Morgunblaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 18
atvinna Fimmtán ára byrjaði ég að vinna í þvottahúsi á Reykja-lundi. Lærði að pressa, setja í klór og þvo dúnsængursem kemur sér vel nú þegar maður heldur heimili.Þarna vann ég með yndislegum eldri konum sem ljúftvar að spjalla og spila við í kaffipásunum. Steinunn Vala Sigfúsdóttir skartgripahönnuður. Fyrsta starfið Sett í klór Það skapar trúverðugleika að auglýsa oftar eftir stjórnarmönnum í fyrirtæki og þá vantar ekki áhuga kvenna. Þetta kom fram í máli Liv- ar Bergþórsdóttur, framkvæmdastjóra NOVA og stjórnarmanns í Telio, á ráðstefnunni Virkj- um karla og konur til athafna í sl. viku. Á fundinum voru kynntar tölur frá Credit- info þar sem kom fram að á Íslandi eru 60% stjórna með bæði kyn í stjórn ef varamenn eru meðtaldir en aðeins 14,5% ef varamenn eru frátaldir. Alls 44% stjórna 300 stærstu fyrirtækja landsins eru með bæði kyn í stjórn- um sínum og 55% 100 stærstu fyrirtækjanna á landinu. Stjórnarkonum í fyrirtækjum fjölgar Auglýst og áhuga kvenna vantar ekki Vinnuföt og Íslenska gámafélagið eru fyr- irtæki ársins 2011 skv. könnun VR sem kann- aði viðhorf félagsmanna jafnhliða SFR. Sam- an kynntu félögin niðurstöður. Vinnuföt ehf. fengu 4,94 í einkum og skoruðu hátt í þáttum s.s. ánægju og stolti og trúverðugleika stjórn- enda. „Hér starfar samheldinn hópur og allir ganga í störf sem sinna þarf, hvort sem það eru sölustörf eða uppvaskið. Útkoman er því sú að fólki hér finnst gaman í vinnunni,“ segir Örn Arnarson sölustjóri Vinnufata þar sem starfa fimm til átta manns. VR kynnir fyrirtæki ársins Morgunblaðið/hag Samheldinn hópur og allir ganga í störf Örn Arnarson, til hægri, og Stefán Einar Stef- ánsson, formaður VR, með viðurkenninguna. Auðvitað er þessi viðurkenning fyrstog fremst starfsfólksins. Hér gildirað fólk nálgast verkefni dagsins afauðmýkt og virðingu hvaða stöðu sem það hefur innan stofnunarinnar. Við reynum að finna jákvæðar lausnir á hlutunum og þeim núningsmálum sem upp kunna að koma. Það er mikilægt því vissulega erum við hér í erfiðu starfsumhverfi og álagið er mikið. Fyrir unga stofnun á mótunarskeiði er þetta mikil viðurkenning,“ segir Ólafur Þór Hauks- son sérstakur saksóknari. Ánægðari hjá minni stofnunum Val á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins er samvinnuverkefni SFR stéttarfélags í al- mannaþjónustu var kynnt sl. föstudag. Á vett- vangi SFR varð embætti Sérstaks saksóknara efst og fékk einkunnina 4,40, af 5 mögulegum. Sýslumaðurinn í Vík í Mýrdal skoraði hæst í flokki minni stofnana. Starfsfólk á minni stofnunum er almennt ánægðara en á þeim stærri. Staða starfs- manna hefur einnig áhrif en þeir sem bera ábyrgð og hafa mannaforráð eru ánægðari í starfi en aðrir. Niðurstöður könnunarinnar sýna sömuleiðis vaxandi óánægju með launa- kjör og í ár eru 60% ósátt með það sem skilar sér í umslagið um hver mánaðamót. Konur eru ánægðar með sveigjanleika í vinnu en óá- nægari en karlarnir með launin sem segja á hinn bóginn oft ætlast til þess að þeir sinni yf- irvinnu. Samheldin í erfiðum verkefnum „Í starfi okkar gengur hver að sínu vísu og með líku lagi og gildir í einkafyrirtækjum fylgjum við hér verkbókhaldi, þar sem við- fangsefnin eru kortlögð, framvinda þeirra skráð og staðan metin samkvæmt því. Að- gerðir sem við förum í, svo sem húsleitir og yfirheyrslur sem mikil fjölmiðlaathygli fylgir reyna á starfsfólk okkar og eru streituvald- andi. Hins vegar þekkjum við að í