Morgunblaðið - 21.05.2011, Síða 56

Morgunblaðið - 21.05.2011, Síða 56
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 141. DAGUR ÁRSINS 2011 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Hljóp á sig sléttan maga 2. Erfitt að horfa á Krumma líða illa 3. Bifhjólamaður ber brigður á … 4. Afi og móðir myrtu barnið  Ofviðri Borgarleikhússins hefur fengið frábærar viðtökur í Litháen. Fyrr á árinu birtist ítarlegur dómur í stærsta dagblaði Litháens, Lietucos rytas, og var það helsti gagnrýnandi Litháens, Helmutas Abaseviius, sem skrifaði: „Í höndum Oskaras Kor- šunovas verður heimur Ofviðrisins töfrum líkastur, heillandi og lifandi. Leikstjórnarstíll Oskarasar Kor- šunovas er einstakur; hann einkenn- ist af sérstakri, margræðri ljóðrænu hugarflugsins... Í meðförum lista- mannanna magnast Ofviðrið upp í nær ólýsanlega fegurð … “ Leikhúsinu hefur einnig verið boð- ið að sýna Ofviðrið í Þjóðleikhúsi Litháa í september nk en leikhúsið er það stærsta í landinu. Sýnt yrði á stóra sviði leikhússins, í tengslum við alþjóðlegu leiklistarhátíðina Sir- enos í Litháen. Jesú litla hefur verið boðið til Spánar og er verið að vinna í samningum þar að lútandi. Borgarleikhúsið á faraldsfæti  Varsjárbandalagið hefur sent frá sér nýtt lag, „Vestmannaeyjar“, en það má nálgast á þjónvarpinu eða „youtube“. Fyrsta plata sveitarinnar, Russian Bride, er væntanleg og held- ur sveitin útgáfutónleika í Tjarnarbíói þann 9. júní næst- komandi. Á plöt- unni má finna allt frá gyðinga- músík yfir í balk- anpopp ásamt eigin austan- tjalds-tón- smíðum. Nýtt lag með Varsjárbandalaginu FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 8-15 og léttir til suðaustantil, en annars svipað veður. Hiti 1 til 8 stig sunnan heiða, en annars nálægt frostmarki. Búast má við næturfrosti. Á sunnudag Norðan og norðaustan 8-13 m/s og él á norðanverðu landinu, en annars þurrt að kalla. Hiti 1 til 8 stig syðra, annars í kringum frostmark. Búist er við næturfrosti. Á mánudag Ákveðin norðanátt með slyddu eða snjókomu, en yfirleitt björtu sunnan heiða. Hiti 0 til 10 stig, hlýjast syðst. Keflvíkingurinn Guðmundur Steinarsson hefur byrjað leiktíð- ina vel í Pepsi-deildinni sem og lið hans og hann er efstur í ein- kunnargjöf Morgunblaðsins. Guð- mundur er í spjalli við Morgun- blaðið í dag og spáir líka í spilin fyrir fimmtu umferð Pepsi- deildarinnar sem leikin verður öll annað kvöld. »3 Guðmundur spáir í spilin í Pepsi-deildinni Sigmundur Einar Másson, kylfingur úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, hefur ákveðið að reyna fyrir sér sem atvinnumaður. Sig- mundur mun leika í lítilli mótaröð í Svíþjóð í sumar og mun hugsanlega reyna við úrtökumót fyrir Evrópu- eða PGA-mótaröðina í haust en mun taka ákvörðun út frá spila- mennskunni í sumar. »1 Sigmundur orðinn atvinnumaður Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði í fyrsta sinn sem hún snerti boltann í sínum fyrsta A-landsleik, 16 ára gömul, þegar Ísland vann Ungverjaland 4:1 árið 2003. Nú er hún komin með 62 mörk í 73 lands- leikjum eftir að hafa gert fjög- ur af sex mörkum Ís- lands gegn Búlgaríu á Laugardals- vellinum í fyrrakvöld. »2 Glæsilegur ferill hjá Margréti Láru Pétur Blöndal