Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 28
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Á nýjum hljómdiski, Langt fyrir utan ystu skóga, syngur Ásgerður Júníus- dóttir sönglög eftir Gunnar Reyni Sveinsson, Björk Guðmundsdóttur og Magnús Blöndal Jóhannsson. „For- sagan er sú að á bókmenntahátíð fyrir einu og hálfu ári flutti ég þrjú lög eftir íslensk tónskáld sem hafa fengið tón- listarverðlaun Norðurlandaráðs, Hauk Tómasson, Atla Heimi Sveins- son og Björk Guðmundsdóttur,“ segir Ásgerður. „Ég var þarna að frum- flytja tvö ný verk eftir Atla Heimi og Hauk og nýja útsetningu eftir Jónas Sen á lagi eftir Björk. Hrefna Har- aldsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, var á þessari opnun og bauð mér að halda tónleika á Listahá- tíð með þessum nýju útsetningum Jónasar og fleiru. Í kjölfarið kemur svo þessi diskur.“ Meðleikarar á disknum eru Jónas Sen sem leikur á slaghörpu, sembal, selestu, hammond- og pípuorgel, og Sveitin, djasskvartett sem settur var saman fyrir upptökur disksins en í honum eru Pétur Grétarsson, Þórður Högnason, Kjartan Valdemarsson og Óskar Guðjónsson. Frumkvöðlar á sínu sviði Á disknum er heimsfrumútgáfa út- setninga Jónasar Sen á sönglögum Bjarkar Guðmundsdóttur, sem pant- aðar eru af Björk og unnar í samstarfi við hana. Þessar nýju útsetningar koma svo út í tveimur bókum seinna á árinu. Á disknum er einnig nýr texti eftir Sjón, eiginmann Ásgerðar, við fyrstu tónsmíð Bjarkar, lagið Kjarval, sem kom út á plötu þegar Björk var tólf ára gömul. Ásgerður hefur áður hljóðritað og gefið út sönglög Magnúsar Blöndal Jóhannssonar, en á þessum diski eru þrjú þeirra sett í annan búning. Lög Gunnars Reynis Sveinssonar eru svo flutt í nýjum djassútsetningum. „Mér fannst spennandi að gefa Gunnari Reyni meira pláss og fara lengra inn í djassinn. Ég er mjög ánægð með djas- sútsetningarnar á lögum Gunnars Reynis og finnst þær gefa plötunni meiri breidd,“ segir Ásgerður. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég syng djass og þá er túlkun mín öðruvísi en til dæmis í lögum Bjarkar þar sem ég legg ríka áherslu á texta hennar,“ segir Ásgerð- ur. En eru þessi tónskáld mjög ólík? „Nei, þvert á móti,“ segir Ásgerður. „Þau eru ansi lík og hafa sérstöðu í ís- lenskri tónlistarsögu, eru öll þrjú frumkvöðlar á sínu sviði og eru að ryðja brautina. Þau eru með annan fótinn í klassík og hinn í poppi, djassi, leikhús- eða raftónlist. Mikið af þess- ari tónlist er að mínu mati létt og skemmtileg og mér finnst ákveðinn sjarmi birtast í henni sem er heillandi.“ Langt fyrir utan ystu skóga er þriðji hljómdiskur Ásgerðar, en áður hafa komið út Minn heimur og þinn, ljóð og lög eftir íslenskar konur, og Í rökkri, sönglög Magnúsar Blöndal Jó- hannssonar. Báðir diskarnir hlutu góðar viðtökur gagnrýnenda og voru tilnefndir til Íslensku tónlistarverð- launanna. Sungið í gondól Þessa dagana býr Ásgerður í Berlín ásamt eiginmanni sínum Sjón. Þau hafa búið þar í tæpt ár og flytja heim í sumar. „Það er yndislegt að vera í Berlín þar sem er mikil gróska í list- um,“ segir Ásgerður. Nýlega var hún í Feneyjum til að taka upp söng sem er hluti af framlagi Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar á Feyneyjatvíæringnum. Söngurinn verður á myndbandi sem er hluti verksins en Ásgerður mun koma fram í júní við opnunina og syngja fyrir gesti. „Það var algert ævintýri að vera í Feneyjum og taka þátt í verki Libiu Ásgerður „Það reyndi óneitanlega á jafnvægisskynið að standa á háum hælum og kvöldkjól í gondól og syngja krefjandi verk af krafti á meðan við sveigðum hjá öðrum góndólum.