Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2011 ✝ ÞorsteinnBjörnsson fæddist á Land- spítalanum í Reykjavík 12. apr- íl 2002. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 2. maí síðastliðinn. Foreldrar hans eru Björn Davíð Þorsteinsson, verkfræðingur, f. 1971 og Kristrún Bragadóttir, kennari f. 1976. Systir Þor- steins er Katrín Ingunn f. 1998. Þorsteinn var nemandi í Hóla- brekkuskóla í Reykjavík. Hann æfði knattspyrnu með íþróttafélag- inu Leikni og ka- rate hjá karate- deild Fylkis. Auk þess hafði hann mikinn á huga á veiði. Útför Þorsteins fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, mánudaginn 9. maí 2011, og hefst athöfnin klukk- an 13. Að kveðja lítinn vin okkar hann Þorsteinn eða Steina eins og hann var alltaf kallaður er það erfiðasta sem við höfum gert á ævinni. Við viljum minn- ast hans með nokkrum orðum. Það er ótrúlegt hvað litlar sálir geta tengt okkur mörgum og sterkum vinaböndum. Við kynntumst honum Steina í gegnum son okkar hann Emil Örn en þeir kynntust í 6 ára bekk og hófst mikill vinskapur þeirra á milli strax. Við kynntumst foreldrum Steina þeim Bjössa, Kristrúnu og systur hans Kötu í gegnum strákana og höldum við sterk- um vinskap enn í dag. Þeir æfðu saman fótbolta hjá Leikni og var mikið keppnisskap í þeim. Við fórum í ófáar keppn- isferðir með þá og var alltaf gaman að fylgja þeim og hvetja þá. Fórum við saman í sum- arbústaðferðir og ferðalög og var alltaf mikil gleði með þeim strákum. Steini var tíður gestur á okk- ar heimili sem og Emil Örn hjá honum. Steini var yndislegur strákur svo ljúfur, góður og vinur vina sinna. Hann var mjög góður í íþróttum, stund- aði bæði fótbolta og karate og var einn með þeim fremstu í því. Við skutluðum þeim vinum oft á fótboltaæfingu og horfð- um á þá og tókum við eftir að Steini var svo duglegur og mik- ill keppnismaður. Ætlaði hann sér að verða atvinnumaður í fótboltanum og átti mikla möguleika að verða það. Steina verður sárt saknað í þeirra vinahóp enda góður og samheldinn vinahópur. Við geymum minningu um góðan og fallegan dreng hann Steina í okkar hjörtum um ókomna tíð. Elsku Bjössi, Kristrún, Kata og fjölskylda, megi Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu sorg- artímum. Vottum við ykkur okkar dýpstu samúð og verður hugur okkar alltaf hjá ykkur í sorginni. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Saknaðarkveðjur, Ingunn Hrund, Benedikt og Emil Örn. Mánudagurinn 2. maí síðast- liðinn rann upp bjartur og fag- ur eftir óvenjusnjóþunga helgi miðað við árstíma. Loksins virt- ist vorið langþráða ætla að ná yfirhöndinni og við hér á suð- vesturhorninu önduðum léttar því rysjótt tíðin í apríl hafði reynt svolítið á þolrifin í okkur. En nú vermdi blessuð vorsólin, fuglarnir sungu og gróðurilmur var í lofti. Á þessum fallega og langþráða vordegi gerðist sá hörmulegi atburður að hann Steini litli frændi okkar hné niður örendur í leik með vinum sínum. Eftir sitjum við sem að honum stóðum hnípin í sorg okkar og söknuði. Sagt er að vegir guðs séu órannsakanlegir og víst er að það er ofar mann- legum skilningi að átta sig á til- gangi þess að ungur og heil- brigður drengur er tekinn svo skyndilega burt frá fjölskyldu sinni og ástvinum. Við minnumst Steina sem einstaklega fallegs og ljúfs drengs. Yfir honum var alla tíð mikil friðsæld og ró og