Morgunblaðið - 21.05.2011, Síða 37

Morgunblaðið - 21.05.2011, Síða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011 ✝ Debóra Þórð-ardóttir fæddist á Hvammstanga 24. nóvember 1910. Hún andaðist á Elli- og hjúkrunarheim- ilinu Grund 13. maí 2011. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Karólína Sveinsdóttir, f. 15. ágúst 1881 á Svarf- hóli í Stafholts- tungum, d. 11. marz 1980, og Þórður Sæmundsson skósmiður og síðar símstjóri á Hvamms- tanga, f. 30. marz 1879 í Hrafna- dal í Hrútafirði, d. 12. febrúar 1944. Systkini Debóru voru: Sigríður Jóhanna, húsmóðir í Reykjavík, f. 1909, d. 1988, átti Karvel Sig- vörð. Debóra ólst upp á Hvamms- tanga. Hún stundaði nám í Hér- aðsskólanum í Reykholti veturna 1931-1933 og árið 1936 í Hús- mæðraskólanum á Ísafirði. Hún dvaldist um eins árs skeið í Borg- arnesi, en að þessu frátöldu átti hún heima á Hvammstanga allt til ársins 1971. Debóra var árin 1932-1934 símastúlka á Hvamms- tanga, á Borðeyri árið 1936 og aftur á Hvammstanga árin 1936- 1944. Er Þórður faðir hennar lézt tók hún við stöðvarstjórastarfinu. Árið 1962 varð hún stöðvarstjóri Pósts og síma á Hvammstanga er þau störf voru sameinuð. Árið 1971 fluttust þau hjón til Reykja- víkur og störfuðu bæði á skrif- stofu Pósts- og síma unz starfs- degi lauk. Minningarathöfn um Debóru var í Neskirkju í gær, 20. maí 2011. Debóra verður jarðsungin frá Hvammstangakirkju í dag, 21. maí 2011, og hefst athöfnin kl. 14. Jarðsett verður í Kirkju- hvammi. urgeirsson sjómann frá Ísafirði, Þuríður Jórunn, húsmóðir í Reykjavík, f. 1912, d. 1988, átti fyrst Hrólf J. Þor- steinsson, farmann frá Gröf á Vatnsnesi og síðar Sæmund Eggertsson frá Leirárgörðum, og Sveinn Helgi, skatt- stjóri í Hafnarfirði, f. 1916, d. 1987. Árið 1950 giftist Debóra Ás- valdi Bjarnasyni, verzlunarmanni við Kaupfélag Vestur- Húnvetninga, síðar starfsmanni við póstþjónustuna á Hvamms- tanga. Þau hjón voru barnlaus, en Debóra ól upp systurson sinn Þór Magnússon, síðar þjóðminja- Móðursystir mín Debóra Þórð- ardóttir andaðist á Elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund í Reykjavík hinn 13. maí síðastliðinn á 101. ald- ursári. Langlífi er ekki óþekkt í ætt hennar. Guðrún móðir hennar varð hartnær 100 ára gömul og afasystir hennar komst einnig yfir tírætt. Debóra vann alla sína starfstíð við Landssíma Íslands, sem lengst af hét svo, og síðustu starfsárin við hina sameinuðu stofnun, Póst og síma. Þórður fað- ir hennar varð símstjóri þar árið 1917 er sími var lagður þangað. Debóra tók við starfinu eftir föður sinn, árið 1944, og gegndi því til 1971 er hún fluttist ásamt manni sínum til Reykjavíkur. Foreldrar Debóru fluttust til Hvammstanga árið 1910. Bráðlega eignuðust þau þar húsið Sólheima, sem varð heimili fjölskyldunnar síðan þar nyrðra. Þórður var skósmiður og þótti tilvalið að fá honum síma- vörzluna í hendur. Er tímar liðu jókst símaafgreiðslan og þegar dæturnar komust á legg tóku þær að sinna símavörzlunni, ekki sízt Debóra. Margir áttu leið þar inn á heimilið, áttu erindi við skósmið- inn eða þurftu að tala í símann. Það var því í þjóðbraut að kalla má. Á heimilinu voru hinar „fornu dyggðir“ iðkaðar í hvívetna, traust guðstrú, trúmennska og reglu- semi, iðni og nýtni, þrifnaður og snyrtimennska. Debóra bar alla tíð vitni þess sem henni og systk- inum hennar var innrætt í æsku. Hún var trúuð og kirkjurækin, skyldurækin og áreiðanleg í öllu. Árið 1950 giftust hún Ásvaldi Bjarnasyni, þá starfsmanni við Kaupfélagið en síðar við Póst og