Morgunblaðið - 07.07.2011, Side 4

Morgunblaðið - 07.07.2011, Side 4
4 7. júlí 2011finnur.is Fjarðarkaup Gildir 7.-9. júlí verð nú áður mælie. verð svínakótilettur úr kjötborði .......... 998 1.498 998 kr. kg Svínalundir úr kjötborði .............. 1.498 2.098 1.498 kr. kg Lambalærisn., I. fl. úr kjötborði ... 1.598 1.898 1.598 kr. kg Hamborgarar 2x115g m/brauði .. 396 480 396 kr. pk. Grillaður kjúklingur + 2 ltr. Coke .. 1.198 1.565 1.198 kr. stk. Fk lambalærisneiðar grill ............ 1.745 2045 1.745 kr. kg Nicky 9 wc rúllur ........................ 698 898 78 kr. kg Egils appelsín 2 ltr. .................... 198 248 99 kr. ltr. Emmess topp 5 íspinnar 20 í pk . 1.998 2.398 1.998 kr. pk. Coke 4x2 ltr. + Coke-grillbók ....... 798 998 199 kr. stk. Hagkaup Gildir 7.-10. júlí verð nú áður mælie. verð Lambagrillsneiðar – Íslandslamb. 998 1.398 998 kr. kg Kryddlegnar grísahnakkasneiðar . 1.098 1.598 1.098 kr. kg Holta Royal kjúklingabringur ....... 1.698 2.398 1.698 kr. kg Lambatvírifjur, Cajp’s hvítlauks .... 2.061 2.748 2.061 kr. kg Grísa grillsíða, kryddlegin ........... 979 1.298 979 kr. kg Nýbakað tómatbrauð ................. 279 649 279 kr. stk. Nýbakað baguette-brauð, 400 g . 199 339 199 kr. stk. Nýbökuð vínarbrauðslengja ........ 399 699 399 kr. stk. Egils mix, 2 ltr............................ 249 329 249 kr. stk. Kostur Gildir 7.-10. júlí verð nú áður mælie. verð Goði lambalærisn. kryddaðar...... 2.199 2.998 2.199 kr. kg Kostur lambal., ferskt ókryddað .. 1.099 1.198 1.099 kr. kg Goði baconbúðingur .................. 259 369 259 kr. stk. Kostur túnfiskur í vatni, 170 g ..... 129 149 129 kr. stk. Kostur túnfiskur í olíu, 170 g....... 129 149 129 kr. stk. Kostur ananas í dós, 3x227 g ..... 229 269 229 kr. stk. Best Yet maísbaunir, 432 g......... 109 139 109 kr. stk. Þín verslun Gildir 7.-10. júlí verð nú áður mælie. verð Kindafille úr kjötborði ................. 2.798 3.298 2.798 kr. kg Svínahnakki, úrbeinaður ............. 1.198 1.854 1.198 kr. kg Egils Tuborg, 0,5 ltr. ................... 110 139 220 kr. ltr. Sprite, 2 ltr................................ 265 310 133 kr. ltr. Trópí, appelsínu ......................... 269 329 269 kr. ltr. Remi Nougat kex, 100 g............. 249 298 2.490 kr. kg Capri Sonne eplasafi, 330 ml ..... 185 299 561 kr. ltr. Pataks Tandoori Paste, 312 g...... 398 485 1.276 kr. kg Blue Dragon Thai-sósa, 340 g .... 385 459 1.132 kr. kg Toblerone, hvítt, 100 g ............... 289 369 2.890 kr. kg Morgunblaðið/Golli Helgartilboðin Alþingi er komið í sumarfríen ýmis verkefni loðaengu að síður við þing-mennina. Siv er nýkomin heim frá Danmörku og Svíþjóð þar sem hún skoðaði svokölluð gettó en það eru hverfi þar sem eru talsverð félagsleg vandamál. Verkefnið var á vegum velferðarnefndar Norð- urlandaráðs. Auk þess var hún í við- tali við The Guardian vegna tillögu sinnar um að færa sölu á tóbaki yfir í apótek. BBC hafði einnig óskað eftir viðtali um sama mál. Tóbaksmálið sem var umdeilt manna á meðal hér- lendis er því farið að vekja athygli út fyrir landsteinana. „Þegar þingið stendur yfir er oft lítill tími til að elda heima. Á sumrin hef ég meiri tíma og nýti mér hann,“ segir Siv þegar hún er spurð hvort hún sé dugleg í eldamennskunni. Hún á tvo syni, 18 og 26 ára, og sá yngri býr heima. „Ég er með létt heimili en reyni að elda fyrir synina, sérstaklega þann yngri. Sá eldri kem- ur stundum í mat með kærustuna. Þegar ég hef tíma finnst mér gaman að fá nánustu fjölskyldu í matarboð. Ég er frekar upptekin af hollum mat og reyni að velja góðan fisk eða kjöt og mikið af grænmeti. Ég er mjög oft með fisk og fæ ágætis einkunn fyrir eldamennskuna,“ segir Siv þegar hún er spurð hvort henni takist vel upp í matargerðinni. Kökur frá Sólheimum Siv segist oftast gera innkaup í Krónunni úti á Granda. Hún býr í Vesturbænum og segist kunna