Morgunblaðið - 04.05.2011, Side 44

Morgunblaðið - 04.05.2011, Side 44
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 124. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Var Harrý prins með leynivasa? 2. „Hrein og klár aftaka“ 3. Sýndu bin Laden látinn 4. Gott að vera móðir á Íslandi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sirkus Íslands hefur ákveðið að smella í aðra fullorðinssirkussýningu 28. maí og m.a. mun Hafdís Hold verða með skuggaleik, XXXmeralda leika með gjörðir á lendum sér og Ásta og Keli verða með rekkjubragðakennslu. Fullorðinssirkus- sýning á Bakkusi  Á morgun, fimmtudag, stígur hljómsveitin Valdimar á svið í Hressingar- skálanum í Aust- urstræti. Í til- kynningu segir að Valdimar hafi komið eins og mintuferskur vindur inn í íslenskt tónlistarlíf með plötunni Undraland sem þeir gáfu út nýverið. Tónleikarnir hefjast um kl. 22.00 og er frítt inn. Tónleikaröð gogo- yoko heldur áfram  Sýningin Verði þér að góðu verð- ur frumsýnd í Kassanum í Þjóðleik- húsinu á laugardag og taka bæði dansarar og leikarar þátt í henni. Félagsskapurinn Ég og vinir mínir stendur að sýning- unni en sá hinn sami hópur var með sýninguna Húmanimal sem vakti mikla lukku. »38 Líkamlegt leikhús í Þjóðleikhúsinu Á fimmtudag Austan 3-10 m/s, hvassast með suðurströndinni. Skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti 6 til 14 stig. Á föstudag Austan 8-13 m/s syðst, annars víða 5-10. Rigning eða súld á SA-landi og Austfjörðum, en þurrt V- og N-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 3-10 og skýjað með köflum, hvassast syðst. Hiti allt að 17 stig á suðvestanverðu landinu í fyrstu, en hiti annars yfirleitt á bilinu 5 til 12 stig. VEÐUR Stjörnukonur unnu sinn fyrsta titil í knattspyrnunni þegar þær lögðu Íslands- og bikarmeistara Vals að velli, 2:1, í úrslitaleik deildabikar- sins í gærkvöld. Ásgerður S. Baldursdóttir skoraði sig- urmarkið rétt fyrir leikslok. „Við höfum viljað vinna titil lengi og nú var það bara baráttan sem skilaði hon- um,“ sagði Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir fyrirliði Stjörn- unnar. »2 Við höfum viljað vinna titil lengi Íslandsmeistarar Breiðabliks hófu titilvörnina með tapi gegn KR, 2:3, í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu á Kópavogsvellinum í gærkvöld. Kjartan Henry Finnboga- son skoraði tvö marka KR-inga en Ingvar Þór Kale, markvörður Blika, var rekinn af velli eftir aðeins 20 mín- útna leik. »1-3 Rautt spjald og tap í fyrsta leik meistaranna AZ Alkmaar hefur hafnað tilboði stór- liðsins Ajax í Kolbein Sigþórsson, landsliðsmann í knattspyrnu. Sam- kvæmt hollenskum fjölmiðlum hljóð- aði tilboðið upp á um 330 milljónir ís- lenskra króna. Kolbeinn tilkynnti forráðamönnum AZ í gær að hann myndi ekki semja að nýju við félagið og þar með er ljóst að hann yfirgefur það í sumar. »1 Höfnuðu 330 milljóna tilboði í Kolbein ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Karl Blöndal kbl@mbl.is Í Hörpu dynja hamarshöggin og blandast við surg og væl í borvélum og vélsögum. Nokkur hundruð iðn- aðarmenn á ferð og flugi flytja þessa framkvæmdasinfóníu og erfitt að ímynda sér að ekki sé nema rúmur sólarhringur þar til Vladimir Ashke- nazy hefur tónsprotann á loft á opn- unartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í hinu nýja tónlistarhúsi og ögn þýðari tónar taka við. Rétt fyrir innan glerhjúpinn ligg- ur stigi og eftir því sem ofar dregur í honum fjarlægist skarkalinn. Höfnin blasir við og sundin blá undir sól- björtum himni. Ashkenazy stendur í þessum upphæðum, talar í síma og snýr baki í útsýnið. Hann slítur sam- talinu og gengur kvikum skrefum inn í viðtalsherbergi. Þegar dyrnar lokast hættir að heyrast í borvél- unum. „Þetta er dásamlegur hápunktur,“ sagði Ashkenazy, sem í marga ára- tugi átti sér þann draum um tónlist- arhús, sem nú er að rætast. „Í þetta hefur farið mikil hugsun, atorka og hugmyndavinna. Auðvitað er líka dásamlegt fyrir þessa þjóð að fá al- mennilegt tónleikahús. Hún á það skilið.“ Ashkenazy lýsir því hvernig hljóð- ið og aðstæðurnar í Háskólabíói, þar sem Sinfónían lék frá 1961, kveiktu drauminn um nýtt tónlistarhús. „Það er enginn samanburður,“ segir hann um Hörpu. „Hljómsveitin var í kvikmyndahúsi þar sem hljóm- burðurinn var skraufþurr. Það var ekki gott að spila þar, en auðvitað vandist hljómsveitin því og náði að spila vel í húsinu þrátt fyrir hræði- legan hljómburð.“ Ashkenazy segir að hljómburður- inn í Hörpu standist samanburð við það besta sem gerist í sölum af sam- bærilegri stærð í heiminum og í raun sé ekki mikið meira um það að segja. „Þegar hljóðið er gott er auðveldara að spila,“ segir hann, „hljóðfæraleik- ararnir eiga auðveldara með að heyra hver í öðrum og það verður mun skemmtilegra að spila tónlist.“ Ashkenazy sagði að það hefði kostað mikið átak að reisa Hörpu, margir einstaklingar lagt hönd á plóg og bæði ríki og borg lagt sitt af mörkum til að efla tónlistarlífið í höf- uðborginni. „Fólk getur því ekki lát- ið sér á sama standa,“ sagði hann, „því að allir njóta góðs af, ekki bara tónlistarmennirnir heldur allir, sem elska tónlist og vilja koma og heyra tónlist flutta við bestu aðstæður. Húsið mun lyfta menningarlífinu í landinu og svo lítur það dásamlega út. Ég elska það.“ Það er enginn samanburður  Ashkenazy á opnunartónleikum Hörpu í kvöld Morgunblaðið/Golli Ánægður Vladimir Ashkenazy mundar tónsprotann á æfingu með Sinfóníunni í Hörpu í gærmorgun fyrir opn- unartónleikana í kvöld: „Húsið mun lyfta menningarlífinu í landinu og svo lítur það dásamlega út. Ég elska það.“ „Það eru forréttindi að hafa verið valinn til þess að stjórna á þess- um tónleikum,“ sagði Vladimír Ashkenazy á milli æfinga með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu í gær. „Ég kann að meta þann heiður sem mér er sýndur með því að fá að stjórna fyrstu tónleikunum í húsinu. Ég er him- inlifandi að geta tekið þátt í þessu.“ Ashkenazy hefur verið heiðurs- stjórnandi Sinfóníunnar frá árinu 2002. Á tónleikunum í kvöld verður frumflutt nýtt verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Víkingur Heiðar Ólafsson leikur einleik í píanókonserti Griegs. Að lokum verður 9. sinfónía Beethovens á dagskrá. Tónleikarnir verða end- urteknir á morgun og föstudag. Uppselt er á þá alla. Forréttindi að vera með OPNUNARTÓNLEIKAR Í HÖRPU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.