það var gott að vera í návist hans. Við minnumst þess ekki að hafa séð hann reiðan eða ósáttan, heldur virtist hann alla tíð líða áfram eins og lygn á. Því fór þó fjarri að Steini væri orkulaus. Hann var mikill dugnaðarforkur þeg- ar kom að íþróttum og æfði bæði knattspyrnu og karate með góðum árangri. Þá stund- aði hann veiðiskap með pabba sínum og hafði mikinn áhuga á allri veiði. Voru þeir feðgar miklir félagar og sameinuðust í þessu áhugamáli sínu. Daginn fyrir hið sviplega fráfall Steina voru þeir feðgar til dæmis að veiðum úti á Faxaflóa og áttu saman yndislegan dag, sem ef- laust verður verðmætur í minn- ingunni. Við fjölskyldan nutum oftast samvista við Steina í sveitinni hjá afa, ömmu og Ingu á Vatns- leysu í Biskupstungum. Eigum við margar góðar minningar frá þessum samverustundum, sem við munum ylja okkur við í framtíðinni. Steini hafði mjög gaman af öllum dýrum og þau löðuðust að þessum kyrrláta og yfirvegaða dreng með bjarta brosið. Stundum kom það fyrir í sveitinni að allir héldu að Steini væri týndur þar sem ekkert hafði heyrst til hans í langan tíma. Þegar farið var að skima eftir honum var hann einhvers staðar einn að dunda sér eða að leika sér við hundinn á sinn ró- lega og yfirvegaða hátt. Augljóst var í samskiptum við Steina að hann var skýr og greindur krakki og honum gekk vel í skólanum, bæði námslega og félagslega. Undanfarna daga höfum einnig við orðið þess áskynja að Steini hefur verið vinsæll og vinmargur í sínu nærumhverfi því vinirnir hafa streymt að heimili hans til að minnast hans. Elsku Kristrún, Bjössi og Kata stóra systir. Missir ykkar er sár og söknuðurinn mikill, en minningin um drenginn ykkar ljúfa og yndislega lifir í hjörtum okkar. Hugur okkar allra er hjá ykkur og við biðjum góðan guð að gefa ykkur styrk til að tak- ast á þetta mikla áfall. Guð blessi minningu Þorsteins Björnssonar. Ragnheiður, Eymundur, Bragi Steinn, Sigurður og Halla. Kveðja frá Hólabrekkuskóla Fallinn er frá ungur drengur, Þorsteinn Björnsson, nemandi í 3. bekk Hólabrekkuskóla. Þegar sorgin knýr dyra verður okkur oft svara vant. Ungur drengur sem átti alla framtíðina fyrir sér. Var einstakur nemandi, prúður, ljúfur og hreif okkur öll með sér í leik og starfi. Honum var allt til lista lagt, duglegur að læra, hafði styrkjandi og góða nærveru og hreif okkur öll með sér með mannkostum sín- um. Það má segja að hann hafi verið boðberi einkunnarorða skólans; virðing, gleði og um- hyggja. Eftir sitjum við hljóð, hnuggin og spyrjum hvers vegna, en við slíku er ekkert svar. Við hér í Hólabrekkuskóla sendum foreldrum Þorsteins, systur og ástvinum öllum okkar dýpstu samúð. Minning um ein- stakan dreng mun lifa meðal okkar. Hólmfríður G. Guðjónsdóttir, skólastjóri Símtalið sem ég fékk að kvöldi 2. maí er enn óraunveru- legt í huga mínum. Nemandi minn Þorsteinn Björnsson er látinn, nýorðinn 9 ára gamall. Ég kynntist Þorsteini í janúar 2009 þegar hann var í 6 ára bekk og hef fylgst með honum þroskast og blómstra í skólan- um á hverjum degi síðan þá. Þorsteinn, eða Steini, eins og hann var alltaf kallaður var sannkallaður gleðigjafi í skóla- starfinu. Alltaf svo jákvæður og brosandi. Hann var fróðleiksfús strákur og hafði sérstakan áhuga á landafræði og náttúru- fræði. Þennan mikla sorgardag, mánudaginn 2. maí vorum við í 3. bekk að byrja í lestrarátaki sem