Morgunblaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 10
10 7. júlí 2011fasteignir FYRIRTÆKI og FASTEIGN Til sölu fyrirtæki i innflutningi og þjónustu á þekktu vörumerki fyrir byggingariðnað og húsbyggjendur. Fyrirtækið er í eigin húsnæði ca. 850 fm.+ ca. 150 fm. milliloft. Fyrirtækið notar rúmlega helming hússins en leigir hinn hlutann út. Aðkoma að húsinu er góð og gott útirými. Auglýsingagildi húsnæðisins er góð. Húsnæðið er staðsett í nálægð við Húsasmiðjuna við Skútavog og önnur sambærileg fyrirtæki. Upplýsingar gefur Sverrir Kristjánsson, löggiltur fasteignasali sími 896-4489 Sverrir@posthus.is Honum Ívari Guðmunds-syni er margt til listalagt. Hann er dag-skrárgerðarmaður og dagskrárstjóri hjá Bylgjunni og und- irbýr 25 ára afmæli útvarpsstöðv- arinnar í ágúst. Samhliða því er hann að leggja lokahönd á nýja línu heilsu- vara sem hann hefur verið að þróa í samstarfi við félaga sinn Arnar Grant og kynnt verður seinna í sumar. Með- fram öllu þessu passar Ívar vandlega upp á að halda líkamanum í formi og er mættur í World Class á slaginu 6 alla virka daga. Draumastarfið? „Ég verð nú að viðurkenna að ég er í draumastarfinu hér á Bylgjunni en þegar ég var yngri þá sogaði ég í mig kanaútvarpið og hlustaði þar á kappa eins og Casey Kasem sem var með American Top 40, Charlie Tuna og Wolfman Jack. Ég skrifaði upp öll lögin, keypti svo allar smáskífurnar og æfði mig síðan að kynna lögin eins og þeir gerðu, tók við ímynduðum símtölum og óskalög- um og allt þetta. Það má því segja að útvarpsbakterían hafi fylgt mér frá 12 ára aldri og hef ég ekki losnað við hana og geri sennilega aldrei.“ Versta vinnan? „Ég á erfitt með að nefna eitthvert eitt starf sem leið- inlegasta djobbið en ég hef unnið sem sendill, blaðasölustrákur, plötusnúð- ur, við útkeyrslu, sölumennsku, markaðsmál og svo náttúrlega út- varpið. En það sem mér finnst einna leiðinlegast að gera er að mála íbúð- ina hjá mér og flytja. Þetta tvennt er bara ekki í neinu uppáhaldi hjá mér en geri ef með þarf.“ Draumabíllinn? „Draumabíllinn í dag er Porche Cayenne Turbo 2011 árgerðin. Ég veit að hann kostar nánast eins og íbúðin mín og því er þetta mjög fjarlægur draumur en þetta er bíll sem sameinar allt sem mig langar að hafa í einum bíl, nóg af hestöflum, sportbílaeiginleika, flott útlit, fjórhjóladrif og pláss fyrir alla fjölskylduna. Það er helst verðið og kannski eyðslan sem gerir það að verkum að þetta verður bara áfram draumur.“ Hvað vantar á heimilið? „Okkur vant- ar klárlega fataherbergi og þá fyrst og fremst þar sem konan er búin að sprengja skápaplássið. Væri líka til í að hafa hornbaðkar með nuddi í sem gott væri að stinga sér í eftir fótbolta- æfingar, ný uppþvottavél væri alveg tilvalið að fá því þessi gamla sem við fengum notaða frá vinum okkar er eitthvað farin að klikka. Einnig vant- ar okkur eitthvað á svalagólfin, það eru tvær svalir á íbúðinni og hafa í raun aldrei verið kláraðar alveg. Svo væri flott að fá safapressu til að fá al- veg nýpressaðan ávaxtasafa á hverjum degi. Því má bæta við að mig hefur alltaf langað í svona græju þar sem sjónvarpið kæmi upp úr fóta- gaflinum á rúminu en mun sennilega aldrei gera neitt í því, mér fannst það bara svo flott í einhverri bíómynd- inni.“ Hvað langar þig í? „Mig langar í þrívídd- arflatskjá með HD- upplausn af bestu gerð því ég horfi slatta á sjónvarpið þegar ég er heima, sérstaklega á vet- urna. Ég væri alveg til í að eignast iMac- tölvu enda er ég á leiðinni að verða al- veg forfallinn Apple-aðdáandi og ekki seinna vænna. Ég væri líka til í að eignast aftur svona vinyl-plötuspil- ara, á nefnilega fjölmargar vin- ylplötur en get ekki spilað þær á neinu.