislögreglustjóri, og bætti við að var- ast þyrfti að gera ákæru svo ýtarlega að það flæki málin. Öðru máli skipti hvort þær tölur sem fram koma í ákæruskjalinu séu réttar en takast verði á um það við aðalmeðferð málsins. Að endingu sagði hann sakarefnið skýrt í ákærunni einni og því sé ákærðu fært að taka afstöðu til sakargifta og halda uppi vörnum. Vísuðu til fyrra Baugsmáls Áður en kom að Helga Magnúsi reifuðu verj- endur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Tryggva Jónssonar og Kristínar Jóhannesdóttur og fjárfestingafélagsins Gaums kröfur sínar og röksemdir fyrir því að vísa beri málinu frá. Þannig að það sé skýrt snýr málið að meintum stórfelldum skattalagabrotum, bæði persónu- lega og í starfi hjá Baugi og Gaumi. Málflutningur verjendanna var á sömu leið. Þeir setja fram frávísunarkröfuna á þeirri for- sendu, að ákæruliðir á hendur skjólstæðingum þeirra, eða framsetning þeirra, fullnægi ekki skýrleikakröfum laganna. Til þess að fullnægja þeim kröfum þurfi ákærðu að sjá í ákærunni hvaða brot hann hafi framið til að geta verið sig fyrir dómi. Var meðal annars gagnrýnt að tölur sem fram koma í ákærunni séu ekki sundurlið- aðar og því sé ómögulegt að sjá hverju sé lýst. Engin leið sé að átta sig á sakargiftum af ákær- unni. Í þessu ljósi vísuðu verjendurnir helst til dóms Hæstaréttar frá október 2005 en þá var hluta ákæru á hendur sömu einstaklingum – og fleiri til – vísað frá dómi vegna annmarka. Dóminn töldu þeir setja skýrt fordæmi enda segi þar, að til þess að fullnægja ákvæðum laga verði verknaðarlýsing í ákæru „að vera svo greinargóð og skýr að ákærði geti ráðið af henni hvaða refsiverð háttsemi honum er gefin að sök og hvaða refsilagaákvæði hann er talinn hafa brotið, án þess að slík tvímæli geti verið um það að með réttu verði honum ekki talið fært að taka afstöðu til sakargifta og halda uppi vörnum gegn þeim. Verður ákærði að geta ráðið þetta af ákærunni einni.“ Verjendur og settur ríkislögreglustjóri deildu ekki þeirri skoðun að dómurinn hefði víðtækt fordæmisgildi. Helgi Magnús benti á að ekki hefði verið tekist á um skattalagabrot í umræddu máli og vísaði til dómafordæma þar sem ákæra er sett upp á sambærilegan hátt og ákæra í máli þessu, án þess að gerðar hafi verið við það athugasemdir. Gestur Jónsson, verj- andi Jóns Ásgeirs, sagði sér þá ekki kunnugt um að sérstakt réttarfar gilti hér á landi um skattabrot. Um sé að ræða skýrt fordæmi fyrir öll mál sem rekin eru sem sakamál fyrir ís- lenskum dómstólum, auk þess sem enginn dómur eftir október 2005 breyti fordæminu. Vilja frávísun vegna óskýrrar ákæru  Verjendur í skattahluta Baugsmálsins telja annmarka á ákæru eiga að leiða til frávísunar málsins  Settur ríkislögreglustjóri segir sakarefnið skýrt í ákærunni og ákærðu fært að halda uppi vörnum Ef orðið yrði við kröfum verjenda yrði ákæran óskýrari. Helgi Magnús 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2011 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Stjórnklefinn í TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, hefur fengið andlitslyftingu sem mun að lík- indum gera rekstur hennar hag- kvæmari í framtíðinni. Í stað fjöru- tíu og fimm mæla sem áður voru í stjórnborði vélarinnar og sýndu flugmönnum hennar ýmsar upplýs- ingar eru nú komnir fimm skjáir sem gegna sama hlutverki. Það var kanadískt fyrirtæki, Field Aviation, sem setti nýja bún- aðinn í vélina sem var frá í þrjá mánuði meðan á verkinu stóð. Vegna samkomulags sem gert var við framleiðandann þegar samið var um kaup á vélinni fékkst hann á mjög hagstæðum kjörum en að öllu jöfnu hefði ekki verið mögu- leiki fyrir Gæsluna að fjárfesta í slíkum búnaði. Auðveldar viðhald „Þetta er ákaflega fínt og flott að sjá. Þetta er framtíðin, segja þeir manni,“ segir Hafsteinn Hreið- arsson, flugmaður hjá Landhelg- isgæslunni, um nýju græjurnar. Aðalbreytinguna fyrir stjórn- endur vélarinnar segir Hafsteinn vera að skjáirnir séu mun skýrari en mælarnir. „Við sjáum betur á þá. Sól og önnur birtuskilyrði hafa ekki áhrif á mælana. Þeir sjást mjög vel í myrki og eins ef sól fell- ur á truflar það mun síður en hér áður fyrr.“ Þá séu heldur fleiri upplýsingar sem hægt sé að kalla fram með nýju tækjunum og hægt sé að breyta uppsetningu á þeim. Nýi tækjabúnaðurinn í stjórn- klefanum hefur ekki áhrif á getu vélarinnar eins og lágmarks- aðstæður en Hafsteinn segir að við- hald á vélinni ætti að verða auð- veldara og ódýrara í framhaldinu. Búnaðurinn hafi verið settur í aðr- ar vélar, til dæmis í farþegavélar Icelandair en þetta sé í fyrsta skipti sem búnaður af þessu tagi er settur í þessa tegund flugvélar, Dash 8-314. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fyrir Áður en skipt var um búnað voru fjörutíu og fimm mælar í stjórnborðinu í TF-SIF sem gáfu flugmönnunum alls kyns upplýsingar um gang vélarinnar og flugið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Eftir Skipt var um tæknibúnaðinn í stjórnborðinu í Toronto í Kanada og var vélin frá í þrjá mán- uði. Í stað mælanna eru nú komnir fimm skjáir sem gegna sama hlutverki og jafnvel meira til. Flugvél Gæslunnar í andlitslyftingu TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, fær nýjan tæknibúnað í stjórnklefa Morgunblaðið/Árni Sæberg Á flugi TF-SIF flýgur yfir Reykjavíkurflugvelli. Samkomulag var gert við framleiðendur nýja búnaðarins þegar vélin var keypt á sínum tíma.  Nýr búnaður fékkst á hagstæðum kjörum vegna samkomulags við fram- leiðandann í Kanada

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.