Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 28
                                       !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +01-1. ++0-.1 /+-.20 /3-./, +0-41/ +43-41 +-,320 +0/-00 +14-.4 ++5-+. +02-+, ++.-4+ //-3,/ /3-.01 +0-,+1 +43-2/ +-,++. +04-,/ +1,-4. /+.-1++/ ++5-,1 +02-5. ++.-11 //-+31 /+-3,0 +0-,2 +4+-30 +-,+13 +04-.1 +1,-05 28 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011 FRÉTTASKÝRING Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Þegar ljóst var að til greina kom að gömlu bankarnir kynnu að eignast virkan hlut í nýju bönkunum komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niður- stöðu að slíkt fyrirkomulag væri ekki heppilegt og þrotabú gömlu bankanna gæti ekki talist hæfur eigandi að ráðandi hlut í bönkun- um. Þrátt fyrir þetta varð niður- staðan sú að íslenska ríkið samdi um að skilanefnd Glitnis eignaðist 95% hlut í Íslandsbanka fyrir hönd kröfuhafa og að skilanefnd Kaup- þings eignaðist 87% hlut í Arion fyrir hönd sinna kröfuhafa. Fram kemur í skýrslu fjármála- ráðherra um endurreisn viðskipta- bankanna að Fjármálaeftirlitið hafi á sínum tíma komist að þeirri nið- urstöðu að veigamikil rök væru gegn því að þrotabú gömlu bank- anna færu með virkan eignarhlut í nýju bönkunum. FME dró til að mynda í efa að markmið starfsemi þrotabúanna – að hámarka eftir- standandi virði eignasafns í þágu í kröfuhafa á sem skemmstum tíma – færi í öllum tilvikum saman við far- sælan rekstur fjármálafyrirtækja. Auk þess var bent á að vafi léki um fjárhagslegan styrk þrotabúanna, auk þess sem með öllu óljóst væri hverjir yrðu svo ráðandi eigendur bankanna þegar nauðasamningar, slit og úthlutun úr þrotabúunum næði fram að ganga. Í skýrslu fjármálaráðherra segir að reynt hafi verið að draga úr mögulegum hagsmunaárekstrum með því að setja skilyrði fyrir eign- arhaldi þrotabúanna. Skilyrðin fel- ast meðal annars í kvöðum á arð- greiðslur til eigenda, auk þess sem eigendur verða að halda „til hliðar lausu fé til að taka þátt í endur- fjármögnun bankans sé hennar þörf og kjósi eigandinn að taka þátt í henni.“ Í þessu samhengi er rétt að taka fram að íslenska ríkið hefur skuldbundið sig ítrekað í viljayfir- lýsingum í tengslum við endurskoð- un á efnahagsáætlun Alþjóðagjald- eyrissjóðsins að leggja bönkunum til eiginfjárframlag ef það fer undir lögbundin mörk. Horfið frá upprunalegu áætluninni veturinn 2009 Sem kunnugt er þá fólst hin upp- runalega áætlun um endurreisn bankanna haustið 2008 í að ríkið myndi leggja þeim til eigið fé að loknu uppgjöri milli nýrra og gam- alla banka. Ljóst má vera að ef þessi leið hefði verið farin þá hefði ríkið, sem eigandi stóru viðskipta- bankanna þriggja, ekki haft neinn sérstakan hag af því að endurmeta útlánasöfnin í nýju bönkunum um- fram það verð sem þau voru keypt á. Þetta hefði með öðrum orðum leitt til fremur skjótrar úrvinnslu á þeim skuldavanda sem hvílir á einkageiranum og heimilunum og er einn af helstu dragbítum hag- vaxtar um þessar mundir. Í skýrslunni um endurreisn við- skiptabankanna kemur fram að rík- isstjórnin hafi í febrúar árið 2009 ákveðið að hverfa frá hinni upp- runalegu áætlun. Fram kemur að óánægja kröfuhafa gömlu bank- anna hafi farið vaxandi veturinn 2009, meðal annars yfir því að áætl- un stjórnvalda um endurreisn bankanna væri einhliða og þeir væru ekki hafðir með í ráðum. Orð- rétt segir í skýrslunni: „og því yrðu þeir óhjákvæmilega að leita réttar síns hjá þar til bærum yfirvöldum. Þrátt fyrir að þetta sjónarmið væri ekki réttmætt var orðið ljóst í árs- byrjun 2009 að gera yrði breyting- ar á upprunalegum áætlunum um endurreisn bankanna.“ Hófust í kjölfarið viðræður milli ríkisins og nýju bankanna sem eigenda ann- arsvegar og skilanefnda og kröfu- hafa gömlu bankanna hinsvegar. Skilanefndirnar sáu snemma dulið eigið fé í nýju bönkunum Ekki er frekar gerð grein fyrir í skýrslunni hvað olli þessum sinna- skiptum stjórnvalda varðandi end- urreisn viðskiptabankanna í febr- úar 2009. Hinsvegar hefur Morgunblaðið heimildir fyrir því að skilanefndir Glitnis og Kaupþings hafi snemma komist á þá skoðun að töluvert dulið eigið fé myndi renna inn í nýju bankana. Endurspeglast þetta mat í skýrslunni þar sem seg- ir að kröfuhafar hefðu óttast að þeir yrðu neyddir til þess að taka við greiðslum „á grundvelli van- mats á eignum og yrði neitað um að fá tækifæri til að fá hlutdeild í mögulegum framtíðarendurbata hjá nýju bönkunum og í hagkerf- inu.