Morgunblaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 8
8 7. júlí 2011fasteignir Meðalaldurinn lækkaðiumtalsvert þegar viðfluttum hingað í göt-una fyrir sjö árum. Hingað komum við ung hjón með tvö börn sem nú eru raunar orðin þrjú sem eru fjögurra, sjö og tíu ára. Því er oft nokkuð líflegt hér í götunni, þar sem heldri borgarar eru raunar nokkuð áberandi. Hér búa til dæmis enn nokkrir af frumbyggjunum, en húsin hér voru flest reist um og upp úr 1960,“ segir Geirlaug Jóhanns- dóttir sem býr við Þórunnargötu í Borgarnesi. Á slóðum Eglu Borgnesingar halda í sagnaarf sveitar sinnar, enda eru flestar gatn- anna í neðanverðu kauptúninu nefndar eftir sögupersónum Eglu. Göturnar eru kenndar við Skúla, Eg- il, Þorstein, Helgu, Skallagrím og Beru. Þau síðastnefndu áttu dæt- urnar Sæunni og Þórunni, og eftir þeim eru tvær götur í bænum nefnd- ar sem eru neðarlega á vestanveru Borgarnesinu og standa nokkuð hátt. „Hér er frábært útsýni, út yfir Borgarfjörð og til Hafnarfjallsins sem ég nýt þess að ganga á þegar vel viðrar. Mér finnst staðsetningin hér alveg frábær,“ segir Geirlaug sem er fædd í Borgarnesi þar sem hún ólst upp til sjö ára aldurs. Flutti þá í bæ- inn með foreldrum sínum en sneri aftur á heimaslóðir um tvítugt þegar hún hóf nám í rekstrarfræði við Há- skólann á Bifröst. Þar kynntust þau Stefán Sveinbjörnsson eiginmaður hennar en þau fluttu í Hafnarfjörð eftir að háskólanáminu lauk. Þau bjuggu syðra í nokkur ár en eigi að síður togaði Borgarfjörðurinn í og þangað komu þau aftur vorið 2004. Losnaði við stressið „Þetta sagði sig sjálft. Stefán vann í Borgarnesi og ók á milli og tíminn sem í það fór samsvaraði einni vinnu- viku á mánuði. Það má nýta tímann í margt skynsamlegra. Og sjálfri fannst mér líka fínt að fara aftur í Borgarfjörðinn og losna við stressið sem er svo áberandi á Reykjavík- ursvæðinu, sérstaklega þegar kemur að umferðinni,“ segir Geirlaug sem stýrir endurmenntunarstarfi Bif- rastarháskólans. Inntak þess hefur meðal annars verið að gefa fólki, sem fýsir að fara í skóla, en hefur ekki haft aðstæður til þess á fyrri stigum, tækifæri til þess t.d. með fjarnámi, styttri námskeiðum eða öðrum leið- um. Hefur þetta mælst mjög vel fyr- ir, ekki síst skemmri námskeið í rekstrarfræði sem konur hafa mikið sótt. „Ég upplifi náttúruna á allan ann- an og skýrari hátt eftir að við fluttum í Borgarnes. Í bænum renna árstíð- irnar nánast saman en hér eru skilin skarpari og mér finnst oft ævintýri líkast að keyra til vinnu á morgnana upp á Bifröst, fylgjast til dæmis með bragandi norðurljósum á himni og fylgjast með glímu árstíðanna við hvor aðra. Þetta er oft ævintýri lík- ast,“ segir Geirlaug. Tveir bæjarfulltrúar En aftur á Þórunnargötuna. Húsin átta sem þar standa eru flest öll teiknuð af Kjartani Sveinssyni húsa- smið og verkfræðingi sem kallaður hefur verið maður hinna mörgu húsa. Kjartan hannaði til dæmis vel á fimmtánda þúsund íbúðir í fjölbýlis- húsum en best er hann þekktur fyrir einbýlishúsin. Þau eru í senn vegleg og glæsileg og eru Borgarneshúsin þar engin undantekning enda fer stíll húsameistarans ekki á milli mála. „Hér við götuna búa margir þekktir Borgnesingar. Meðal ná- granna okkar eru hjónin Lilja Ósk Ólafsdóttir og Guðmundur Arason, sem í hálfa öld starfaði hjá Vega- gerðinni hér í Borgarnesi. Þá búa ekki langt frá okkur hér hjónin Fríða Arnbergsdóttir og Gísli Sum- arliðason, sem lengi var versl- unarstjóri Kaupfélags Borgfirðinga. Og svo erum við líka tveir sveit- arstjórnarfulltrúar hér í húsum hlið við hlið, ég og Jónína Erna Arn- ardóttir píanókennari, sem situr í sveitarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. Nei, við ræðum helst ekki um pólitík yfir garðvegginn eða úti á götu, fáum nóg af því á öllum fund- unum sem við sitjum saman. Þar er- um við stundum á öndverðum meiði en líka endrum og sinnum sammála – rétt eins og gengur. Þannig er póli- tíkin; líka innansveitarkróníkan hér í Borgarbyggð.