Morgunblaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 22
Porsche 911 Speedster er einn athyglisverðasti bíllinn á sýningunni Allt á hjólum í Fífunni í Kópavogi um helgina. Bílabúð Benna flytur bílinn sérstaklega inn vegna sýningarinnar. Þetta er eitt af 356 eintökum sem framleidd eru. Porsche framleiðir bílinn til að heiðra Porsche 356 sem var fyrsti framleiðslubíll fyrirtækisins. Allt á hjólum í Fífunni Porsche frá Benna Menn nota auðæfi sín misjafnlega og rapp- arinn Birdman fetar þar ekki í fótspor annarra. Sá hefur fest peningana í frumgerð glæsibíls frá þýska lúxusbílaframleiðandanum May- bach. Og þar er engin skiptimynt á ferðinni, heldur átta milljónir dollara sem skiptu um hendur. Birdman, sem heitir réttu nafni Bryan Willi- ams, lýsti löngun sinni til að eignast bílinn á tístsíðu sinni, Twitter. Um er að ræða Maybach Exelero sem m.a. er búinn 12 strokka v-vél. Nokkrum dögum seinna stóð bíllinn fyrir utan bílskúr hans. Bíllinn er ekki splunkunýr, heldur var hann frumsýndur á Tempodrom-brautinni í Berlín árið 2005. Og hann hefur verið falur allar götur síðan; Maybach fann aldrei kaupanda að hon- um. Ekki fyrr en nú. Þetta er tveggja dyra og sæta bíl sem byggður er á Maybach 57-límósínunni og við hönnunina gætir áhrifa frá sportbíl fyrirtæk- isins frá því á fjórða áratug fyrri aldar. Bíllinn er óneitanlega afar rennilegur, en hann var smíð- aður upphaflega til dekkjaprófunar og til kynn- ingarstarfa. Í vélarhúsinu er að finna V12-vél sem kemur hinu 2,6 tonna flykki úr kyrrstöðu í 100 km/klst hraða á 4,4 sekúndum, en há- markshraði bílsins er 350 km/klst. agas@mbl.is Rappari eignast glæsibíl Keypti bíl fyrir átta milljónir dollara Þýski bílsmiðurinn BMW hefur hafið sölu á vara- og íhlutum beint til bíleigenda á upp- boðsvefnum Ebay. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem bílaframleiðandi fer þessa leið til móts við neytendur. BMW segist vilja með þessu mæta vaxandi eftirspurn á netinu eftir upprunalegum vara- hlutum. Vara- og íhlutir séu meðal vinsælustu leitarflokka á Ebay og vefinn noti 96 milljónir manna að staðaldri um heim allan. Tals- maður Ebay í Bretlandi segir að í hverjum mánuði eigi sér stað 600 þúsund leitar- aðgerðir að BMW á uppboðs- og söluvefnum. agas@mbl.is BMW selur varahluti á Ebay Mæta eftirspurn í varahlutaleitinni Eina ferðina enn þykja dagar sænskubílsmiðjunnar Saab vera taldir, núsíðast eftir að samkomulag um inn-spýtingu fjár í reksturinn frá kín- versku bílafyrirtæki, Hawtai, rann út í sandinn. Ár er frá því hollenski sportbílaframleiðandinn Spyker, sem glímt hefur við fjárhagsvanda árum saman, keypti Saab og „bjargaði“ fyrirtækinu frá yfirvofandi lokun. Engin starfsemi hefur átt sér stað í bílsmiðjunni í Trollhätten í Svíþjóð und- anfarnar vikur. Saab skulda birgjum að minnsta kosti 100 milljónir evra en vegna ógreiddra reikninga hættu sumir þeirra í mars sl. að senda íhluti til framleiðslunnar í Svíþjóð. „Þeir gætu fengið Saab lýst gjaldþrota í dag en myndu ekkert hafa upp úr því. Þeir lifa í von- inni um að kraftaverk gerist,“ segir Lars Holm- qvist, forstjóri Evrópusamtaka bílíhlutasmiðja (EAAS), og