Morgunblaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 6
H m SunnudagsMogginnFréttaskýringar Pistlar Viðtöl Krossgátur Lesbók Disneyblað 23. janúar 2011 m SunnudagsMogginnFréttaskýringar Pistlar Viðtöl Krossgátur Lesbók Disneyblað 13. mars 2011 Tengs 14 Fréttaskýringar Pistlar Viðtöl Krossgátur Lesbók Disneyblað SunnudagsMogginn m 9. janúar 2011 Áhrifarík reynslusaga Krumma og fjölskyldu hans rakin í máli og myndum, en drengurinn greindist með hvítblæði í ársbyrjun í fyrra. Vatnasafnið er á Þingmannahöfða við Bók- hlöðustíg í Stykkishólmi. Þar er að finna inn- setningu eftir bandarísku listakonuna Roni Horn, þar sem lagt er út frá orðum, veðri, íslenskri náttúru, gleri og vatni. Víðsýnt er af höfðanum út yfir Breiðafjörð. Íslensk hús Vatnasafnið Alls 87 kaupsamningum vegna fasteigna- viðskipta á höfuðborgarsvæðinu var þinglýst í sl. viku. Þar af voru 68 samningar um fjölbýli og tólf vegna sérbýlis. Þá var 10 samningum þinglýst á Suðurnesjum, sjö á Akureyri og þremur fyrir ustan fjall. Tölur þessar vitna um meira líf á markaði með fasteignir frá því sem var, en sömu viku fyrir ári var aðeins 56 samningum þinglýst. „Það er stígandi í markaðnum og upp- söfnuð þörf fyrir viðskipti. Nú hendir meira að segja stundum að nokkrir bítast um sömu eignir sem hafa verið lengi á söluskrá,“ segir Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags lögg. fasteignasala Fjörið eykst í fasteignaviðskiptum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Margir bítast nú um sömu eignirnar „Ef allt gengur að óskum verður réttarfært í haust,“ segir Esther Guðjónsdóttir bóndi í Hrunamannahreppi. Stuðlaberg er, skv. hug- mynd Estherar, uppistaðan í nýjum Hruna- réttum skammt frá Flúðum en framkvæmdir við byggingu þeirra standa nú yfir. Stuðla- berg, fengið úr námu í næsta nágrenni, er í ytri og innri hring – og stöpull með skugga- varpi í miðjum almenningi kallast á við merkta steina í réttunum sem þannig verða í senn sólarúr, eyktamörk og áttaviti. Nýjar Hrunaréttir í byggingu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Stuðlabergið er sólarúr og áttaviti „Að undanförnu hafa þinglýstir samningar hér á höfuðborgarsvæðinu verið allt að því eitt hundrað í viku hverri og sú tala hefur hækkað jafnt og þétt síðustu mánuði. Þetta er allt að lifna. Hins vegar finnast mér sem sumir sölumenn bókstaflega sofi á verðinum og nýti ekki þau tækifæri sem til staðar eru. Ég vildi því bjóða fólki nýja leið og valkost – það er að selja fasteignina á skömmum tíma sem oftast ætti að vera gerlegt eins og landið liggur núna,“ segir Lárus Óskarsson, sölumaður hjá Domus Nova, sem starfar með hópi reyndra löggiltra fasteignasala hjá Domus- Nova, hefur sinnt sölu fasteigna síðustu árin. Hann þekkir því hvernig landið liggur á markaðnum og hver tækifærin þar eru. Í krafti þess hefur hann uppi stór loforð, þó einfalda hugmynd; það er að selja eignina alltaf á sextíu dögum en taki ferlið lengri tíma fæst 50% afsláttur af þóknun sem er að jafnaði 2,95% af söluverði eignar. Vönduð undirbúningsvinna „Lykillinn að árangri að kerfi sem þessu er vönduð og ítarleg undirbúningsvinna, mark- viss markaðssetning og mikil eftirfylgni við seljendur sem mögulega kaupendur,“ segir Lárus. „Í sextíu daga kerfinu, sem ég kýs að kalla svo, sér sölumaðurinn um allar fyr- irspurnir hvort sem er í síma eða tölvupósti, sinnir sýningum á eignunum auk þess að halda reglulega opin hús. Þá er einnig öll eft- irfylgni við kaupendur í höndum sölumanns- ins. Allt þetta auk auglýsinga er fyrirfram ákveðið til þess að seljandinn hafi góða yf- irsýn yfir það hvernig ferlið fer fram og til þess að tryggja hámarksárangur.“ Lárus segir algengt að fólki sem er með eignir sínar í sölu finnist það oft ekki fá næg- ar upplýsingar um hver staðan sé og hvort eign þeirra muni seljast í bráð. Því leggi hann mikið upp úr jöfnu og stöðugu streymi upplýsinga til seljenda um stöðu mála frá ein- um tíma til annars. „Eigendum er því send vikuskýrsla yfir hve margir flettu eigninni upp á netinu og skoðuðu þar, spurðust fyrir eða skoðuðu. Þá fylgja einnig umsagnir um eignina frá þeim sem skoðuðu. Þessu er svo fylgt eftir með tveimur stöðufundum með seljendum þar sem farið er yfir þessar upplýsingar og framhaldið ákveðið í samræmi við það. Lagt verður upp með að hafa að hámarki sextán eignir í þessu kerfi hverju sinni enda nauðsynlegt að hafa þær ekki of margar til þess að geta sinnt mál- um vel og gefið hverri eign alla þá þjónustu sem hún þarfnast ef vel á að vera,“ segir Lár- us sem kemur einnig til móts við kaupendur í umræddu kerfi og veitir þeim afslátt af þing- lýsingar- og stimpilgjöldum sem renna til sýslumanns. Rauði þráðurinn í þessu er sá að sölumenn fasteigna þurfa að sinna málum af krafti svo salan gangi greitt fyrir sig og eins og landið liggur núna – þegar markaðurinn er mjög að taka við sér og efnahagslífið að braggast – geta eignir í flestum tilvikum selst á sextíu dögum eða þaðan af skemmri tíma.“ sbs@mbl.is Markaðurinn að lifna, segir Lárus Óskarsson, sölumaður hjá DomusNova Selja á skömmum tíma Morgunblaðið/Sigurður Bogi Eignir hafa selst ágætlega að undanförnu og talsverð hreyfing er á söluskrám fasteignasalanna. Þegar markaðurinn er mjög að taka við sér og efnahagslífið að braggast – geta eignir í flestum tilvikum selst á sextíu dögum Lárus Óskarsson Á söluskrám fasteignasala eru í dag á bilinu 13 til 14 þúsund eignir og þá er landið allt undir. Í einhverjum tilvikum eru eignir skráðar hjá fleiri en einnig tölu og því gefur heildartalan alls ekki rétta mynd. Þá eru inni í summunni hús úti á landi, sumarhús og fleira og að sam- anlögðu eru eignir til sölu á Reykjavík- ursvæðinu varla taldar fleiri en 3.000. Telja þeir sem höndla með eignir því nauðsynlegt að fá fleiri á skrá. Þurfa fleiri eignir Morgunblaðið/Sigurður Bogi fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.