Morgunblaðið - 21.05.2011, Side 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
✝ Lilja Júl-íusdóttir
fæddist að Lang-
holtsvegi 44 í
Reykjavík 25. des-
ember 1951. Hún
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
10. maí 2011.
Foreldrar
hennar voru Júl-
íus F. Óskarsson
bóndi og verka-
maður, f. 13. apríl 1914 á
Hellissandi, Snæfellsnesi, d.
30. sept. 1992 og Guðmunda
Erlendsdóttir húsmóðir, f. 27.
okt. 1920 á Ísafirði, d. 15.
maí 1984. Systkini Lilju eru:
Hörður Ævar, f. 4. des.
1940, Elín, f. 15. júlí 1944,
Gísli, f. 31. mars 1946, Bragi,
f. 11. sept. 1953, Erlendur, f.
9. sept. 1957, Gestur, f. 26.
Árið 1953 flytur Lilja með
fjölskyldu sinni að Norður-
Nýjabæ í Þykkvabæ og þar
elst hún upp. Eftir hefð-
bundna skólagöngu fór Lilja
að vinna að heiman, fyrst við
barnapössun og síðar í versl-
un, ásamt því að hjálpa til við
búskapinn á sumrin og í
görðum á haustin. Árið 1973
byrjuðu Lilja og Ólafur að
búa, fyrst á Núpi í Fljótshlíð
en í mars 1974 flytja þau til
Vestmannaeyja og búa þar
eftir það. Húsmóðurstarfið og
uppeldi barnanna var hennar
aðalstarf en með því vann
hún einnig utan heimilis, að-
allega verslunarstörf. Árið
1994 varð Lilja þó að hætta á
vinnumarkaði vegna heilsu-
brests. Lilja starfaði um ára-
bil í Verslunarmannafélagi
Vestmannaeyja og sat þar í
stjórn í nokkur ár. Einnig var
hún félagi í Sinawik-
klúbbnum í Vestmannaeyjum.
Útför Lilju fer fram frá
Landakirkju í Vest-
mannaeyjum í dag, 21. maí
2011, og hefst athöfnin kl. 14.
jan. 1959. Hálf-
bróðir, samfeðra
er Björn, f. 1940,
Lilja kvæntist
21. maí 1977 Ólafi
Guðmundsyni vél-
fræðing, f. 7. nóv.
1952 í Vest-
mannaeyjum. For-
eldrar hans eru
Guðmundur K.
Ólafsson, f. 23.
ágúst 1918 í
Vestm., d. 4. mars 2002 og
Guðrún Sigurjónsdóttir, f. 19.
júlí 1925 á Haugnum í Mýr-
dal. Börn Lilju og Ólafs eru:
1) Júlía, f. 6. des. 1972, leik-
skólastjóri. Fóstursonur
hennar er Birgir Rúnar, f. 11.
sept. 2008. 2) Guðmundur, f.
14. júlí 1974, rafvirki. 3)
Helgi, f. 9. apríl 1981, skrif-
stofumaður.
Elsku mamma mín
Það er svo erfitt að trúa því að
þú sért farin. Ég sakna þín svo
mikið.
Þú varst ekki aðeins mamma
mín heldur líka stóra systir og
besta vinkona. Við töluðum saman
á hverjum degi og yfirleitt oft á
dag. Þú hafðir endalausan tíma til
þess að hlusta á mig og rökræða
hlutina við mig. Ég á það til að
fara fram úr sjálfri mér en þú
hafðir alltaf hæfileika til þess að
halda mér á jörðinni.
Þú og pabbi stóðuð svo sterk
með mér þegar ég ákvað að taka
að mér litla gullmolann hann
Birgi Rúnar og þvílíkt sem hann
var heppinn að eiga þig að. Nú
finnst mér bara sorglegast hvað
hann átti stutta stund með þér.
En ég veit að þetta var mikil
gæðastund og ömmuknúsin og
kossarnir verða okkur alltaf ofar-
lega í minni. Honum fannst
ómögulegt að fara heim eftir leik-
skólann án þess að koma við hjá
ömmu og ef hann er að tala í sím-
ann þá er hann alltaf að tala við
ömmu. Ég mun hjálpa honum að
muna eftir þér, elsku mamma
mín, og ég veit að þú ert alltaf hjá
okkur.
Ég skal halda utan um pabba
og strákana og passa þá fyrir þig.
