Morgunblaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 6
fasteignir
Fyrir 60 og eldri. 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með stæði í bílahúsi.
Mikil þjónusta í boði fyrir íbúa. Afnot af heitum potti og gufubaði.
Húsvörður í húsinu. Möguleiki fyrir 50 ára og eldri að kaupa eignina.
VERÐ 19.600.000
Ásdís Ósk Valsdóttir,
löggiltur fasteignasali,
asdis@fasteignasalinn.is
Ásdís
s. 863 0402
Halla
s. 856 1601
Skúlagata 40b, 101 Reykjavík – Opið hús í dag kl. 19:30-20:00
Tryggvi Ófeigsson byggði fiskvinnslustöð á
Kirkjusandi í Reykjavík, sem tók til starfa
1956. Þegar hún hætti var húsið gert að
höfuðstöðvum Sambandsins. Síðar flutti Ís-
landsbanki í næsta hús við og hafa höfuð-
stöðvar hans verið á Kirkjusandi frá 1990.
Íslensk hús
Kirkjusandur
„Við eigum tugi lóða á lausu. Viljum koma
þeirri fjárfestingu sveitarfélagsins á hreyfingu
og sláum því af gatnagerðargjöldunum,“ seg-
ir Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs Ár-
borgar. Ráðið samþykkti á dögunum að
lækka gatnagerðargjöld af byggingarhæfum
lóðum í sveitarfélaginu um 25% af gjald-
skrárverði. Tekur það til lóða á Eyrarbakka,
Selfossi og Stokkseyri.
Sami afsláttur gildir fyrir viðbyggingar á
þeim lóðum sem þegar hefur verið byggt á.
Lækkunin tekur til úthlutana frá sl. áramót-
um og er afslátturinn því vísitölubundinn en
gatnagerðargjöldin hafa hækkað talsvert síð-
an þá vegna verðbólgu.
Árborg veitir afslátt
Morgunblaðið/Sigmundur
Fella fjórðung af
gatnagerðargjöldum
„Þetta er heillandi hús enda hefur Minjavernd
staðið mjög vel staðið að endurbyggingu
þess,“ segir Sverrir Kristinsson, lögg. fast-
eignasali hjá Eignamiðlun. Hann er nú með í
sölu Vaktarabæinn svonefnda við Garða-
stræti sem byggður var árið 1848 af Guð-
mundi Gissurarsyni vaktara, en vaktararnir
svonefndu voru lögregluþjónar síns tíma.
Húsið er tæpir 43 fermetrar, forstofa, bað,
eldhús og eitt herbergi. Í risi er baðstofuloft.
Húsið er hið eina sem er eftir af bæjar-
húsum hjáleigunnar Grjóta sem Grjótaþorpið
heitir eftir.
Ásett verð hússins er 35 millj. kr.
Gamalt hús í Grjótaþorpi falt
Vaktarabær til sölu
Þetta kom til í kjölfar þess að Reykja-víkurborg hætti að leigja út þessatvo sali í húsinu sem hafa verið nýttirsem sýningarsalir. Þá hófst vinna
með eigendum hússins varðandi hvernig versl-
un ætti að rísa hérna og hvernig innrétting-
arnar ættu að vera,“ segir Halla Bogadóttir um
tilurð nýopnaðrar krambúðar í Aðalstræti 10,
þar sem verslunin Kraum er einnig til húsa.
„Við höfum tekið eftir því að mjög margir
eru að leita eftir vörum úr íslenskri náttúru og
hér eru margir hönnuðir að koma með mjög
fína matartengda vöru á markað.
Listaháskólinn hefur til dæmis verið að
vinna með atvinnulífinu og bændum við að búa
til vörur af þessu tagi. Við ákváðum því að gera
krambúð, í anda þess sem var hér í húsinu í yfir
80 ár.
Við leituðum fanga í gömlum ljósmyndum
um hvernig innréttingar í krambúðum voru í
gamla daga. Minjavernd Reykjavíkur á húsið í
dag og þau hafa verið að gera upp gömul hús í
miðborginni. Borðplöturnar í nýju krambúð-
inni okkar eru til að mynda gólfborð í Siemsen-
húsinu, sem ekki nýttust þar.“
Íslensk hönnun og framleiðsla
Verslunin var opnuð í síðastliðinni viku og
segir Halla vöruúrvalið nú þegar vera orðið
talsvert.
„Við erum með te og kaffi, súkkulaði, sápur,
snyrtivörur og kex. Við erum að versla núna
með allt aðrar upphæðir en áður svo verð-
breiddin er meiri í versluninni en áður,“ segir
Halla.
