Morgunblaðið - 21.05.2011, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 21.05.2011, Blaðsíða 44
44 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011 Sudoku Frumstig 4 8 2 5 7 9 2 8 5 2 1 7 8 9 6 7 5 9 1 9 7 5 1 4 6 2 3 6 4 4 2 1 2 4 5 1 8 4 5 6 1 5 3 3 1 8 6 5 6 4 7 3 1 8 6 2 7 1 3 2 2 3 8 8 5 4 6 6 4 3 7 2 8 1 5 3 2 6 8 1 4 7 9 5 3 9 7 3 8 2 5 1 6 4 1 5 4 9 3 6 8 7 2 7 3 9 2 5 1 4 8 6 6 8 2 4 9 3 5 1 7 5 4 1 7 6 8 2 3 9 8 9 5 6 7 2 3 4 1 4 1 6 3 8 9 7 2 5 3 2 7 5 1 4 6 9 8 6 5 2 7 1 8 4 9 3 3 1 8 9 4 2 6 7 5 7 9 4 5 3 6 2 8 1 9 2 3 4 6 7 1 5 8 8 7 6 1 2 5 3 4 9 5 4 1 8 9 3 7 2 6 4 3 9 2 8 1 5 6 7 2 6 5 3 7 9 8 1 4 1 8 7 6 5 4 9 3 2 7 8 5 6 9 4 3 2 1 6 1 9 5 3 2 4 7 8 2 4 3 1 8 7 5 6 9 3 9 8 2 4 5 7 1 6 4 2 6 7 1 9 8 3 5 5 7 1 8 6 3 2 9 4 9 5 2 4 7 1 6 8 3 8 3 4 9 2 6 1 5 7 1 6 7 3 5 8 9 4 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 21. maí, 141. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Jesús sagði við hann: Far þú, trú þín hefur bjargað þér. Jafn- skjótt fékk hann sjónina og fylgdi hon- um á ferðinni. (Mark. 10,52.) Dómsdagur er í dag. Ef JesúsKristur er ekki þegar snúinn aftur þegar þessi orð eru lesin má eiga von á honum hvað úr hverju, að minnsta kosti ef marka má banda- ríska predikarann Harold Camping. Hann boðar að Kristur muni safna hinum hólpnu til sín en hinna trú- lausu bíði nöturleg örlög. Yfirvofandi heimsendir ætti vonandi ekki að hafa farið fram hjá neinum því fyrirtæki Campings hefur af einskærri góð- mennsku tekið að sér að auglýsa dómsdaginn um allan heim í útvarpi og dagblöðum, m.a. á Íslandi. Camping segist nokkuð viss um að hafa náð að dreifa boðskapnum til heimsbyggðarinnar allrar, nema hann er ekki viss um að þetta hafi skilað sér til „stan-landanna“ eins og hann kallar þau: Mið-Asíuríkjanna Afganistans, Úsbekistans, Kasak- stans o.fl. Því gæti farið svo að íbúar þeirra missi alveg af heimsendi í ár. x x x Sjálfur ætlar Camping samt ekkiað missa af neinu, því síðasta degi sínum á þessari jörð ætlar hann að verja við sjónvarpið og útvarpið til að fylgjast spenntur með því þegar dómsdagur byrjar í tímabeltum sem eru á undan Kaliforníu. Þegar þessi orð eru skrifuð er 21. maí reyndar þegar runninn upp hin- um megin á hnettinum en enn hafa engar fréttir borist af brotthrifn- ingum frá Japan eða Nýja-Sjálandi. Það þarf þó ekki að þýða neitt því auðvitað er það mikil vinna að ætla að hrífa á brott með sér 200 milljónir manna og varla hægt að ætlast til að Kristur hefjist handa fyrr en að lokn- um staðgóðum morgunverði. x x x Víkverji ætlaði sér upphaflega ekkiað taka mikinn þátt í heimsendi í þetta skiptið, með það í huga að lítið varð úr heimtum þegar Camping spáði honum síðast árið 1994. En svo laust niður hugsuninni „Hvað ef?“ Til vonar og vara ætlar Víkverji að muna að bjóða maka sínum góðan dag með kossi og tjá honum ást sína. En það á reyndar alltaf að gera, ekki bara á dómsdegi. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 kleifur, 8 tottar, 9 lélegum, 10 kraftur, 11 vot- lendi, 13 tré, 15 segl, 18 tafl- manns, 21 svefn, 22 gras- flötur, 23 sníkjudýr, 24 borginmennska. Lóðrétt | 2 ýkjur, 3 ýlfrar, 4 vindhani, 5 snagar, 6 fiskum, 7 litli, 12 umfram, 14 bók- stafur, 15 hryggdýr, 16 fá gegn gjaldi, 17 báran, 18 slit- ur, 19 ómögulegt, 20 hugur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 djörf, 4 hugur, 7 lúkum, 8 ýlfur, 9 mör, 11 aurs, 13 hrun, 14 úrinu, 15 farg, 17 garn, 20 sum, 22 álkan, 23 jökul, 24 annar, 25 runni. Lóðrétt: 1 della, 2 öskur, 3 fimm, 4 hlýr, 5 gæfur, 6 rýran, 10 öl- inu, 12 súg, 13 hug, 15 fjáða, 16 rokan, 18 aukin, 19 núlli, 20 snar, 21 mjór. