Morgunblaðið - 21.05.2011, Page 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
✝ BergþóraKristjánsdóttir
var fædd í Köldu-
kinn á Ásum 14.
maí 1918. Hún lést
Heilbrigðisstofnun
Blönduóss 9. maí
2011. Foreldrar
hennar voru Guð-
rún Jónsdóttir Es-
pólín, kennari og
húsfreyja frá Mjóa-
dal, og Kristján
Kristófersson, bóndi Köldukinn.
Bergþóra á tvo yngri bræður þá
Jón, f. 1923, og Kristófer, f. 1929.
Árið 1941 giftist Bergþóra,
Pétri Péturssyni frá Bollastöð-
um í Blöndudal, f. 23.3. 1920, d.
13.1. 1979. Foreldrar hans voru
Þórunn Sigurhjartardóttir frá
Urðum í Svarfaðardal og Pétur
Jónsson frá Nautabúi í Skaga-
firði. Bergþóra og Pétur hófu
búskap á Bollastöðum í sambýli
við fóstru Péturs, Unni Péturs-
dóttur. Frá Bollastöðum fluttu
þau að Brandstöðum í sömu sveit
og þaðan til Blönduóss vorið
1949. Börn Bergþóru og Péturs
eru. 1) Þórunn, f. 1942, gift Ara
Hermannsyni, f. 1941, d. 1973.
Þeirra börn eru a) Þuríður Guð-
rún, f. 1963, maki Hjálmtýr Ingi
Hjálmtýsson. Börn Þuríðar eru
Guðrún Magnea faðir Árni
1988. Þá ólst upp hjá þeim hjón-
um frá þriggja ára aldri Pétur
Jónsson, f. 1942, maki Anna
Andreasdóttir, þau skildu.
Þeirra börn eru a) Kristín Björg,
f. 1964, Andrea Bergþóra, f.
1966, maki Ársæll Magnússon,
þeirra börn eru Magnús og Heið-
ar Ingi. c) Jón, f. 1967, hans barn
er Hjálmar Helgi, móðir Valdís
Steinarsdóttir. d) Jón Davíð, f.
1977, móðir Sigurrós Jónsdóttir.
Bergþóra ólst upp hjá for-
eldrum sínum í Köldukinn og
stundaði almenna skólagöngu
eins og tíðkaðist í farskóla fjóra
vetrarparta. Veturinn 33 til 34
var hún til frekara náms hjá séra
Þorsteini B. Gíslasyni í Steinnesi.
Bergþóra lauk námi frá Kvenna-
skólanum á Blönduósi vorið
1935. Árið 1953 fluttu Bergþóra
og Pétur í nýbyggt hús sitt á
Húnabraut 7 og bjó hún í því húsi
alla tíð eða í rúm 50 ár. Berg-
þóra vann ávallt mikið utan
heimilis, mest við verslunarstörf
og lengst af hjá Kaupfélagi Hún-
vetninga en einnig við versl-
unina Húnakjör og hjá Mjólk-
ursamlagi Austur-Húnvetninga.
Bergþóra starfaði mikið með
Kvenfélaginu Vöku og sat í
stjórn, meðal annars sem ritari
og var gerð að heiðursfélaga
þess árið 1993. Bergþóra rækt-
aði alla tíð garðinn sinn í tvenn-
um skilningi og gerði hvort-
tveggja vel.
Útför Bergþóru verður gerð
frá Blönduósskirkju í dag, 21.
maí 2011, og hefst athöfnin kl.
11.
Magnússon og
Magna Ýr faðir
Steen Johansson. b)
Unnur Sigurlaug, f.