Auk matvæla eru einnig seldar í krambúð-
inni ýmsar matartengdar vörur sem áður feng-
ust hjá Kraumi, vörur á borð við kaffibolla,
viskastykki, uppskriftabækur og annað slíkt.
Íslensk framleiðsla og íslensk hönnun verður
áfram aðalsmerki verslunarrekstursins í Að-
alstræti 10.
„Á meðan við erum að þróa þetta buðum við
útskriftarnemum í leirlistarmótun í Myndlist-
arskólanum í Reykjavík að vera með sýningu
hér í suðursalnum. Þetta er mjög falleg sýning
sem var unnin í samstarfi við postulínsfyrir-
tæki í Þýskalandi. Hugmyndin er svo að fá
hönnuði til að hanna fyrir okkur viðeigandi
vörur í krambúðina.“
Fæðingarafmæli Skúla fógeta
Í versluninni stendur 100 ára gamall búð-
arkassi, sem reyndar er meira upp á punt.
„Hann virkar en skattayfirvöld samþykkja
hann ekki sam gjaldgengan
peningakassa. Hann kemur
frá Danmörku sem og falleg
kaffikvörn sem við erum
einnig með hér hjá okkur.
Hafliði Ragnarsson, súkku-
laðihönnuður, á veg og
vanda af innflutningi þess-
ara flottu gripa til landsins.“
Halla tekur undir það að
ekki sé sama hvers konar
rekstur fari fram í fornfrægu húsi af þessu
tagi.
„Okkur fannst vöruvalið og innréttingarnar
þurfa að þjóna húsinu.“
Aðalstræti 10 var reist árið 1762 og er elsta
hús í miðbæ Reykjavíkur. Húsið var byggt sem
hluti af Innréttingum Skúla Magnússonar
Halla segist vilja leggja meiri áherslu á per-
sónu Skúla fógeta og framlag hans til húsa-
gerðarlistar.
Hann fæddist árið 1711 og því eru 300 ár frá
fæðingu hans nú í desember.
„Margir segja hann föður Reykjavíkur, hann
var mjög stórhuga og kom ýmsu í framkvæmd
hér í borginni. Hér í Aðalstræti 10 hófst í raun
íslensk hönnun, hér var tóvinna og klæðagerð
og segja má að Skúli sé upphafsmaður þess.“
Halla segir að lokum að til standi að lyfta
minningu Skúla meira til vegs og virðingar nú
á fæðingarafmælisárinu.
birta@mbl.is
Breytingar í Aðalstræti 10, elsta húsi Reykjavíkur
Ný krambúð í miðbænum
„Okkur fannst vöruvalið og innréttingarnar þurfa að þjóna húsinu.“
Borðplöturnar í nýju
krambúðinni okkar
eru til að mynda gólf-
borð í Siemsen-
húsinu, sem ekki nýtt-
ust þar.
Halla Bogadóttir
Hótel Klettur, sem er nýr gististaður við Mjöln-ishótel í Reykjavík, var opnað í síðustu viku.Útlit og innviðir hótelsins fá innblástur frá ís-lenskri náttúru og sérstaklega frá íslenskum
bergtegundum. Þannig er nafn hótelsins dregið af kletti
sem hefur fengið að njóta sín á fyrstu hæð hótelsins og
springur þar út í gegnum vegginn.
Álfaþema er á fyrstu hæð hótelsins og fékk fundarsal-
urinn þar nafnið Álfahellirinn. Á fyrstu hæðinni er einnig
bar og morgunverðarsalur sem einnig er kenndur við álfa.
Á hótelinu, sem er örstutt frá Hlemmi, eru alls 86 fyrsta
flokks herbergi. Þar af eru tuttugu lúxusherbergi sem eru
á fimmtu og sjöttu hæð hótelsins. Þau eru annaðhvort með
einkasvölum sem snúa í suður eða frábæru útsýni yfir
Sundin og í átt að Esjunni. Hefðbundin herbergi eru 66 að
tölu og eru þau björt og vel búin. Í öllum herbergjum er
gervihnattasjónvarp með tæplega 50 rásum, ísskápur,
sími, strauborð og straujárn, öryggishólf og nettenging. Á
fyrstu hæð hótelsins er einnig bar sem státar af einu
mesta mögulega úrvali af íslenskum bjór.
sbs@mbl.is
Hótel Klettur við Mjölnisholt tekið í notkun
Álfar og úrval af íslenskum bjór
Morgunblaðið / Jón Svavarsson
Hótelið er á besta stað í bænum og í þægilegu göngufæri
frá Hlemmtorgi.