síma. Hjónaband þeirra varaði í rúm 60 ár og alla tíð lýsti það af umhyggju og hlýju. Þeim varð ekki barna auðið en ég naut hins vegar umhyggju Debóru í æsku og var hún í reynd fósturmóðir mín, þótt vissulega kæmu fleiri í fjölskyldunni meira og minna að uppeldi mínu. Þau Ásvaldur voru samhent í starfi, nutu þess að ferðast, ekki sízt til útlanda, fóru um ýmis lönd Mið- og Suður-Evr- ópu, oft í hópferðum með fólki úr söfnuði Neskirkju sem þau séra Frank M. Halldórsson og Jóna Hansen stóðu fyrir. Debóra var listfeng, saumaði út og hafði yndi af fögrum hlutum. Hin síðari ár var ýmiss konar föndur, postulíns- málun og útsaumur dægrastytt- ing hennar. Síðustu árin var heilsa Debóru þrotin og varð hún að vistast á hjúkrunarheimilum, fyrst á sjúkrahúsi en síðan á Grund. Ás- valdur maður hennar hefur einnig átt þar dvöl hin síðari árin er heils- an þvarr. Þar hafa þau notið góðar umönnunar í hvívetna og öðlazt vináttu og hlýju starfsfólks. Hug- ur Debóru var oft hin síðari árin á æskuslóðunum fyrir norðan. Ávallt spurði hún frétta þaðan, eins eftir að heimur hversdagsins fjarlægðist smátt og smátt. Hún óskaði þess að fá að hvíla að lokum í Kirkjuhvammi, hinum gamla grafreit sóknarinnar meðal ætt- fólks síns. Trú hennar á frelsara sinn og eilíft líf varð henni líkn í þrautum og í þeirri vissu hefur hún horfið á vit þess heims, sem hún hafði fullvissu um að við tæki að þessu lífi loknu. Þór Magnússon. Debóra Þórðardóttir ✝ Páll Jónssonfæddist að Hraunfelli í Sunnu- dal í Vopnafirði 23. nóvember 1923. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Sundabúð í Vopna- firði 12. maí 2011. Foreldrar hans voru Jón Krist- jánsson bóndi að Hraunfelli, f. 31. okt. 1869, d. 17. maí 1947 og Þórunn Oddný Einarsdóttir frá Þorbrandsstöðum, f. 11 feb. 1883, d. 18. des. 1961. Þau eign- uðust 12 börn. Elstur var Gunn- laugur, þá Kristján, Sigurlaug, Einar, Guðmundur, Ingólfur, Þórhallur, Steindór, Kristrún, Karl, Margrét og Páll yngstur. Karl er einn eftirlifandi og býr í Reykjavík. Páll ólst upp á Hraunfelli þar til hann fór að heiman 1949. Hann var í lausa- mennsku í sveitinni fyrst í stað en frá 1950 var hann heimilisfastur á Ásbrandsstöðum. Starfaði hann víða um sveitina við smíðar og fleira sem til féll. Upp úr 1960 flutti hann í Kirkjuból og tók upp sambúð með Elsu Höjgaard. Þau giftu sig 1970 og árið 1973 fluttu þau í hús sem þau höfðu byggt að Hamrahlíð 32. Sama ár tóku þau í fóstur Einar Ólaf Einarsson, sonarson Elsu. Sambýliskona Einars Ólafs var Birna Margrét Björnsdóttir, þau slitu sam- vistum. Dóttir þeirra er Helga María, f. 4. jan. 2002. Sonur Birnu er Daníel Freyr Sveins- son, f. 7. des. 1999. Útför Páls fer fram frá Vopnafjarðarkirkju í dag, 21. maí 2011, og hefst athöfnin kl. 14. Hann Palli hennar ömmu er fallinn frá. Í minningunni stendur þessi hvíthærði, hnarreisti og stælti maður á tröppunum í Hamrahlíð, aðeins fyrir aftan ömmu, og bíður jafnspenntur og hún eftir norðanmönnum í hús. Upp hleypur skarinn úr Svarfað- ardalnum í fangið á þeim hjónum, eftirvænting á báða bóga og til- hlökkun til dvalarinnar. Vopna- fjarðardvöl er að hefjast. Palli var seinni maður ömmu Elsu. Í barnslegri einfeldni var Palli alltaf bara Palli hennar ömmu. En í raun var Palli ennþá meiri afi en margur slíkur þó að skyldleikinn væri ekki til staðar. Palli gaf sér alltaf tíma til að leika við okkur sem börn, elta um alla stofu, lyfta hátt til lofts og snúa í ótal hringi. Þolinmæði hans í stansleysi okkar barnanna eftir áframhaldandi leik var