1965, maki Árni
Stefánsson. Börn
Unnar eru Eva Þór-
unn, faðir Vignir
Arnarson og Sævar
Ari faðir Júlíus
Sævarsson. c) Her-
mann, f. 1966, maki
Astrid Boysen,
þeirra börn eru Sigrún Lind,
Elma Rún og Ari. d) Pétur Berg-
þór, f. 1970, maki Katrín Guð-
jónsdóttir, þeirra börn eru Sunn-
eva Rán, Þórunn Salka og Pétur
Ari. 2) Kristján Rúnar, f. 1947. 3)
Pétur Arnar, f. 1950, maki Helga
Lóa Pétursdóttir, þeirra börn
eru a) Sara Dögg, f. 1976, maki
Sævar Helgason, þeirra börn eru
Andri Snær, Arna Sól, Áslaug Ýr
og Ingibjörg Lóa. b) Unnur
María, f. 1979. c) Petra Sólveig,
f. 1987, sambýlismaður Gísli Dúa
Hjörleifsson. 4) Guðrún Soffía, f.
1956, maki Guðjón Guðjónsson,
þeirra börn eru a) Þorlákur Óm-
ar, f. 1977, maki Svanhildur Sig-
urjónsdóttir, þeirra barn er
Kristófer Snæbjörn. b) Bergþóra
Hrönn, f. 1978, hennar barn er
Guðjón Dunbar. c) Guðjón Ebbi,
f. 1983. d) Kristján Pétur, f.
Í nokkrum orðum vil ég þakka
samfylgdina, mamma mín. Á
þessari rúmlega 60 ára samleið
hafa á vegi mínum orðið bæði
blindsker og boðar, en þú varst
alla tíð áttavitinn í lífi mínu, sem
stöðugt passaðir uppá að beina
mér inn á rétta braut, sama
hversu oft ég villtist. Heiðarleiki,
kærleikur, réttsýni og dugnaður
eru orð sem lýsa þér vel ásamt
þolinmæði og þrautseigju. Það fór
enginn nestislaus af þínum fundi,
hvorki til hugar né handar. Þú
varst alþýðuhetja sem fórnaðir
þér fyrir fjölskylduna þar sem all-
ir fundu sitt skjól.
Ég sé þig fyrir mér taka stefn-
una norður Húnabrautina með
vindinn í fangið, í svörtu úlpunni
þinni og með hvíta stafinn í hend-
inni, bein í baki, höfuðið álútt,
skrefin ákveðin og gangan rösk-
leg. Þú ert lögð á stað til hinstu
farar sem þú varst löngu tilbúin
til.
Ég kveð þig, elsku mamma
mín, og hef yfir vísuna hans
tengdaföður þíns, Péturs Jóns-
sonar frá Nautabúi, sem hann orti
á dánarbeði sínum og á svo vel við
þig og bið vindinn að bera hana til
þín.
Fjör og máttur fjarar brátt,
feigð í gáttum kvikar.
Lyftum hátt við loka þátt
lífsins sátta bikar.
Hafðu hjartans þökk fyrir allt,
elsku mamma mín.
Þinn sonur
Pétur Arnar.
Elsku mamma.
Nú ertu loks komin aftur til
pabba eftir 32 ára aðskilnað.
Það er margs að minnast frá
liðnum árum og mig langar að
setja á blað nokkrar þeirra minn-
inga sem mér þykir hvað vænst
um. Með þeim fyrstu er líklega þið
að aðstoða mig við heimanámið,
þú eða pabbi allt eftir því hvað ég
var að læra hverju sinni. Einnig
kemur í hugann fyrsta útilegan
sem ég fór í með ykkur fram að
Laxárvatni. Ég man það var tjald-
að á Kotinu og ég var ekki í nein-
um svefnpoka, en það gerði ekk-
ert til þar sem ég var með þykkt
lag af teppum og úlpum bæði ofan
á mér og undir.
Svo voru það allar verslunar-
mannahelgarnar sem við fórum í
Húsafell og einu sinni austur að
Laugum í Reykjadal. Ég man líka
eftir ferðinni til Reykjavíkur með
Dússa á flutningabílnum. Þú varst
með saumavélina þína meðferðis,
til að láta gera við hana, og mér
fannst við þurfa að ganga um all-
an bæinn með blessaða vélina í
fanginu.
En það eru ekki bara ferðalög-
in sem eru eftirminnileg, heldur
einnig hversdagurinn. Þú, eins og
hvítur stormsveipur um húsið, að
þrífa, þvo þvotta og baka, allt á
sama tíma. Alltaf á fullu.
