Morgunblaðið - 21.05.2011, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
FRÉTTASKÝRING
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Landbúnaðarráðherra hefur ákveðið
að aflétta kvöðum sem þinglýstar
voru á sláturhúsið á Breiðdalsvík
þegar það var úrelt 2003. Eigendur
hússins hyggjast hefja þar slátrun á
ný. Þeim er ekki gert að endurgreiða
18 milljóna kr. styrk sem þeir fengu
úr ríkissjóði til úreldingarinnar. Öðr-
um sláturleyfishöfum sem úreltu á
sama tíma stendur þetta til boða.
Gert var átak til að fækka sauð-
fjársláturhúsum á árunum 2003 og
2004. Sláturleyfishafar voru í vand-
ræðum vegna samkeppni á kjöt-
markaðnum og sláturkostnaður þótti
of hár. Sumir áttu erfitt með að gera
upp við bændur og Byggðastofnun
varð að ábyrgjast afurðalán. Opinber
nefnd lagði til að sláturleyfishöfum
yrði boðið að úrelda sláturhús og að
til þess yrði varið 170 milljónum á ár-
unum 2003 og 2004. Ríkisstjórnin
samþykkti það og fækkaði sláturhús-
unum allmikið.
Þinglýst var ótímabundinni kvöð á
sláturhúsin um að þau mætti ekki
nota til slátrunar.
Sláturfélag Austurlands hefur hug
á að hefja slátrun í sláturhúsinu á
Breiðdalsvík og óskaði eftir því við
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytið að kvöðinni yrði aflétt. Það
samþykkti ráðuneytið í gær við lítinn
fögnuð samtaka sláturleyfishafa og
sauðfjárbænda.
Ólafur Friðriksson, skrifstofu-
stjóri í ráðuneytinu, segir að ráð-
herra telji að markmið úreldingar-
innar hafi náðst og því hafi verið
ákveðið að fella samninginn úr gildi.
Jafnframt hafi öðrum eigendum
gömlu sláturhúsanna verið gefinn
kostur á að sækja um aflýsingu þess-
arar kvaðar, til að gæta jafnræðis.
„Við teljum þetta arfavitlaust
ráðslag,“ segir Sigurður Jó-
hannesson, formaður Lands-
samtaka sláturleyfishafa. Hann
segir að með því að afhenda fyrri
eigendum sláturhúsin að nýju, án
þess að krefjast endur-
greiðslu á úreldingar-
styrkjum ásamt vöxtum,
sé verið að raska sam-
keppni á kjötmarkaðnum.
Þá óttist sláturleyfishafar
að einnig verði gerðar
minni heilbrigðiskröfur í
þessum húsum.
Kvöðum aflétt án
endurgreiðslu
Ráðherra heimilar að úrelt sláturhús séu opnuð á ný
Morgunblaðið/Rax
Leitir Verkefni hjá þeim sláturhúsum sem fyrir eru minnka ef ný hús taka til starfa. Skiptar skoðanir eru um málið.
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Hvorugt stjórnarfrumvarpanna um
breytt fyrirkomulag fiskveiðistjórn-
unar var tekið fyrir á Alþingi í gær,
en reiknað hafði verið með því að
„minna“ frumvarpið yrði á dagskrá.
Í því eru meðal annars gerðar ráð-
stafanir sem hafa áhrif á strandveið-
ar í sumar. Jón Bjarnason, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
segir vonir sínar hafa staðið til þess
að það frumvarp yrði afgreitt sem
fyrst, en engir þingfundir verða í
næstu viku. „Þó að minn vilji sé sá að
þetta komi sem allra fyrst til fram-
kvæmda, þá er það þingið sem ræður
þeim hraða,“ segir hann.
Frumvörpin hafa verið gagnrýnd
víða, til að mynda af hagsmunaaðil-
um í sjávarútvegi og sjómönnum.