vel við þá verslun. „Hún er rúmgóð og þægi- legt að versla þar. Ég er nýbúin að uppgötva Kost og líkar vel. Þar kaupi ég möndlur og þess háttar í stærri einingum. Ég fer stundum í aðrar verslanir einnig svo sem Bónus og Melabúðina, þar sem besti ananasinn fæst og mjög góðar flatkökur frá Sveitabakaríinu. Einnig kemur fyrir að ég fari í Kjöthöllina á Háaleit- isbraut til að kaupa kjöt. Svo er það gimsteinninn Frú Lauga við Lauga- læk. Þar er hægt að kaupa hollar og góðar vörur beint frá bændum. Þar hef ég fengið frábærar kökur frá Sól- heimum, eplaböku og hjónabands- sælu.“ Siv segist ekki hlaupa eftir til- boðum sem auglýst eru í blöðum. „Það er frekar ef ég rekst á þau í verslunum að ég notfæri mér þau.“ Hún ræktar sjálf kryddjurtir og grænmeti. „Það sést varla út um gluggana hjá mér fyrir basilplöntum og ég geri því stundum heimagert pestó,“ segir hún. „Ég rækta einnig kóríander og nokkrar gerðir af salati og sellerí úti. Besta vinkona mín, Heiður Björnsdóttir, kennir ræktun krydd- og matjurta og ég fór á nám- skeið hjá henni í fyrra. Síðan hef ég verið forfallin í ræktuninni en hún fer þó einungis fram í pottum.“ Hreinn matur Þar sem Siv er meðlimur í Slow Food Reykjavík aðhyllist hún hefð- bundna og holla matargerð sem er án aukefna. „Ég fór á veitingahús á Ítal- íu sem gaf sig út fyrir að vera Slow Food og þar var boðið upp á hefð- bundinn mat úr héraðinu sem gjarn- an er árstíðabundinn. Þessi hug- myndafræði gengur líka út á að viðhalda þekkingu í gamalli mat- argerð. Hér á landi þurfum við t.d. að gæta þess að viðhalda geitastofninum svo ekki tapist þekkingin á geita- mjólk og -ostum.“ Þegar Siv er spurð hvort hún noti útigrillið á þessum árstíma segist hún ekki eiga grill en það sé tímabundið. Til standi að bæta úr því. Þessa dag- ana hugsar hún mest um hollustuna. „Ég fékk vonda, langvinna flensu í vor og hef verið að byggja mig upp með því að fá mér heilsudrykki og hef verið dugleg að taka vítamín. Þorska- lýsi tek ég á hverjum morgni, eina litla matskeið, því mér var sagt að stór skeið væri of mikið magn. Einnig tek ég Omega 3, D-vítamín, acidophi- lus og fjölvítamín. Mér tókst sem bet- ur fer að rífa úr mér flensuna,“ segir Siv sem auk þess er dugleg að stunda sjósund, ganga og trimma. Mót- orhjólið hefur hins vegar staðið óhreyft. Þegar sumarfríið gefst loks ætlar Siv að ferðast um Ísland og dvelja í sumarhúsum sem tengjast fjölskyld- unni. Hún ætlar að gefa lesendum uppskrift af guacamole sem er í uppáhaldi hjá syninum með vefjum. „Ég nota spelt-tortillur og tel að þessi réttur sé góð leið til að koma grænmeti ofan í mannskapinn. Það er ágætt að nota kjúklingalundir, nauta- hakk eða skinku í vefjuna og mikið af grænmeti. Ég get nefnt tómata, ag- úrku, papriku eða bara hvaða græn- meti sem er eftir hugmyndaflugi hvers og eins. Síðan er sýrður rjómi og rifinn ostur,“ segir Siv Friðleifs- dóttir að lokum. Guacamole (lárperumauk) 2 avocado (lárperur) 2 hvítlauksrif 1 dl laukur, smátt saxaður 1 meðalstór tómatur 2 msk. chili-pipar 3 msk. límónu- eða sítrónusafi ¼ tsk. salt ½ tsk. pipar Allt maukað saman. elal@simnet.is Sif Friðleifsdóttir nýtir sér sumartímann til að láta til sín taka í eldhúsinu Hugsa mikið um hollustuna í matargerðinni Morgunblaðið/Árni Sæberg Sif í versluninni Frú Laugu við Laugalæk sem hún heldur mikið upp á. „Þar er hægt að kaupa hollar og góðar vörur beint frá bændum. Þar hef ég fengið frábærar kök- ur frá Sólheimum, eplaböku og hjónabandssælu.“ Þótt oft sé annasamt hjá þingkonunni Siv Friðleifs- dóttur reynir hún að gefa sér tíma til að elda, enda þykir henni það skemmti- legt. Hún aðhyllist hollan mat og er meðlimur í Slow Food Reykjavík sem eru samtök til mótvægis við Fast Food eða skyndibita. Mjólk Egg Ostur Flatkökur Hrökkbrauð Ávextir Grænmeti Innkaupakarfan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.