Sambandið og samverustund-
irnar breyttust með árunum og
rétt eins og þú hafðir stutt mig
reyndi ég að styðja þig þegar elli
kerling fór að sækja á. Óteljandi
bíltúrar um Blönduós og sveitirn-
ar í kring, spjall, í símann og
heima á Húnabrautinni, ferðir til
Akureyrar fyrir jólin, þar sem þú
varst með fullt veski af peningum,
engin kort, bara beinharða pen-
inga.
Við áttum líka margar góðar
stundir síðustu árin uppi á sjúkra-
húsi þar sem við sátum, spjölluð-
um og rifjuðum upp gamla tíma.
Og minningin um síðustu jól er
og verður mér einkar kær. Þú
varst með okkur á aðfangadags-
kvöld og ég held við höfum öll vit-
að, þú og við, að þetta yrðu síðustu
jólin okkar saman.
Þú varst til staðar fyrir mig og
svo þegar börnin mín komu
varstu alltaf til staðar fyrir þau,
og fyrir það er ég þér hjartanlega
þakklát.
Takk fyrir allt, elsku mamma
mín.
Þín dóttir,
Guðrún Soffía (Obba.)
Ég geng inn um dyrnar og inn í
eldhús. Amma kemur á móti mér,
brún og sælleg. Hafði setið úti í
sólinni eins og hún gerði svo oft.
Við setjumst í stofuna og spjöllum
um heima og geima. Eftir dágott
spjall ýja ég að því að nú þurfi ég
að fara. „Fara“, hún tekur það nú
ekki í mál, hún er ekki búin að
gefa mér neitt að borða. Inn í eld-
hús förum við og amma tekur til
við vöfflubakstur, engin uppskrift,
hin og þessi skúffa opnuð og
hrært í deiginu. Þrjár vöfflur með
rjóma renna auðveldlega niður í
maga og ég orðin alveg pakksödd.
„Ætlarðu ekki að borða meira?“
segir amma, „Þú ert ekkert búin
að borða.“ Það er ekki hægt að
neita ömmu svo ég borða aðeins
meira, sem var svo sem ekkert
svo erfitt þar sem þetta eru
heimsins bestu vöfflur. Áður en ég
veit af hef ég eytt lunganum úr
deginum hjá ömmu minni.
Þetta var lýsingin á ansi mörg-
um dögum sem ég eyddi hjá
ömmu. Alltaf var jafn gott að
koma til hennar og alltaf var mað-
ur jafn velkominn. Ég man aldrei
eftir að amma hafi skammað mig
eða sett út á neitt hjá mér. Tók
öllu með jafnaðargeði. Mér er
sagt að hún hafi verið skapstór en
aldrei sá ég hana skipta skapi.
Fyrir mér var hún kletturinn sem
aldrei haggaðist.
Elsku amma mín, takk fyrir
mig.
Sara.
Elsku besta amma Búlla, það
var ótrúlega sárt að taka við frétt-
inni að þú værir farin frá okkur.
Ég fann hvernig dofinn og sökn-
uðurinn helltust yfir mig. Aðeins
nokkrum dögum áður hafði ég
spjallað við þig í síma og ekki
langt síðan við héldumst í hendur
og létum hugann reika um liðna
tíð. Ég kyssti þig þá og sagði þér
hve heitt ég elskaði þig og bað
Guð að geyma þig, vitandi að það
gæti verið í síðasta skiptið sem ég
hitti þig. Þau voru þung sporin
þegar ég gekk í burtu frá þér þá.
Mér er svo minnisstætt sem
barn, þegar ég vaknaði á morgn-
ana, þá voru öll tæki og tól komin í
gang, þú í morgunsloppnum, í
stígvélum og á fullu, að undirbúa
hádegismatinn, þvo þvott og í
garðvinnu, allt áður en þú fórst til
vinnu í Kaupfélaginu. Hér er þér
best lýst, elsku amma, allt sem þú
tókst þér fyrir hendur var vel
gert, með mikilli alúð og atorku.