tak- markalaus og líklega meira háð því hver ending okkar var frekar en hans. En síðan skyldi haldið til verka. Palli var iðinn maður og stans- laust að sinna garðverkum, gera við, hlaupa eftir einhverju smot- teríi í búðina, hita kaffi og ná í bakkelsi fram í búr. Á Dalhúsum sló hann linnulítið með orfi og ljá og kom einungis inn til að setjast til borðs með okkur hinum á mat- málstímum. En jafnvel þá gaf hann sér tíma fyrir smáfólkið. Afi af guðs náð! Palli var hæglátur maður sem hafði sig lítið í frammi. Amma Elsa talaði líklega fyrir þau bæði. Saman ólu þau upp barnabarn ömmu, Einar Ólaf, sem Palli gekk fullkomlega í föðurstað. Það lýsir honum kannski best. Hann var góður maður með hjartað á réttum stað. Skilyrðislaust. Við systkinin viljum þakka Palla fyrir væntumþykju hans og ástúð, eltingaleikina og hring- snúningana, móttökurnar á tröppunum og allt hitt. Einari Ólafi og Helgu Maríu sendum við okkur hlýjustu kveðj- ur. Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Sá einn er skáld, sem skilur fugla- mál, Og skærast hljómar það í barnsins sál. Hann saurar aldrei söngsins helu vé, Hann syngur líf í smiðjumó og tré. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. Sá einn er skáld, sem skilur það og fann, að skaparinn á leikföng eins og hann, og safnar þeim í gamalt gullaskrín. Og gleður með þeim litlu börnin sín. Og glæðir nokkur gleði meiri yl, en gleðin yfir því að vera til. Og vita alla vængi hvíta fá sem víðsýnið og eilífð þrá? Nú fljúga mínir fuglar, góða dís. Nú fagna englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson frá Fagra- skógi.) Sindri Már, Sigrún Vilborg og Sigurlaug Elsa Heimis- og Valborgarbörn. Mér dettur í hug kvæði Davíðs þegar Palli er genginn. Kvæðið er raunar um konu „sem kyndir ofninn minn“. Palli var þeirrar gerðar sem segir í þessu fallega kvæði. Hann vann verk sín hljóð- ur, var öllum mönnum góður, læddist um er aðrir sváfu og und- irbjó daginn fyrir sitt fólk. Ég minnist þess er Palli kom fyrst í Kirkjuból og fór að búa með tengdamóður minni, Elsu Höjgaard. Mér fannst þetta svo- lítið skrítið að fólk á þessum aldri væri að rugla saman reytum. Þetta breyttist fljótt er ég kynnt- ist Palla. Elsa þurfti á þessum tíma aðstoð við rekstur sinn, en hún rak hótel og mötuneyti á Kirkjubóli á þessum árum. Palli vann fulla vinnu bæði í síldar- verksmiðjunni og við önnur störf, aðallega byggingar, á þessum tíma. Páll Jónsson var hagleiksmað- ur frá náttúrunnar hendi og hon- um voru gefnir hæfileikar sem nýttust vel á hans löngu starfs- ævi. Segja má að allt handverk hafi leikið í höndum hans. Það skal þurfa mikið til að taka að sér ungbarn á fullorðinsárum. Þetta gerðu Elsa og Palli er þau tóku í fóstur barnabarn Elsu, Einar Ólaf. Þá voru þau orðin vel fullorðin. Þau reyndust Einari góðir foreldrar og gerðu hvað þau gátu til að koma honum til manns og þroska. Enda held ég að Einar hafi ætíð litið á þau sem raunverulega foreldra sína. Hann naut skjóls og hlýju hjá þeim. Sterkt samband var milli Palla og Einars, þeir voru hvor öðrum akkeri í lífinu. Páll var eins konar sonur af- dalabyggðar en kom á Tangann sem var í hraðri uppbyggingu á síldarárunum. Hann tileinkaði sér nýjan lífsstíl framfaranna og tók þátt í uppbyggingunni á Vopnafirði af heilum hug. Þegar við vorum saman á Dalhúsum var alltaf sungið mikið og ég minnist þess að er við sungum „Fram í heiðanna ró“ tók Palli alltaf glað- ur undir og þetta gladdi hann. Minningarnar hrannast upp. Við Valborg byggðum hús á Dal- vík. Þegar