Morgunblaðið - 04.05.2011, Qupperneq 29
Elsku besta frænka Gerða,
eins og hún var kölluð, er nú horf-
in á braut. Hennar er sárt sakn-
að. Við erum systkinabörn og alla
tíð höfðum við samband. Hún
passaði mig þegar ég var lítil
stelpa á Sigló, einnig bjó hún
heima hjá mér þegar hún fór í
gagnfræðaskólann. Foreldrar
hennar bjuggu í Skútu í Skútudal
sem var hinum megin fjarðarins.
Síðan fluttust þau að Stekkjar-
flötum í Eyjarfirði, þar var ég í
sveit, yndislegt að vera. Gerða
var yndisleg kona, ljúf, góð, ein-
læg og lítillát. Hún hafði gaman
af því að syngja og síðast þegar
við hittumst núna í mars í Efling-
arkaffi, þá var mikið sungið. Þá
söng Gerða af hjartans lyst og
Þorgerður
Ragnarsdóttir
✝ ÞorgerðurRagnarsdóttir
fæddist á Blönduósi
20. október 1925.
Hún andaðist á
líknardeild (L5)
Landakotsspítala
17. apríl 2011.
Útför Þorgerðar
var gerð frá Foss-
vogskapellu 26.
apríl 2011.
kunni alla texta.
Hún hafði einnig
gaman af því að
dansa og kenndi
bróður sínum Stein-
grími að dansa. Hún
lærði vefnað og
kenndi það. Hún bjó
um tíma á Ísafirði
og ég fór í hús-
mæðraskólann á
Ísafirði og kom oft
til þeirra góðu
hjóna, Kristjáns og Gerðu. Bless-
uð sé minning þeirra. Hafðu þökk
fyrir allar góðu stundirnar í líf-
inu.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Elsku Þórhallur, Björg og fjöl-
skylda, Steingrímur og fjölskylda
og aðrir ættingjar og vinir, guð
veri með ykkur öllum.
Geirlaug Egilsdóttir.
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2011
Ragna Sigrún
Guðmundsdóttir
✝ Ragna SigrúnGuðmunds-
dóttir fæddist í
Skaftafelli, Öræfa-
sveit 30. október
1927. Hún lést á
heimili sínu í
Reykjavík 9. apríl
2011.
Útför Rögnu Sig-
rúnar fór fram frá
Fossvogskirkju 20.
apríl 2011.
þegar ég var ung-
lingur, hef ég verið
þeirrar trúar að
Tove Jansson hafi
þekkt hana og not-
að sem fyrirmynd
að einni yndisleg-
ustu persónu bók-
menntanna sem
fyrirfinnst, Múmín-
mömmu. Að undan-
skilinni handtösk-
unni sem ég man
nú ekki til að Ragna hafi
burðast með er margt sameig-Frá því ég kynntist Rögnu
inlegt. Náungakærleikur, elsku-
legheit og óendanleg þjónustu-
lund á fallegan hátt. Hún bjó
yfir æðruleysi og geðprýði sem
ekki er mörgum gefin, þó varð
hún fyrir miklum áföllum í sínu
lífi sem hefði gert margan bitran
en ekki Rögnu. Hún var kölluð
Gagga en einhvern veginn
ávarpaði ég hana ævinlega með
Rögnu-nafninu, Ragna Sigrún
fór henni vel, það þykir mér fal-
legt nafn.
Ég var reglulegur gestur á
heimili hennar um árabil vegna
vinskapar við dætur hennar. Það
var stutt á milli systkinanna í
aldri og þau samheldin, hjá þeim
var gestkvæmt enda fjölskyldan
glaðvær og gestrisin og þar var
oft glatt á hjalla. Ragna var
gjarnan með í spjalli, sagði sög-
ur yfir kaffibolla og flissaði, það
var auðvelt að koma henni til að
hlæja. Heimilið virtist öllum op-
ið, þangað var gott að sækja.
Dauðinn barði oft að dyrum í
hennar nánasta ranni. Þegar
dóttir hennar, Ebba, lést kom ég
á Ljósvallagötuna. Ragna stóð í
eldhúsinu og sýslaði eitthvað,
eins og svo oft. Mér varð orða
vant, hún horfði lengi á mig, svo
huggaði hún mig. Sumir eru
stórir í sálinni og hafa alltaf eitt-
hvað að gefa.
Ég þakkaði henni sennilega
aldrei fyrir góðvild og gestrisni
gegnum tíðina og hef ekki hitt
hana oft í seinni tíð. Ég sendi
koss á eftir henni í trausti þess
að hann nái henni á endasprett-
inum, með þökk fyrir góð kynni.
Þórdís Þórðardóttir (Dísa).
Á þeim degi er Íslendingar
fagna sumri að gömlum sið bar
að andlát Gylfa Gunnarssonar.
Hann lést á heimili sínu í
Fljótshlíð, og nú söknum við
hollvinar sem var okkur einkar
kær.
