Morgunblaðið - 21.05.2011, Síða 30
30 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ræðu Baracks Obama Bandaríkjaforseta á
fimmtudag um Miðausturlönd og samskipti
Bandaríkjanna við heimshlutann var misjafnlega
tekið, bæði heima fyrir og erlendis. Mahmoud Ab-
bas, forseti Palestínumanna, sagðist fagna tilraun
Obama til að ýta undir nýjar friðarviðræður milli
Ísraela og Palestínumanna. En utanríkisráðherra
Hamas-stjórnarinnar á Gaza, Mohamed Awad,
var neikvæðari og sagði að meira þyrfti til en slag-
orð af hálfu Obama. „Hann reyndi að þóknast öll-
um en ekki Palestínumönnum,“ sagði Awad.
Miðausturlandaræðu misvel tekið
Fulltrúi Hamas segir Obama vilja þóknast öllum nema Palestínumönnum
Netanyahu gagnrýnir tillögu um landamæri væntanlegs Palestínuríkis
Í ræðunni sagði Obama
Bandaríkin eiga mikilla hags-
muna að gæta í Miðausturlönd-
um, þeir væru tengdir þeim
órjúfanlegum böndum. En nýr
kafli væri hafinn í samskiptun-
um í kjölfar uppreisnanna í
arabaríkjunum. „Óbreytt
ástand getur ekki verið viðvar-
andi,“ sagði forsetinn og hét
stuðningi við lýðræðiskröfur al-
mennings í nokkrum nafngreindum ríkjum þ. á m.
Barein. Athygli vakti að hann nefndi ekki olíu-
veldið Sádi-Arabíu.
Barack Obama
Obama gagnrýndi Palestínumenn og Ísraela
fyrir óbilgirni, hann mælti með svonefndri tveggja
ríkja lausn og landamæri landanna yrðu þau sömu
og fyrir stríð araba og Ísraela 1967.
Væntanlegir forsetaframbjóðendur repúblik-
ana gagnrýndu hart ræðu Obama. Mitt Romney
sagði Obama hafa fært Palestínumönnum sigur-
inn áður en samningaviðræður hæfust. Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, gagnrýndi
ræðuna með óvenju hvössu orðalagi og benti á að
báðar deildir Bandaríkjaþings hefðu samþykkt ár-
ið 2004 að Ísraelar ættu ekki að þurfa að sætta sig
við landamærin frá 1967. Obama og Netanyahu
áttu fund síðdegis í gær í Hvíta húsinu.
Gömul landamæratillaga
» Hæpið er að segja að um
mikla stefnubreytingu sé að
ræða varðandi landamærin.
» Fyrri forsetar og ráðamenn í
Ísrael hafa einnig rætt lausn
sem byggist á því að miðað sé
við landamærin frá 1967.
» Árið 2000 var næstum búið
að semja um að Ísrael léti af
hendi svæði en héldi stærstu
byggðum landtökumanna.
Skraufþurr og sprunginn jarðvegur í grennd við
Anjou-Bretagne-brúna yfir Loire í vestanverðu Frakk-
landi. Umhverfisráðherra Frakklands, Nathalie Kos-
ciusko-Moriset, sagði í vikunni að vandinn vegna
þurrka væri mikill í stórum hluta landsins og hefur
þegar sett skorður við vatnsnotkun í um þriðjungi hér-
aðanna. Landbúnaðurinn er mikilvæg atvinnugrein og
notar um 80% af öllu vatni í landinu.
Reuters
Þurrkur við Loire-fljótið
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Dominique Strauss-Kahn verður nú
leystur úr haldi gegn tryggingu en
fær ekki að fara úr landi. Margir hafa
amast við þeirri hrottalegu venju
Bandaríkjamanna að handjárna varð-
haldsfanga. Bent er á að þessi siður
brjóti beinlínis gegn því helga lögmáli
að allir séu saklausir þar til sekt sé
sönnuð.
En um hvað snýst málið sjálft, er
þetta tóm skinhelgi, er Strauss-Kahn
bara fjölþreifinn til kvenna og þess
vegna þyrnir í augum bandarískra
púrítana?
Sænski lagaprófessorinn Mårten
Schultz er harðorður í garð fjölmiðla í
grein í Dagens Nyheter. Oft sé rætt
um ákæruna með loðnu orðalagi, tal-
að um kynferðisbrot, fjallað í slúðurf-
réttastíl um kvennafarið. Hann sé
haldinn kynlífsþorsta og alræmd-
ur fyrir draga konur á tálar.