erfiðum verkefnum myndast oft samheldni meðal fólks og sú er raunin hjá okkur,“ segir Ólafur – sem bætir við að hjá embætti sínu gildi sá góði sið- ur að bjóða brauð og álegg með kaffinu á föstudagsmorgnum og þegar starfsfólk komi frá útlöndum sé nánast skylda að koma með sælgæti úr Fríhöfninni. Svona smáatriði hafi mikið að segja fyrir starfsandann. Í flokki stærri stofnana var embætti Rík- isskattstjóra í öðru sæti en þess ber að geta að á undanförnum árum hafa stofnanir skatta- kerfisins í könnunum mælst starfsmannavæn- ir vinnustaðir. Í flokki minni vinnustaða komu Norðurlandsskógar á eftir Sýslumanninum í Vík og Blindrabókasafn Íslands í 3. sæti. Metnaðurinn er miklu meiri „Viðhorf opinberra starfsmanna eru nú könnuð í fimmta sinn og almennt hafa kann- anirnar á þessum tíma skilað því að metnaður stjórnenda ríkisstofnana í mannauðsmálum er miklu meiri en áður var. Sumar stofnanir, eins og til dæmis Ríkisskattstjóri, leggja mikið upp úr því að gera vel við sitt fólk en annars staðar er minna í þetta lagt. Maður finnur augljóslega að kannanirnar hafa áhrif í um- ræðunni og með niðurstöðum er fylgst,“ segir Árni Stefán Jónsson, formaður SFR. Könn- unin í ár náði til alls19 þúsund ríkisstarfs- manna og í það heila talið 44 þúsund manns sé almenni vinnumarkaðurinn talinn með. Auk ríkisstarfsmanna innan vébanda SFR tóku fé- lagar í BHM og ýmsum félögum BRSB einnig þátt og ætti könnunin að gefa góða mynd af því hvernig landið liggur. sbs@mbl.is Sérstakur saksóknari og Sýslumaðurinn í Vík í Mýrdal bestu vinnustaðir ríkisins Finnum jákvæðar lausnir Ljósmynd/hag „Fyrir unga stofnun er þetta mikil viðurkenning,“ segir Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari. Fulltrúa Blindabókasafns, Norðurlandsskóga og Sýslumannsins í Vík á mynd, ásamt Árna Stefáni Jónssyni, formanni SFR. Aðgerðir, sem við förum í, eru streituvaldandi. Hins vegar þekkj- um við að í erf- iðum verkefnum myndast oft sam- heldni meðal fólks Hrein eign lífeyrissjóðanna í landinu nálgast nú 2.000 milljarða króna, skv. samantekt Seðlabanka Íslands. Í lok mars áttu sjóðirnir alls 1.965 milljarða króna og juku í þeim mán- uði við eign sína 16,2 milljörðum kr. eða 0,8%. Innlend eign verðbréfa hækkaði í mars um 19 milljarða króna og nam rúmlega 1.393 millj- örðum í lok mánaðarins. Erlend verðbréfaeign nam um 483 millj- örðum króna í marslok og lækkaði um fjóra milljarða milli mánaða. Sjóður og bankainnstæður jukust um rúma 1,5 milljarða króna á milli mánaða. Í nýrri grein sem birt er á vefsetri Seðlabankans segir að Hrunið og gjaldeyrishöftin hafi breytt stöðu líf- eyrissjóðanna sem nú bindi fé sitt einkum og helst í ríkistryggðum eignum eins og verðbréfum, íbúða- bréfum og með innlánum. Þegar best lét hafi sjóðirnir átt um 30% af eignum sínum erlendis en nú sé hlut- fallið komið í um fjórðung sem sé svipað og var um aldamótin. „Þrátt fyrir það sem á undan er gengið er staða sjóðanna ennþá sterk þar sem eignir þeirra eru mikl- ar. Í lok árs 2009 námu eignir lífeyr- issjóða um 112% af vergri lands- framleiðslu sem telst mjög hátt í alþjóðlegum samanburði. Þetta seg- ir þó ekki til um það hvernig lífeyr- issjóðirnir eru í stakk búnir til að takast á við framtíðarskuldbind- ingar,“ segir Seðlabankinn. Miklar eignir og staðan er sterk Morgunblaðið/Ernir Lífeyrissjóðirnir eru ein styrkasta stoðin í fjármálakerfi landsins og fjárhagsleg trygging þegar aðstæður breytast.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.