“ sbs@mbl.is Gatan mín Þórunnargata í Borgarnesi Frumbyggjar og Kjartanshús Geirlaug Jóhannsdóttir með Stefáni Stefánssyni eiginmanni sínum á svölunum á húsinum við Þórunnargötuna ásamt börn- unum Íris Líf og Sveinbirni Arndra ásamt hvolpinum Regínu Logni. Kja rta nsg ata Þor stei nsg ata Skallagrím sgata Sæunnargata Berugata Þórunnargata Bö ðv ar sg at a Bj ar na br au t Bo rga rb rau t Í útjaðri Varsjár er að finna stór- kostlegt hús sem sameinar allt sem góða höll þarf að prýða. Húsið er hannað af Robert Konieczny og er 567 fermetrar að stærð. Það hefur hlotið nafnið Skálkaskjól og ber nafn með rentu. Húsið er nefnilega þeim einstaka kosti gætt að hægt er að loka því algjörlega á augabragði. Að sögn arkítektsins var það ósk eigendanna að húsið félli vel inn í landslagið í kring, en nærliggjandi hús eru upp til hópa gamaldags pólsk „kubbahús“ frá sjöunda ára- tugnum og gamlar hlöður. Eigend- urnir vildu jafnframt að húsið yrði algjörlega öruggt og það var með þetta tvennt að leiðarljósi sem ráð- ist var í hönnun hússins. Eins og meðfylgjandi myndir sýna eru flekar utan á húsinu sem loka því alveg. Ekki er hægt að hafa hliðið og húsið opið á sama tíma heldur þarf hliðið fyrst að lokast áður en hægt er að opna hús- ið sjálft. Einstaklega vandaða og veglega hengibrú er að finna milli bygginga og rennihurð á sundlaug- arhýsinu sem jafnframt nýtist sem bíóskjár. Sjálft húsið er einstaklega opið og fallegt en innanhússhönnunin var í höndum Magdalenu Radalo- wicz-Zadrzynska. Innviðir hússins eru hlýlegir og fagrir og í hrópandi mótsögn við virkiskennt ytra byrði hússins. Að auki er húsið ein- staklega umhverfisvænt en stórir gluggarnir gera það að verkum að sólin hitar húsið upp á daginn en á næturnar, þegar húsið er kirfilega lokað, helst hitatapið í lágmarki. Húsið er eins sjálfbært og kostur er og eru sólarrafhlöður á þakinu og annað sniðugt sem gerir eigend- unum kleift að vera án samskipta við umheiminn í langan tíma. Guðdómlegt skálkaskjól fyrir þjófhræddaSANYLÞAKRENNUR • RYÐGA EKKI • PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN • STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR • AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU • ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR Sumarbústaður – Hléskógar 12. Þóroddur S. Skaptason lögg. fasteignasali Gústaf Adolf Björnsson lögg. fasteignasali GARÐATORGI 7 210 GARÐABÆ Sími 545 0800 gardatorg@gardatorg.is www.gardatorg.is Garðatorg sími 545 0800 kynnir: Mjög gott 74fm heilsárs hús auk 24fm svefnlofts, samtals 98fm. Glæsileg 6.050fm skógi vaxin endalóð í jaðri sumarhúsabyggðarinnar í landi Svarfhóls í Svínadal rétt hjá Vatnaskógi. Lýsing: Anddyri, tvö svefnherbergi, gott eldhús með fallegri innréttingu og góðum tækjum (helluborð, uppþvottavél og ísskáp). Stór björt stofa með gluggum á þrjá vegu og kamínu. Baðherbergi m/sturtu og geymsla/þvotthús. Stór verönd sem snýr í suður og vestur, heitur pottur. Heitt vatn/hitaveita. Gott útsýni til vesturs og norðurs. Stutt í margvíslega þjónustu, golfvöll og sundlaug. Um 50 mín. akstur frá Reykjavík. Verð 18,9 millj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.