Þín dóttir,
Júlía.
Elsku mamma.
Það þarf meira skáld en mig til
að lýsa með orðum sorginni sem
fyllir hjarta mitt.
Þó ég hafi vart getað átt betri
móður vitum við bæði að ég var
þér aldrei sá sonur sem þú áttir
skilið. Enda sá sonur vandfundinn
sem ætti skilið jafn góða móður og
þig.
Engar barstu gráðurnar né
héngu diplómur á veggjum þín-
um. En samt gast þú kennt mér
svo margt. Æðruleysi þitt í veik-
indum þínum og óbilandi trú á hið
góða í öllum mönnum eiga eftir að
vera mér leiðarljós um ókomna
tíð. Í augum mínum verður þú
ávallt holdgervingur manngæsku
og réttsýni og markmið mitt að
tileinka mér þá eiginleika. Þó ég
efist um að ég nái nokkurn tímann
að verða svo mikið sem hálfdrætt-
ingur þinn.
Landafræðilega séð vorum við
óþarflega fjarlæg síðustu ár og
samskiptin ekki nógu tíð. En
strengurinn okkar á milli var
ávallt stuttur. Enda get ég vart
skilið að heimurinn skuli ekki falla
saman inn í það tómarúm sem þú
skilur eftir. Því er fátt annað hægt
en að fylla tómarúmið með öllum
góðu minningunum. Því þótt
söknuðurinn sé óheyrilegur og
sorgin djúp er gleðin yfir að hafa
fengið að vera sonurinn þinn í
þessi þrjátíu ár næg til að yfir-
vinna það allt.
Helgi.
Hún Lilja kom svolítið snöggt
inn í tilveru okkar, fjölskyldunnar
á Brimhólabrautinni, og á svipað-
an hátt fór hún frá okkur.
Lilja var fædd í „Steingeitinni“.
Í gamalli afmælisdagabók segir
um 25. desember: „Þú ert prakt-
ískur, áreiðanlegur og framsýnn.
Gagnvart vinum þínum ert þú
hjálpfús og trölltryggur“. Lilja
vildi alltaf allt gera fyrir sína nán-
ustu og ekki bara þá, heldur alla
sem þurftu á aðstoð hennar að
halda og vildu þiggja. Fyrir það
þökkum við af öllu hjarta.
Í fyrrgreindri afmælisdagabók
segir líka: „Þú giftist seint“ ja,
seint. Júlía og Gummi voru komin
í heiminn þegar þau Óli giftu sig
24 og 25 ára gömul, þ. 21. maí
1977. Jú, það þótti frekar seint í
þá daga, en börnin sýna það og
sanna að þau voru gift þá þegar –
þannig séð – og seinna kom svo
hann Helgi, blessaður strákurinn,
í heiminn.
Það eru nokkur ár síðan Lilja
hætti á vinnumarkaði, sökum
heilsubrests. Hún starfaði lengst
við verslunarstörf. Þar komu
hennar bestu kostir fram, hlýja,
hjálpsemi og húmor.
Fyrir tæpum þremur árum
kom lítill ljósgeisli inn í líf fjöl-
skyldunnar, sonur hennar Júlíu,
hann Birgir Rúnar. Hann mun án
efa halda áfram að lýsa upp líf Óla
og þeirra allra.
„Nú eruð þið harmi slegin, en ég
mun hitta ykkur á ný og þá munuð
þið fagna! Þeirri gleði mun enginn
geta rænt ykkur.“
(Jóh. 16, 22)
Elsku Óli okkar og krakkarnir.
Guð blessi minninguna um hana
Lilju.
Mamma, Hjálmar og fjöl-
skylda, Sigurjón, Guðni
og fjölskylda,
Sigrún og Heiðar.
Hún Lilja, systir móður okkar,
var einstök. Það verður ekki hægt
að fylla hennar skarð. Hún var
yndisleg manneskja og jafnan
stutt í brosið þegar við sáumst.
Tilhlökkunin þegar von var á
Lilju frænku í heimsókn í Kefla-
víkina var mikil, því það var alltaf
jafn gaman að hitta hana. Faðm-
lögin og kossarnir sem við fengum
voru ætíð jafn notaleg því þetta
var hún Lilja. Nú verða faðmlögin
að bíða að sinni en við geymum
þau ávallt í hjarta okkar, því
minningin um uppáhaldsfrænku
okkar lifir áfram.
