Morgunblaðið - 21.05.2011, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.05.2011, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011 Viðskipti Íslands og Kína Hver er staðan í Kína? Hvar liggja tækifærin? Hvað gerist þegar Norðursiglingaleiðin opnast? Í tilefni af 40 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Kína stendur Íslensk kínverska viðskiptaráðið fyrir ráðstefnu um viðskiptatengsl Íslands og Kína, fimmtudaginn 26. maí, kl. 14-17 á 20. hæð Turninum Smáratorgi. Opnunarávörp: Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Dr. Su Ge, Sendiherra Kína á Íslandi Aðalerindi: Kjeld Erik Brødsgaard, Prófessor við Copenhagen Business Scool. "The political and economic consequences of China's integration into the global economy - background and perspectives." Húni Heiðar Hallsson, Heimskautalögfræðingur. ,,Ísland í lykilhlutverki í samgönguneti framtíðar.“ Aðrir mælendur: Vala Valtýsdóttir, Deloitte. Magnús Oddsson, Össur hf. Kjartan Pierre Emilsson, CCP. Magnús Björnsson, sérfræðingur í málefnum Kína. Fundarstjóri: Elín Björg Ragnarsdóttir, verkefnastjóri ÍKV. Skráning með tölvupósti á ift@ift.is eða í síma 588 8910. Enginn aðgangseyrir! Samstarfsaðilar: Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Í nýju frumvarpi til breytinga á áfengislögum eru reglur um áfeng- isauglýsingar og -kynningar hertar til muna. Auglýsingar á léttöli verða bannaðar með öllu og einu áfengis- auglýsingarnar sem mega sjást hér á landi eru þær sem koma í gegnum erlenda fjölmiðla. Gunnar B. Sigurgeirsson, fram- kvæmdastjóri markaðssviðs hjá Öl- gerðinni, segir að frumvarpið feli í sér mikla mismunun á milli ís- lenskra og erlendra bjórframleið- enda. „Einu undantekningarnar frá fyrirhuguðu auglýsingabanni eru er- lendar áfengisauglýsingar í erlend- um dagblöðum, tímaritum og á er- lendum sjónvarpsstöðvum, til að mynda í útsendingum frá íþróttavið- burðum. Erlendir áfengisframleið- endur munu því hafa greiðan aðgang að íslenskum neytendum á meðan ís- lenskir samkeppnisaðilar þeirra hafa það ekki.“ Full virðing fyrir lögum „Við berum fulla virðingu fyrir lögunum og fylgjum þeim og enginn vill að fólk undir lögaldri neyti áfengis,“ heldur Gunnar áfram. „En það hlýtur að vera hægt að finna raunhæfari leið til að ná þeim mark- miðum án þess að bregða fæti fyrir íslenskan iðnað eins og gert er með frumvarpinu.“ Að mati Gunnars munu lögin hefta mjög samkeppni á Íslandi taki þau gildi, fyrst og fremst milli inn- lendra og erlendra bjórframleið- enda. „Mikið fé og tími fer í vöruþró- un, en ef frumvarpið verður að lögum verður engin leið fyrir bjór- framleiðendur að kynna nýjar vörur fyrir neytendum. Það er ekki hægt að treysta á að fréttamiðlar segi af því frétt í hvert sinn sem ný bjórteg- und kemur á markað.“ Þá segir hann að lögin muni gera þeim mjög erfitt fyrir sem ætla að stofna ný brugghús eða fara í aðra áfengis- framleiðslu. „Þegar ómögulegt verð- ur að kynna vörur fyrirtækisins er erfitt að sjá að það geti með nokkru móti komist almennilega á lappirn- ar. Það er dapurlegt að verið sé að hamla samkeppni með þessum hætti.“ Gunnar segir að verði frumvarpið að lögum verði Ísland með ströng- ustu áfengislöggjöf á Vesturlöndum. „Þegar við tökum saman skattlagn- ingu, aðgengi almennings að áfengi og auglýsingar þá verðum við með ströngustu löggjöfina. Norðmenn eru vissulega með mjög stranga lög- gjöf hvað varðar áfengisauglýsingar, en þeir leyfa þó bjórsölu í matvæla- verslunum. En aðallega skil ég ekki hvernig innanríkisráðuneytið hefur komist að þeirri niðurstöðu að al- gjört bann við því að Íslendingar sjái umræðu um íslenskan bjór dragi úr skaðlegum afleiðingum áfengisneyslu, á meðan þeir mega á sama tíma sjá eins mikið og þá lystir af auglýsingum á erlendum bjór.