“ Þetta myndaði farveg þeirrar hugmyndar að skilanefndir Glitnis og Kaupþings myndu eignast ráð- andi hlut í Íslandsbanka annars- vegar og Arion hinsvegar. Sam- kvæmt upplýsingum blaðsins mun umtalsverður munur hafa verið á mati ríkisins og mati skilanefnd- anna á verðmæti eignasafns Ís- landsbanka og Arion. Þessu mun hinsvegar hafa verið þveröfugt far- ið þegar kom að mati eigna Lands- bankans. Sé horft til þess mats sem ráðgjafafyrirtækið Deloitte skilaði til FME hinn 22. apríl 2009 þá lá mat ríkisins á neðri bili verðmats- ins á sama tíma og mat kröfuhafa var í efri mörkum. Í kjölfar þess að mat Deloitte lá fyrir komst skriður á viðræðurnar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins héldu fulltrúar kröfuhafa því á lofti að enginn friður myndi ríkja um að ríkið myndi ákvarða verðmatið einhliða og þar af leið- andi fóru viðræðurnar að snúast um hvernig mætti útfæra sam- komulag þar sem þeir myndu njóta góðs af mögulegu endurmati á eignum bankanna. Töldu þeir að eign í bönkunum tveim í formi hlutafjár væri hagstæðari leið en útgáfa skuldabréfs til þrotabúanna, eins og til að mynda var gert við skiptingu Landsbankans, þar sem greiðslur nýju bankanna til þrotabúanna kynnu að íþyngja rekstri þeirra verulega. Eins og margoft hefur komið fram þá taldi ríkið hag sínum borgið með sölu á ráðandi hlut til skilanefndanna þar sem það myndi spara því verulegar upphæðir sem hefðu ella farið í endurfjármögnun Íslandsbanka og Arion. Taldi eignarhaldið óheppilegt  Í skýrslu um endurreisn viðskiptabankanna kemur fram að FME hafi talið óheppilegt að skilanefnd- irnar eignuðust ráðandi hlut í bönkunum  Skyndileg stefnubreyting ríkisstjórnarinnar í febrúar 2009 Morgunblaðið/Eggert Samkomulag Tilkynnt um samkomulag ríkisins og skilanefndanna 2009. Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Kaupþing veitti ábyrgð á lánum Landsbankans til Fjárfestinga- félagsins Grettis, sem var eigu stjórnarformanns Landsbankans, Björgólfs Guðmundssonar. Lands- bankinn kallaði aldrei inn tryggingar Kaupþings. Ábyrgðirnar námu í heild ríflega 18 milljörðum króna. Grettir var um skeið eignamikið fé- lag, og átti meðal annars stóra hluti í Eimskipi og Icelandic Group. Af þeim sökum ætlar slitastjórn Lands- bankans að stefna fyrrverandi bankastjórum Landsbankans, þeim Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri J. Kristjánssyni og fyrrverandi for- stöðumanni fyrirtækjasviðs, Elínu Sigfúsdóttur. Eftir að þeir Sigurjón og Halldór hurfu frá störfum í Landsbankanum og stofnaður var nýr banki á grunni þess gamla, gegndi Elín starfi bankastjóra nýja bankans um skeið. Lánað til Straums Greint var frá því í gær að slit- astjórn Landsbankans hygðist höfða tvö skaðabótamál á hendur fyrrver- andi stjórnendum bankans. Hitt málið snýst um lánveitingu Lands- bankans til Straums hinn 30. sept- ember 2008, einum degi eftir að ís- lenska ríkið hafði tilkynnt um að 75% hlutur í Glitni yrði tekinn yfir á nið- ursettu verði, með tilheyrandi afleið- ingum fyrir hlutabréfaverð Glitnis. Lánið var veitt til Straums vegna kaupa á hluta erlendrar starfsemi Landsbankans. Heimildir Morgun- blaðsins herma að slitastjórn telji að stjórnendur Landsbankans hefðu mátt vita betur en svo að viturlegt væri að lána Straumi á þessum tíma, enda mikil óvissa ríkjandi um afdrif íslenskra fjármálafyrirtækja. Skuldir Grettis í ábyrgð  Slitastjórn Landsbankans ætlar að höfða tvö skaðabótamál á hendur fyrrverandi stjórnendum bankans  Kaupþing veitti ábyrgð á skuldum Grettis við bankann Morgunblaðið/Ómar Ábyrgð Kaupþing veitti ábyrgð á skuldum félags stjórnarformanns bankans við Landsbankann. Ekki var ráðist í innheimtu á þeim tryggingum. Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Þó svo að ríkið hafi komist hjá því að leggja miklar fjárhæðir til endurfjármögnunar Íslandsbanka og Arion hefur sala bankanna til þrotabúanna verið gagnrýnd. Er sú gagnrýni að mörgu leyti sam- hljóða þeim áhyggjum sem FME setti fram varðandi mögulegt eignarhald þeirra á bönkunum. Það er að segja að núverandi eignarhald sé óheppilegt sökum þess að hvati núverandi eigenda felst fyrst og fremst í því að end- urmeta lánasöfnin eins mikið og mögulegt er fram að þeim tíma að þeir losa um eignarhald sitt. Einnig hefur ver- ið bent á að undir núverandi kringumstæðum þá sé mun ríkari hvati fyrir bank- ana að viðhalda mikilli skuld- setningu á fyr- irtæki sem eru með gott sjóðstreymi í þeirra umsjá til þess að tryggja sér sem mestar greiðslur í stað þess að umbreyta þeim til þess að auka rekstrarhæfi og gera þau sölu- vænlegri. Hagur í skuldsetningu EIGENDUR ÍSLANDSBANKA OG ARION Íslenskar krónur. Rakel Sveinsdóttir er hætt hjá Credit- info. Rakel leiddi sameiningu Láns- trausts og Fjölmiðla- vaktarinnar áramót- in 2007/2008 og varð framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. Hættir hjá Creditinfo Rakel Sveinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.