Morgunblaðið - 21.05.2011, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
John Magnusson jr. heitir hann í
Bandaríkjunum en á Íslandi er
hann Jón Magnússon, sem fæddist
á Landspítalanum í Reykjavík 26.
ágúst 1956 og flutti til Bandaríkj-
anna með fjölskyldunni þegar hann
var þriggja ára. Foreldrar hans voru
Edda Svava Stefánsdóttir og John
Swanholm Magnusson, vélaverk-
fræðingur hjá bandaríska ríkinu.
Afi og amma Jóns í föðurætt voru
Margrét Guðmundsdóttir frá Hrís-
ey og Gunnar Magnússon úr Svarf-
aðardal. „Afi tók sér millinafnið
Swanholm þegar hann vann á nor-
rænu fraktskipi til þess að falla
betur inn í hópinn,“ segir Jón. „Fyr-
ir skömmu hitti ég sænska flug-
freyju, hún leit á nafnspjaldið mitt
og spurði: „Swanholm. Ertu frá Sví-
þjóð eða Noregi“?“
Foreldrar Eddu Svövu, sem ólst
upp í Vesturbæ Reykjavíkur, voru
Stefán Ólafur Björnsson, sem ólst
upp á Laufási í Eyjafirði, og Kristín
María Kristinsdóttir, starfsmaður
Landsbankans. „Amma vann í
bankanum í um 40 ár og var fyrsta
konan til að verða þar deildarstjóri
auk þess sem hún var formaður
starfsmannafélagsins um tíma.
Hún var mikill Reykvíkingur og
þegar við fórum hringferð um land-
ið 1974 spurði hún stöðugt um
veðrið í Reykjavík. Annað skipti
ekki máli.“
Veðrið í Reykjavík skiptir öllu
JÓN SWANHOLM MAGNÚSSON YNGRI
VIÐTAL
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Í byrjun næsta mánaðar, nánar til-
tekið að morgni 2. júní, verður brot-
ið blað í flugsögu bandaríska flug-
risans Delta með beinu
áætlunarflugi milli New York og
Keflavíkur. Flugstjóri í fyrstu ferð-
inni verður Íslendingurinn og Vest-
ur-Íslendingurinn Jón Swanholm
Magnússon yngri.
„Þetta er stórt skref hjá Delta en
enn meiri áfangi hjá mér,“ segir Jón
sem segist hafa óskað eftir í tölvu-
pósti til Richard Andersons, yf-
irmanns Delta, að vera flugstjóri í
fyrstu ferðinni. „Ég rakti ferilinn,
tengslin við Ísland og klykkti út
með því að segja að ég væri góður í
íslensku. Það hefur sennilega gert
gæfumuninn,“ segir hann og brosir
sínu breiðasta. Bætir við að hann
hafi líka sent yfirflugstjóranum
tölvupóst um málið og svarið hafi
verið jákvætt: „Við setjum þig á
fyrsta flugið.“
Loftleiðir inni í myndinni
Erlendir flugmenn ganga ekki að
störfum vísum hjá bandarískum
flugfélögum. Eftir að Jón hafði verið
flugmaður í bandaríska sjóhernum í
sjö ár hvarflaði að honum að sækja
um starf hjá Loftleiðum 1985. „Á
sama tíma voru mörg störf í boði í
Bandaríkjunum og ég fékk starf hjá
Northwest Airlines,“ rifjar hann
upp. Við sameiningu Delta og Nort-
hwest fyrir nokkrum árum hélt Jón
stöðu sinni, en af um 12.000 flug-
mönnum eru um 10.000 með minni
starfsreynslu en Jón. Hann flýgur
einkum á milli stórborga í Banda-
ríkjunum en einnig til Asíu frá vest-
urströndinni og til Amsterdam og
Parísar frá Minneapolis.
