Morgunblaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 40
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 174. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Madonna óþekkjanleg
2. Kærar þakkir, Ísland
3. Pippa og Harry í ástarhug?
4. Stúlkurnar fundust óskaddaðar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitirnar Brother Grass og
Illgresi halda tónleika á Café Rosen-
berg í kvöld og á morgun. Bluegrass
og suðurríkjatónlist verður á boð-
stólum með banjó- og þvottabalaleik.
Það kostar 1500 kr. inn á tónleikana
sem hefjast kl. 21 í kvöld en kl. 22
annað kvöld.
Brother Grass og Ill-
gresi á Rosenberg
Órafmögnuð
tónleikaröð gogo-
yoko heldur áfram
á Hvítu perlunni í
kvöld.
Í þetta skipti
ætlar hljómsveitin
Bloodgroup, sem
er þekktust fyrir
dansvæna raf-
magnstónlist, að taka upp kassagít-
arinn. Þau hafa auk þess fengið til
liðs við sig strengjasveit og píanó-
leikara.
Bloodgroup á
gogoyoko wireless
Í kvöld mun hljómsveitin Ferlegheit
standa fyrir tónleikaveislu á Sódómu
Reykjavík. Einnig munu Eldberg og
The Vintage Caravan
koma fram. Ferlegheit
er blússveit, skipuð
ungu tónlistarfólki,
og gaf út sína fyrstu
plötu, You can be as
bad as you can be
good, fyrr á
þessu ári. Við-
tökur hafa verið
góðar.
Ferlegheit á Sódómu
Reykjavík í kvöld
Á föstudag Norðlæg eða breytileg átt, víða 3-8 m/s. Skýjað með
köflum. Hiti 5 til 14 stig, mildast á Suður- og Vesturlandi.
Á laugardag Austlæg átt og víða bjart veður, en þokubakkar við
norður- og austurströndina. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast vestanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt, víða 3-8 m/s en hæg breytileg
átt eða hafgola sunnantil. Stöku skúrir, einkum síðdegis, þurrt nv-
lands, en þokubakkar við norðurströndina. Hiti 5 til 15 stig.
VEÐUR
Guðrún Gróa Þorsteins-
dóttir, besti varnarmaður-
inn í körfuboltanum hér á
landi undanfarin tvö ár, hef-
ur ákveðið að skipta um
íþrótt. Hún er hætt að spila
með KR-ingum og hefur
snúið sér alfarið að kraft-
lyftingum. „Ég ætla mér að
gera þetta almennilega og
komast í heimsklassa,“ seg-
ir Guðrún
Gróa. »1
Úr körfuboltanum
í kraftlyftingar
Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari hefur
glímt við eftirköst matareitrunar sem
hún fékk þegar hún keppti á móti í
Marokkó fyrr í þessum mánuði. Veik-
indin hafa sett keppnistímabilið úr
skorðum. „Ég er búin að fá svima-
köst, höfuðverkjaköst og finna fyrir
ógleði á hverjum einasta degi,“ sagði
Ásdís við Morgunblaðið en hún hefur
gengist undir ým-
iss konar rann-
sóknir. »2
Matareitrun í Marokkó
gerði strik í reikninginn
André Villas-Boas er aðeins 33 ára
gamall en er þó orðinn knatt-
spyrnustjóri hjá enska félaginu
Chelsea. Hann er sigursæll á stuttum
ferli og vann allt sem hægt var að
vinna með Porto á síðasta keppnis-
tímabili. Villas-Boas hefur áður verið
í röðum Lundúnaliðsins og gerðist
landsliðsþjálfari þegar hann var 22
ára gamall. »4
Kornungur knatt-
spyrnustjóri Chelsea
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Ný götumynd er risin úr ösku húsanna á horni
Lækjargötu og Austurstrætis, fjórum árum eft-
ir að þau eyðilögðust í stórbruna. Eldarnir log-
uðu enn í hjarta miðborgarinnar á síðasta vetr-
ardegi 2007 þegar því var lýst yfir að húsin
yrðu endurreist með hraði til að umhverfið liði
ekki um of fyrir brunann.
Það dróst hins vegar á langinn og þegar við
bættist hálfklárað tónlistarhúsið auk yfirgefins
verslunarhúsnæðis á Laugavegi varð yfirbragð
miðborgarinnar heldur dapurlegt um langt
skeið. En í dag er loks búið að græða brunasár-
ið og líf farið að færast í nýju húsin sem auk
Hörpunnar setja sannarlega setja svip sinn á
nágrennið. Miðborg Reykjavíkur hefur því tekið
Miðborgin komin með nýjan svip
Morgunblaðið/Ernir
Eymundssonarhornið Miðpunktur gamla bæjarins. Húsið er í upprunalegri mynd með eina hæð til. Á jarðhæð eru verslanirnar Leonard og Nordic Store.
„Við opnuðum 17. júní, á þjóðhátíðardag-
inn. Okkur þótti það við hæfi í þessu ynd-
islega fallega húsi,“ segir Lukka Páls-
dóttir, einn eigenda veitingastaðarins
HaPP í Austurstræti 22. Þegar blaða-
maður rak nefið inn á HaPP í hádeginu í
gær var mikill ys og þys og greinilegt að
staðurinn er vel þegin viðbót í veitinga-
staðaflóru miðborgarinnar. Lukka
segist ánægð með hvernig staðið
var að uppbyggingu reitsins. „Mér
finnst frábært að þessi leið var far-
in og byggð svona falleg hús hérna,
það er mikil prýði að þeim í mið-
bænum.“
Húsin mikil prýði
LANDSYFIRRÉTTARHÚSIÐ OPNAÐ
miklum stakkaskiptum þetta vorið. Þegar haf-
ist var handa við að byggja upp úr brunarúst-
unum var ákveðið að hina sögulegu götumynd
á horni Austurstrætis og Lækjargötu skyldi
endurbyggja í meginatriðum.
Það hefur gengið eftir. Landsyfirréttar-
húsið sem byggt var í upphafi 19. aldar var
endurgert sem stokkahús og Lækjargata 2
var endurgerð í upprunalegum anda en
hækkuð um eina hæð. Húsið að Lækjargötu
2b hefur form og yfirbragð Nýja bíós en
er málað í skærrauðum lit sem grípur
augað.
Hvort vel hefur tekist til fer eftir
smekk hvers og eins en heyra mátti á
vegfarendum í gær að almenn ánægja
ríkti með andlitslyftingu miðborgar-
innar. »16-17
Almenn ánægja með nýju húsin á brunareitnum
Verslanir og veitingahús gæða húsin lífi
Lukka Pálsdóttir