tengist náttúrufræði. Við byrjuðum daginn á að ræða um fiska, hafið og veiðar og umræð- urnar fóru meira að segja út í kvóta. Ég sagði þá að kannski yrði einhver í hópnum fiskifræð- ingur eða haffræðingur þegar hann yrði stór. Einhver benti þá á að einhverjir þurfa jú að passa upp á hversu mikið má veiða af fiski til þess að fiskurinn í sjón- um klárist ekki. Steini rétti þá upp hönd og sagðist ekki ætla að verða svoleiðis fræðingur þegar hann yrði stór. Ég trúi að honum hafi verið ætlað miklu stærra hlutverk. Ég veit að Steini var mikill útivistarmaður og ferðaðist mik- ið með fjölskyldu sinni. Hann talaði mikið um Þingvelli og sagði mér margar sögur af ferð- um sínum. Síðustu söguna sagði hann mér mánudaginn 2. maí, daginn sem hann var svo snögg- lega tekinn frá okkur. Þeirri sögu gleymi ég aldrei og þessi dagur mun setja mark sitt á líf mitt sem og líf allra sem þekktu Steina. Hann var svo brosandi og glaður þennan dag eins og aðra daga. Svo spenntur að fara að safna sér fiskum í lestrará- takinu. Í bekknum höfum við alltaf leyninemanda dagsins og sá nemandi sem er dreginn úr pottinum fær hrósmiða í lok skóladagsins þar sem tekið er fram hvað viðkomandi gerir vel. Þrír nemendur eru eftir í pott- inum í þessari umferð og er Steini einn af þeim. Hann fór úr pottinum í dag í síðasta sinn. Hrós dagsins fær því Þorsteinn fyrir það hvað hann var góður bekkjarfélagi, yndislegur og duglegur strákur sem við mun- um aldrei gleyma. Elsku nemendur mínir í bekk 31. Megi minningin um Þorstein ávallt vera með ykkur og megið þið öðlast styrk til að takast á við þær erfiðu tilfinningar sem bærast innra með ykkur. Elsku Kristrún, Björn og Katrín Ingunn. Ég votta ykkur innilega samúð á þessum erfiðu tímum. Ég veit að þið haldið minningu Þorsteins á lofti, heiðrið hann á hverjum degi og umvefjið hann hlýjum hugsun- um. Vertu sæll, elsku vinur, þú hefur gefið mér meira en þig grunar. Þinn umsjónarkennari, Bryndís Björk Eyþórsdóttir. Þorsteinn Björnsson ✝ Gísli BenónýKristjánsson fæddist á Ísafirði 24. apríl 1920 og ólst þar upp. Hann lést á Landspít- alanum 1. maí 2011. Foreldrar Gísla: Kristján Hannes Magnússon í Króksbæ á Ísafirði, verkamaður og sjómaður á Ísafirði, og kona hans Rannveig Salóme Svein- björnsdóttir á Súgandafirði en alin upp á Kirkjubóli í Skut- ulsfirði, húsmóðir á Ísafirði. Systkini Gísla: Magnús Helgi, Bryndís, Helga Elísabet, Ester, Elísa Fanney og Halla Pálína. Gísli kvæntist Sigurbjörgu Jóhönnu Þórðardóttur, f. 5.2. 1924, húsmóður og kennara, dóttur Þórðar Kristjánssonar, bónda og hreppstjóra á Breiðabólstað á Fellsströnd, og ján bankastarfsmaður, búsett- ur í Lúxemborg, kvæntur Guðrúnu Benediktu Elíasdótt- ur, þau eiga þrjú börn; Salóme Mist, Benediktu Gabríellu, sambýlismaður hennar er Jó- hann Agnar Einarsson, og Gísla Benóný. 4) Gísli Örn raf- virki, búsettur í Kópavogi, sambýliskona hans er Birna Bjarnadóttir, þau eiga þrjú börn; Kjartan Steinar, Krist- ófer Hlífar og Sigurbjörgu Jó- hönnu. Gísli flutti til Reykjavíkur 1943 og í Kópavoginn 1952 þar sem hann bjó alla tíð. Hann stundaði nám við Barna- og gagnfræðaskóla Ísafjarðar og lauk prófi frá Samvinnuskól- anum 1944. Hann hóf að námi loknu störf hjá Prentsmiðjunni Eddu þar sem hann starfaði til sjötugs, lengst af sem skrif- stofustjóri. Þá sá Gísli um að reka Kópavogsbíó í rúm fjögur