Við eigum svo margar góðar
minningar frá ferðum okkar til
Vestmannaeyja á sumrin í barn-
æsku. Þar brölluðum við margt
með börnunum hennar, þeim Júl-
íu og Gumma, og alltaf er jafn
gaman að hugsa til þessa tíma.
Líkt og þegar við stálumst til að
fara niður á Stakkagerðistún, eða
Stakkó eins og það var alltaf kall-
að, snemma á morgnana með
nesti. En þá höfðu þær systurnar
vakað næturlangt við að spjalla og
við börnin redduðum okkur að
sjálfsögðu bara sjálf á meðan þær
sváfu. Það voru svo misjafnar
undirtektirnar sem við fengum
þegar hún Lilja okkar vaknaði og
uppgötvaði hvað við höfðum verið
að bralla.
Lilja var mjög barngóð og hafði
alltaf gaman af að hitta börnin
okkar og fylgdist vel með þeim í
gegnum móður okkar. Enda sögð-
um við alltaf að ef síminn var á tali
heima hjá mömmu þá væri hún að
tala við Lilju, því þegar þær töl-
uðust við í síma þá tók það yfirleitt
dágóða stund.
Það er svo margt fleira sem við
hefðum viljað segja en það er svo
erfitt að koma því í orð. En minn-
ingin um góða frænku lifir áfram
með okkur og munu minningarn-
ar ylja okkur um ókomna tíð.
Elsku Óli, Júlía, Birgir Rúnar,
Gummi og Helgi, við vottum ykk-
ur okkar dýpstu samúð og megi
Guð styrkja ykkur á þessari erf-
iðu stund.
Guðmunda, Elín
og fjölskyldur.
Enginn veit hvað morgundag-
urinn ber í skauti sér.
Þannig var það með hana Lilju
okkar sem skyndilega var tekin
frá okkur.
Það var í júní árið 2001 sem við
fjölskyldan fluttum á Ásaveginn.
Ekki leið langur tími þar til Lilja
bauð okkur í heimsókn til að sjá
kettlinginn sem hún átti. Frá og
með þessari heimsókn urðu góð
samskipti okkar á milli. Alexand-
er og Kristófer fóru oft í heimsókn
til Lilju að spjalla og líta eftir
heimilisvinunum, Fríðu og
Skessu. Lilja var þeim kær og hún
var áhugasöm um þeirra hagi.
Það verður mikill söknuður í því
að hafa hana ekki hjá okkur og sjá
hana ekki í eldhúsglugganum, því
venjan var að veifa til hvert ann-
ars.
Yndisleg kona er fallin frá, en
við munum varðveita minningu
hennar í hjörtum okkur.
Kæri Óli, Júlíana, Guðmundur
og Helgi, Guð gefi ykkur styrk í
sorg ykkar.
Hver minning dýrmæt perla að liðn-
um lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Karl Gauti, Sigurlaug,
Alexander og Kristófer.
Kveðja frá saumaklúbbnum
Að eiga vin er vandmeðfarið,
að eiga vin er dýrmæt gjöf.
Vin, sem hlustar, huggar, styður,
hughreystir og gefur von.
Vin sem biður bænir þínar,
brosandi þér gefur ráð.
Eflir þig í hversdagsleika
til að drýgja nýja dáð.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Þökkum Lilju samfylgdina á
liðnum árum og sendum Óla og
fjölskyldu samúðarkveðjur.
Guðfinna, Guðbjörg,
Margrét, Sigríður, Sig-
þóra og Sigurbjörg.
Kveðja frá deild VR
í Vestmannaeyjum
Fallin er frá kjarnakonan Lilja
Júlíusdóttir. Lilja lagði verkalýðs-
baráttunni í Vestmannaeyjum lið,
með setu í stjórn Verslunar-
mannafélags Vestmannaeyja frá
október 1994 til loka apríl 2000.
Eftir að Lilja hætti í stjórn sat
hún í trúnaðarráði félagsins þar
til Verslunarmannafélag Vest-
mannaeyja sameinaðist VR 8.
október 2007.
Með Lilju var gott að vinna,
hún var ráðagóð, hafði sterkar
skoðanir á hlutunum, á sama tíma
og hún virti skoðanir annarra. Það
var stutt í dillandi hláturinn og
nærvera hennar þægileg. Minn-
ing um samveru á fundum, nám-
skeiðum, vinnuferðum og öllu sem
fylgir starfi í stéttarfélagi er ljúf
eins og Lilja var. Hugurinn dvelur
hjá fjölskyldu Lilju og eru henni
sendar innilegar samúðarkveðjur.
