Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 9. M A Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  107. tölublað  99. árgangur  LUMAR Á RÚMLEGA 200 ÚRKLIPPUBÓKUM NÁNAST Í HÖFN SYNGUR LÖG TÓNSKÁLDA MEÐ SÉRSTÖÐU 19. TITILL UNITED BLASIR VIÐ ÍÞRÓTTIR ÁSGERÐUR 28ÓMETANLEGAR HEIMILDIR 10 Skúli Á. Sigurðsson skulias@mbl.is Íslenskir starfsmenn um borð í ferj- unni Norrænu fá töluvert lægri laun fyrir vinnu sína á ferjunni en fær- eyskir samstarfsmenn þeirra. Að vonum gætir óánægju með þetta meðal Íslendinganna en kjaramun- inn má rekja til lágs gengis ís- lenskrar krónu gagnvart danskri krónu og íslenskra kjarasamninga. Telja Íslendingarnir sig niðurlægða með því að fá lægra kaup en samstarfs- fólk sitt fyrir sömu vinnu. Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Ís- lands, segir að félaginu hafi verið stillt upp við vegg í málinu. Hefði ekki verið fallist á að kjör íslenskra starfsmanna færu eftir íslenskum kjarasamningum hefðu Íslending- um ekki boðist þessi störf. Frekar en að verða af störfunum var fallist á þetta skilyrði. Kjarasamningarn- ir sem um ræðir eru frá árinu 2008 og runnu út í nóvember í fyrra. Rúna Vang Poulsen, fram- kvæmdastjóra Smyril Line sem rekur Norrænu, og ís- lensku starfsmennina greinir á um hvort Íslendingunum hafi verið gerð grein fyrir að íslensku samningarnir skyldu gilda áður en þeir hófu störf. »4 Lægri laun fyrir sömu vinnu  Íslenskir starfsmenn á Norrænu telja sig vera niðurlægða Það var sannkölluð sumarblíða í höfuðborginni um helgina og nutu jafnt tvífætlingar sem fjórfætlingar góðs af því. Á Austurvelli var iðandi mannlíf og margir sem lögðu leið sína þangað til að spóka sig og fá sér eitthvað gott í gogginn. Þessi litli hvutti hafði gott útsýni úr þessu fína sæti og fylgdist at- hugull með mannaferðum á meðan eigandi hans sleikti sólina sumarlegur og sæll. »12 Morgunblaðið/Árni Sæberg Sumarstemning á vellinum Ekki er heimilt að reikna vexti Seðlabanka Íslands ofan á gengistryggð lán nema eftir þann dag sem dómur Hæstaréttar um ólög- mæti gengistryggðra lána féll. Þetta segir Skarphéðinn Pétursson, hæstaréttarlög- maður. Hann segir að lögin um endurút- reikning lána miðist við að vextir Seðlabank- ans séu reiknaðir frá lántökudegi. Hins vegar sé nú ætlunin að láta á það reyna fyrir dómi hvort slík afturvirkni standist lög. „Afturvirk lög eru ekki talin stand- ast í öllum tilfellum,“ segir hann. Þingmaðurinn Guðlaugur Þór Þórð- arson hefur birt lánareiknivél á heimasíðu sinni, þar sem sýndar eru mis- munandi aðferðir við endurútreikning gengistryggðra lána. Bornar eru saman aðferðir bankanna við endurútreikning lána við aðferðir Veritas-lögmanna og endurskoð- unarfyrirtækisins GK-endurskoðun. Veri- tas-lögmenn miða við að ekki eigi að reikna vexti Seðlabankans á gengistryggð lán fyrr en eftir að dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána féll. GK-endurskoðun reiknar vexti Seðlabankans hins vegar ofan á lánin frá lántökudegi, en tekur tillit til greiðslna inn á höfuðstól lánsins eftir því sem þær berast. Í báðum tilfellum eru nið- urstöður endurútreiknings hagstæðari fyrir lántaka. Ástæðan er sú að bankarnir reikna vexti Seðlabankans á allan höfuðstólinn og bæta áföllnum vöxtum við höfuðstól á 12 mánaða fresti á lánstíma. Á móti er sömu vöxtum bætt ofan á innborganir á höfuðstól. Afleiðingin er sú að eftirstöðvar lána verða hærri eftir endurútreikning. MMunar fleiri milljónum »4 Getur munað miklu  Misjafnar aðferðir við endurreikning lána Erlend lán » Miklu munar á endurútreikn- ingi lána hjá bönkunum og sérfræðingum ótengdum bönkunum. » Munurinn getur hlaupið á mörgum millj- ónum króna.  Jón Þór Júlíusson hjá Laxi ehf. sem hefur margar veiðiár á leigu segir snjó í fjöllum meiri en síðasta vor. „En grunnvatnsstaðan almennt er bara miklu betri. Tjarnir, vötn og mýrar eru í miklu betra ásig- komulagi. Horfurnar eru miklu betri en í fyrra. Það sem fór með þetta í fyrra var maímánuður. Hann gerði útslagið með endalausri sól og blíðu.“ Fleiri taka í sama streng og segja betra útlit nú en í fyrra, en síðasta sumar sló flest met þegar kemur að öfgum í veðurfari. Það kemur sér líka vel fyrir veiðimenn í Blöndu að vatnshæð í Blöndulóni er í sögulegu lágmarki. »9 Meiri vatnsforði fyr- ir veiðiárnar í sumar Maríulax Vænn Norðurárlax árið 2009.  Þingvallanefnd er óstarfhæf nema til komi af- sökunarbeiðni til handa fulltrúum Sjálfstæðisflokks frá Þráni Ber- telssyni, fulltrúa VG í nefndinni. „Fasistapakk“ var sú einkunn sem Þráinn gaf Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Ragnheiði Elínu Árnadóttur, Sjálfstæðisflokki, eftir fund nefnd- arinnar á fimmtudaginn. „Þessi orðaskipti voru á milli mín og við- mælenda minna og koma starfi Þingvallanefndar ekkert við,“ segir Þráinn í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að fyrr frjósi líklega í víti en að hann biðjist afsökunar á þessu. »2 Óstarfhæf nefnd án afsökunarbeiðni Þráinn Bertelsson Íslandsmeistarar Breiðabliks sitja á botni Pepsi- deildar karla í fótboltanum eftir tvær umferðir en bikarmeistarar FH unnu afar öruggan sigur á þeim í Kaplakrika í gærkvöld, 4:1. Kópa- vogsliðið hefur fengið á sig sjö mörk og tvö rauð spjöld í fyrstu tveimur leikjun- um. Þetta voru jafnframt fyrstu stig FH-inga sem töpuðu fyrir Valsmönn- um í fyrstu umferðinni. Auk Blika hafa Framarar tapað báðum sín- um leikjum í deildinni en Valsmenn eru hins vegar einir með fullt hús stiga í efsta sætinu. Ítarlega er fjallað um aðra umferð deildarinnar í átta síðna íþróttablaði í dag. » Íþróttir Meistararnir sitja eftir í botnsætinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.