pebl@mbl.is Tvenn hjón hlaupa hringinn um landið í júní til að safna áheitum fyr- ir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna og leggja þau að baki 100 km á dag í fimmtán daga. Signý Gunnarsdóttir og Sveinn Benedikt Rögnvaldsson hafa fylgt syni sínum Gunnari Hrafni eða Krumma í gegnum erfiða meðferð við hvítblæði og birtist áhrifarík frá- sögn af því í máli og myndum í Sunnudagsmogganum í dag. Þau hlaupa hringinn ásamt systur Sveins og mági, Ölmu Maríu Rögn- valdsdóttur og Guðmundi Guðna- syni. „Yfirskrift verkefnisins er Meðan fæturnir bera mig,“ segir Signý. „Þremur dögum fyrir Reykjavík- urmaraþon í fyrra ákvað ég að hlaupa 10 km og safna áheitum. Það gekk ótrúlega vel, það söfnuðust miklir fjármunir á skömmum tíma. Eftir það veltum við framhaldinu fyrir okkur og þegar ég var í baði kviknaði þessi hugmynd. Svenni hélt ég væri biluð!“ segir hún og hlær. „Eigum við að hlaupa hringinn?“ rifjar Sveinn upp og hristir höfuðið brosandi. „Já einmitt!!“ Fyrsta söfnun af þessu tagi En áður en langt um leið hafði hann líka tekið ástfóstri við hug- myndina. „Ég heyrði að aldrei hefði verið ráðist í söfnun með þessum hætti áður. Við töluðum við systur mína og mág minn, sem eru mara- þonhlauparar, og þá kviknaði hug- mynd að því að hlaupa hringinn og skiptast á. Þannig förum við tæpa 100 km á dag eða um 24 km á mann.“ Og þau átta sig alveg á því, að þetta er mikil vegalengd. „Sér- staklega fyrir okkur kannski,“ segir Signý. „Ég hafði mest hlaupið 10 km áður, en þarna hlaupum við rúmlega hálft maraþon á dag í fimmtán daga. Þegar maður segir fólki það renna á það tvær grímur. Fólki finnst nóg um að hlaupa það einu sinni og er lengi að undirbúa það.“ Sveinn hefur hlaupið mikið í vetur en Signý hefur átt erfiðara upp- dráttar, lent í veikindum og meiðslum. „Ég verð dramadrottn- ingin,“ segir hún hlæjandi. „Nú reynir á hvort ég kemst þetta!“ „Þá hlaupum við hin bara meira,“ segir Sveinn ástúðlega og bætir við brosandi: „Ef súkkulaðið hættir.“ Það verða dagbókarfærslur á vef- síðunni www.mfbm.is og Facebook og þar getur fólk fylgst með ferða- laginu. Meðan fæturnir bera mig  Tvenn hjón hlaupa hringinn um landið og safna áheitum  100 km á dag í 15 daga  Áhrifarík frásögn af krabbameinsmeðferð Krumma í máli og myndum Morgunblaðið/Golli Langhlaup Krummi með foreldrum sínum á spítalanum. Þau hlaupa fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Myndband verður frumsýnt skömmu fyrir hlaupið hringinn um landið til að vekja athygli á söfnuninni, en það hefst 2. júní. Í því eru myndir Kjartans Þorbjörnssonar eða Golla, ljósmyndara Morgunblaðsins, og lag sem sungið er af Signýju og Sveini – af mikilli hlýju og alúð. Signý og Golli sömdu textann við lagið og Þórir Úlfarsson útsetur það, en sonur hans greindist með hvítblæði um svipað leyti og Krummi. Lagið er sjálft óskarsverðlaunalagið Falling Slowly eftir Glen Hansard. Fólk getur styrkt framtakið með því að senda sms í símanúmerin 904-1001 (1000 kr.), 904-1003 (3.000 kr.) og 904-1005 (5.000 kr.) eða komið með áheit á vefsíðu söfnunarinnar, www.mfbm.is. Foreldrarnir syngja lagið TÓNLISTARMYNDBAND TIL AÐ VEKJA ATHYGLI Á SÖFNUNINNI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.