Einna hörðust er þó gagnrýnin sem
fjárlagaskrifstofa fjármálaráðuneyt-
isins setur fram í umsögn sinni um
frumvörpin tvö.
Gagnrýni fjárlagaskrifstofu
Fjárlagaskrifstofan finnur meðal
annars að fyrirhugaðri dreifingu
tekna af veiðigjaldi á byggðir og
landshluta og veltir því upp að hugs-
anlega sé brotið gegn jafnræðisreglu
stjórnarskrárinnar. Jón vísar í sam-
starfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
og segir það markmiðið að treysta
atvinnu og byggð í landinu. „Þetta er
pólitísk stefnumörkun til að treysta
enn frekar stöðu sjávarbyggðanna.
Núverandi kvótakerfi hefur einmitt
verið gagnrýnt fyrir hversu harka-
lega það veikir ýmsar sjávarbyggðir,
hvort sem það er með réttu eða
röngu,“ segir Jón.
Hvað hagræn áhrif fyrirliggjandi
frumvarpa áhrærir skipaði ráðherra
sem kunnugt er sérfræðingahóp til
þess að fara yfir þá hlið málsins. Jón
segist ekki vita annað en að hópurinn
skili af sér á tilsettum tíma, í byrjun
júní. Spurður um viðbrögðin fari svo
að niðurstöður hópsins verði nei-
kvæðar segir Jón mikilvægt að vega
hinar mörgu hliðar málsins saman.
„Þessi hópur er skipaður til þess að
fara yfir þessi mál og verða niður-
stöður hans að sjálfsögðu skoðaðar.“
Pólitísk ákvörðun að
treysta sjávarbyggðir
Ráðherra hefði viljað afgreiða minna frumvarpið sem fyrst
„Þetta er pólitísk
stefnumörkun til
að treysta enn
frekar stöðu
sjávarbyggðanna.“
Jón Bjarnason
„Við teljum að hag sauð-
fjárbænda sé betur borgið með
því að sláturhúsin séu frekar
færri en fleiri,“ segir Sigurgeir
Sindri Sigurgeirsson, formaður
Landssamtaka sauðfjárbænda.
„Með því að auka hagræðingu
og lækka sláturkostnað skapast
svigrúm til að borga bændum
betur fyrir afurðirnar. Við telj-
um að sláturhúsin séu nógu
mörg og óskynsamlegt að
fjölga þeim,“ segir hann en
bætir því við að ekki
sé við því að búast
að mörg af
gömlu slát-
urhúsunum
opni á ný
vegna heil-
brigðiskrafna
sem gerðar eru.
Nógu mörg
sláturhús
SAMTÖK SAUÐFJÁRBÆNDA
Ársfundur 2011
Ársfundur Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar verður
haldinn miðvikudaginn 8. júní kl. 12.00, í
Bæjarþingsalnum á skrifstofum Akraneskaupstaðar að
Stillholti 16-18, Akranesi.
Dagskrá
1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
2. Breyting á samþykktum
3. Önnur mál löglega upp borin
Allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi
stéttarfélög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og
tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta.
Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu
fundarins.
