Morgunblaðið - 21.05.2011, Page 46

Morgunblaðið - 21.05.2011, Page 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011 Eiginlegar samninga-viðræður við Evrópu-sambandið hefjast í sum-ar, tæpum tveimur árum eftir að ríkisstjórnin lagði inn aðild- arumsókn. Það er við þessi tímamót sem dr. Eiríkur Bergmann Einarsson Evr- ópufræðingur gefur út bókina Sjálf- stæð þjóð: Trylltur skríll og land- ráðalýður. Með henni fylgir hann eftir fyrra verki sínu, Frá Evró- visjón til evru, og er hér gengið út frá því að báðar séu fyrir almenn- ing. Með hinu nýja verki leitast Eirík- ur Bergmann við að skýra tilurð þjóðernisvitundar á Íslandi, hvernig hún hefur haft mótandi áhrif á stjórnmálaumræðu og deilur um al- þjóðasamstarf, á borð við aðild að Atlantshafsbandalaginu og EES- samninginn. Höfundur vitnar nokkrum sinnum í Jón Jónsson Að- ils sagnfræðing og fyrirlestra hans um sögu lands og þjóðar um alda- mótin 1900. Við þá endursögn rifjast upp sú söguskoðun Jóns Aðils að á fyrstu öldum Íslandsbyggðar hafi orðið til samfélag á eyjunni bláu sem hafi skilið eftir sig slík afrek á bók- menntasviðinu að leita þurfi til Forn-Grikkja til að finna sam- anburð. Eru til- vitnanirnar sett- ar í samhengi við almenna grein- ingu á þróun þjóðernisvit- undar á Íslandi á 19. öld. Lætur höfundur hins vegar ógert að geta þess í hvers kyns þjóðfélagi slíkar hugmyndir urðu til, líkt og Guðjón Friðriksson gerir til dæmis í ævi- sögu Einars Benediktssonar skálds. Margir bestu synir þjóðarinnar tóku þá djúpt í árinni til að stappa stálinu í þjóð sem horft hafði eftir ástvinum sínum sigla vestur um haf. Höfundur setur hugmyndir Fjölnismanna í samhengi við hrær- ingar í Evrópu og kemst þar meðal annars að þeirri niðurstöðu að Jón Sigurðsson forseti hafi verið al- þjóðasinni en Íslendingar kosið að fylkja sér um íhaldssama þjóðern- isstefnu. Lýkur bókinni svo á um- fjöllun um það sem höfundur kýs að kalla umsáturskenningu í kjölfar efnahagshrunsins og er sú greining sett í samhengi við Icesave-deiluna og orðræðu útrásarinnar um það sem greindi Ísland frá öðrum þjóð- um. Tækifærisræður Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um ís- lenska „efnahagsundrið“ eru rifj- aðar upp og bætir sú umfjöllun engu við það sem áður hefur komið fram í umræðu um þátt forsetans í útrásinni. Er skýrsla rannsókn- arnefndar Alþingis þar ekki undan- skilin. Veigamesti kaflinn tengist um- ræðum þeim sem urðu um EES- samninginn á Alþingi. Eiríkur Bergmann hefur skrifað greinar um þær umræður sem og deilur þær sem risu vegna EFTA-samstarfs- ins. Skýrir þetta hvers vegna hann tekur tvívegis fram í inngangi að bókin Sjálfstæð þjóð fjalli að þessu frátöldu um önnur efni og sé því nýtt og sjálfstætt verk. Umræður hans um nýliðna at- burði, þar með talin Icesave-deilan, rista ekki djúpt. Höfundur ætlar sér í upphafi að vera hlutlaus sögu- maður sem tekur dæmi héðan og þaðan án þess að fella um þau dóm. Nú skyldi forðast að gera mönnum upp skoðanir. Á hinn bóginn hlýtur lesandinn að draga þá ályktun af uppbyggingu bókarinnar og þeim dæmum sem notuð eru til að bera frásögnina uppi að höfundur sé þeirrar hyggju, að þeir sem grípi til fullveldisraka í deilum um utanrík- ismál séu ósjaldan lýðskrumarar sem horfist ekki í augu við þá stað- reynd, að flestar þjóðir Evrópu séu komnar á þá skoðun að deila beri fullveldinu en fá í staðinn aðgang að stærri markaði. Þá rifjar Eiríkur Bergmann upp að ýmsir stuðningsmenn Evrópu- samstarfsins hafi í málflutningi sín- um skírskotað til þeirrar göfugu hugsjónar að með