“ Tónskáld með sérstöðu  Ásgerður Júníusdóttir sendir frá sér nýjan hljómdisk  Syngur sönglög eftir þrjú íslensk tónskáld  Söng nýlega í gondól í Feneyjum  Stefnir á að fara nýjar leiðir með óperuformið og Ólafs. Ég stóð og söng nýtt, mjög flott verk eftir Karólínu Eiríksdóttur ásamt gítarleikara og trompetleikara á gondól sem sigldi um síki borg- arinnar. Þetta vakti mikla eftirtekt vegfarenda og íbúa og það var sér- stakt að sjá þegar fólkið opnaði glugga og hlera á þessum fornu húsum til þess að kíkja út þegar við sigldum hjá og tónlistin ómaði. Það reyndi óneit- anlega á jafnvægisskynið að standa á háum hælum og kvöldkjól í gondól og syngja krefjandi verk af krafti á með- an við sveigðum hjá öðrum gondólum og renndum undir gamlar steinbrýr. Það rennur auðsjánlega ennþá eitt- hvert sjómannsblóð um æðarnar því þetta tókst með ágætum, ég hélt jafn- væginu og ég datt ekkert út í.“ Í Berlín hefur Ásgerður unnið með píanóleikara sem starfar við Þýsku óperuna. „Ég er klassískt menntuð óperusöngkona og mig langar jafnvel til að feta mig aðeins meira inn á það svið,“ segir hún. „Ég hef lengi haft hug á að reyna nýjar leiðir með óp- eruformið. Það er vandasamt verk ef vel á að takast og margt sem þarf að koma saman til þess að úr verði heild- stætt og gott verk. Hvort sem verið er að setja á svið gamla óperu eða semja nýja. Ég átti mér lengi draum um að koma á svið nýrri íslenskri óperu og var reyndar komin ansi langt á veg með að hrinda þeim draumi í fram- kvæmd. Því miður valdi ég til sam- starfs tónskáld sem ekki réð við verk- ið og það hleypti öllu verkefninu í uppnám. Þetta voru ákveðin vonbrigði sem sýna þó enn og aftur að þetta er vandasamt listform sem ekki er á allra færi. Ég ákvað eftir þessa reynslu að leggja drauma um íslenska óperu til hliðar í bili og stúdera vandlega óp- erur ýmissa meistara úr óperusögunni sem mér finnst spennandi. Það er ekki ólíklegt að ég nýti mér þessa vinnu frá Berlín á næstunni í nýju verkefni sem ég er að vinna að.“ Í haust verður Ásgerður svo með djasstónleika í tengslum við djasshá- tíð. Þegar hún er spurð hvort henni þyki gaman að koma fram opin- berlega segir hún: „Mér líður alltaf vel á sviði en það er nauðsynlegt að fá að vera í friði inn á milli og grúska. Mér finnst ekki þægilegt að koma of oft fram.“ MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2011 Ásgerður Júníusdóttir, messósópran, hefur komið fram sem söngkona og leik- kona á tónleikum, leiksýn- ingum og listahátíðum í Reykjavík, London, París, Berlín, Stokkhólmi og víðar um Evrópu. Hún hefur einbeitt sér að 20. og 21. aldar tónlist og frumflutt verk eftir fjölda nú- lifandi tónskálda. Má þar nefna Jórunni Viðar, Atla Heimi Sveinsson, Hauk Tóm- asson, Peter Bruun, Karólínu Eiríksdóttur og Ragnhildi Gísladóttur. Á leiksviði hefur Ásgerður meðal annars sung- ið hlutverk Carmenar í sam- nefndri óperu Georges Bizet í Borgarleikhúsinu í Reykja- vík, titilhlutverk í íslenskri frumuppfærslu á Madonnu Furioso eftir Bertil Palmar Johansen, Skuggaprinessuna í Skuggaleik eftir Karólínu Eiríksdóttur, ásamt því að leika og syngja í einleiks- óperunni Miðlinum eftir Pet- er Maxwell Davies, og leik- sýningunum Common Nonsense og Hnykli. Víðförul söngkona SÖNGKONAN –– Meira fyrir lesendur PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS : Þann 20. maí gefur Morgunblaðið út sérblað Ferðasumar 2011 ferðablað innanlands. Ferðablaðið mun veita upplýsingar um hvern landshluta fyrir sig. Ferðablaðið verður aðgengilegt á mbl.is. Ferðablaðinu verður einnig dreift á helstu Upplýsingamiðstöðvar og bensínstöðvar um land allt. MEÐAL EFNIS: Fjölskylduvænar uppákomur um land allt. Hátíðir í öllum landshlutum Gistimöguleikar. Ferðaþjónusta. Útivist og náttúra. Uppákomur. Skemmtun fyrir börnin. Sýningar. Gönguleiðir. Tjaldsvæði. Skemmtilegir atburðir. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 16. maí. Ferðasumar 2011 ferðablað innanlands SÉ R B LA Ð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.