Morgunblaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 13
19. maí 2011 13 fasteignir Hátt í tutt-ugufulltrúarog starfs- menn Stjórnlagaráðs taka þátt í átakinu Hjólað í vinnuna. Guð- mundur Gunnarsson fulltrúi er einn þeirra og hann segist þessa dagana hjóla í Stjórn- lagaráðið frá heimili sínu, samtals um 20 kílómetra. „Ég hjóla nú ekki reglulega en tek skorpur eftir veðri og vindum. Fyrsta hjólið fékk ég í ferm- ingargjöf og ég hef átt hjól allar götur síðan. Núna er ég á Mon- goose-hjóli sem hefur fylgt mér í um þrjú ár. Ég vinn þannig vinnu að það er ágætt að geta andað að sér fersku lofti og koma pump- unni aðeins í gang áður en sest er á fund. Hjól- ið er sett í geymslu yfir vetrarmánuðina, þannig að ég get varla talið mig alvöruhjólreiðamann. Þetta er skemmtilegt sport yfir sum- armánuðina. Guðmundur segir að að- stæður til hjólreiða hér á landi hafi tekið framförum á undanförnum ár- um. „Það mætti samt sem áður gera mun meira hvað þetta varðar. Annars hef ég líka talsvert hjólað utan þétt- býlis. Eitt árið hjólaði ég til dæmis Laugaveginn og svo hef ég líka hjólað Leggjabrjót. Hvort ég hjóla ein- hverja lengri leið í sumar er óákveðið, það fer eftir stráknum mínum hvort eitthvað svoleiðis verður að veru- leika.“ Hjálmur gott öryggistæki „Nei, ég væri ekki sannleikanum samkvæmur ef ég segðist alltaf vera með hjálm. Hins vegar reyni ég að vera oftast með hjálm, en var latur við það hér á árum áður. Þegar ég vann í Straumsvík var alltaf hjálmur á höfðinu, enda slíkt skylda þar á bæ. Öryggishjálmur er mikið örygg- istæki, þannig að það er vissara að hafa vaðið fyrir neðan sig og venja sig á að setja á sig hjálm áður en farið er út í umferðina.“ Mikið rætt um hjól í Stjórnlagaráði „Já já, það er helst á morgnana þegar fólk hittist fyrir utan húsið á hjólunum sínum. Þá er spjallað um hjólreiðaferð morgunsins, veðrið og fleira. Hjólreiðafólk spáir meira í veðrið en þeir sem koma til dæmis akandi til vinnu. Að sjálfsögðu finnur maður fyrir svolitlum metnaði meðal starfsfólks og fulltrúa Stjórnlagaráðs í þessum efnum, en ég hef hins vegar ekki hugmynd um hver er á flottasta eða besta hjólið, enda aukaatriði.“ Rokið „Það getur verið erfitt að hjóla á móti vindinum, en að sama skapi hressandi. Bensínið er orðið það dýrt, þannig að þetta er fín leið til að spara pening. Svo ég tali nú ekki um heils- una, sem ekki verður metin til fjár.“ karlesp@simnet.is Hann hjólar í stjórnlagaráðið Hátt í tuttugu fulltrúar og starfsmenn Stjórnlagaráðs taka þátt í átakinu Hjólað í vinnuna. Guðmundur Gunnarsson fulltrúi er einn þeirra og hann segist þessa dagana hjóla í Stjórnlagaráðið frá heimili sínu, samtals um 20 kílómetra. „Stundum erftitt að hjóla á móti vindinum,“ segir Guð- mundur, en finnst það að sama skapi hressandi. Hjólreiðar Eignarlóðir undir sumarhús til sölu Höfum til sölu eignarlóðir í landi Kílhrauns í Skeiða og Gnúpverjahreppi í um klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborginni. Landið er einkar hentugt til skógræktarog útivistar. Lóðirnar eru frá 5.000 fm -11.600 fm og kosta frá 1.800.000 kr. Rafmagn, vatn og sími er komið að lóðarmörkum. Á vefsíðunni www.kilhraunlodir.is má finna frekari upplýsingar um skipulag, verð og aðra þætti einnig í síma 824 3040 Festu þér þinn sælureit í dag Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 - Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00 Gerið gæða- og verðsamanburð 12 mánaðavaxtalausargreiðslur Sjá nánar verð og ný tilboð á www.svefn.is Úrval af stillanlegra heilsurúma - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.