Við kynntumst Gylfa og konu
hans, Sigurlín Sveinbjarnardótt-
ur, í starfi Norræna félagsins.
Saman efndum við til margra
Íslandsferða með dönskum þátt-
takendum. Í Norræna félaginu
hér í Horsens stendur fólki enn
fyrir hugskotssjónum viðburða-
rík ferð undir leiðsögn Gylfa um
Vatnsdal í Húnaþingi og norður
um að Grettislaug við Reyki.
Með lifandi frásögn vakti hann
einlægan áhuga okkar á þeim
margþætta sagnaarfi sem bund-
inn er landinu.
Af þessu starfi spratt ára-
löng, náin og dýrmæt vinátta
við þau Gylfa og Sigurlín. Gylfi
var sannarlega mörgum gáfum
búinn. Það lá í eðli hans að hann
gaf sig heilshugar að þeim sem
Gylfi Gunnarsson
✝ Gylfi Gunn-arsson fæddist
á Suðurgötu 33 í
Hafnarfirði 2. júlí
1943. Hann lést á
heimili sínu að
Hlíðarbakka,
Fljótshlíð, 21. apríl
2011.
Útför Gylfa var
gerð frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík 3.
maí 2011.
hann batt kynni
við. Nærveru hans
fylgdi umhyggja og
artarsemi. Hann
hafði einstæðan
hæfileika til að
gera líðandi stund
minnisstæða sér og
sínum. Slíkrar
stundar nutum við
eitt sinn að sumar-
lagi er við litum inn
til þeirra hjóna í
Hafnarfirði. Gylfi kom heim að
loknum ströngum vinnudegi, og
ekki var við öðru að búast en
hann verði kvöldinu við arin
heimilisins. En um leið og hann
birtist í stofunni sagði hann:
„Nú er fallegt út að líta – það
hlýtur að vera undrafagurt
vestur á Snæfellsnesi – skrepp-
um þangað.“ Og það varð úr því
að Gylfi lét aldrei líða langa
stund milli orða og athafna.
Hann vissi hvað beið okkar því
að nærri ströndinni neðan við
Staðastað nutum við kvöld-
kyrrðar og fegurðar sem fáu
verður við jafnað. Í töfrabirtu
litum við Hafursfell og Fagra-
skógarfjall og yst í vestri Snæ-
fellsjökul.
Þrátt fyrir dvínandi heilsu
var hugur Gylfa við það bund-
inn til hinstu stundar að fegra
hið nýja heimili þeirra hjóna að
Hlíðarbakka í Fljótshlíð. Þegar
við komum þar síðast á liðnu
sumri leiddi Gylfi okkur að litlu
torfhýsi, Jónsbæ, sem hann
hafði teiknað og innréttað af
stakri alúð. Með geislandi brosi
breiddi hann út faðminn og
sagði: „Hér bíður ykkar vist-
arvera þegar þið komið næst.“
Þetta var honum líkt. Gylfa var
ætíð umhugað að sýna öðrum
velvild og greiðasemi. Við mun-
um sakna hans og þökkum for-
sjóninni að við skyldum eignast
vinfesti hans. Hugur okkar er
nú bundinn Sigurlín og fjöl-
skyldunni í söknuði þeirra.
Blessuð sé minning Gylfa
Gunnarssonar.
Hans og Vibeke Nørgaard
Nielsen, Danmörku.
Það er 2. júlí árið 1976. Það
voraði seint þetta árið. Við er-
um 5 göngufélagar staddir
aleinir inni í Landmannalaugum
í töluverðum snjó. Félagarnir
eru Gylfi Gunnarsson, Sigurður
Kristjánsson, Þorleifur Sigurðs-
son, Pétur Pétursson og sá er
þetta ritar. Fyrir harðfylgi Sæ-
mundar Alfreðssonar á dugleg-
um rússajeppa komumst við inn
í Laugar þrátt fyrir erfiða færð.
Í fyrramálið er meiningin að
leggja upp í gönguferð til Þórs-
merkur. Erum búnir að lesa
okkur til um leiðina eins og
kostur er en nánast ómögulegt
hefur reynst að afla áreiðan-
legra upplýsinga. Höfum reynt
að finna einhvern sem hefur
farið þessa leið áður en ekki
tekist. Það er því ekki annað í
boði en að leggja bara í hann
með skynsemi og áttavita að
vopni og vona hið besta. Morg-
uninn eftir er lagt í́ann í góðu
veðurútliti sem reyndar átti eft-
ir að breytast snarlega. Söguleg
og viðburðarík ferð sem seint
gleymist. Þannig var upphafið á
fyrstu gönguferð sem farin var
um svonefndan „Laugaveg“ og
eitthvað er til um á prenti svo
vitað sé en Gylfi Gunnarsson,
sem kvaddur er í dag, gerði ferð
þessari ógleymanleg skil í
blaðagreininni „Ætt yfir Emstr-
ur“ í Hlyn, tímariti samvinnu-
starfsmanna í kjölfar ferðarinn-
ar. Það er fróðlegt að lesa grein
hans í dag og bera saman við þá
þróun sem orðið hefur með
„Laugaveginn“, vinsælustu
gönguleið á Íslandi í dag.
