Morgunblaðið - 21.05.2011, Síða 6

Morgunblaðið - 21.05.2011, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011 BAKSVIÐ Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Samkvæmt rannsóknarskýrslu sem kemur út í dag um samanburð á nor- rænum háskólastofnunum er ljóst að Íslendingar mega vel við una í þeim efnum. Þrátt fyrir smæð íslenskra háskólastofnana á norrænan mæli- kvarða koma þær vel út úr sam- anburði við háskólastofnanir á hinum Norðurlöndunum, það er í Dan- mörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Sérstaklega á það við um Landspít- alann sem stendur, samkvæmt skýrslunni, öllum öðrum háskóla- sjúkrahúsum á Norðurlöndum, sem skýrslan tekur til, framar hvað varð- ar birtingar á rannsóknarnið- urstöðum og hversu mikið er vitnað til þeirra. Skýrslan er gefin út af Rannsókn- arráði Norðurlanda (NordForsk) meðal annars í samstarfi við Rann- sóknamiðstöð Íslands (Rannís) og nær til samtals 63 háskólastofnana á Norðurlöndunum, þar af 40 háskóla og 23 háskólasjúkrahúsa. Á Íslandi var horft til þriggja háskólastofnana; Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri auk Landspítalans. Aðferðafræðin sem lögð var til grundvallar samanburðinum byggist á fjölda birtra rannsóknarnið- urstaðna og ennfremur hversu mikið aðrir fræðimenn hafi vitnað til þeirra í sínum eigin verkum. Miðað var við fræðasvið önnur en félagsvísindi og hugvísindi að sálfræði undanskilinni. Við val á háskólastofnunum sem bornar voru saman var horft til þeirra stofnana sem skoruðu hæst á þeim mælikvarða á árunum 2005- 2009. Þó var gerð undantekning í þeim efnum í tilfelli Íslands þar sem miðað var við lægra skor einkum vegna þess að hérlendar há- skólastofnanir eru almennt töluvert minni en helstu háskólastofnanir á hinum Norðurlöndunum. Landspítalinn með forystu Í skýrslunni segir að Landspít- alinn hafi hæst hlutfall tilvitnana af þeim háskólasjúkrahúsum sem skýrslan taki til. Það sé ekki í sam- ræmi við dæmigerða frammistöðu minni háskólastofnana þar sem heild- arframmistaðan í rannsóknum bygg- ist yfirleitt einkum á fáum rann- sóknum sem mjög mikið sé vitnað til. Í tilfelli Landspítalans sé hins vegar um að ræða umtalsvert margar birt- ar rannsóknir sem mikið sé vitnað til. Á það við um bæði tímabilin sem skoðuð eru, 2000-2004 og 2005-2009. Þá kemur einnig fram að veruleg aukning hafi einnig orðið í birtingu rannsóknarniðurstaðna á vegum Há- skóla Íslands á milli þessara tveggja tímabila. Hins vegar hafi reynst erf- iðara að meta frammistöðu Háskól- ans í Reykjavík og Háskólans á Ak- ureyri þar sem fjöldi birtra rannsókna og tilvitnana í þær hafi verið of lítill. Ástæðan fyrir því mun einkum vera sú að við vinnslu skýrsl- unnar hafi ekki verið tiltækar nægi- lega nýjar upplýsingar um þessa skóla samkvæmt upplýsingum frá Rannís. Aukningin mest á Íslandi Fram kemur í skýrslunni að þegar Norðurlöndin fimm eru borin saman komi í ljós að flestar rannsóknarnið- urstöður séu birtar af sænskum há- skólastofnunum eða um 42,5% af heildarfjöldra birtra niðurstaðna á tímabilinu 2005-2009. Næst á eftir komi Danmörk með 22,3% hlutdeild og Finnland