Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 45
DAGBÓK 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand SJÁÐU ODDI! ÞARNA ER KANÍNA! ÚT- SKÝRÐU ÞETTA! ÞETTA VAR BARA OF FYNDIÐ VEISTU HVAÐ ÉG ÞOLI EKKI? ÉG ÞOLI EKKI ÞEGAR FÓLK SEGIR: „FARÐU NÚ Í HÁTTINN” ÉG ÞOLI EKKI ÞEGAR EINHVER SEGIR VIÐ MIG: „ÞÚ ERT OF UNG” ÞAÐ SEM ÉG ÞOLI EKKI AÐ HEYRA ER: „KOMDU HINGAÐ KISA, KISA, KIS” MÖMMU LANGAR AÐ KOMA Í HEIMSÓKN... ...EN HÚN SETTI EITT SKILYRÐI HVAÐ ER ÞAÐ? AÐ ÞÚ FÆRIR EITTHVAÐ ANNAÐ Á MEÐAN SVONA FÍFÍ MÍN, ÞÚ ERT ÖLL Í HNÚT. Á ÉG EKKI AÐ NUDDA ÞIG AÐEINS OG LOSA UM ÞESSA HNÚTA? ÉG KUNNI BETUR VIÐ HANA ÞEGAR HÚN VAR ÖLL Í HNÚT GÆTI VERIÐ AÐ ÉG HAFI GLEYMT HATTINUM MÍNUM HJÁ YKKUR Í GÆRKVÖLDI? ÉG SÉ HANN EKKI HJÁ ÓSKILA- MUNUNUM EN VIÐ LÁTUM ÞIG VITA EF HANN KEMUR Í LEITIRNAR ÉG ROTAÐI VÖRÐINN FYRIR BIGSHOT EN HVAÐ GERI ÉG NÚNA? ÉG VERÐ Á FLÓTTA ÞAÐ SEM EFTIR ER DRÍFÐU ÞIG SANDMAN, ÉG ÞARF Á ÞÉR AÐ HALDA Með morg- unkaffinu Margir hafa fyrir vana að lesa blöðin í eldhús- inu á morgnana yfir bolla af kaffi áður en haldið er til vinnu. Þeir leita eftir nýjustu fréttum og því sem efst er á baugi. Allt of oft eru þetta fréttir af því sem miður hefur farið í þjóðfélaginu, svo sem hrottalegum glæpum, fjölskyldu- harmleikjum, líkams- árásum, þjófnuðum og öðrum afbrotum. Varla getur slík lesning verið gott veganesti fyrir dag- inn og enn síður góð og holl andleg næring með morgunkaffinu. Þurfa fréttir endilega að snúast um það sem aflaga fer í samfélagi manna? Er búið að gera fólk að slíkum spennufíklum og ofbeldissjúklingum að ekki þýðir lengur að bera á borð fyrir það annað en blóði drifnar fréttir? Þykir orðið of væmið að greina frá því sem fallegt er? Mætti ekki t.d. segja fréttir af fal- legri sólarupprás eða sólarlagi, blóm- unum í Hljómskálagarðinum og önd- unum á Tjörninni; ástföngnu pari, fiskveiðum trillukarlsins eða degi úr lífi strætóbílstjóra? Hvernig væri að lesa þessar fréttir til tilbreytingar: Alkóhólisti heldur upp á árs bindindi. Handrukkari gerist sjálf- boðaliði Rauða krossins. Þjófur gefur fátækum eigur sínar. Erkifjendur til margra ára gerast hin- ir mestu mátar og hittast vikulega yfir kaffi og rjómapönnukökum. Hvernig væri til dæmis að segja fréttir af fólki sem byrjað hefur nýtt líf eftir að hafa misstigið sig illilega á stigum lífsins, en unnið sigur? Ýmislegt mætti læra af slíkum fréttaflutningi, fólki sem snúið hefur við blaðinu og orðið nýtir þjóðfélags- þegnar, reynslunni ríkara eftir raun- ir, iðrun og endurreisn. Eru það ekki þær góðu fréttir, sem segja má frá, sú upplífgun, sem fólk getur glaðst yfir í byrjun nýs dags og sem gefur von um betra og fegurra mannlíf? Svo eru margir sem kjósa sér einfaldlega að byrja daginn með lestri guðsorðs, en fagnaðarerindið um Jesú Krist hefur um aldir verið kallað hinar góðu frétt- ir. „Sæll er sá maður, sem hefur yndi af lögmáli Drottins og hugleiðir lög- mál hans dag og nótt.“ (Sálmarnir 1:1-2.) Einar Ingvi Magnússon. Ást er… … að finnast þið vera saman, jafnvel þótt hann sé í burtu. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Karlinn á Laugaveginum var ídjúpum þönkum, þar sem hann gekk niður Frakkastíginn. Hann hafði orð á því, að línurnar í Hall- grímskirkju vissu allar upp á við og turninn langleiðina upp til himna, en daufleg væri vistin hér á landi núna: Vor alvaldsherra er illa styggur við okkur héðra, veit að beina brautin liggur beint í neðra. Vigdís Sigurðardóttir í Borgum í Þistilfirði skrifar mér og segir: „Hér er kalt í veðri og spáir meiri kulda, frosti og snjó. Ekki mjög glæsilegt fyrir fugla og fénað.