Morgunblaðið - 21.05.2011, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti
í Örlygshöfn verður opnað á ný á
þriðjudag nk. kl.11. Opið verður alla
daga frá kl. 11-19 fram í september,
en kaffiterían verður opin til kl. 20.
Unnið er að uppsetningu á sýn-
ingu um veru franskra sjómanna
hér við land. Þá er breytt og betr-
umbætt veitingaþjónusta. Boðið
verður upp á nestispakka alla daga
auk sjávarréttahlaðborðs um helgar
og hægt að panta grillveislu fyrir
hópa.
Minjasafnið á Hnjóti
Fjölskyldugarðar Reykjavíkur í
Skerjafirði, Laugardal, Fossvogi,
Logafold og Árbæ eru tilbúnir til
ræktunar ásamt matjurtagörðum í
Skammadal sem Reykjavíkurborg
leigir í Mosfellsbæ og hafa verið af-
hentir leigutökum.
Í fréttatilkynningu segir að
Reykjavíkurborg vilji með þessum
hætti koma til móts við þá borgar-
búa sem hafa áhuga á ræktun mat-
jurta í sumar og hafi þessi ný-
breytni fallið í góðan jarðveg.
Borgin mun ekki starfrækja skóla-
garða í sumar.
Nokkrir garðar eru enn lausir í
Árbæ, Breiðholti og Grafarvogi og í
görðum á vegum Garðyrkjufélags
Reykjavíkur. Áhugasamir garð-
ræktendur geta tryggt sér garð
með því að senda póst á netfangið
matjurtagardar@reykjavik.is.
Garðarnir við Jaðarsel í Breiðholti
verða opnaðir eftir helgi.
Tæplega 600 matjurtagarðar eru
víðs vegar um borgina þar sem
Skólagarðar Reykjavíkur voru áður
starfræktir og 200 matjurtagarðar
eru í Skammadal. Leigugjaldið fyr-
ir matjurtagarð sumarið 2011 er
4.600 kr. fyrir garðland í Skamma-
dal (ca. 100 m2), 4.200 kr. fyrir garð
í Fjölskyldugörðunum (ca. 20 m2).
Görðunum er skilað tættum og
merktum. Hægt er að komast í vatn
á öllum stöðunum.
Búið að tæta fjölskyldugarðana í Reykjavík
og þeir eru nú tilbúnir til matjurtaræktunar
Á þriðjudag gerði Skógræktarfélag
Íslands samning við Skeljung um
stuðning við verkefnið Opinn skóg.
Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skelj-
ungs, og Magnús Gunnarsson, for-
maður Skógræktarfélagsins, und-
irrituðu samninginn.
Samningurinn lýtur að víðtækum
stuðningi við skógrækt vegna upp-
byggingar á skógræktarsvæðum
um allt land. Markmið samningsins
er að auka aðgengi og kynningu í
skóglendum með markvissum
hætti. Nú þegar hafa 11 svæði verið
opnuð undir hatti Opinna skóga og
það tólfta verður opnað í sumar að
Fossá í Hvalfirði.
Með samningnum verður tryggð
endurnýjun og viðhald eldri svæða
Opinna skóga og unnið að því að
opna ný svæði og gera þau að fyr-
irmyndar útivistar- og áning-
arstöðum. Meðal annars verður
unnið að uppbyggingu ýmissa inn-
viða, svo sem borða, bekkja, göngu-
stíga, bílastæða, uppsetningu merk-
inga og upplýsingaskilta og
almennri umhirðu.
Skeljungur styrkir
Skógræktarfélagið
Hin árlega vorhátíð Laugarneshverfis verð-
ur haldin í og við Laugarneskirkju á morgun,
sunnudag, kl. 14-16. Það eru hin óformlegu
samtök félaga og stofnana sem bera ábyrgð á
hag ungmenna í hverfinu, Laugarnes á ljúf-
um nótum, sem standa að hátíðinni.
Leikskólabörn hverfisins opna hátíðina
með söng ásamt Barnakór Laugarness og
Skólahljómsveit Austurbæjar leikur ásamt
Rokkbandinu Nýfermda. Þorvaldur Hall-
dórsson söngvari flytur dægurperlur á
kirkjutröppum, hæfileikasýning ungs fólks
verður í safnaðarheimilinu, Jón Páll sér um skákmaraþon, Kór Laugarnes-
kirkju syngur í kirkjuskipi, fótboltaþrautir verða í umsjá Þróttar, dr. Bæk
sér um reiðhjólaþrautir, töframaðurinn Jón Víðis kemur fram, fimleika-
sýning verður á vegum Ármanns, hoppukastali verður í umsjá Blómavals
og skátafélagsins Skjöldunga og foreldrafélög grunnskólanna bjóða upp á
kaffi og pulsugrill.
Vorhátíð Laugarneshverfis
Laugarneskirkja
Aðalfundur SAMFOK, samtaka
foreldra grunnskólabarna í
Reykjavík, var haldinn á þriðju-
dag sl. og urðu mannabreytingar í
stjórn félagsins.