með 19,8% af heild- arfjöldanum. Noregur sé hins vegar með 14,4% hlutdeild og Ísland með langminnsta eða 0,9%. Samtals sé hlutdeild norrænu háskólastofn- ananna sem teknar séu til skoðunar í skýrslunni 2,3% af heildarfjölda birtra rannsóknaniðurstaðna í heim- inum á umræddu tímabili 2005-2009. Hins vegar kemur fram að birtum rannsóknaniðurstöðum hjá há- skólastofnunum í Svíþjóð og Finn- landi hafi lítið fjölgað en á sama tíma hafi orðið umtalsverð fjölgun í Nor- egi og á Íslandi. Fram kemur í skýrslunni að aukningin í þeim efn- um hafi verið mest hér á landi á milli þeirra tveggja tímabila sem skoðuð eru. Þannig hafi aukningin verið um 49% og mun meiri en hjá hinum Norðurlöndunum. Næst á eftir Íslandi kemur Noregur með 35%, þá Dan- mörk með 13% og síðan Finnland með 6%. Svíþjóð rekur síðan lestina þar sem 4% fjölgun varð á birtum rannsóknanið- urstöðum á milli tímabil- anna 2000- 2004 og 2005-2009. Komum vel út í samanburði á norrænum háskólum  Vísindastarf Landspítalans öflugt í samanburði norrænna háskólasjúkrahúsa Morgunblaðið/Júlíus Vísindi Mikið og öflugt vísindastarf er unnið á vegum Landspítalans. „Þetta endurspeglar að vissu leyti þróunina í háskólunum. Ísland hef- ur alltaf verið talið búa við góðan vísindagrunn. Hann hefur kannski ekki verið stór en hann er góður,“ segir Þorvaldur Finnbjörnsson, sviðstjóri greiningarsviðs hjá Rannís. Hann segir að til að mynda megi benda á jarðfræði sem dæmi um svið þar sem íslenskir vís- indamenn hafi haft sterka stöðu og í raun verið á meðal þeirra fremstu. Þorvaldur segir að aðferða- fræðin sem notuð sé við gerð skýrslu NordForsk hafi verið að ryðja sér talsvert til rúms þegar reynt er að leggja mat á ár- angur af vísinda- starfi og áhrif þess á vísindaþróun og sé sennilega besta aðferðin til þess sem notuð sé í dag í þeim efnum. Þar sé litið til þess að birt- ing rannsóknaniðurstaðna segi meðal annars til um virkni rann- sókna og það hversu oft sé vitnað til þeirra sé vísbending um gæði þeirra. Þorsteinn segir ánægjulegt að sjá hversu vel einkum Landspít- alinn og Háskóli Íslands komi út úr samanburðinum. „Ég hefði hins vegar gjarnan viljað að nýrri tölur hefðu til að mynda legið fyrir varð- andi Háskólann í Reykjavík enda er þar heilmikil gróska.“ Hann segir þó ljóst að rannsóknahópurinn sem unnið hafi skýrsluna nú muni starfa áfram og vafalítið taka þessi mál aftur til skoðunar. Gæði og virkni rannsókna ÞORVALDUR FINNBJÖRNSSON, SVIÐSSTJÓRI HJÁ RANNÍS Þorvaldur Finnbjörnsson Útgáfa á völdum norrænum Háskólastofnunum Tímabil Tímabil Hlutfall af heildarútgáfu Aukning 2000-2004 2005-2009 í heiminum 2005-2009 Danmörk 22.915 25.973 0,52% 13% Finnland 21.811 23.135 0,46% 6% Ísland 721 1.075 0,02% 49% Noregur 12.485 16.844 0,33% 35% Svíþjóð 47.766 49.548 0,98% 4% Samtals 105.699 116.575 0,95% 10% Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við höfum verið veðurtepptir í Höfn í nokkra daga en reiknum með að ljúka ferðinni í júlílok eða í ágústbyrjun. Við höfum róið lengra að meðaltali á hverjum degi en við áætluðum áður en við ýttum úr vör. Við reiknuðum með að okkur tækist að róa um 