Akranesi, 3. maí 2011
Stjórn Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar
Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Þrír fulltrúar VG á Alþingi hafa nú
með afgerandi hætti vegið að þessum
grundvallarmannréttindum, lýðræði
og rétti kjósenda. Slík framkoma leið-
ir til þjóðfélagslegrar upplausnar og
vantrúar á möguleika lýðræðis og aft-
urhvarfs til andlýðræðislegra stjórn-
arhátta. Vinstrihreyfingin – grænt
framboð hafnar slíkri öfugþróun og
snýst gegn henni af fullum krafti.“
Svo hljóðar inngangur tillögu sem
bæjarmálaráð VG í Hafnarfirði vill að
flokksráðsfundur VG, sem var settur í
gær, samþykki. Undir hana skrifa
Birna Ólafsdóttir, Gestur Svavarsson,
Guðrún Guðmundsdóttir, Jóhanna
Marín Jónsdóttir, Jóhannes Ágústs-
son og Sigurbergur Árnason. Þarf
vart að taka fram að tilefnið er brott-
hvarf Ásmundar Einars Daðasonar,
Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur
úr þingflokki VG. Telur ráðið málið
kalla á breytingu á stjórnarskrá:
„Flokksráðsfundur VG … skorar á
stjórnlagaráð að taka til endurskoð-
unar þau ákvæði stjórnarskrárinnar
sem tryggja alþingis- og sveitar-
stjórnarmönnum setu á Alþingi og í
sveitarstjórnum án tillits til þess
hvort þeir fylgi stefnu þeirra fram-
boða sem standa á bak við þá.“
Á rætur í „sannfæringarnauð“
Bæjarmálaráðið heldur áfram:
„Kjörnir fulltrúar þessir, ef fulltrúa
skyldi kalla, nema ef til vill fulltrúa
eigin sannfæringar, geta einnig að
eigin vilja snúist gegn þeim flokks-
framboðum sem borið hafa þá á hönd-
um sér í sæti alþingis- eða sveitar-
stjórnarmanns… Með því að kjörnir
alþingis- og sveitarstjórnarmenn, í
sannfæringarnauð sinni, snúi þetta
verkfæri úr höndum flokkanna í
beinni andstöðu við vilja þeirra og
beiti því gegn þeim, beina þeir spjót-
um sínum gegn grundvallar-
mannréttindum lýðræðisþjóðfélags,“
segir ráðið sem lagði einnig fram til-
lögu að ályktuninni VG harmar hegð-
un þremenninganna. Segir þar m.a.:
„Við berum því þá einlægu von í
brjósti að flokksfélagar okkar þrír
sem sæti eiga á Alþingi og brugðist
hafa svo herfilega lýðræðislegum
leikreglum flokksins sýni auðmýkt,
snúi af villu síns vegar, og fylki sér í
raðir lýðræðissinna.
Lýðræðissinna sem ávallt hljóta að
hlíta lýðræðislega teknum ákvörðun-
um stofnana flokksins, jafnvel þótt
þær gangi gegn persónulegri sann-
færingu þeirra um stundarsakir í ein-
staka málum – en hverfa af vettvangi
að öðrum kosti.“
Í annarri tillögu þess að ályktun,
Einarður stuðningur flokksráðs VG
við ríkisstjórn vinstriflokkanna, sagði
m.a.. „Flokksráðsfundurinn minnir
þingmenn, ráðherra sem og aðra
kjörna fulltrúa VG á þá ófrávíkjan-
legu lýðræðisskyldu þeirra að fylgja í
hvívetna stefnu flokksins … Sam-
skipti flokksmanna VG skulu ein-
kennast af gagnkvæmri virðingu, ást
og kærleika …“
Úrsagnir kalli
á breytingar á
stjórnarskrá
Hvassar tillögur frá VG í Hafnarfirði
„Það hefur orðið
mikill eigna-
bruni, ekki samt
hjá venjulegu
fólki,“ sagði
Steingrímur J.
Sigfússon,
fjármálaráðherra
og form. VG, í
ávarpi á fund-
inum, skv. heim-
ildum blaðsins. Hann gaf kost á
stuttu viðtali í gærkvöldi og sagð-
ist þá hafa rætt jákvæð teikn í
efnahagsmálum í ávarpi sínu. „Ég
held að við ættum að láta það
eftir okkur að gleðjast yfir bata-
merkjunum sem við sjáum,“
sagði Steingrímur og bætti því
við að flokksmenn væru einhuga í
stuðningi við stjórnina.
„Eignabruni“
FAGNA BERI BATAMERKJUM
Steingrímur
J. Sigfússon
Sigurgeir
Sindri
Sigurgeirsson