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Zen. Norður ♠10742 ♥Á92 ♦K72 ♣K74 Vestur Austur ♠5 ♠96 ♥K743 ♥DG6 ♦DG10654 ♦983 ♣102 ♣ÁDG65 Suður ♠ÁKDG83 ♥1085 ♦Á ♣983 Suður spilar 4♠. „Hvernig hljómar klapp annarrar handar?“ spurði Zen-meistarinn og lagðist til svefns á meðan lærisveinn- inn velti vöngum. Hann gat sofið lengi, því einhlítt svar er ekki til. En hvernig lítur einlita þvingun út? Fáir spilarar hafa náð því þroskastigi að geta séð fyrir og byggt upp slíkt bragð við borð- ið, en oft koma menn auga á mögu- leikann eftirá. Það gildir um spilið að ofan, sem er frá Cavendish-mótinu í Vegas. Gerum langa sögu stutta: Útspilið er tígull. Sagnhafi dúkkar hjarta til aust- urs, hreinsar upp rauðu litina og klárar trompin. Í fjögurra spila endastöðu á blindur eitt tromp og ♣K74, en sagn- hafi hátromp og ♣983. Vestur á tvö rauð spil og ♣102, en austur ♣ÁDG6. Hverju á austur að henda í síðasta trompið? ZZZ … 21. maí 1940 Handritasafn Landsbóka- safnsins var flutt í hundrað kössum á tryggan geymslu- stað utanbæjar. Vegna styrj- aldarástandsins átti einnig að flytja íslenskar bækur úr safn- inu, skjöl úr Þjóðskjalasafninu og „dýrgripi“ Þjóðminjasafns- ins. 21. maí 1983 Ásmundarsafn, safn Ásmund- ar Sveinssonar myndhöggvara við Sigtún í Reykjavík, var formlega opnað. Sex árum áð- ur gaf listamaðurinn Reykja- víkurborg safnið eftir sinn dag. Safn Ásmundar við Freyjugötu hafði verið opnað almenningi í maí 1934. 21. maí 1994 Sturla Friðriksson lagði til í grein í Lesbók Morgunblaðs- ins að Íslendingar veldu holta- sóley sem þjóðarblóm. Í kjöl- far þess var ákveðið að velja hana sem þjóðhátíðarblóm 1994. Áratug síðar var holta- sóley valin þjóðarblóm í at- kvæðagreiðslu. 21. maí 1997 Þrír Íslendingar komust á tind Mount Everest, hæsta fjalls heims, sem er 8.848 metrar, kl. 7.15 að íslenskum tíma. Þetta voru Björn Ólafsson, Einar K. Stefánsson og Hall- grímur Magnússon. Tilkynn- ing þeirra til félaganna sem biðu í grunnbúðunum var svo- hljóðandi: „Við komumst ekki hærra.“ Ferðin á tindinn tók þrettán klukkustundir og ferðin niður fimm klukku- stundir. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Háskólaneminn Auður Friðriksdóttir fagnar 21 árs afmæli sínu í dag. Reyndar fagnar hún því ekkert sérstaklega mikið, enda seg- ist hún ekki hafa gaman af því að eldast. Auður mun ekki halda sérstaka veislu í til- efni dagsins og ætlar að láta sér nægja að fara út að skemmta sér í kvöld, annars vegar í útskriftarveislu og hins vegar í kveðjuhófi hjá vinum sínum sem flytja brátt til útlanda. Í dag ætlar Auður að hitta fjölskylduna og að öllum líkindum kíkja í kaffi til ömmu sinnar. Auður kveðst þó eiginlega hafa haldið upp á afmælið sitt í gær, þegar hún og kærasti hennar, Árni Freyr Snorrason, fóru saman upp í sumarbústað og höfðu það náðugt. Auður og Árni Freyr reyna að nýta hverja stund þessa dagana til að vera saman, en í lok mánaðarins flytur Auður til Danmerkur, hvar hún mun vinna í allt sumar. Auður fer með vinkonu sinni til Danmerkur og mun deila íbúð með henni í Kaupmannahöfn. Auð- ur hlakkar til að fara út en játar að kærastinn sé ekki jafn spenntur og hún. gislibaldur@mbl.is Auður Friðriksdóttir er 21 árs í dag Finnst leiðinlegt að eldast Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 21. