Morgunblaðið - 07.07.2011, Síða 17
bílar Rafmagns-mótorhjólið 2011 Zero S hefur gengið í gegnummiklar breytingar og nærri hver einasti hlutur hefur veriðuppfærður. Búið að er að stytta hleðslutímann um helmingmeð nýrri rafhleðslu, setja nýnan bremsubúnað á hjólið oggera fjöðrunina betri. Zero S mætti lýsa sem hljóðlátu mót-
orhjóli framtíðarinnar. vilhjalmur@mbl.is
2011 Zero S
Mótorhjól framtíðar
Hekla er komin upp fyrir Toyota á Íslandi í sölu
nýrra fólksbifreiða það sem af er ári, miðað
við tölur Umferðarstofu um nýskráningar bif-
reiða. Hekla er með umboð fyrir Volkswagen,
Skoda, Audi og Mitsubishi og seldi 650 slíka
bíla á fyrri hluta ársins borið saman við 336
nýskráningar á sama tímaskeiði í fyrra. Toyota
er þó mest selda bíltegundin skv. þessum töl-
um. Alls seldust 446 Toyota-bifreiðar á fyrri
helmingi ársins en næst á eftir eru Suzuki-
bifreiðar, en af þeim seldust 438 eintök.
Öll bílaumboðin seldu á fyrri helmingi ársins
fleiri bíla en í fyrra að Bernhard undanskildu.
Sala þess umboðs á Honda og Peugot stend-
ur á pari við fyrra ár. Almennt er salan að
mestu leyti til bílaleiga, einstaklingar kaupa
aðeins 25% þeirra nýju bíla sem fara á göt-
urnar.
Breytingar á bílamarkaði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hekla toppar Toyota
í sölu nýrra bíla
Suzuki hefur styrkt samstarf sitt við Fiat og
ætlar að kaupa 30 þúsund dísilvélar af ítalska
framleiðandanum. Vélar þessar eru ætlaðar í
Suzuki SX4. Sá bíll er bæði í boði undir
merkjum Suzuki og Fiat. Samstarf Suzuki og
Fiat um framleiðslu véla og bíla hófst árið
2005. Díselvél þessi er 1,6 lítra og uppfyllir
þegar mengunarstaðla. Þessi tilhögun sparar
því Suzuki umtalsverðar upphæðir sem ann-
ars hefðu runnið til þróunar eigin vélar af
þessari stærð.
finnur.orri@gmail.com
Suzuki kaupir vélar af Fiat
Morgunblaðið/Sigurgeir
Kaupir 30 þúsund
ítalskar dísilvélar
Vélhjól eyða minna eldsneyti en fólks-bílar og því hefur sala t.d. á vespumaukist eftir hrun því þar sjá menntækifæri á að spara. Þú getur feng-
ið vespu fyrir brot af því sem nýr fólksbíll
kostar og hún eyðir aðeins tveimur til þremur
lítrum á hundrað kílómetrum. Vespukaup eru
því ansi fljót að borga sig eins og eldsneyt-
isverð er í dag,“ segir Ragnar Ingi Stefáns-
son, verslunarstjóri Nítró á Bíldshöfða í
Reykjavík.
Þrátt fyrir aukna sölu á vespum segir
Ragnar samdrátt vera í sölu nýrra vélhjóla.
„Við sjáum að fólk ekur lengri leiðir á hjól-
unum og heldur þeim betur við. Það sjáum við
bæði á verkstæðinu okkar og í sölu vara- og
slithluta.“
Mikill áhugi en minna á milli handanna
Mótokross hefst á Íslandi upp úr 1970 en
það er ekki fyrr en um aldamótin að spreng-
ing varð í sportinu. Á þeim tíma voru vöru-
gjöld á hjólum lækkuð niður í sama flokk og
fólksbílar. Ragnar segir að frá þeim tíma og
alveg fram á mitt ár 2008 hafi sala á nýjum
hjólum verið gífurlega mikil og hlaupið á
hundruðum hjóla á hverju ári.