bætti við að Saab hefði ekki peninga fyrir launum starfsfólks öllu lengur. „Við erum einungis að tala um nokkra daga,“ bætti hann við Framtíð Saab virtist tryggð er Spyker til- kynnti í byrjun maí, að Hawtai ætlaði að leggja 150 milljónir í fyrirtækið í stað þriðjungs hluta- fjár í því. Þeir samningar urðu að engu eftir að Hawtai mistókst að afla sér tilskilinna heimilda. Vegna þessa beinist athyglin að yfirmanni Spykers, Victor Muller. „Muller getur ekki bjargað Saab,“ hljóðaði fyrirsögn dagblaðsins Dagens Nyheter (DN) og greinin var í samræmi við það. Dregin var upp dökk mynd af Muller. Þar sagði að hinn ofurkappsami eigandi væri þekktur fyrir persónutöfra og sannfæringarkraft en afrekaskráin væri þyrnum stráð. Fallin fyr- irtæki, sektir fyrir fjármálaóreiðu og villandi upplýsingagjöf til kauphallar væri þar á meðal. Og Spyker, sem þar til nýlega sérsmíðaði sport- bíla, hefur aldrei skilað hagnaði. „Hann er tví- mælalaust ekki traustur kaupsýslumaður,“ segir Holmqvist. Ríkið bjargar ekki Þegar Spyker keypti Saab af General Motors í febrúar í fyrra fyrir 400 milljónir dollara þótti sem Muller hefði skorið fyrirtækið úr snörunni í andarslitrum þess. „Veitið okkur tækifæri. Og gangi það ekki upp munum við loka sjoppunni,“ sagði háttsettur starfsmaður Saab snemma árs í fyrra. Saab hafði ekki skilað hagnaði í þau 20 ár sem GM átti það. Og takmark Mullers um sölu á 50 þúsund bílum í fyrra gengu ekki eftir. Saab seldi aðeins rétt ríflega 30 þúsund bíla. Í ár var markmiðið 80 þúsund bílar en Spyker hefur þeg- ar játað að útilokað sé að það gangi eftir. Það bætti svo á erfiðleikana, að sænska stjórn- in tilkynnti í síðustu viku, að þaðan fengjust eng- ir fjármunir til að bjarga Saab. Óþarft væri fyrir hið gamalgróna tákn ágætis sænsks iðnaðar að freista þess bónvegar. agas@mbl.is Aftur virðist sænski bílaframleiðandinn Saab á síðasta snúningi Reuters Bílsmiðja Saab í Trollhättan í Svíþjóð. Nú er hún Snorrabúð vera stekkur og lítil von um viðreisn. Beðið eftir kraftaverkinu Volkswagen-bjalla, sem fræg er fyrir að hafa komist í eigu leik- arans Pauls Newmans, er föl, en ekki fyrir lítið fé. Þeir sem áhuga kunna hafa á Pöddunni, eins og Newman kallaði bílinn jafnan, þurfa að reiða fram að minnsta kosti fjórðung milljónar dollara, sem gerir alls 28 milljónir króna. Newman keypti bjölluna rauðu, sem er af árgerðinni 1963, beint úr kassanum og birtist á henni í ýmsum auglýsingum. Fékk hann síðar kappakstursbílasmiðinn Jerry Eisert til að breyta henni. Sá setti í hana öfluga Ford Windsor- vél og fimm hraða ZF-skiptingu og nýja fjöðrun til að auka stöðugleika bílsins á mikilli ferð. Um síðir gaf Newman blæjubjölluna bíladeild iðnskóla í Alta Loma í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Er yfirmaður hennar til margra ára fór á eftirlaun fékk hann bílinn að gjöf. Sá breytti honum enn frekar og hugðist sýna Newman gripinn að því loknu en leikarinn féll frá í millitíðinni. agas@mbl.is Bíll stórleikara fæst fyrir 28 milljónir króna Heimsfræg padda er til sölu Paddan er óneitanlega ansi glæsilegur bíll. bílar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.