Við höfðum kynnst tæpum
áratug fyrr á vettvangi sam-
vinnuskólanema. Vorum báðir
búnir að vera í Samvinnuskól-
anum á Bifröst á sjöunda ára-
tug aldarinnar og áttum síðan
samleið í endurskoðunarnáminu
– vorum meðal 23 sem útskrif-
uðust vorið 1975.
Það var ekki bara að hann
Gylfi væri góður penni heldur
var hann einstakur félagi á all-
an hátt. Í hópi okkar endur-
skoðenda var hann oftar en ekki
hrókur alls fagnaðar þar sem
hann var hverju sinni. Mikill
húmoristi. Honum lét vel að
vera í forystu og átti drjúgan
þátt í að gæta hagsmuna okkar
félaganna, sem störfum í minni
endurskoðunarfyrirtækjum.
Hafi hann heila þökk fyrir það
starf.
Genginn er góður drengur
sem gott var að vera í návist
við. Þakkir eru færðar fyrir
liðnar samverustundir sem voru
allt of fáar í seinni tíð. Aðstand-
endum votta ég innilega samúð.
Guðmundur Jóelsson.
Legsteinar og fylgihlutir
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk
sími 587 1960 www.mosaik.is
• Mikið úrval
• Yfir 40 ára reynsla
• Sendum myndalista
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÚLÍUS REYNIR ÍVARSSON
frá Móbergi á Rauðasandi,
til heimilis á Fálkagötu 6,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 23. apríl verður
jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 6. maí
kl. 15.00.
Jóhanna Gunnlaugsdóttir,
Haukur Júlíusson, Ingibjörg Jónasdóttir,
Gunnlaugur A. Júlíusson, Sigrún Sveinsdóttir,
Ingibjörg Júlíusdóttir, Bragi Guðjónsson,
Anna G. Júlíusdóttir, Hjálmar Axelsson,
afabörn og langafabörn.✝
Þökkum innilega veitta samúð og hlýjar
kveðjur vegna fráfalls ástkærs eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR HÖSKULDSSONAR.
Blessuð sé minning hans.
Guðný Ásgeirsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Okkar bestu þakkir fyrir veittan hlýhug, sam-
kennd og stuðning við fráfall
STEINUNNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Jörfa í Víðidal.
Innilegt þakklæti til ykkar allra sem hafið lagt
ykkar af mörkum til þess að milda áfallið og
styðja okkur á erfiðum tíma.
Jóhannes Ragnarsson á Jörfa
og fjölskylda.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
RAGNHEIÐUR BJARNADÓTTIR,
Dalbraut 18,
Reykjavík,
andaðist 27. apríl á Landspítalanum við
Hringbraut.
Jarðarför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 6. maí kl. 13:00.
Ámundi Gunnar Ólafsson, Sigrún Þórisdóttir,
Lilja Ósk Ólafsdóttir, Guðmundur Arason,
Guðlaug Ingibjörg Ólafsdóttir, Hilmar Þórisson,
Júlíana Bjarndís Ólafsdóttir, Jóhann Einars Guðmundsson,
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
✝
Heitt elskuð dóttir okkar, systir og barnabarn,
HRÖNN BENEDIKTSDÓTTIR,
lést miðvikudaginn 27. apríl á
Landspítalanum, Hringbraut.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn
6. maí kl. 13.00.
Sólrún Höskuldsdóttir, Benedikt Ásgrímsson,
Bryndís Benediktsdóttir, Einar Benediktsson,
Ebba Ólafsdóttir og Höskuldur Stefánsson.
✝
Ástkær föðursystir okkar,
JENNÝ JÓHANNESDÓTTIR
frá Egilsstöðum,
lést á Heilbrigðisstofnun Hvammstanga
föstudaginn 29. apríl.
Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju
laugardaginn 7. maí kl. 13.00.
Erna Snorradóttir,
Jóhannes Snorrason,
Elín Rósa Snorradóttir,
Eggert Snorrason,
Hulda Snorradóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR BIRNA HALLFREÐSDÓTTIR,
Norðurbrú 6,
Garðabæ,
áður til heimilis að
Vallholti 19,
Akranesi,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 30. apríl.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, Garðabæ,
föstudaginn 6. maí kl. 15.00.
Símon Símonarson,
Bryndís Símonardóttir, Ásgeir Guðnason,
Hallfreður Óttar Símonarson, Laufey Ófeigsdóttir,
Edda Símonardóttir, Vésteinn Benediktsson,
Björn Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
BENEDIKT BENEDIKTSSON
kennari,
Þórðarsveig 6,
Reykjavík,
er látinn.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
þriðjudaginn 10. maí kl. 13.00.
Systkini hins látna.