ár frá stofnun þess. Gísli lék knattspyrnu með Herði á Ísa- firði og með ÍR í Reykjavík. Gísli keppti í ýmsum greinum skíðaíþrótta undir merkjum Skátafélagsins Einherja á Ísa- firði og síðar með ÍR. Einnig æfði Gísli handknattleik og keppti í frjálsum íþróttum hjá ÍR og sýndi fimleika bæði á Ísafirði og hjá ÍR. Hann var áhugaskíðaþjálfari í Stranda- sýslu, þjálfari í skíðagöngu hjá KR og liðsstjóri á þrennum vetrarólympíuleikum, í Osló, Cortina og Grenoble. Auk þess var hann fararstjóri á heims- meistaramótinu á skíðum í Fal- um og Åre. Gísli sat í stjórn Knattspyrnufélagsins Harðar. Hann var um skeið formaður skíðadeildar ÍR og tvívegis í aðalstjórn ÍR um nokkurra ára skeið í hvort sinn. Þá sat hann í stjórn Skíðasambands Íslands í nær tvo áratugi og var jafn- framt fulltrúi í Ólympíunefnd Íslands í mörg ár. Gísli var einn af fyrstu stjórnarmönnum HK í Kópavogi við stofnun þess. Þá hefur Gísli starfað lengi í Lionsklúbbi Kópavogs. Gísli var mikill áhugamaður um skógrækt og sat lengi í stjórn Skógræktarfélags Kópa- vogs. Fyrir störf sín að fé- lagsmálum var Gísli gerður að heiðursfélaga í ÍR, HK og Skógræktarfélags Kópavogs. Útför Gísla fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 9. maí 2011, og hefst athöfnin kl. 15. konu hans Stein- unnar Þorgils- dóttur, húsfreyju og kennara. Gísli og Sigurbjörg eiga fjóra syni, þeir eru: 1) Unn- steinn Þórður arkitekt, búsettur í Kópavogi, var kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur, þau eiga tvö börn; Sö- ruh og Davíð, kvæntur Evu Björk Eggertsdóttur, þau eiga þrjú börn, Óliver Breka, Ísak Rökkva og Álfheiði Myrru. 2) Magnús skrifstofustjóri, bú- settur í Kópavogi, var kvæntur Elínu Kristinsdóttur, þau eiga þrjú börn; Hrafnhildi Ósk, Halldór Örn, sambýliskona hans er Sigurbjörg Helga Gunnbjörnsdóttir og dóttir þeirra Freyja Lind, og Hlyn Má, kærasta hans er Jóna Sig- ríður Halldórsdóttir. 3) Krist- Traust og hlýja, yfirvegun og hógværð, heiðarleiki og dugn- aður koma upp í hugann þegar við systkinin minnumst Gísla frænda okkar. Gísli ólst upp á Ísafirði og var einn sex systkina móður okkar, Höllu, og annar tveggja bræðra. Hann barðist til mennta, lauk samvinnuskólaprófi og gegndi ábyrgðarstarfi sem skrifstofu- stjóri prentsmiðjunnar Eddu í áratugi. Gísli var mikill íþróttamaður. Hann var landsþekktur skíða- maður og stundaði fjölmargar aðrar íþróttagreinar. Hann starfaði ötullega að félags- og íþróttamálefnum bæði á Ísafirði og síðar í Kópavogi og Reykja- vík, einkum hjá ÍR. Hann sat lengi í stjórn Skíðasambands Ís- lands og fór þá sem fararstjóri keppenda á Ólympíuleika og heimsmeistaramót. En það er ekki síst trygg- lyndi og ræktunarhlutverk Gísla sem við viljum minnast og þakka. Þrátt fyrir að Gísli flytti ungur burt frá Ísafirði og systk- inin byggju sitt á hvoru lands- horninu fundum við alla tíð hve tengsl hans og móður okkar svo og allra systkinanna voru sterk. Öll samskipti báru vott um mikla virðingu og vináttu. Til Gísla og Siggu var jafnan gott að koma, hlýja og væntumþykja lék um okkur á fallegu heimili þeirra og sonanna fjögurra. Það var ómetanlegt fyrir okk- ur aðstandendur Gísla að hann gat tekið þátt í niðjamóti sem haldið var á æskustöðvunum á Ísafirði sl. sumar. Í samtölum við hann kom fram hve þessi hinsta ferð hans vestur og sam- neytið við fjölskylduna var hon- um