Grundvallaratriði réttarríkis-
ins fari forgörðum í þessari
umræðu, segir Schultz
þar sem öllu sé blandað
saman í einn graut.
„Það var ekki kyn-
lífshneyksli sem olli
því að [fyrrverandi]
forstjóri AGS situr bak
við lás og slá,“ segir Schultz. „Mik-
ilvægi þátturinn er ekki kynlíf eða
hneyksli heldur var manneskja ákærð
fyrir að beita ofbeldi gegn annarri.“
Fleiri hafa gagnrýnt hvernig reynt
hafi verið að útskýra og nánast afsaka
meinta hegðun Strauss-Kahn með
þjóðerni hans; hann sé nú Frakki og
þeir séu bara svona. Verði þá að
spyrja hvort það sé eðlileg hegðun hjá
frönskum körlum að beita annað fólk
líkamlegu ofbeldi.
Strauss-Kahn virðist ekki síður
eiga vini en leikstjórinn Roman Pol-
anski, sem á sínum tíma fyllti 13 ára
stúlku af fíkniefnum og nauðgaði
henni en flúði réttvísina vestra eftir
að hafa játað brotið. Stuðningsmenn
hans hafa margir ýjað að því með
loðnu orðalagi að barnið hafi sam-
þykkt að eiga mök við Polanski.
„Manneskja ákærð
fyrir að beita ofbeldi“
Sænskur lagaprófessor segir aðalatriði málsins gegn
Strauss-Kahn nær drukkna í kynlífsþvaðri í fjölmiðlum
Hundruð suður-kóreskra vændiskvenna og dólgar þeirra efndu í gær til
mótmæla fyrir utan húsakynni sín í höfuðstaðnum Seoul vegna áhlaupa
sem lögreglan hefur gert á starfsemi þeirra. Var þess krafist að afnumin
yrðu lög gegn vændi. Gatan hafði verið máluð rauð í öðrum mótmælum.
Á móti lögum gegn vændi
Bandaríski hornaboltamaðurinn
Rob Summers lenti í bílslsysi í Ore-
gon fyrir þrem árum og lamaðist,
hann fékk að vita að framvegis yrði
hann í hjólastól. En nú getur Summ-
ers, sem er 25 ára, staðið uppréttur
á ný og jafnvel gengið nokkur skref
með aðstoð, að sögn Guardians.
Í slysinu rofnuðu taugar sem
miðla boðum frá heilanum. Læknar
græddu 16 rafskaut í hrygginn á
Summers og senda þau rafboð í
mænuna. Með mikilli þjálfun hefur
honum nú tekist að ná verulegri
stjórn á fótahreyfingum sínum.
Einnig virka nú þvagblaðra og
þarmar eðlilega,
blóðþrýstingur er
aftur í jafnvægi.
Taugasérfræð-
ingurinn Susan
Harkema við
Kentucky-
háskóla, sem tók
þátt í aðgerðinni,
segir að um
þáttaskil sé að
ræða. Nú sé ljóst að heilaboð stýri
gangi minna en talið var, þau sendi
að vísu „ósk“ um gang en taugakerf-
ið og mænan annist sjálfa hreyf-
inguna. kjon@mbl.is
Lamaður á fætur
með hjálp rafskauta
Rob Summers
Viðbrögð valdastéttarinnar í
Frakklandi gagnvart máli
sósíalistans Strauss-Kahn
hafa vakið furðu margra.
Nokkrir þekktir andans
menn hafa gengið fram fyr-
ir skjöldu og nánast
slegið því föstu að
hann sé alveg sak-
laus eða því sem
næst, þótt banda-
ríska lögreglan
segist hafa öruggar sannanir gegn
honum. Sumir hafa lagt áherslu á
gott starf sakborningsins hjá AGS
sem virðist þá eiga að duga til að
fyrirgefa honum meint ofbeldi.
Einnig er bent á að margir, þ. á
m. hinn þekkti, franski heimspek-
ingur og vinstrisinni Bernard-
Henry Levy, hafi greinilega ekki
neina samúð með meintum þol-
anda sem er fátæk blökkukona í
New York og einstæð móðir.
Sósíalistinn jafnari en aðrir?
FRANSKA VALDASTÉTTIN OG TVÖFALDA SIÐGÆÐIÐ
Skannaðu kóðann
til að lesa um
Strauss-Kahn.