Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
Hafðu samband við okkur í síma 444 7000, á arionbanki.is
eða komdu í næsta útibú. Við tökum vel á móti þér.
ÍS
LE
NS
KA
SI
A.
IS
AR
I5
49
16
05
/1
1
Ný íbúðalán
Hvað skiptir þig máli?
Það skiptir máli að geta fengið íbúðalán
á góðum kjörum. Þess vegna bjóðum við
hjá Arion banka viðskiptavinum okkar
ný íbúðalán.
Um er að ræða verðtryggð íbúðalán
með föstum 4,3% vöxtum í 25 eða 40 ár.
Komdu við í næsta útibúi eða reiknaðu
þitt dæmi á arionbanki.is.
Sigríður Dögg Arnardóttir
28 ára
„Það skiptir máli að hafa
aðgang að íbúðalánum
á hagstæðum kjörum.“
4,3%
„Að geta boðið
vinum mínum
í eftirminnileg
matarboð.“
„Að heimilið
mitt endur-
spegli það
hver ég er.“
„Að bankinn
minn vinni
með mér að
markmiðum
mínum.“
„Að geta ferðast
til framandi
landa til að
upplifa eitthvað
alveg nýtt.“
Flúormælingar í kjálkum sauðfjár í
Hvalfirði fyrir árið 2010 sýndu, að
öll sýni frá 12 bæjum, sem fé var
rannsakað frá, reyndust vera tals-
vert yfir viðmiðunarmörkum.
Þetta kemur fram á vef Kjósar-
hrepps, sem segir að uppsprettu
flúors megi fyrst og fremst rekja til
álversins á Grundartanga þó aðrir
þættir geti haft þar áhrif.
Segir hreppurinn, að marktæk
hækkun hafi orðið frá því álverið
tók til starfa en samkvæmt um-
hverfisvöktunarskýrslu fyrir árið
2010 hafi ekki orðið marktækar
breytingar frá 2007.
Flúor safnast upp í beinum gras-
bíta og hefur því tilhneigingu til að
aukast með hækkun aldurs. Á sjö
bæjum hafi meðalstyrkur flúors í
beinösku kinda mælst yfir mörkum
þar sem talin sé hætta á tann-
skemmdum og að meðaltali reynd-
ust öll sýnin frá bæjunum 12 sem
rannsakað er frá vera talsvert yfir
þessum mörkum. Sýni úr slátur-
lömbum hafi hinsvegar verið vel
undir mörkum
Flúor yfir
viðmiðun-
armörkum
Öll sýni frá 12 bæjum
reyndust yfir mörkum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grundartangi Álver Norðuráls.
Fjöldi umsókna um sumarstörf hjá
Kirkjugörðum Reykjavíkurprófasts-
dæma (KGRP) fækkaði nokkuð frá
fyrra ári. Alls sóttu 718 ungmenni á
aldrinum 17 til 25 ára um störf í ár en
umsóknir voru 805 á síðasta ári.
Líkt og ávallt á sumrin verða 17 til
25 ára ungmenni ráðin til umhirðu-
starfa í þeim fimm kirkjugörðum
sem eru í umsjón KGRP, þ.e. Foss-
vogskirkjugarði, Gufuneskirkju-
garði, Kópavogskirkjugarði, Hóla-
vallagarði við Suðurgötu og
Viðeyjarkirkjugarði.
Í ár voru um 150 ungmenni ráðin
til starfa en það er 10% færri en á
síðasta ári og að sögn Þórsteins
Ragnarssonar, forstjóra KGRP, má
rekja fækkun starfsfólks til tekju-
skerðingar vegna aðhalds í ríkisfjár-
málum.
Athyglisverð þróun hefur verið í
fjölda umsókna frá aldamótum. Til
að mynda bárust að meðaltali 687
umsóknir á árunum 2003 til 2005.
Þensluárin 2006 til 2008 dró hins
vegar verulega úr umsóknum og
bárust að meðaltali 333 umsóknir.
Aðeins varð vart við aukningu árið
2008 þegar 360 umsóknir bárust en
sprenging varð árið 2009 þegar 946
einstaklingar sóttu um sumarstörf.
Af einhverjum völdum hefur svo að-
eins dregið úr fjölda umsókna þó svo
að umsóknarfjöldi sé enn langt yfir
meðaltali. andri@mbl.is
Umsóknum fækkar milli ára
Morgunblaðið/G.Rúnar
Umhirða Ásókn í sumarstörf við umhirðu í kirkjugörðum hefur verið mikil.
Heldur færri sækja um umhirðustörf í kirkjugörðum
Fjöldinn þó mun meiri en á þensluárunum 2006-2008
Hundaeftirlit Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur minnir á að hundar
skulu án undantekninga vera í taumi
á borgarlandinu. Talsvert hefur ver-
ið kvartað yfir að hundeigendur fari
ekki eftir þessum reglum og að
óþægindi, hræðsla og jafnvel hætta
skapast af þeim sökum.
Hundaeftirlitið vill ennfremur
minna á að bannað er að vera með
hunda á ylströndinni í Nauthólsvík,
á hólmunum í Elliðaárdal og við
bakka Elliðaánna um laxveiðitím-
ann. Þá er óheimilt er að hleypa
hundum á sund í Elliðaám á laxveiði-
tíma.
Kvartað yfir
því að hundar
séu taumlausir