Það var ekki að ástæðulausu að þú
fékkst oftar en einu sinni verðlaun
fyrir garðinn þinn og tala ég ekki
um þessar yndislegu ömmupönns-
ur og bakkelsi sem þú varst alltaf
með á boðstólum.
Þú varst ótrúlega kærleiks- og
skilningsrík kona. Viskubrunnur
þinn var óþrjótandi. Svo margt
sem þú kenndir mér um lífið og
tilveruna. Það barn sem býr við
alúð og vináttu, lærir að elska. Þú
kenndir mér að sjá alltaf jákvæð-
ar og góðar hliðar á hlutunum.
Þegar sálartetrið mitt var í mol-
um eftir að pabbi drukknaði, ég
aðeins 10 ára gömul, þá hjálpaðir
þú mér að komast í gegnum þann
sársauka og hafðir alltaf tíma til
að hlusta endalaust á mig.
Elsku amma mín, ég er svo
þakklát fyrir að hafa átt svona
yndislega ömmu sem var líka mín
besta vinkona. Haft þig allan
þennan tíma sem er alveg ómet-
anlegt. Yndisleg upplifun þegar
við systur og börn fórum saman
með þér í sólarlandferð, þú þá 75
ára gömul. Þakklát fyrir hvað þú
hefur alltaf verið til staðar fyrir
mig og mína fjölskyldu. Það var
alltaf tilhlökkun að koma í heim-
sókn á Húnabraut 7, enda eydd-
um við allmörgum stundum þar
með þér og Kristjáni frænda, en
honum er ég óendalega þakklát
fyrir að hugsa svona vel um þig,
elsku amma mín. Okkar reglu-
bundnu ísrúntar um bæinn og
heimsóknir okkar í kirkjugarðinn
sem okkur báðum var svo mik-
ilvægt þ.e. að sinna grafreit þeirra
sem farnir eru með blómum og
spjalli. Þótt maður hafi verið bú-
inn að undirbúa sig undir það and-
lega að þurfa að kveðja þig er það
samt erfitt. Nú er þinn tími kom-
inn og okkar tími saman búinn.
Farðu í friði, elsku hjartans amma
mín, friður og ró var þinn lífsstíll.
Hamingja og gleði fylgi þér yfir á
næsta tilverustig.
Ég kveð þig nú með þessum
orðum en þau eiga eftir að vera
fleiri í bænum mínum:
Ég man það sem barn að ég marg-
sinnis lá
og mændi út í þegjandi geiminn,
og enn get ég verið að spyrja og
spá,
hvar sporin mín liggi yfir heiminn.
En hvar sem þau verða mun
hugurinn minn,
við hlið þína margsinnis standa,
og vel getur verið í síðasta sinn
ég sofni við faðm þinn í anda.
(Þorsteinn Erlingsson.)
Þín,
Þuríður.
Það er svo afar sárt að kveðja
Búllu ömmu. Það er þó söknuður
frekar en sorg sem fyllir hjartað,
enda hún gömul kona, búin að
skila sínu og löngu tilbúin að fara.
Myndin af ömmu í huga mínum í
dag er hún úti í garði á Húna-
brautinni, með gráar krullurnar,
sólbrúnt hrukkótt andlitið og fal-
legu bláu augun.
Hún var yndisleg amma, alltaf
til staðar og tilbúin að ræða allt.