kom að múrhúðun var Palli fenginn norður og var hann hjá okkur fáeinar vikur og múr- aði allt húsið, innan og utan. Þar var ekki kastað til höndunum – eða jú – hann kastaði sko allri múrningunni með eigin höndum, snilld. Ekki get ég látið hjá líða að nefna allar þær vinnustundir sem Palli vann á Dalhúsum í Bakkafirði. Elsa Höjgaard og systkini hennar keyptu ásamt okkur Dal- hús fyrir margt löngu. Palli fór ótaldar ferðir norður og vann að viðhaldi og uppbyggingu á staðn- um. Þar var paradísin hennar Elsu. Á þessum árum kenndi ég Elsu á bíl og keypti hún sér lítinn Escort og ók á honum norður í Dalhús strax og vegir leyfðu. Mér segir svo hugur að ekki hafi hún ekið mikið aðrar slóðir og oft fór Palli með. Elsa var oft ein í sveit- inni sinni en Palli var líka oft með í för. Þau tvö eiga mörg hand- tökin á Dalhúsum og Páll var allt- af að lagfæra hluti sem betur máttu fara. Allt sem hann gerði var unnið af heilindum og vand- virkni. Börnin mín, Sindri, Sigrún og Elsa, muna Palla sem einstaklega ljúfan „afa“. Við sendum Einari Ólafi og öllu fólki Páls samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning hans. Heimir Kristinsson. Páll Jónsson ✝ Ástkær eiginkona mín, ALDA GÍSLADÓTTIR, Skúlagötu 40, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 17. maí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 25. maí kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ás styrktarfélag, Skipholti 50c. Brynleifur Sigurjónsson. ✝ Okkar ástkæra LAUFEY INGIBJARTSDÓTTIR frá Akranesi, Hörðalandi 2, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 17. maí. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 27. maí kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Stofnaður hefur verið reikningur í Landsbankanum á Akranesi til styrktar sonum hennar, tvíburunum Júlíusi og Jóel, sem eru 5 ára. Reikningsnúmerið er: 0186-05-570562. Kt. 050642-4299. Júlíus og Jóel Duranona, Ingibjartur Þórjónsson, Kristín Magnúsdóttir, Ásta Ingibjartsdóttir, Eva Morgan Maurin, Þórdís Ingibjartsdóttir, Vera Kristín Jónasdóttir, Embla Rún Sigurðardóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, Furugrund 32, Kópavogi, lést mánudaginn 16. maí. Jarðsungið verður frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 25. maí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarsjóð L5 Landakoti, sími 543 9890. Elsa Jóhanna Ólafsdóttir, Rúnar Jónsson, Droplaug Ólafsdóttir, Þorsteinn Ólafsson, Jóna Fanney Kristjánsdóttir, ömmu- og langömmubörn. ✝ Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN JÓNSSON bifreiðarstjóri, Víðivöllum 26, Selfossi, lést af slysförum þriðjudaginn 17. maí. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 27. maí kl. 13.30. Guðmunda Ólafsdóttir, Jón Viðar Guðjónsson, Carola Ida Köhler, Steinþór Guðjónsson, Sigríður Garðarsdóttir, Reynir Guðjónsson, Soffía Stefánsdóttir, Guðbjörg Guðjónsdóttir, Sigurður Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Hjartkær sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, ÁRMANN SIGVALDASON, Borgartúni, Þykkvabæ, lést á heimili sínu miðvikudaginn 18. maí. Útförin fer fram frá Þykkvabæjarkirkju miðvikudaginn 25. maí kl. 14.00. Jóna Katrín Guðnadóttir, Sigvaldi Ármannsson, Dagný Sigvaldadóttir, Eyþór Jónsson, Guðni Sigvaldason, Sigrún Þorsteinsdóttir, Sigurjóna Sigvaldadóttir, Emil J. Ragnarsson, Margrét Á. Sigvaldadóttir, Óskar E. Aðalsteinsson, Guðfinna B. Sigvaldadóttir, Erlendur R. Guðjónsson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.