Morgunblaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 23
7. júlí 2011 23 bílar Das Auto. 3.390.000 kr. Verð á Golf frá: www.volkswagen.is Sparnaðarráð frá Þýskalandi Volkswagen Golf Trendline TDI Golf sem eyðir aðeins frá 3.8l pr. 100 km til afhendingar strax A uk ab ún að ur á m yn d: Á lfe lg ur Komdu og prófaðu betri og sparneytnari bíl!Komdu og prófaðu betri og sparneytnari bíl! Fyrirtækið Northen LightsEnergy hefur sett sérþað markmið að aukarafbílanotkun á Íslandi. „Við höfðum hugmyndir um að koma hlutum í þann farveg að Ís- land gæti rafbílavæðst. Það ætl- uðum við að gera með því að byggja t.d. upp hleðslustöðvar um allt og þá myndi þetta koma. En svo upp- götvuðum við að hlutirnir virka ekki þannig,“ segir Sturla Sighvatsson, framkvæmdastjóri hjá Northen Lights Energy. „Framboð í heim- inum af rafbílum er takmarkað og eftirspurnin er miklu meiri en fram- boðið. Menn hafa þurft að fara og semja um þann hluta rafbíla sem verið er að framleiða. Í fyrra voru framleiddir 75 milljón bílar í heim- inum, en af þeim eru einungis 20 þúsund rafbílar. Á næstu árum mun þetta vissulega aukast og fara kannski í hundruð þúsunda rafbíla en það er samt lítið í samanburði við framleiðslu bensínbíla. Þess vegna þurfum við í raun að berjast fyrir hverju eintaki.“ Hentugur borgarbíll Bensínbílar hafa enn það forskot á rafbílinn að komst lengra á einum tanki en rafbíllinn á hleðslu sinni. Þá er einfaldara og aðgengilegra að fylla á bensínbílinn en að hlaða raf- magnsbíl. „Rafbílar drífa kannski ekki enn jafn langt og bensínbílar en ef við tökum dæmigerðan akstur á höfuðborgarsvæðinu, þá er fólk að keyra að meðaltali 34 km á dag. Rafbíllinn ætti því að duga í meira en 90 prósent ferða fólks yfir árið,“ segir Sturla og bætir við að AMP Electric Mercedes Benz ML 350 rafbíllinn fari 150 km á einni hleðslu. Á undanförnum árum hefur orðið gífurleg þróun í rafhlöðum og má búast við að á næstu fimm til tíu árum geti rafbíllinn náð bens- ínbílum og tekið fram úr honum á þessu sviði. Minna viðhald og ódýrari í rekstri Rafmagnsbílar eru dýrari en bensínbílar – ennþá, enda fram- leiddir í miklu minna magni. „Þum- alputtareglan er sú að viðhald á raf- bíl sé um þriðjungar af því sem viðhald á sambærilegum bensínbíl er. Það er enginn gírkassi, engar legur eða hvað eina annað sem er í gangverki bensínbíls. Til að gefa fólki hugmynd um muninn þá eru í hefðbundnum dísilbíl kannski um þúsund íhlutir sem eru á hreyfingu, eins og stimplar og tannhjól, en í rafbíl eru kannski tveir til þrír hlut- ir,“ segir Sturla. Verðmiðinn á raf- magnsbíl er þó enn töluvert hærri en á sambærilegum bensínbíl. „Stjórnvöld eru að fella niður inn- flutningsgjöld og vörugjöld af þess- um bílum um allan heim til að færa þá nær verði bensínbíla. Rafbílar ættu þá að geta verið á samkeppn- ishæfu verði. Fólk þarf líka að horfa á stóru myndina, t.d. getur kostn- aður við bensínbíl verið allt að 50.000 kr. á mánuði en á rafmagns- bíl eitthvað nærri 5.000 krónum.“ AMP Electric Mercedes Benz ML 350 „Þetta er nýr rafmagnsjeppi frá Benz sem við byrjum að selja í haust,“ segir Sturla. Bílinn er útbúinn öllum sömu þægindum og sambærilegur bensínbíll en ætti að vera töluvert ódýrari í rekstri mið- að við núverandi eldsneytisverð. „Ef bílinn er tómur tekur um 4 tíma að hlaða hann. Hann nýtir alla orku betur, t.d. þegar þú bremsar kemur inn mótorbremsa sem nýtir orkuna. Það minnkar líka álag og viðhald á bremsuborðum bílsins. Þá er hann kraftmikill og þægileg- ur í akstri,“ segir Sturla og bætir því við að bíllinn verði kominn í sölu í haust en fólk geti komið í sumar og reynsluekið bílnum og pantað hann. vilhjalmur@mbl.is Fyrirtækið Northen Lights Energy hefur sett sér það markmið að auka rafbílanotkun á Íslandi. Nýr rafbíll væntanlegur í haust BMW mun brátt setja á markað mótorhjól sem eingöngu er drifið áfram með rafmagni. Hjólið er ætlað mestmegnis til innanbæj- arnotkunar og er svokallaður „scooter“. Það hefur drægni upp á ríflega 100 kílómetra og það tekur innan við 3 klukkutíma að fullhlaða það á venjulegu heimilisrafmagni. Í stað venjulegrar hjólagrindar er burðarvirki hjóls- ins álhylkið utan um batteríið sem knýr hjól- ið. BMW fullyrðir engu að síður að hjólið tryggi fyllsta öryggi ökumanns og farþega. Við hemlun og niður brekkur endurhleður batteríið orku líkt og í Hybrid-bílum og eykur drægni þess um 10-20% fyrir vikið. finnurorri@gmail.com BMW-rafmagnsmótorhjól

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.