“ Hún segist hafa hripað í skræðu gamla: „Erlendur Gottskálksson (1818- 1894) gisti á Efri-Hólum: Efri-Hóla eru hús ötuð skít og fúa. Þar býr fló og þar býr lús og þar má fjandinn búa. Efri-Hólabónda barst vísan og Vísnahorn Vor alvaldsherra er illa styggur svaraði (ekki veit ég hver sat Efri- Hóla þá): Erlendur er illskufús, öldin má því trúa. Fjandinn geymi honum hús, herbergi í að búa. Svo er þessi eftir Sigurbjörn Guð- mundsson frá Nýja-Hóli á Hóls- fjöllum. Um lundbágan kvenmann. Bræðin svellur brunni frá, bænir hvellt hún þylur. Reiðin skellur óðar á eins og fellibylur.“ Ég þakka Vigdísi þetta góða bréf. Ástæða er til að minnast Erlends síð- ar, sem var bændahöfðingi, alþing- ismaður og gott skáld. Og framsýnn skulum við segja með stöku í huga: Hrellir tíðarhryðjan mörg, hryllilega verslun ill, brellin landsstjórn, álög örg öllu skella á hausinn vill. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Flestir Íslendingar höfðu ríkasamúð með Finnum, þegar Stal- ín réðst inn í land þeirra í desember- byrjun 1939, í upphafi heimsstyrjald- arinnar síðari. Dáðust menn að frækilegri vörn smáþjóðarinnar. Ekki voru þó allir Íslendingar sammála. Það mun hafa verið Brynj- ólfur Bjarnason, sem smíðaði háðs- yrðið „Finnagaldur“ um stuðning Ís- lendinga við Finna. Orðið kemur fyrst fyrir í þeirri merkingu, svo að ég viti, í fyrirsögn greinar eftir hann í Þjóðviljanum 7. desember 1939. Tóku þrír einörðustu stalínistar landsins, þeir Þórbergur Þórðarson, Halldór Kiljan Laxness og séra Gunnar Benediktsson, það óðar upp í skrifum sínum. Það jók á áhrifamátt orðsins, að í fornu máli voru Samar í norðurhluta Noregs, Svíþjóðar og Finnlands nefndir „Finnar“ og þóttu göldróttir. Þegar Finnar neyddust til þess í mars 1940 að ganga að flestum kröf- um Kremlverja í því skyni að ljúka stríðinu, voru margir Íslendingar daprir og reiðir fyrir þeirra hönd. Hermann Jónasson forsætisráð- herra var 14. mars 1940 staddur inni í ráðherraherberginu svonefnda inn af sal efri deildar, sem var. Fór hann hörðum orðum um þjónkun íslenskra stalínista við Moskvumenn. Brynj- ólfur Bjarnason heyrði til hans og kallaði til hans, að hann væri lands- frægur fyrir heimsku. Rak Hermann Brynjólfi þá löðrung, svo að í small. Þegar Brynjólfur bar sig upp und- an þessu við þingforseta, kvaddi Hermann sér hljóðs og mælti: „Það er gamall og góður íslenskur siður, sem hefur verið notaður í mörg hundruð ár við stráka, sem eru óprúttnir í orðum, að gefa hinn svo- kallaða íslenska kinnhest.“ Hafa því fleiri íslenskir stjórn- málamenn „heilsað að sjómannasið“ en Árni Johnsen. Raunar var kinnhestur Hermanns rifjaður upp á þingi níu árum síðar, 31. mars 1949. Stúlka ein, Margrét Anna Þórðardóttir, hafði slegið til Stefáns Jóhanns Stefánssonar for- sætisráðherra, er hann hafði gengið út úr þinghúsinu daginn áður eftir óeirðir á Austurvelli. Brynjólfur Bjarnason sagði af því tilefni: „Hún hefði átt að fá verðlaun!“ Ólafur Thors greip þá fram í: „Ekki var Hermann verðlaunaður, þegar hann gaf þér á kjaftinn!“ Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar. Hannes H. Gissurarson hannesg@hil.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Finnagaldur að fornu og nýju

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.