“ Gunnar ítrekar að hvorki Ölgerð- in né aðrir áfengisframleiðendur eða heildsalar séu á móti raunhæfri lög- gjöf í þessum efnum, en algert bann við áfengisauglýsingum og -kynn- ingum gangi einfaldlega ekki upp. Auglýsingar á vefsíðum Meðal fárra undantekninga frá auglýsingabanninu, sem tilgreindar eru í frumvarpinu, eru verð- og vöruupplýsingar á vefsíðu ÁTVR. Lögfræðingar, sem Morgunblaðið ræddi við, segja að hugsanlega megi álykta af þessari undantekningu með hliðsjón af lagagreininni allri að framleiðendum verði bannað að birta myndir og upplýsingar um eig- in framleiðslu á eigin vefsíðum. Gunnar segist ekki geta sagt til um hvort þessi túlkun sé rétt, en af- ar mikilvægt sé að reglurnar séu skýrar. „Við viljum ekki brjóta lög, en við verðum þá að fá að vita hver lögin eru. Með frumvarpinu er Neytendastofu fært vald til að sekta fyrirtæki um allt að 10 milljónir króna fyrir brot á lögunum. En hver ætlar að veita leiðbeiningar og setja nánari reglur? Ætlar Neytendastofa að vara við áður en hún sektar, eða munu fyrirtæki verða sektuð fyrir- varalaust og án þess að þau fái tæki- færi til að laga það sem laga þarf? En fyrst og fremst sé ég ekki til- ganginn með þessu auglýsingabanni og tel því skynsamlegast að frum- varpið verði dregið til baka og leitað raunhæfari leiða í þessum efnum.“ Áfengisframleiðendum mismunað  Bann við áfengisauglýsingum verður hert mjög samkvæmt nýju frumvarpi  Auglýsingar á léttöli verða bannaðar nema að uppfylltum skilyrðum  Framleiðendur segja að mismunað sé eftir þjóðerni Morgunblaðið/Árni Sæberg Áfengi Með frumvarpinu er bann við áfengisauglýsingum hert enn. Árið 2009 skipaði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, starfshóp sem átti að vinna að heildarendurskoðun á áfengis- löggjöfinni. Hópurinn skilaði niðurstöðum sínum í janúar í fyrra og meðal tillagna hópsins var að áfengisauglýsingar yrðu leyfðar með takmörkunum í stíl við það sem gerist annars staðar á Norðurlöndum, enda hafi sýnt sig að ómögulegt sé að framfylgja núgildandi lög- um. Þessar tillögur mættu harðri andstöðu hagsmunaaðila, sem töldu réttara að herða enn frekar bann við áfengisauglýs- ingum og er útlit fyrir að and- mæli þessara aðila hafi vegið þyngra en álit starfshópsins ef tekið er mið af því frumvarpi sem nú liggur fyrir. Starfshópurinn gerði aðrar tillögur, til dæmis að áfengis- verð yrði hækkað enn meira með frekari skattlagningu til að stýra neyslu á áfengi í sam- ræmi við stefnu stjórnvalda. Gengið gegn tillögum starfshóps ÁFENGISAUGLÝSINGAR Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Verði frumvarp fjármálaráðherra um ráðstafanir í ríkisfjármálum að lögum mun heimild ferðamanna til kaupa á áfengi í fríhöfnum verða aukin frá því sem nú er. Breyting- artillagan felur í sér að ferðamönn- um verði heimilt að kaupa meiri bjór en þeir hafa mátt hingað til. Ásta Dís Óladóttir, framkvæmda- stjóri Fríhafnarinnar, segir að í raun megi líta á breytinguna sem nokkurs konar leiðréttingu, því við- bótin sé ekki svo mikil. „Það sem gerist þarna líka er að það verður væntanlega tilfærsla í sölu, fólk sleppir kannski léttvíni og tekur meiri bjór,“ segir hún í svari við fyr- irspurn Morgunblaðsins. „Hingað til hefur aldrei verið leyft að taka kassa af bjór, jafnvel þótt fólk væri ekki að kaupa neitt annað áfengi, en verði þetta að veruleika þá munu fleiri væntanlega fara þá leið, sem er jákvætt fyrir ís- lenska framleiðendur á öli.“ Ásta segir að mjög gróflega áætl- að komi Fríhöfnin til með að hafa kannski um 65 milljónir upp úr þessu á ársgrundvelli, en mjög erfitt sé að segja til um það eins og staðan sé í dag. „Okkar markmið er að selja meira af bjór og þá sérstaklega inn- lendum bjór sem vonandi er þá já- kvætt fyrir íslenska framleiðendur og birgja.“ Frumvarpið gerir ráð fyrir að ferðamenn megi taka til viðbótar við núverandi heimild sex til níu lítra af öli. Þá er lagt til að nýr valmöguleiki komi til þar sem heimilt verði að kaupa einungis öl, samtals tólf lítra. Ennfremur er gerð tillaga um að flugáhafnir fái samskonar heimildir. Í greinargerð með frumvarpinu segir að gera megi ráð fyrir að sala ÁTVR muni dragast eitthvað saman í kjölfarið. Þannig er gert ráð fyrir að skatttekjur ríkissjóðs í formi vörugjalda af áfengi lækki og að heildaráhrifin á afkomu ríkissjóðs verði neikvæð um 100-150 milljónir á ársgrundvelli. Tekjur aukast um 65 milljónir  Ferðamenn mega kaupa meiri bjór Morgunblaðið/Golli Lagafrumvarp Heimild til bjórkaupa í Fríhöfninni verður aukin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.