Þessa síðustu daga hafa fjölmarg-
ar minningar komið upp í hugann,
enda af nógu að taka, jólin, spjall
við eldhúsborðið, leikir inni og í
garðinum. Við fjórmenningarnir
hennar, eins hún nefndi okkur
einu sinni við mig, Sara, Láki, ég
og Unnur, fórum ansi oft í feluleik
á Húnabrautinni. Felustaðirnir
virtust endalausir, skápurinn und-
ir stignum, stigaskápurinn uppi,
skápurinn uppi í stóraherberginu
og auðvitað fataskáparnir hennar
ömmu þar sem við tróðum okkur
inn í hillurnar. Þó að amma hafi
eflaust ekkert verið of hrifin af
þessum sið hjá okkur, að skríða
inn í fataskápana hennar, man ég
ekki til þess að hún hafi nokkru
sinni skammað okkur fyrir það,
kannski hef ég bara ákveðið að
muna það ekki. Ég veit að amma
var tilbúin að fara. Það eru eflaust
tólf þrettán ár síðan hún opnaði
fyrst skápana á Húnabrautinni og
sagði mér að taka það sem ég
vildi. Það væri allt eins gott að
koma þessu út meðan hún væri
enn lifandi, við þyrftum þá ekki að
rífast um þessa hluti þegar hún
væri farin. Í hennar huga var
þetta eðlilegur gangur lífsins og
ekkert óeðlilegt að ræða um dauð-
ann. Ég man hún sagði mér einu
sinni að ég ætti að fá kassa, sem
hún geymdi alltaf uppi í skáp í
svefnherberginu sínu. Hann var
sérstaklega smíðaður fyrir hana
og hún geymdi í honum ýmis bréf
og persónulega muni. Hún tók
fram að þó að ég ætti að fá kass-
ann þá ætti ég ekkert að vera að
hnýsast í bréfin, þau væru hennar
einkamál. Þetta sagði hún og
glotti og bætti við að hún vissi vel
að ég myndi lesa þau. Í dag veit ég
að ég mun alltaf geyma bæði bréf-
in og kassann. Á sama hátt og ég
mun alltaf varðveita minninguna
um Búll’ömmu mína.
Bergþóra Hrönn.
Við amma sitjum við eldhús-
borðið á Húnabraut 7. Í loftinu er
ilmur af nýbökuðum vöfflum sem
við höfum rétt í þessu verið að
baka. Hjá ömmu má nefnilega
hjálpa til við baksturinn, þó svo að
maður sé bara fimm ára.
Framan úr forstofu inni á gangi
berst hljóð sem gefur til kynna að
pósturinn hafi verið að berast. Ég
stekk á fætur og næ í póstinn fyrir
ömmu.
Þegar ég kem til baka rétti ég
ömmu bréf og segi „Trygginga-
miðstöðin“.
Amma fer að hlæja og spyr ef-
ins hvort ég þekki merkið á bréf-
inu. „Nei amma, ég kann að lesa,“
svara ég.
Þá réttir amma mér Gluggann
og biður mig að lesa af forsíðunni.
Ég geri það og allt í einu sé ég að
amma er í algjöru hláturskasti!
Hún er svo ótrúlega glöð og
stolt af mér að ég kunni að lesa.
Svona varst þú elsku amma
mín. Alltaf svo sæt og góð og stolt
af þínu fólki. Þú sást einungis það
besta í öllum.
Eftir að ég lærði að lesa byrj-
aðir þú að gefa mér bækurnar um
Fríðu framhleypnu. Ég var alltaf
jafnglöð að fá nýja Fríðubók og
stundum fékk ég bók frá þér þó
svo að það væru hvorki jól né af-
mæli. Þá fórst þú í skápinn bak
við eldhúshurðina og galdraðir
fram enn eina bókina um Fríðu og
gafst litla lestrarhestinum þínum.
Ég var svo mikið hjá þér sem
barn og á svo ótalmargar minn-
ingar um okkur tvær saman. Allir
göngutúrarnir í kirkjugarðinn að
leiðinu hans afa þar sem við tínd-
um fífla og sóleyjar á leiðinni og
bjuggum til blómakransa, þegar
við keyptum nýtt sófasett og
sögðum engum frá því og þegar
ég gisti hjá þér og þú færðir mér
klementínur fylltar með sykur-
molum.
Þú nenntir alltaf að spila við
mig Ólsen og enginn nema þú
nennti að horfa á sömu spóluna
með Hemma Gunn aftur og aftur
með mér.
Hjá þér var alltaf svo gott að
vera og ég gæti talið endalaust
áfram, svo margar eru minning-
arnar.
