Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011 Landsbyggð tækifæranna Haldin verður ráðstefna um þekkingar- og fræðastarf á landsbyggðinni í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands Fundarstjóri: Hjalti Þór Vignisson Umræðustjórar: Steingerður Hreinsdóttir, Sigurborg Kr. Hannesdóttir og Njörður Sigurjónsson. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til mennta- og menningarmálaráðuneytisins á postur@mrn.is Þekkingar- og fræðastarf á landsbyggðinni M E N N TA - O G M E N N I N G A R M Á L A R Á Ð U N E Y T I Ð 13:00 Setning Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs. 13:10 Fjölbreytni vísinda og þekkingarstarfs á landsbyggðinni Þórarinn Sólmundarson, mennta- og menningarmálaráðuneyti. 13:20 Þekkingarsetur sem samnefnari Valdimar O. Hermannsson, Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi. 13:30 Náttúrustofur – samstarf og sérkenni Sveinn Kári Valdimarsson, Náttúrstofu Reykjaness. 13:40 Umræður 14:15 Náttúra, samfélag, verðmætasköpun - Jarðvangur á Suðurlandi Sigurður Sigursveinsson, Háskólafélagi Suðurlands. 14:25 Samþætting akademíu og atvinnulífs Óli Halldórsson, Þekkingarsetri Þingeyinga. 14:35 Menntun í þágu samfélagsins Anna Guðrún Edvardsdóttir, Rannsóknasetri Háskóla Íslands Austurlandi. 14:45 Kaffihlé og umræður 15:20 Úrvinnsla umræðna 15:50 Innviðir þekkingarstarfs á Íslandi – samþætting skólastiga Sigurbjörg Jóhannesdóttir, mennta- og menningarmálaráðuneyti. 16:00 Háskólar og þekkingarsetur Jón Atli Benediktsson, Háskóla Íslands. 16:10 Þekkingarsetur og Ísland 2020 Héðinn Unnsteinsson, forsætisráðuneyti. 16:20 Samantekt og almennar umræður 16:40 Lokaorð Hjalti Þór Vignisson, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar Mánudaginn 23. m aí kl. 13:00 - 17:00 H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta eru ólík samfélög. Hér verð ég meira var við fólksfjöldann í fleiri athöfnum en samstarfsfólk sér um afmarkaða þætti, eins og barna- og unglingastarf. Fyrir norðan hélt ég sem prestur utan um alla þætti starfsins, nema kórinn,“ segir Sig- urður Grétar Sigurðsson, sókn- arprestur í Útskálaprestakalli. Hann var í ellefu ár prestur á Hvammstanga en tók við embætt- inu í Garði fyrir hálfu öðru ári. Tveir söfnuðir eru í Út- skálaprestakalli, Hvalsnessöfnuður í Sandgerðisbæ og Útskálasöfnuður í Garði. Í ár eru 150 ár liðin frá því Útskálakirkja var tekin í notkun og verður þess minnst með hátíð um helgina. Margir snertifletir við fólkið Sigurður Grétar kemur inn í samfélagið á Suðurnesjum á erf- iðum tímum. Mikið atvinnuleysi er á svæðinu og fólk finnur fyrir öðr- um afleiðingum hrunsins. Segist hann vissulega verða var við þetta en tekur fram að hann hafi ekki þekkt til þarna fyrir hrun og hafi því ekki samanburðinn. Hann tekur undir að doðinn í samfélaginu bitni á þátttöku fólks í starfi kirkjunnar, eins og félagslífi almennt. Aðrir þættir hafi þó eflst. „Kirkjan hefur marga snertifleti í samfélaginu. Fólk kemur til kirkj- unnar á ævihátíðum, eins og til hjónavíglu og fermingar. Ákveðinn kjarni sækir messu reglulega, auk þeirra sem koma af sérstöku tilefni. Ég legg áherslu á að kirkjan er fyrst og fremst fólkið í sókninni. Hún á að vera eins og bensínstöð þar sem fólk getur fyllt á tankinn og farið svo og iðkað sína trú í dag- lega lífinu með því að elska guð og elska náungann,“ segir Sigurður Grétar. Tignarlegasta timburhúsið Útskálakirkja var tekin í notkun á árinu 1861 þótt smíði hennar lyki ekki að fullu fyrr en tveimur árum síðar. Þá var hún sögð svo fag- urlega gerð „að varla mun tign- arlegra hús af timbri gjört