20 km á dag. Okkur telst hins vegar til að þetta sé um 31 km á dag. Þá á ég við dagana þegar okkur tekst að róa,“ segir suðurafr- íski ofurhuginn Riaan Manser um för þeirra félaganna Dans Skinstads á tvöföldum kajak umhverfis Ísland. „Veðrið er stærsta vandamálið. Marga daga höfum við þurft að koma á land,“ segir Manser en Dan stríðir við væga CP-heilalömun. Segir Manser dugnað og harð- fylgni Skinstads hafa orðið mörgum að innblæstri en talsverður fjöldi fólks víða um heim fylgist með róðr- inum á vefsíðu þess fyrrnefnda. Félagarnir eiga nú suðurströnd- ina eftir en hún er erfiðasti hjallinn. Þar er fátt um góðar lendingar og brimið óvægið. Brimskaflarnir ná stundum marga kílómetra á haf út. Spot-kerfið hætti að virka Spurður hvort þeir hafi lent í kröppum sjó rifjar Manser upp sögu frá Langanesi. „Róður í brim- inu var eins og í þvottavél,“ segir Manser og hlær. Hann upplýsir svo að spot-tæki, kerfi sem gerir kleift að fylgjast með förinni í rauntíma á vefnum, hafi ekki virkað sem skyldi. Nú sé það að lagast við suður- ströndina. Brimið við Langanes „eins og þvottavél“  Suðurafrískir ævintýramenn róa umhverfis landið Róður Riaan og Dan við Húsavík.                           !" # ! $  %  & " „Pólitískt vald til að deila og drottna í atvinnulífinu er eitthvað sem stjórn VM taldi að væri liðin tíð og fullreynt með skelfilegum afleiðingum,“ segir í ályktun stjórnar Félags vélstjóra og málmtæknimanna vegna fyrir- hugaðra breytinga á lögum um stjórn fiskveiða. Ályktunin er harð- orð og það meðal annars gagnrýnt að verið sé að breyta sjávarútvegi í „at- vinnubótavinnu“. Með fyrirhuguðum breytingum sé verið að taka störf af félagsmönnum og færa öðrum. Stjórn Farmanna- og fiskimanna- sambands Íslands sendi einnig frá sér ályktun þar sem segir að svo virðist sem markmið stjórnvalda sé að rýra kjör atvinnusjómanna og hygla „tómstundafiskimönnum“. Árni Bjarnason, formaður sam- bandsins, segir hinn viðvarandi vanda vera þann að leyfilegt afla- magn sé ekki nóg til þess að allir sem vilji hafa lifibrauð af fiskveiðum geti það. „Við verðum að reyna að hafa þetta þannig að þjóðarbúið í heild hafi arð af [sjávarútvegi], sem skilar sér út í þjóðfélagið sem víðast,“ segir Árni. Uppgrip hjá smábátaveiði- mönnum á einum stað geti haft það í för með sér að áhöfn annars staðar af landinu, sem hafi fiskveiðar að að- alstarfi, mæli göturnar. Kalla á deilur og átök Samtök atvinnulífsins, Landssam- band íslenskra útvegsmanna og Samtök fiskvinnslustöðva sendu frá sér sameiginlega umsögn um frum- vörpin. Þar er fundið að fjölmörgum þáttum hinna fyrirhuguðu breyt- inga, meðal annars hækkun veiði- gjalds sem geti í vissum tilvikum leitt til skattlagningar á taprekstur. Þá lýsa samtökin í sameiningu yfir áhyggjum af því að ekkert mat hafi verið lagt á hugsanlegar afleiðingar ákvæða frumvarpanna. Þau muni þvert á móti kalla fram „deilur og átök á komandi árum“. Deila hart á kvóta- frumvörp  Útvegur verður að „atvinnubótavinnu“ Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson Á sjó Atvinnusjómenn eru uggandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.