Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
Það verður enginn svikinnaf því að fjárfesta í ann-arri ljóðabók KristínarSvövu Tómasdóttur,
Skrælingjasýningunni, sem kom út
nýverið. Eftir vel heppnaða frum-
raun, Blótgælur sem kom út árið
2007 og vakti mikla athygli, mátti
svo sem eiga von á meira góðu frá
Kristínu Svövu. Blótgælur sló tón-
inn sem ómar áfram í gegnum
Skrælingjasýninguna.
Það er undarleg stemning í ljóð-
unum, svolítið eins og heimsendir
sé í nánd og allir ætli að njóta lífs-
ins lystisemda áður en það gerist í
óreiðukenndu vali. Stemningin í
ljóðunum er hröð, þau eru keyrð
áfram af hörku og það er erfitt að
ætla sér að lesa þau í rólegheitum,
maður er kominn í ham áður en við
er litið. Nafn bókarinnar vísar til
nýlendusýningar sem var haldin í
Kaupmannahöfn um aldamótin
1900.
Á henni kynntu Danir handverk,
menningu og íbúa frá nýlendum
sínum en íslenskir stúdentar í
Kaupmannahöfn mótmæltu þessu
harðlega þar sem þeir töldu sig
ekki eiga heima í hópi skrælingja
eins og hinir nýlendubúarnir. Orðið
skælingi hefur orðið neikvæða
merkingu og er oft notað yfir ósið-
menntaða menn. Stemningin í bók-
inni er líka svolítið í þá átt, hún er
hrá og subbuleg. Það er eins og
hún kunni ekki að borða með hníf
og gafli og þakka fyrir sig.
Bókin skiptist eiginlega í þrjá
hluta, hún byrjar á ljóðum í einni
belg og biðu. Þá koma lengri ljóð
sem hafa heiti. Þau eru í svolítið
öðrum stíl en fyrrihlutinn, lengri og
léttari. Ég hafði áður séð ljóðið
„Ég hef mínar efasemdir um Karl
Blöndal“ í ljóðasafni frá Nýhil og
hreifst þá strax af því. Ljóðið er
fullt af forvitni, dulúð og ímynd-
unarafli. „Annað bréfið til herra
Brown“ er samt í mestu uppáhaldi,
uppfullt af háði og húmor. Bókinni
lýkur svo á viðauka sem heitir
„Lykar að túlkun 22 ljóða – syrpa
handa kennurum“. Þar túlkar höf-
undurinn eigin ljóð af miklum húm-
or. Þetta er skemmtilegur viðauki
sem lesandinn á alls ekki að taka
mark á.
Ég hafði mikla ánægju af því að
lesa Skrælingjasýninguna. Mynd-
irnar sem ljóðin draga upp eru
miklar, óreiðukenndar og undaleg-
ar en samt svo kunnuglegar.
Stundum skildi ég hana ekki en
það var allt í lagi því upplifunin er
orðin og hvernig þau raðast saman.
Stemningin í ljóðunum er heillandi
og sogar mann til sín eins og svart-
hol. Kristín Svava er fyndin, kald-
hæðin og gagnrýnin og frábært
skáld.
Háð og húmor
Morgunblaðið/Golli
Hrá Stemningin í ljóðunum Kristínar Svövu Tómasdóttur er hröð, þau eru
keyrð áfram af hörku og það er erfitt að ætla sér að lesa þau í rólegheitum.
Skrælingjasýningin bbbmn
Eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur. Bjart-
ur gefur út 2011.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
Saga Íslandsmótsins í knattspyrnu
í 100 ár, fyrra bindi, eftir Sig-
mund Ó. Steinarsson kom út á
dögunum. Höfundur segir við-
tökur hafa verið góðar og talsverð
brögð að því að fólk leiti til hans
til að fá bókina áritaða, ekki síst
fyrir þriðja aðila. Þá erum við
ekki að tala um hina hefðbundnu
kveðju frá höfundi, heldur biður
fólk Sigmund um að senda þeim
er bókin er ætluð persónulega
kveðju. „Það er sjálfsagt að verða
við þessu enda mikilvægt að þjón-
usta lesendur, alveg eins og í
blaðamennskunni,“ segir Sigmund-
ur. „Menn stinga að mér ýmsu
fróðlegu um viðkomandi.“
Sigmundur vinnur nú að seinna
bindi verksins sem koma mun út
11. nóvember nk. kl. 11.11 árdeg-
is. Hann hefur því í nógu að snú-
ast, bæði við að rita og árita bæk-
ur.
Morgunblaðið/Kristinn
Þjónusta Sigmundur Ó. Steinarsson áritar bókina fyrir stjórnarmenn í KSÍ á dögunum.