Úr stjórn gengu Andres Zoran
Ivanovic og Þórunn Steindórs-
dóttir eftir fjögurra ára samfellda
stjórnarsetu og voru þeim þökkuð
góð störf. Ný í stjórn voru þá
kjörin Björn M. Sigurjónsson,
Margrét Valgerður Helgadóttir og
Svali Björgvinsson.
Aðrir í stjórn eru Guðrún Valdi-
marsdóttir formaður, Henríetta
Gísladóttir og Þorsteinn Ingi Víg-
lundsson. Varamenn eru Andrea
Margeirsdóttir og Áslaug Björg-
vinsdóttir.
Ný stjórn í SAMFOK
STUTT
Landsbankinn býður
Pizza-Pizza ehf. til sölu
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans hf., hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf
Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í matvælafyrirtækinu
Pizza-Pizza ehf.
Pizza-Pizza ehf. er umboðsaðili Domino’s Pizza International á Íslandi og
rekur 14 sölustaði undir vörumerki Domino’s.
Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem sýnt geta fram á
fjárfestingargetu umfram 300 milljónir króna og hafa þekkingu og reynslu
til að takast á við fjárfestingu af þessari stærð og í þessari atvinnugrein.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um söluferlið, stutta sölukynningu,
trúnaðaryfirlýsingu og upplýsingaeyðublað fjárfesta á vef Landsbankans,
www.landsbankinn.is.
Frestur til að skila óskuldbindandi tilboði rennur út kl. 12:00,
fimmtudaginn 9. júní 2011.
Nánari upplýsingar er að finna á www.landsbankinn.is.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
ÚR BÆJARLÍFINU
Guðrún Vala Elísdóttir
Borgarnes
Ég hef fyrir satt að nú styttist í
að við fáum að sjá nýtt vörumerki í
mjólkurafurðum á markaðnum.
Vesturmjólk sem er hið nýja
mjólkursamlag í Borgarnesi fer
bráðum að láta að sér kveða á
mjólkurmarkaðnum. Það verður
spennandi að sjá hvernig til tekst.
Ekki efast ég um að einhverjir af
þeim mjólkurfræðingum sem enn
búa í Borgarnesi og hafa fengist í
fjölmörg ár við önnur störf, fái smá
fiðring í magann. Borgfirðingar
áttu jú eitt sinn stórt mjólk-
ursamlag, og enn tala menn um að
það hafi verið mestu mistök í borg-
firsku atvinnulífi að leggja það nið-
ur.
Gamla mjólkursamlagshúsið
sem deilur stóðu um í góðærinu og
þáverandi sveitarstjórn vildi láta
rífa, stendur enn, en það var Páll
Björgvinsson arkitekt sem barðist
fyrir því að friða húsið. Það hefur
fengið talsverða yfirhalningu og
hefur það hlutverk að hýsa lista-
menn og listsýningar. Fyrir
skemmstu var þar óvenjuleg sýn-
ing á skófatnaði Borgfirðinga og
sögunni sem þeim tengdust. Ald-
eilis frábær hugmynd sem atvinnu-
leitandi konur stóðu fyrir. Skammt
frá hefur svo Gallerí Gersemi opn-
að með fallega muni til sölu og
sýnis.
Töluvert hefur verið um breyt-
ingar og flutninga á stofnunum og
fyrirtækjum innanbæjar. Íslands-
póstur flutti sig um set úr gamla
bænum upp að Brúartorgi, og er
nú á þeim stað er eitt sinn hýsti
Kaupþing banka. Upplýsinga-
miðstöð ferðamála flutti af Sól-
bakkanum í Hyrnutorg, sem er
mikil bragarbót fyrir fótgangandi
ferðamenn því eldri staðsetning var
einfaldlega of langt frá annarri
þjónustu. Og svo hætti Samkaup og
í staðinn kom hin fagurbláa Nettó
verslun. Þær breytingar virðast
hafa tekist vel og fljótt á litið virð-
ist verslun þar hafa aukist. Ekki
má gleyma opnun Rauða kross
verslunarinnar hinum megin við
götuna en þar er hlægt að kaupa
notuð föt á frábæru verði, og nú
um helgina má fylla poka af fötum
og greiða einungis einn
þúsundkall fyrir pok-
ann.
Brákareyjan er
merkilegt fyrirbæri, á
góðærisárunum 2005-
2007 var hún að mestu
til umfjöllunar af arki-
tektum sem nýttu sér
stórhug og athygli ráðamanna og
teiknuðu og endurhönnuðu eyjuna
m.t.t. íbúðabyggðar og smábáta-
hafnar. Í dag kveður við annan tón,
Sláturhúsin hýsa nú gallerí, morg-
unkornsframleiðslu, bátasmíði,
nytjamarkað gluggaverksmiðju,
trésmíðaverkstæði, verktaka, bráð-
um fornbílaklúbb svo eitthvað sé
nefnt. Ennfremur er í eyjunni gler-
listasmiðja og gallerí Brák, rútu-
bílastöð, sprautuverkstæði o.fl. Af
ofantöldu er ljóst að það er meira
líf í Borgarnesi en mann grunar!
Lifnar yfir mjólkurmarkaði
Morgunblaðið/ Guðrún Vala Elísdóttir