samstarfi ESB- ríkja sé stuðlað að friði í Evrópu. Nú eru nokkrar hliðar á ten- ingnum. Blind alþjóðahyggja og trú á yfirburði útlendinga gagnvart eigin þjóð geta verið merki um skort á pólitískri siðfágun, rétt eins og lýðskrum af meiði þjóðern- ishyggju. Eiríkur Bergmann kýs að láta þessa hlið mála ósnerta þótt einnig megi tína til öfgar í þessa veru sem og þá staðreynd að í Icesave- deilunni var gripið til alþjóðaraka sem reyndust haldlaus þegar á hólminn var komið. Hvaða afstöðu sem menn tóku í deilunni er varla vafamál að ef gáfumannafélagið við Hallveigarstíg hefði fengið sínu framgengt í aðdraganda fyrri Ice- save-kosningarinnar hefðu afleið- ingarnar getað orðið þvílíkar að hroll vekur. Voru þeir ósiðfágaðir sem gripu til þjóðernisraka í þeirri deilu? Eiga allir þeir sem töldu íslenskri þjóð ógnað skilið að verða settir undir hatt þjóðrembu og lýð- skrums? Getur verið að túlkun höf- undar á þjóðernisvitund eigi lítið skylt við þá samkennd sem kom fram í blysför andstæðinga Svav- ars-samningsins? Var sú greining röng að erlend ríki beittu Ísland þrýstingi? Svo er það allur hræðsluáróðurinn. Bar hann póli- tískri siðfágun vitni? Og hvað með evruumræðuna eftir hrunið? Um Sjálfstæða þjóð er það að segja að þeir starfsmenn Evrópu- sambandsins sem fengið hafa það hlutverk að kortleggja Ísland hljóta að skemmta sér yfir lýsingum á skrælingjalýðnum sem lifir og hrærist í eigin heimóttarskap. Athyglisvert er að bera niður í kaflanum Höfuðbólið og hjáleigan en þar er að finna tilvitnanir í um- ræður um EES-samninginn. Bregða þær birtu á að margt hefur farið á annan veg en ætlað var. Er ágætt að hafa það í huga þegar mál- flutningur andstæðinga samnings- ins er gerður upp. Höfundur skrifar á síðu 137: „Eins og hér má sjá vöruðu margir andstæðingar EES við óheftu inn- streymi vinnufólks frá fátækari löndum Evrópubandalagsins. Jón Baldvin Hannibalsson hafði ekki miklar áhyggjur af því. Hann benti á að reynsla af EFTA hefði verið sú að Íslendingar hefðu nýtt sér réttinn „í miklu meira mæli heldur en þeir rétt sinn hér“. Hann sagði að sömu sögu væri að segja um reynsluna innan Evrópu- bandalagsins sjálfs, „þar hefur reynslan orðið öll önnur en menn áttu von á. Þar hafa ekki orðið þjóð- flutningar frá suðri til norðurs í leit að bættum lífskjörum.“ Hann sagði að dönsk stjórnvöld létu vel af reynslu sinni innan EB og spurði svo hvort ríkisborgarar annarra ríkja myndu streyma til Ís- lands í atvinnuleit. Hann sagði reynsluna innan Evrópubandalags- ins ekki benda til þess. „Reynsla Ís- lendinga fram til þessa hefur sýnt að tungumálið, fjarlægðin frá öðr- um Evrópulöndum og loftslagið eru áhrifaríkari hömlur á verulega flutninga fólks frá Vestur-Evrópu hingað en ýmsar þær undanþægu reglur sem hér gilda í lögum.“ Má augljóst vera að Jón Baldvin hefur ekki reynst sannspár. Ísland komst í tísku og í álnir og svo fór að hlýna. Tungumálið er engin hindrun á eyju þar sem allir tala ensku. Sögur af skríl Evrópufræði Eiríkur Bergmann. Sjálfstæð þjóð bbnnn Eftir Eirík Bergmann. Bjartur gefur út. 364 bls., innb. BALDUR ARNARSON BÆKUR Það er mikill fengur að tvö-földu diskaalbúmi söng-konunnar Cathrine Leg-ardh og Sigurðar Flosasonar „Land & sky“ sem tek- inn var upp í Kaupmannahöfn og kom út hjá Storyville útgáfunni ný- lega. Cat hefur samið alla textana, þá á fyrri disknum á ensku, en á dönsku á þeim síðari og síðan samdi Siggi lögin. Tuttugu lög á hálfu ári og afraksturinn besta plata Sigga með söngvara. Hún er heilsteyptari en tvöfalda platan „Hvar er tungl- ið?