“ Hvað er best heima? „Mér finnst best að geta verið inn í stofu og flett í gegnum blöðin í rólegheitunum eða flakkað á milli allra sjónvarpsstöðvana án þess að nokkur sé að pirra sig á því að ég sé að fikta í fjarstýr- ingunni.“ ai@mbl.is Óskalisti Ívars Guðmundssonar Tók við ímynd- uðum óskalögum 12 ára gamall Mig hefur alltaf langað í svona græju þar sem sjónvarpið kæmi upp úr fótagaflinum á rúminu en mun sennilega aldr- ei gera neitt í því. Undanfarin ár hefurIKEA boðið við-skiptavinum sínum uppá svo kallaða fyr- irtækjaþjónustu. Þjónustan er ekki ný af nálinni og má rekja hana allt til ársins 1994 þegar verslunin var opnuð í Holtagörðum. Fyrir fimm árum tók hún þó á sig þá mynd sem hún er í dag. „Við byrjuðum að fá meira úrval af skrifstofuvörum þegar verslunin flutti í Holtagarða 1994 og það má segja að þetta hafi byrjað þá og hafi verið að vinda upp á sig allar götur síðan,“ segir Guðrún Hlín Þórarinsdóttir hjá fyrirtækjaþjón- ustu IKEA. Spara tíma og peninga „Fyrirtækjaþjónustan sparar fólki og fyrirtækjum bæði tíma og peninga. Í stað þess að ganga í gegnum alla búðina í leit að vörum og verði þá sjáum við um allt sam- an fyrir fyrirtæki og einstaklinga í stærri innkaupum,“ segir Guðrún og bætir því við að oft biður fólk hana að hafa innkaupin ódýr og þá er verið að fá góða þjónustu og lágt verð. Í flestum rekstri er tími pen- ingar og hver stund sem sparast við að þurfa ekki að labba um búðir og velja skrifstofuhúsgögn og inn- réttingar getur verið dýrmæt. „Þjónustan er líka fólgin í því að við ráðleggjum fólki og látum teikna upp eldhús- og baðinnrétt- ingar, einnig fataskápa og jafnvel skrifstofurými. Í dag er fjöldi verslana og vinnustaða sem leita til okkar með bæði val á vörum og uppstillingu. Sjálfa uppsetninguna sjáum við hins vegar ekki um en getum bent viðskiptavinum okkar á fyrirtæki sem sjá um slíkt.“ Allt fyrir heimilið og fyrirtækið Það hefur verið töluverð aukning milli ára að fólk leiti í fyr- irtækjaþjónustu IKEA að sögn Guðrúnar. Hún telur skýringuna á því vera fyrst og fremst þægindin sem fólgin eru í þjónustunni en ekki síður þá staðreynd að í IKEA er að finna nærri allt fyrir heimilið. „Við fáum oft til okkar fólk sem vill t.d. fá allt í sumarbústaðinn eða er að byggja og vill fá flest í íbúð- ina eða eldhúsið. Þá er það allt frá pottum og pönnum í stærri hús- gögn eins og rúm og sófa. Síðan tökum við allar vörur til fyrir fólk og sendum því,“ segir Guðrún og bætir því við að hægt sé að fá hús- gögn samansett og gegn auka- greiðslu. Frá hruni hafaÍslendingar leitast við að gera ódýr en góð innkaup og telur Guðrún að þjónustan sem þau veita hjá fyrirtækjaþjónustu IKEA hjálpi fólki nákvæmlega við það. „Það hefur aldrei verið meira að gera hjá okkur og það er að mikl- um hluta að þakka góðri þjónustu og sanngjörnu verði.“ vilhjalmur@mbl.is Þeir sem vilja spara sér tíma og peninga geta leitað til fyrirtækjaþjónustu IKEA um ráðgjöf og þjónustu Setja saman og senda heim að dyrum Morgunblaðið/Eyþór Verslun IKEA í Kauptúni í Garðabæ er 20.600 fermetrar. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Guðrún Hlín Þórarinsdóttir hjá fyrirtækjaþjónustu IKEA. Fyrirtækjaþjónustan sparar fólki og fyr- irtækjum bæði tíma og peninga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.