mikils virði. Þar naut hann sín, níræður öldungurinn, tein- réttur og glæsilegur sem fyrr. Í tæp 40 ár var hann aldursfor- setinn í fjölskyldunni, því eldri systkini hans, Magnús og Bryn- dís, létust bæði rúmlega fimm- tug að aldri. Á kveðjustund þökkum við frænda okkar fyrir einstaka góðvild og ljúfa samfylgd og faðir okkar, Jónatan Einarsson, minnist traustrar vináttu í ára- tugi sem aldrei bar skugga á. Siggu, frændfólki okkar og fjölskyldum sendum við einlæg- ar samúðarkveðjur. Einar, Ester, Kristján og Heimir Salvar Jónatansbörn. Gísli B. Kristjánsson varð hluti að minni fjölskyldu, þegar ég giftist bróður Sigurbjargar konu hans fyrir meira en 50 ár- um. Við Gísli áttum það sameig- inlegt að vera bæði fædd og uppalin á Ísafirði. Gísli var þó í vissum skilningi enn meiri Ís- firðingur en ég, þar sem hann var virkur í íþróttastarfi í bæn- um og var skíðaíþróttin sér- stakt áhugamál hans. Gísli var jafnan hægur í fasi og ekki margmáll, en hann var fastur fyrir og ákveðinn í skoð- unum ef því var að skipta. Allt- af sýndi hann fjölskyldu okkar hlýju og vináttu. Gísli hafði mikinn áhuga á skógrækt og ræktun almennt og oft kom hann færandi hendi með plöntur og græðlinga í garðinn okkar, eftir að við byrjuðum að reyna að koma honum í betra horf. Gísli bar með sér traust og staðfestu, handtakið þétt og hlýtt og gott var að leita til hans og Siggu, því þar mætti manni alltaf gestrisni og góð- vild. Þau hjónin voru ákaflega virk í ýmsum félögum og tóku ríkan þátt í samfélaginu í Kópa- voginum, þar sem þau hafa búið allan sinn búskap. Nú seinni ár- in í Gullsmáranum, þar sem þau tóku þátt í félagsstarfi, eftir því sem heilsa þeirra leyfði. Þau létu sér annt um syni sína og fjölskyldur þeirra, enda var þeim endurgoldið það með um- hyggju þeirra og hlýju. Sigga og Gísli komu oft vestur að Breiðabólsstað, þar sem þau eiga sumarbústað og Gísli rækt- aði mikið af trjám á lóðinni svo varla sá í bústaðinn, enda heitir hann Leynir. Eins og með aðra í fjölskyldunni frá Breiðabóls- stað á sá staður alltaf stóran sess í hjarta þeirra. Við Lalli viljum að lokum með þessum fátæklegu orðum kveðja góðan vin, þakka honum samfylgd í áratugi um leið og við vottum Siggu og fjölskyld- unni allri innilega samúð. Guð blessi minningu Gísla B. Kristjánssonar. Þrúður Kristjánsdóttir, Búðardal. Kveðja frá Lionsklúbbi Kópavogs Nú fækkar þeim óðum, sem fremstir stóðu, sem festu rætur í íslenskri jörð, veggi og vörður hlóðu og vegi ruddu um hraun og skörð, börðust til þrautar með hnefa og hnúum og höfðu sér ungir það takmark sett: að bjargast af sínum búum og breyta í öllu rétt. (Davíð Stefánsson) Nú er aldursforsetinn okkar hann Gísli B. Kristjánsson fall- inn frá. Hann gekk í klúbbinn 1982 og var því búinn að starfa með okkur í 29 ár. Hann tók þátt í stjórn klúbbsins og hinum ýmsu nefndum og sinnti þeim störfum af alúð og einlægni því reglusemi og trúmennska voru hans aðalsmerki. Hann mætti á fyrsta fund starfsársins í sept- ember sl. teinréttur í baki að vanda og heilsaði okkur öllum með sínu hlýja og þétta hand- taki. Við klúbbfélagarnir söknum vinar í stað og sendum Sig- urbjörgu, sonum þeirra og öll- um afkomendum innilegar sam- úðarkveðjur. Hvíl í friði, kæri félagi. F.h. Lionsklúbbs Kópavogs, Pétur Sveinsson. Gísli Benóný Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.