Pabbi segir alltaf að ég hafi
erft það frá þér að geta munað
svo margt og svo vel. Ég ætla að
passa vel upp á allar þær góðu og
skemmtilegu minningar sem ég á
um þig elsku amma. Síðan seinna
þegar ég eignast börn mun ég
segja þeim sögur af þér og þeirri
ótrúlegu ofurkonu sem þú varst.
Góða ferð amma mín. Við
sjáumst síðar og þá mun ég hafa
svo margt að segja þér.
Þín
Petra.
Elsku amma Búlla,
Í stað þess að skrifa langan
texta ákváðum við systurnar að
semja til þín lítið ljóð.
Komin er hinsta kveðjustund
hlýjar minningar streyma.
Nú afi þig leiðir á frelsarans fund,
þig ég bið Guð að geyma.
Ég þakklát þér er fyrir öll árin,
minningar varðveiti í hjarta mér.
Þó get ég brosað og þerrað burt
tárin,
því hvíldar þú óskaðir þér.
Hjarta mitt ástúð og kærleika
vafðir
í því nú lifir minning þín.
Jákvæðni og gleði ætíð þú hafðir,
Guð blessi þig elsku amma mín.
Þín verður sárt saknað, elsku
amma,
Guðrún Magnea
og Magna Ýr.
Elsku yndislega amma mín, nú
ertu búin að fá hvíldina, lang-
þráða. Ég veit að afi, pabbi og
hinir englarnir hafa tekið vel á
móti þér. Ég á svo mikið af ynd-
islegum minningum um þig og
það sem þú varst mér. Það er svo
ljúft að rifja það upp og dýrmætt
að eiga.
Þú varst amman sem alltaf var
hægt að leita til og tala um allt
við. Það var ómetanlegt þegar við
vorum að alast upp á Blönduósi
að eiga athvarf á Húnabrautinni,
hvort sem var í hádeginu, eftir
skóla eða á öðrum tímum og svo
að fá að gista hjá þér. Þú virtist
alltaf hafa nægan tíma til að sinna
okkur og alltaf var heimilið þitt
opið fyrir okkur. Þá man ég hvað
var gott að kíkja í skúffuna í eld-
húsinu því þar fann maður t.d.
partana þína sem voru þeir allra
bestu og ástarpungana.
Ég minnist þín að verki í fal-
lega garðinum þínum sem var þitt
líf og yndi. Þar sé ég þig fyrir mér
á hnjánum, að gróðursetja litrík
blóm. Ekki er hægt að minnast
þín nema að nefna Kaupfélagið,
en þar vannstu í fjölda mörg ár og
held ég að allir hafi vitað hver
Búlla í Kaupfélaginu var.
Við töluðum saman um alla
heima og geima og man ég eftir
einu samtali þegar ég var enn ein-
hleyp og við ræddum um hlutverk
karls og konu í sambandi. Þér
fannst ég fullmikil kvenremba og
hélst trúlega að ég myndi aldrei
ganga út, en þú varst af gamla
skólanum þar sem konur sáu um
ákveðin hlutverk og karlarnir
áttu ekki að gera sumt eins og t.d.
þvo þvotta. Svo seinna meir að
gista hjá þér á leið norður eða
suður, eða að koma við í kaffi. Það
klikkaði ekki ef að við hringdum á
Bergþóra
Kristjánsdóttir
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu, lang-
ömmu og langalangömmu,
ELÍNBORGAR MARÍU EINARSDÓTTUR,
Ytri-Varðgjá,
Eyjafjarðarsveit.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Lerkihlíðar á dvalar-
heimilinu Hlíð fyrir hlýja og góða umönnun.
Tryggvi Harðarson, Freyja Guðmundsdóttir,
Sigríður Harðardóttir,
Svavar Harðarson, Brynhildur Pálsdóttir,
Birna Harðardóttir
og ömmubörnin öll.
Legsteinar og fylgihlutir
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk
sími 587 1960 www.mosaik.is
• Mikið úrval
• Yfir 40 ára reynsla
• Sendum myndalista