Ég veit, að aldrei dvín
ástin og mildin þín,
því fel ég mig og mína,
minn Guð, í umsjá þína.
(Herdís Andrésdóttir.)
Lilju eru þökkuð störf í þágu
verslunarmanna í Vestmannaeyj-
um í rúman áratug. Þökkuð gef-
andi samfylgd og samstarf sem
aldrei bar skugga á.
Guðrún Erlingsdóttir,
formaður deildar VRÍ
Vestmannaeyjum
Lilja
Júlíusdóttir
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð vegna andláts móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGELLU ÞÓRÐARDÓTTUR,
Sóleyjargötu 10,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A-7
Landspítalanum Fossvogi.
Margrét Ármannsdóttir, Þorvaldur Jónasson,
Ármann Ármannsson, Sigurbjörg Ragnarsdóttir,
Þóra Emilía Ármannsdóttir,
Ásmundur Ármannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Einlægar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur hlýju og samúð við andlát og
útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
VILBORGAR BJÖRNSDÓTTUR,
Hulduhlíð,
Eskifirði,
áður Hjallavegi 1c,
Njarðvík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hulduhlíðar á Eskifirði fyrir
einstaka umönnun og hlýju í hennar garð.
Megi blessun Guðs fylgja ykkur öllum.
Ragnar Zophaniasson, Jenný Ólafsdóttir,
Birna Zophaniasdóttir, Herbert Árnason,
Arnar Gunnlaugsson,
Örn Kristinsson, Kolbrún Gunnlaugsdóttir,
Helgi Grétar Kristinsson, Svanfríður Gísladóttir,
Unnar Kristinsson, Borghildur Gunnlaugsdóttir,
Ragnhildur Kristinsdóttir,
Steinunn G. Kristinsdóttir, Pétur Axel Pétursson,
Eygló H. Kristinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð, hlýju og vinarhug
við fráfall og útför eiginmanns míns, föður
okkar og afa,
MAGNÚSAR BJARNA RAGNARSSONAR,
Miðstræti 15,
Bolungarvík.
Elsa Árnadóttir,
Guðjón Magnússon,
Auður Magnúsdóttir, Kristinn Sigurðsson,
Ragna J. Magnúsdóttir, Jón Bjarni Geirsson,
Valgerður Gunnarsdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
GUÐMUNDAR JÓNSSONAR,
Birnustöðum,
Skeiðum.
Sigrún Kristbjörnsdóttir,
Valgerður Guðmundsdóttir, Þórarinn Óskarsson,
Guðlaug Guðmundsdóttir, Haraldur M. Kristjánsson,
Kristbjörn Guðmundsson, Sigrún Magnúsdóttir,
Jóna Guðmundsdóttir, Gísli Sigurðsson,
Jón G. Guðmundsson, Kristín Guðmundsdóttir,
Ágúst Guðmundsson, Jóhanna Valgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SIGURBJARGAR GÍSLADÓTTUR,
fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðviku-
daginn 25. maí kl. 15.00.
Margrét Friðbergsdóttir, Bergþór Halldórsson,
Högni Bergþórsson,
Sigurbjörg H. Bergþórsdóttir, Karl Sæberg Jónsson,
Halldóra Bergþórsdóttir, Gestur Svavarsson
og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
mannsins míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
GUNNARS HAFSTEINS BJARNASONAR,
Látraströnd 3,
Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sólvangs í Hafnarfirði
fyrir umhyggju og vinarþel.
Magnea Rósa Tómasdóttir,
Sigríður Erla Gunnarsdóttir,
Áslaug María Gunnarsdóttir,
Agnar Darri Gunnarsson, Inga Gottskálksdóttir
og barnabörn.
✝
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför elskulegs
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
STEFÁNS GUNNARS JÓNSSONAR,
Birkivöllum 11,
Selfossi.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á
Vinaminni fyrir þeirra umönnun og hlýju.
Þór Stefánsson, Sigríður Waage,
Jóhanna H. Magnúsdóttir,
Kristín B. G. Marx, Erhard Marx,
Stefán Þór Gunnarsson, Elísa Rós Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.