að finna hér á landi“, eins og Ólafur Pálsson prófastur skráði og sagt er frá í rit- inu Kirkjum Íslands. Útskálakirkja þurfti að vera myndarlegt hús enda þjónaði hún íbúum vesturhluta Reykjanesskagans fram til ársins 1370 og Útskálaprestakall náði yfir Keflavík og Njarðvík, auk Garðs og Sandgerðis, í um eina og hálfa öld, þar til Keflavík var skilin frá um miðja síðustu öld. Ráðist var í viða- miklar endurbætur á kirkjunni fyr- ir fáeinum árum þannig að hún er í góðu standi. Á mörkum sveitar og þéttbýlis „Mér finnst dýrmætt að þjóna í kirkju sem á sér langa og merka sögu,“ segir Sigurður Grétar. Út- skálar voru mikið menningarsetur sem sendi strauma um allt byggð- arlagið. Prestarnir voru í forystu fyrir mörg framfaramál, eins og prestar víða um landið. Unnið hefur verið að uppbygg- ingu gamla prestsbústaðarins á Út- skálum og koma þar upp menning- arsetri með sérstaka áherslu á íslensku prestssetrin. Húsið er tilbúið að utan. Þá voru uppi áform um byggingu hótels og safn- aðarheimilis á bak við prestssetrið, grafinn var grunnur og byrjað á sökklum. Báðar þessar fram- kvæmdir stöðvuðust í hruninu og er óljóst um framhaldið. Útskálar eru í jaðri aðalþéttbýlis- ins í Garði og Sigurður segir að það hafi sinn sjarma að kirkjan sé á mörkum sveitar og þéttbýlis. Presturinn er áhugamaður um tónlist og hefur lagt áherslu á al- mennan söng í kirkjunum en það er hefð í prestakallinu. Kirkjukórinn er lítill en kirkjugestir taka þeim mun meiri þátt og er Sigurður Grétar ánægður með það. Hann hefur áhuga á að barna- og unglingastarfið verði eflt. „Við vilj- um byggja upp innviði safn- aðarstarfsins, þannig að fleiri finni sig heima á vettvangi kirkjunnar,“ segir Sigurður Grétar. Fólk á að geta fyllt á tankinn í kirkjunni  150 ár liðin frá því Útskálakirkja var tekin í notkun  Var tignarlegasta timburhús landsins  Dýrmætt að þjóna í kirkju sem á sér langa og merka sögu, segir sóknarpresturinn í Garði Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Síðasta kvöldmáltíðin Síðustu dagar Jesú sem fjórðubekkingar sýna á afmælishátíð Útskálakirkju er gott dæmi um farsælt samstarf kirkju og skóla, að mati sóknarprestsins. Kraftmikill hópur barna tekur þátt í söngleiknum. Prestur Séra Sigurður Grétar Sigurðsson, sóknarprestur í Útskála- prestakalli, segir dýrmætt að þjóna í kirkju sem á langa og merka sögu. Nemendur úr fjórða bekk Gerðaskóla sýna söngleikinn „Síðustu dagar Jesú“ í fjöl- skylduvænni hátíðardagskrá sem fram fer í Gerðaskóla á sunnudaginn eftir messu. Há- tíðin er haldin í tilefni af 150 ára afmæli Útskálakirkju. Á ýmsu gekk þegar börnin komu saman til að æfa söng- leikinn, undir stjórn kenn- aranna Önnu Elísabetar Gests- dóttur og Erlu Ásmundsdóttur. Hópurinn sýndi söngleikinn fyrr í vor á árshátíð skólans. Sóknarpresturinn, Sigurður Grétar Sigurðsson, sem leikur undir segir, að þetta sé skemmtilegt dæmi um farsælt samstarf kirkju og skóla. Oft hafi verið líf og fjör á æfing- unum og einbeitingin mismikil en á árshátíðinni hafi flutning- urinn verið óaðfinnanlegur hjá börnunum. Á fjölskylduhátíðinni verða fleiri tónlistaratriði og Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, og Gunnar Kristjánsson pró- fastur ávarpa samkomuna. Á sunnudag verður útvarps- messa í Útskálakirkju klukkan 11. Árdegis í dag verða skipu- lagðar gönguferðir frá Hvals- neskirkju og Keflavíkurkirkju til Útskála. Það er gert til að minna á tengsl þessara vina- sókna í gegnum aldirnar. Myndasýning verður í Útskála- húsinu báða dagana. „Síðustu dagar Jesú“ HÁTÍÐ UM HELGINA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.