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 2.59 0,4 9.04 3,5 15.04 0,6 21.28 3,8 3.54 22.55 Ísafjörður 5.06 0,2 10.55 1,8 17.01 0,4 23.16 2,1 3.29 23.31 Siglufjörður 0.48 1,3 7.10 0,1 13.35 1,1 19.16 0,3 3.11 23.15 Djúpivogur 0.04 0,5 5.50 2,0 12.04 0,4 18.30 2,2 3.17 22.32 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú verður hugsanlega valin/n til að gegna tilteknu hlutverki með mjög áberandi hætti. Vertu óhrædd/ur að tala á manna- móti. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú ert hress, jákvæð/ur og bjartsýn/n á framtíðina. Frá og með deginum í dag muntu krefjast meiri gleði og skemmtunar í lífi þínu. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er alltaf gaman að hitta aðra, þegar aðstæður leyfa. Er ekki kominn tími til þess að slaka á? Þú þarft að lyfta þér upp endrum og sinnum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Einhvern veginn ertu að missa tökin og verður að taka þig á ef hlutirnir eiga ekki að renna út í sandinn hjá þér. Ekki ómaka þig með reiði eða pirringi. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú bæði elskar að taka áskorunum og að gera ekki neitt – og ert því í klípu. Ræddu við einhvern þér eldri og vitrari því það getur komið sér vel í dag. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Komdu bara til dyranna eins og þú ert klædd/ur og þá sérðu hvers þú ert megnug/ ur. Þú átt von á glaðningi. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þér finnst of margir sækja að þér í einu og vilt því leita uppi einveruna. Athugaðu vel þinn gang og gerðu ekkert nema að vandlega athuguðu máli í deilumáli. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Rannsóknir þínar leiða margt ánægjulegt í ljós. Allt sem viðkemur keppn- isíþróttum, fjármálaviðskiptum og listum gengur að óskum. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það felur í sér mikla ábyrgð að leiða starf annarra. Hugsaðu þig vel um áður en þú tekur ákvörðun um fjárfestingu. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Grunsemdir eru sjaldnast traustur grundvöllur til athafna og leiða mann oftar en ekki í ógöngur. Nú reynir á sjálfsaga þinn og skipulagningu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Láttu ekki feimnina hindra þig. Þú færð nýja sýn á lífið eftir vissan atburð. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Allt er á ferð og flugi og því erfitt að reiða hendur á einstökum hlutum. Láttu ekki hugfallast heldur gerðu það sem þarf til að koma skipulagi á líf þitt. Stjörnuspá 1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. Bg5 c6 5. Dd2 b5 6. a3 Bg7 7. f4 0-0 8. Rf3 Ra6 9. Be2 Rc7 10. 0-0 a6 11. Had1 Bb7 12. e5 Rfe8 13. Re4 f6 14. Bh4 c5 15. exf6 exf6 16. Rc3 c4 17. d5 Dd7 18. Rd4 f5 19. Bf3 Rf6 20. Re6 Hf7 21. Rxg7 Kxg7 22. Dd4 Rce8 23. Hfe1 Bc8 24. He6 Da7 25. Bxf6+ Rxf6 26. Hxd6 Dxd4+ 27. Hxd4 He7 Staðan kom upp í síðari hluta ann- arrar deildar Íslandsmóts skákfélaga sem lauk fyrir nokkru í Rimaskóla. Alþjóðlegi meistarinn Dagur Arn- grímsson (2.367) hafði hvítt gegn Pálmari Péturssyni (2.085). 28. Hxf6! og svartur gafst upp enda liðs- tap óumflýjanlegt eftir 28. … Kxf6 29. d6. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.