„Mér finnst skemmtilegast að
fljúga til Evrópu en það er líka gam-
an að fljúga til Alaska, því þar er
mjög fallegt og fjöllin og jöklarnir
minna á Ísland. Mig hefur alltaf
langað að fljúga til Íslands, ekki síst
vegna þess að ég lærði að fljúga hjá
Flugtaki þegar ég var sendill hjá
Landsbankanum. Þá flaug ég með
frændfólk í útsýnisflug frá Reykja-
vík og 1976 fór Kristín amma með
til Keflavíkur þar sem ég snertilenti
og sneri svo til baka. Þá kannaði ég
hvað þyrfti mikið bensín á eins
hreyfils vél til þess að fljúga frá Ís-
landi til Bandaríkjanna og til baka
með millilendingu á Grænlandi og í
Kanada en hafði ekki kjark til þess
að fara þessa löngu leið í svona lítilli
vél. Þegar ég var í sjóhernum var ég
næst Íslandi í Bodö í Noregi en því
miður bauðst mér ekki að fljúga
herþotu og kafbátaleitarvél til Ís-
lands. Samt hét hún Viking eða Vík-
ingur! Það verður því mjög spenn-
andi að ná því loks að lenda stórri
farþegavél í Keflavík.“
Draumurinn á allra vitorði
Jón er vararæðismaður Íslands í
Minneapolis og hefur um árabil ver-
ið mjög virkur í félagsstarfi fólks af
íslenskum ættum í borginni. Fyrir
um átta árum sátum við Jón í eld-
húsi fjölskyldu hans í Apple Valley,
um 40 þúsund manna borg í úthverfi
Minneapolis, þar sem búa um þrjár
milljónir manna, og fórum yfir svið-
ið. Þá dreymdi Jón ekki um að hann
ætti eftir að vera flugstjóri í flugvél
frá Bandaríkjunum til Íslands en
huggaði sig við góðar minningar frá
Reykjavíkurflugvelli. „Mig hefur oft
dreymt um að fljúga til Íslands en
innst inni taldi ég að það myndi
aldrei gerast,“ segir hann nú. „Hins
vegar get ég ekki leynt því að þegar
ég flýg yfir Ísland hugsa ég gjarnan
um hvað væri gaman að lenda í
Keflavík. Keflavík er varaflugvöllur
okkar á leiðinni en vélarnar eru svo
fullkomnar að nauðlending er nán-
ast óþekkt vegna bilana og veikist
farþegi um borð eru yfirleitt læknar
eða hjúkrunarfólk á meðal farþega
og því sjaldan röskun á áætluninni.
Þó kemur fyrir að vél frá okkur
lendir í Keflavík og þá spyrja vinnu-
félagarnir hver annan hvort John
Magnusson hafi verið flugstjóri.“
Meira á Íslandi
Þegar John Magnusson eldri lést
keyptu bræðurnir Jón og Stefán,
sem er bankamaður í New York,
íbúð á Seltjarnarnesi handa móður
þeirra. Hún dó í fyrra en bræðurnir
hafa ákveðið að halda íbúðinni. Auk
þess eiga þeir hlut í sumarhúsi stór-
fjölskyldunnar á Þingvöllum.
Jana, kona Jóns, er frá Virginíu
og eiga þau tvær dætur, Heidi
Kristine og Lauru Suzanne, sem eru
á þrítugsaldri. Jón talar góða ís-
lensku og Jana skilur töluvert í mál-
inu. Jón þakkar það auknum símtöl-
um til Íslands. „Hér áður fyrr var
nánast aldrei hringt á milli landa
enda kostaði 12 dollara að tala í eina
til þrjár mínútur þegar gallonið af
bensíni kostaði 25 sent. Nú er ég
með íslenskt númer í gegnum netið
og því kostar símtalið ekki meira en
símtal á milli húsa í Reykjavík.“
Þau hafa komið reglulega til Ís-
lands undanfarin ár og dvölin á eftir
að lengjast. „Ég má fljúga þar til ég
verð 65 ára en hef hugsað mér að
fara á eftirlaun eitthvað fyrr,“ segir
Jón og bætir við að þangað til verði
fjölskyldan með íslenskan hund til
að minna sig enn betur á tengslin.
„Við vorum með tík sem leit út eins
og eftirmynd af íslenskum hundi en
hún dó í desember. Okkur hefur
alltaf langað í íslenskan hund og
frændi minn fann einn sem við erum
ánægð með og förum með til Banda-
ríkjanna eftir helgi. En þegar ég fer
á eftirlaun er hugmyndin að eyða
meiri tíma á Íslandi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugstjórinn Jón Swanholm Magnússon lærði að fljúga hjá Flugtaki á Reykjavíkurflugvelli á áttunda áratug liðinnar aldar. Síðan hefur draumurinn verið að lenda flugvél á Íslandi.
Hefur oft dreymt um að lenda
í Keflavík á flugi yfir landinu
Jón Swanholm Magnússon verður flugstjóri í fyrsta áætlunarflugi Delta til Íslands í byrjun júní
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Forvígismenn í Minneapolis Margrét „Maddý“ K. Arnar, Jón S. Magn-
ússon ræðismaður, Mary L. Josefson vararæðismaður og Örn Arnar að-
alræðismaður hafa mikið látið til sín taka undanfarna áratugi.