Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011 Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Hinn heimsfrægi þýski tenór Jonas Kaufmann mun syngja á tónleikum í Eldborg í Hörpu í kvöld í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Uppselt var á tónleikana fyrir alllöngu en Kaufmann er gríðarlega vinsæll ten- ór og hafa hundruð manna lagt leið sína hingað til landsins einungis til þess að berja hann augum enda margra ára biðlistar erlendis til að fá að komast á tónleika með honum. Kaufmann er fæddur í München í Þýskalandi árið 1969 og ólst þar upp. Hann útskrifaðist frá tónlistarhá- skóla í München árið 1994 og sama ár hóf hann feril sinn sem atvinnu- söngvari í Staats-leikhúsinu í Saar- brücken í Þýskalandi. Fljótlega eftir það var honum boðið að syngja í stærri leikhúsum á borð við Stutt- gart-óperuna og Hamborgar- óperuna, einnig í óperunni í Chicago, Parísaróperunni og La Scala, óp- erunni í Mílanó Ítalíu. Hann hefur hrifið áhorfendur með fallegum söng sínum í yfir fimmtíu óperuhlut- verkum við öll helstu óperuhús heims. Finnst Harpan vera glæsileg Blaðamaður hitti Kaufmann í Hörpunni í gær. -Hvað finnst þér um Hörpu? „Hún er stórkostleg. Byggingin er ekki alveg tilbúin enn en salurinn sjálfur er tilbúinn og ég verð að segja að þetta er glæsilegt. Bæði arkitektúr og hljómburður er ótrú- legur. Hljóðið er alveg magnað. Ég hef þó ekki heyrt hljóðið í salnum með áhorfendur, en þeir geta gert einhverjar brellur með það, þeir setja eitthvað í salinn svo að maður fær það á tilfinninguna að áhorfend- urnir séu í salnum. Venjulega taka áhorfendur í sig hluta af hljóðinu, þeir dempa það. En það er góður hlutur, það er jákvætt, vegna þess að það gerir hljóðið skýrara og fín- legra. Auk þess er staðsetningin á þess- ari byggingu óaðfinnanleg, burtséð frá vindinum,“ segir Kaufmann og hlær. „Ég hef aldrei haft svo fallegt útsýni út um gluggann á búnings- herbergi mínu áður, með sjóinn al- veg upp við og fjöllin í bakgrunni. Þetta er ótrúlegt og ég er bara örlít- ið afbrýðisamur. Ég vil óska ykkur til hamingju með þetta.“ -Hvernig finnst þér að syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands? „Þau eru frábær. Peter Schrottn- er, stjórnandi, hefur augljóslega staðið sig með prýði. Ég er viss um að sumir hlutar söngdagskrárinnar hafa verið þeim óþekktir og það er alltaf erfitt. Ég myndi segja að al- mennt séu dagskrár óperu mjög slungnar og erfiðar fremur en þegar sinfónían spilar ein og sér, þegar þau tengjast betur hvort öðru og eiga samleið. Í óperunni þarf að stökkva frá einni tilfinningu til annarar og ákvarða á nokkrum töktum allt aðr- ar aðstæður, en það þarf að gerast svo fullkomlega að áhorfendur fylg- ist með og skilji hvað sé að gerast og hverjar aðstæðurnar séu. Þetta er því fremur vandasamt. Í raun þarftu að skipta um 10 búninga og vera 10 manneskjur í sama hlutverki. En ég má til með að segja að þau eru alveg frábær og ég hef unnið með mörgum sinfóníum. Það er líka gaman að sjá hvað þau eru ánægð með nýja tónlistarhúsið sitt.“ Stórstjarna í Hörpunni  Hundruð til landsins að hlusta Morgunblaðið/Kristinn Öflugur Jonas Kaufmann tenór á æfingu með Sinfóníunni. Hann mun efalaust syngja sig inn í hjörtu margra Frónverja í kvöld. Jonas Kaufmann er einn fremsti óperusöngvari samtímans og er nú á hátindi ferils síns. Á tónleikunum í Hörpunni mun hann meðal annars syngja þekktar aríur úr óperunum Car- men, Lohengrin og Cavalleria rusticana. Einnig mun Sinfóníu- hljómsveit Íslands leika vinsæla óperuforleiki. Uppselt er á tónleika hans í kvöld sem og fleiri óperuupp- færslur víða um heim. Í tilefni af tónleikunum mun Endurmenntun Háskóla Íslands standa fyrir námskeiðinu Jonas Kaufmann í litrófi raddanna en umsjón með námskeiðinu hefur Bergþór Pálsson. Þar verða kynntar mismunandi raddgerðir karla með ýmsum tóndæmum. Rödd Jonasar Kaufmanns verð- ur greind með tóndæmum, rýnt verður í feril hans og þróun raddar hans. Rýna í rödd Kaufmanns NÁMSKEIÐ Rómantískar slóðir á Englandi Verð kr. 199.800 Netverð á mann í tvíbýli með hálfu fæði. Aukagjald fyrir einbýli kr. 39.800. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. 15.-23. ágúst Fararstjóri: Héðinn S. Björnsson Heimsferðir bjóða nokkur laus sæti í einstaklega skemmtilega 9 daga ferð á rómantískum og sögulegum slóðum Mið- og Suður Englands. Alls staðar gefur að líta spennandi söguslóðir, töfrandi náttúrufegurð, minningarminjar frá fortíðinni og öfugt listalíf nútímans. Dvalið í bæjunum Oxford, Bath og Windsor og þaðan haldið í kynnisferðir á hverjum degi. Dagleiðir eru stuttar og góður tími að njóta að skoða kastala, herragarða og lítil vinaleg þorp sem lítið hafa breysts í tímans rás. Allsstaðar er sagan við hvert fótmál og náttúrufegurðin einstök. · Oxford · Coventry · Stratford upon Avon · Blenheim Palace · Waddesdon Manor · Cotswold · Tetbury · Lacock · Chipping · Bath · Wells · Glastonbury · Cheddar · Stonehenge · Winchester · Windsor Innifalið: Flug til og frá London, skattar, gisting á góðum 4* hóteli í 8 nætur með hálfu fæði. Kynnisferðir. Aðgangseyrir að: heimili Shakespeares og Önnu Hathaways, Blenheim höllinni, Christchurch stúdentagarðinn í Oxford, hellaskoðun í Cheddar, Gorge gilinu í Cheddar, Rómversku böðunum í Bath, Winchester kastala og Windsor kastala. Akstur til og frá flugvelli og milli áfangastaða og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 25 manns. Ekki innifalið: Aðrar kynnisferðir, siglingar eða annað en tilgreint er að ofan. Einstök ferð á frábærum kjörum!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.