Ritar og áritar
Nú stendur í Safnahúsi
Borgarfjarðar í Borg-
arnesi minjasýningin
„Séra Magnús“ sem
segir frá ævi Magnúsar
Andréssonar (1845-
1922) sem bjó á Gils-
bakka í Hvítársíðu frá
árinu 1881, ásamt konu
sinni Sigríði Péturs-
dóttur. Heimili þeirra
var í senn menntasetur
og menningarmiðstöð í
héraði. Séra Magnús
var fræðari og bjó pilta
undir skóla. Hann var
alþingismaður Mýra-
manna um margra ára
skeið og kom þar að
mótun sjálfstæðisbar-
áttu Íslendinga um og eftir 1900. Af
þessu tilefni er sýningin helguð
minningu Jóns Sigurðssonar. Ýmsir
gripir eru á sýningunni auk sýn-
ishorna af skjölum. Magnús lagði
einnig stund á smáskammtalækn-
ingar. Sýningin er opin alla virka
daga frá 13-18
Sýningin Séra Magnús
Fræðari Frá sýningunni Séra Magnús í Safna-
húsi Borgarfjarðar.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Lau 28/5 kl. 19:00 Fös 3/6 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00
Sun 29/5 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00
Tveggja tíma hláturskast...með hléi
Húsmóðirin (Nýja sviðið)
Sun 22/5 kl. 20:00 14.k Þri 31/5 kl. 20:00 18.k Þri 7/6 kl. 20:00
Þri 24/5 kl. 20:00 15.k Mið 1/6 kl. 20:00 19.k Mið 8/6 kl. 20:00
Mið 25/5 kl. 20:00 16.k Fim 2/6 kl. 20:00 20.k Fös 10/6 kl. 20:00
Lau 28/5 kl. 20:00 aukasýn Fös 3/6 kl. 20:00 21.k Lau 11/6 kl. 20:00
Sun 29/5 kl. 20:00 17.k Lau 4/6 kl. 20:00 22.k Mið 15/6 kl. 20:00
Nýr íslenskur gleðileikur eftir Vesturport. Ósóttar pantanir seldar daglega
Faust (Stóra svið)
Lau 21/5 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00
Fös 27/5 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00
Örfár aukasýningar í maí og júní
Opening Night - Les Slovaks (Stóra sviðið)
Sun 22/5 kl. 20:00
Á Listahátíð - Harðjaxlar sem dansa eins og englar
Ferðalag Fönixins (Stóra sviðið)
Mán 23/5 kl. 20:00 forsýn Mið 25/5 kl. 20:00
Þri 24/5 kl. 20:00 frumsýn Mið 25/5 kl. 22:00
Á Listahátíð - Um listina að deyja og fæðast á ný
Klúbburinn (Litla sviðið)
Fös 3/6 kl. 20:00 frumsýn Sun 5/6 kl. 20:00 2.k Mið 8/6 kl. 20:00 4.k
Lau 4/6 kl. 20:00 Þri 7/6 kl. 20:00 3.k Lau 11/6 kl. 20:00 5.k
Á Listahátíð - Leikhu�s, dans og to�nlist renna saman i� eina o�rofa heild
Eldfærin (Stóra sviðið)
Lau 21/5 kl. 13:00 Lau 28/5 kl. 13:00 Sun 29/5 kl. 13:00
Sögustund með öllum töfrum leikhússins
Les Slovaks – á Stóra sviðinu annað kvöld
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Ð
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fös 3/6 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00
Lau 4/6 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00
Allt að verða uppselt í maí. Sýningar í júní komnar í sölu.
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Sun 5/6 kl. 20:00 Aukasýn. Lau 11/6 kl. 20:00
Fjórar og hálf stjarna í Mbl. I.Þ og DV J.V.J. Sýningum að ljúka!
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Sun 22/5 kl. 14:00
Fálkaorður og fjör - sýning fyrir alla fjölskylduna!
Brák (Kúlan)
Fös 3/6 kl. 20:00 Aukasýn.
Aukasýning í júní komin í sölu!
Verði þér að góðu (Kassinn)
Lau 21/5 kl. 22:00 Fös 3/6 kl. 19:00 Lau 4/6 kl. 20:00
Frumsýning 7. maí.
Góði dátinn Svejk (Stóra sviðið)
Sun 29/5 kl. 20:00
Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins!
Haze (Stóra sviðið)
Fim 2/6 kl. 20:00
Á Listahátíð. Sýning sem markar tímamót í nútímadansi.
Við sáum skrímsli (Stóra sviðið)
Lau 21/5 kl. 20:00
Á Listahátíð. Listrænn stjórnandi Erna Ómarsdóttir.
Big Wheel Café (Stóra sviðið)
Fim 26/5 kl. 20:00 Fös 27/5 kl. 20:00
Á Listahátíð. Listrænn stjórnandi Kristján Igimarsson
Subtales - Söngur millistéttarinnar (Kassinn)
Þri 24/5 kl. 18:00
Á Listahátíð. Norrænt velferðarsamfélag krufið til mergjar.
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus
Tjarnarbíó
5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is
Listahátíð í Reykjavík - Rebbasaga
Lau 28/5 kl. 14:00 Lau 28/5 kl. 17:00
Frönsk barnasýning
Listahátíð í Reykjavík - Bændur flugust á
Sun 29/5 kl. 20:00
Íslendingasögur í óvæntu ljósi!
Listahátíð í Reykjavík - Strengur
Mán 30/5 kl. 20:00
Tómas R. Einarsson og Matthías Hemstock
Listahátíð í Reykjavík - Sex pör
Þri 31/5 kl. 20:00
Frumflutningur sex íslenskra dans- og tónverka
Brúðuheimar í Borgarnesi
530 5000 | hildur@bruduheimar.is
GILITRUTT
Sun 29/5 kl. 14:00
Listahátíð í Reykjavík - Tony Allen og Sammi
Mið 1/6 kl. 21:00
Tony Allen og Samúel Jón Samúelsson Big Band
Varsjáarbandalagið - Útgáfutónleikar
Fim 9/6 kl. 20:00