Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
Forysta ríkisstjórnarinnar villgjarna stilla málum þannig
upp að einungis stórútgerðir innan
LÍÚ mótmæli sjávarútvegs-
frumvörpunum nýju. Þetta er víðs
fjarri raunveru-
leikanum.
Landsambandsmábátaeig-
enda mótmælti
nýrri stefnumótun
stjórnvalda harð-
lega með ályktun í vikunni, þar sem
lýst var miklum vonbrigðum með
fyrirhugaða lagasetningu. Í álykt-
uninni var til dæmis bent á að
„stóra frumvarpið“ gengi gegn
stjórnarsáttmála ríkisstjórn-
arinnar, þar sem segði að afar mik-
ilvægt væri að skapa greininni
bestu rekstrarskilyrði sem völ væri
á og treysta þannig rekstr-
argrundvöllinn til langs tíma.
Smábátasjómenn benda einnig áað með frumvarpinu blasi við
að smábátaútgerðirnar muni eiga
enn erfiðara með að glíma við
rekstrarumhverfið.
Einyrkjar í sjávarútvegi hafaeinnig mótmælt harðlega. Í
Fiskifréttum er talað við Jónas Jó-
hannsson, skipstjóra og útgerð-
armann á Geir ÞH frá Þórshöfn,
sem segir að það verði „svartur
dagur ef og þegar frumvarpið verð-
ur samþykkt. Bankahrunið var
hryllilegt en þetta frumvarp er
miklu þyngra högg fyrir okkur.“
Og ekki má gleyma mótmælumsjómanna. Farmanna- og fiski-
mannasamband Íslands hefur sam-
þykkt ályktun þar sem frumvörp-
unum er mótmælt og bent á að þau
leiði til verri afkomu þeirra sem
hafi fiskveiðar að aðalstarfi. „Efni
frumvarpanna er óravegu frá því
samkomulagi sem varð niðurstaða
svokallaðrar sáttanefndar s.l. sum-
ar,“ segir í ályktuninni.
Þyngra högg en
bankahrunið
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.5., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Bolungarvík -1 snjókoma
Akureyri 1 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 9 skýjað
Vestmannaeyjar 6 skýjað
Nuuk 2 léttskýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 12 skýjað
Kaupmannahöfn 15 léttskýjað
Stokkhólmur 17 heiðskírt
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 18 skýjað
Brussel 20 léttskýjað
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 10 léttskýjað
London 17 heiðskírt
París 20 skýjað
Amsterdam 17 heiðskírt
Hamborg 18 léttskýjað
Berlín 23 heiðskírt
Vín 25 skýjað
Moskva 22 heiðskírt
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 22 léttskýjað
Winnipeg 23 alskýjað
Montreal 21 alskýjað
New York 15 skúrir
Chicago 20 heiðskírt
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:54 22:55
ÍSAFJÖRÐUR 3:29 23:31
SIGLUFJÖRÐUR 3:11 23:15
DJÚPIVOGUR 3:17 22:32
Tónleikar til styrktar Sigrúnu Láru Kjart-
ansdóttur, sjö mánaða stúlku sem berst við
sjaldgæft krabbamein, verða haldnir á KEX
Hostel, Skúlagötu 28, sunnudaginn 22. maí.
Þar koma fram þau Þórir Baldursson, Raggi
Bjarna, Bogomil Font, Jóhanna Guðrún,
Bloodgroup og Ragnheiður Gröndal. Listamenn-
irnir gefa allir vinnu sína. Einnig verða seldar
veitingar fyrir börn og fullorðna.
Sigrún Lára Kjartansdóttir er ekki nema sjö
mánaða gömul og dóttir þeirra Kjartans Páls
Sveinssonar og Phoebe Jenkins.
Fyrir tveimur mánuðum greindist hún með
sjaldgæfa tegund af krabbameini, Ewing’s Sar-
coma, og hefur það breiðst út, að því er segir í
fréttatilkynningu. Sigrún Lára er í strangri
lyfjameðferð á Great Ormond Street Hospital í
London. Hún þarf mikla umönnun og hefur fjöl-
skylda Sigrúnar Láru orðið fyrir mikilli tekju-
skerðingu.
Styrktartónleikarnir hefjast klukkan 15.00 og
standa til klukkan 17.00 á sunnudag. Aðgang-
urinn kostar 1.500 kr. og verða miðar seldir við
innganginn. Andvirði miða og seldra veitinga
rennur óskipt í styrktarsjóð Sigrúnar Láru.
Einnig geta velunnarar styrkt söfnunina með því
að leggja frjáls framlög á reikning 0301-13-
193508, kt. 280477-4359.
Sungið fyrir Sigrúnu Láru
Styrkur Styrktartónleikar fyrir Sigrúnu Láru
Kjartansdóttur verða haldnir á morgun.
Er sjö mánaða gömul og glímir við krabbamein
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Fyrstu tvö bindi Sögu Akraness,
sem Gunnlaugur Haraldsson ritaði,
litu dagsins ljós í vikunni, en vinna
við ritun sögunnar hefur staðið yfir í
fjölda ára. Þá er kostnaður vegna
verkefnisins kominn yfir hundrað
milljónir króna og þykir mörgum vel
í lagt. Enn er óráðið hvenær síðari
bindin tvö verða gefin út.
Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri
Akraneskaupstaðar, segir kostnað-
inn vissulega mikinn, en lítur á
björtu hliðarnar og segir sér skapi
næst að lýsa bókinni sem stórvirki.
Söguritunin sé eitthvað sem Akra-
nes muni búa að. „Ef það er hægt að
skrifa svona um eitthvert samfélag
hlýtur að vera mikið í það spunnið,
djúpar rætur og mikil menning,“
segir Árni. Gríðarleg heimildaöflun
búi að baki rituninni og í þann brunn
geti fræðimenn sótt í framtíðinni.
Fyrstu tvö bindin eru í það heila
1.100 síður í stóru broti. Bókaútgáf-
an Uppheimar gefur söguna út, en
hvort bindi fyrir
sig kostar 12.900
krónur á tilboðs-
verði, og hægt að
festa kaup á
fyrstu tveimur
bindunum saman
á 21.900 krónur,
sem einnig er til-
boðsverð. Þá er
boðið upp á að
kaupa bækurnar
með raðgreiðslusamningi.
Sjálfur segist Árni hafa fest kaup
á bókunum um leið og það stóð til
boða. Hann leggur áherslu á að með
sögurituninni sé ekki tjaldað til einn-
ar nætur og að vonin sé sú að bæk-
urnar hafi sem víðasta skírskotun.
„Ég kom með bækurnar heim og
ætlaði að fletta þeim, en áður en ég
vissi af voru krakkarnir mínir komn-
ir á axlirnar og ég fékk ekki frið fyrir
þeim. Þetta segir mér að ritið muni
höfða til fleiri en gamalla Skaga-
manna og að það sé áhugavert, sem
er kannski mikilvægast fyrir ung-
mennin,“ segir Árni.
Saga Akraness
á raðgreiðslum
Bæjarstjóri kátur þrátt fyrir kostnað
Árni Múli Jónasson