“ með Kristjönu Stefánsdóttur, sem innihélt bæði gamla og nýja ópusa og skera hefði mátt niður um helming og laus við dramatilgerðina í „Það sem hverfur“ með Ragnheiði Gröndal og Agli Ólafssyni. Það er ekki bara vegna þess að Cat er besti söngvari sem Siggi hef- ur unnið með hversu platan er vel heppnuð, heldur verður blástur hans æ betri og hrynsveitin er hun- ang; sólóar Peters Rosendahls frá- bærir, trommuleikur Anders Fry- lands léttur og sveifluríkur og Ginman traustasti bassaleikari norðurálfu. Cat er textahöfundur en ekki skáld einsog Aðalsteinn Ásberg og því er tónlistin alltaf aðalatriðið þó textarnir dönsku séu fínir; þeir ensku síðri. Þó er tónlistin á þeirri ensku „Land“ betri að mínu viti, harðari djass og oft ansi grípandi, en sú danska „Sky“, sem minnir um margt á það sem hinar bestu nor- rænu söngkonur hafa verið að gera, innhverfari. Sigga vex ásmegin sem blásara við hvert verkefni og hér hefur hon- um betur en oftast áður tekist að beisla fák sinn á hörðu skeiði; fyrr á dögum kom ansi oft fyrir að hann hlypi upp en slíkt gerist varla nú- orðið. Svo þarf ekkert að fjölyrða um hve tóninn er flottur. Cat er ekki raddmikil, en röddin djössuð og sjarmerandi, frasering- arnar flottar og það er helst að hún ætli sér um of þegar tónlistin er ei- lítið blúsuð og örli þá á tildri sem lýtir margar evrópskar söngkonur þegar þær vilja tjá sig a la Billie. Lagasmíðar Sigurðar eru áheyri- legar og þegar best lætur stór- góðar. Sérstaklega eru ýmis lög á fyrri diskinum grípandi einsog „Courageous“ sem gæti orðið djass- smellur. „Dancer of the dark“, sem er kraftmikill ópus með spriklandi sveiflu og söngur Cat dramatískur á köflum, sterkur og lifandi. „Indiffe- rent“ er flott ballaða með mjúkum blæ. „En bid af natten“ í danska hlutanum er jafn mjúk en norrænni í hljóm og flott bit í píanósóló Peter Rosendals. „Drømmens dis“ er nor- ræn samba og textinn fínn. Besta að hætta upptalningunni og hvetja lesendur til að ná í gripinn. Góða skemmtun. Cat & Siggi Tvöfaldur geisladiskur Cathrine Legardh og Sigurður Flosa- son: Land & sky bbbbn Cathrine Legardh söngur, Sigurður Flosason altósaxófón, Peter Rosendal píanó, Lennart Ginman bassa og Anders Fryland trommur. Storyville 2011. VERNHARÐUR LINNET TÓNLIST Innhverf Cathrine Legarrdh. Morgunblaðið/Árni Sæberg Rannís og Samtök iðnaðarins boða til opins fundar um möguleika á að nýta opinber innkaup sem tæki til að örva nýsköpun í samfélaginu. Fundurinn á erindi jafnt til opinberra aðila sem starfa við innkaup eða móta innkaupastefnur og fyrirtækja sem gagn hafa af slíku samstarfi við hið opinbera. Dagskrá 13:30 Opnunarávarp Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís 13:40 European Cooperation on Public Procurement for Innovation Luke Georghiou, Manchester Institute of Innovation Research, Manchester University 14:25 Opinber innkaup til nýsköpunar á Íslandi Guðmundur Hannesson, Ríkiskaupum 14:45 Hverjar eru helstu hindranir nýsköpunar í gegnum opinber innkaup á Íslandi? Svandís Nína Jónsdóttir, sérfræðingur á greiningarsviði Rannís 15:00 Notkun opinberra innkaup til að örva nýsköpun í íslensku atvinnulífi Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins 15:50 SBRI and Innovation Platforms David Golding, Technology Strategy Board, UK 16:20 Options for EU support for Procurement of Innovation Abby Semple, Local Governments for Sustainability Europe Skráning á rannis@rannis.is Miðvikudaginn 25. maí kl. 13:30-17:00 á Hótel Sögu Public Procurement for Innovation Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.