Áhuginn á mótorsproti almennt hefur jafn-
framt aukist til muna meðal almennings und-
anfarin tíu til fimmtán ár. Má segja að
sprenging hafi verið í sportinu undanfarinn
áratug.
„Mótokrossið er fjölmennast þó svo það hafi
verið fækkun eftir hrun. Ekki er selt jafn mik-
ið af nýjum hjólum og er allt að 25% fækkun í
mörgum keppnunum. Þrátt fyrir það er gíf-
urlegur áhugi á sportinu og listi þátttakenda í
Klausturskeppninni, sem er stærsta einstaka
mót ársins, fylltist á fimm klukkutímum,
mörgum mánuðum fyrir mót,“ segir Ragnar
sem telur skýringuna á fækkun almennt í
keppnum í ár sé helst að finna í því að menn
hafi minna á milli handanna í dag og geti ekki
verið að taka þátt í keppnum aðra hverja helgi
allt sumarið.
„Við erum að glíma við hærra hrávöruverð í
heiminum, lækkun á krónunni og hækkun á
eldsneytisverði. Á einni æfingu eru menn
kannski að eyða 10 lítrum af bensíni og það er
tvöfalt dýrara í dag en fyrir nokkrum árum.
Þetta hefur allt saman áhrif á sportið.“
Nýir tímar – ný tækifæri
„Það eru alltaf breytingar á þessum mark-
aði og við sjáum t.d. fjórhjólin vera að leysa
vélsleðana af hólmi á Suðurlandi. Snjóleysi
hefur verið að plaga vélsleðamenn hér fyrir
sunnan og hafa margir þeirra farið yfir í fjór-
hjólin,“ segir Ragnar og bætir við að breytt
fjórhjól komist sömu leiðir og vélsleðarnir.
„Margir eru að útbúa fjórhjólin til vetrarakst-
urs. Þá setja menn undir þau stærri dekk og
negld, hituð handföng og hlífar og þá komast
þeir á svipaðar eða sömu slóðir og vélsleð-
arnir.“
Jeppafólk hefur í auknum mæli verið að
skipta yfir í fjórhjól, enda eru þau ódýrari í
rekstri og fólk kemst á aðrar og erfiðari slóðir
á þeim en á flestum jeppum. „Það eru hvoru
tveggja jeppamenn og vélsleðafólk sem eru að
fara yfir í fjórhjólin en svo er líka nýtt fólk að
uppgötva þau og gildi þeirra.“
Öryggisbúnaður og tískan
Í Nítró er að finna flestar vörur fyrir mót-
orhjólið og segir Ragnar að verslunin sé ekki
bara sú stærsta sinnar tegundar á Íslandi
heldur sé hún stór á alþjóðlegan mælikvarða.
„Þetta er mjög stór og myndarleg verslun á
alþjóðlegan mælikvarða í mótorhjólum. Við
notum sölunet N1 og erum með 12 útibú um
allt land. Ef varan er ekki til úti á landi þá
getur fólk pantað hana og fær hana senda
næsta dag og við erum auðvitað með sama
verð um allt land.“
Öryggisbúnaður og klæðnaður er stór þátt-
ur í öllu sem tengist mótorhjólum og mót-
orsporti. Hjá Nítró er að finna mikið úrval af
hjálmum, leðurgöllum og goretex-fatnaði.
Þeim sem vilja ekki fórna tískuútlitinu
býðst nú að kaupa sérhannaðar gallabuxur frá
Nítró. „Við erum með gallabuxur úr keflar-
efni. Þær líta út eins og venjulegar gallabuxur
og kosta svipað og þekktar merkjavörur hjá
tískuvöruverslunum. Margir vilja fara stuttar
ferðir um bæinn og þá vilja menn ekki vera í
öllum leðurgallanum og líta út eins og geim-
farar. Þannig að þeir sem vilja vera í léttum
leðurjakka og gallabuxum ættu að líta við hjá
okkur og skoða það sem er á boðstólum.“
vilhjalmur@mbl.is
Mótorhjól Víða samdráttur eftir hrun en önnur tækifæri hafa opnast
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Myndarleg verslun í mótorhjólum,“ segir Ragnar Ingi Ingi Stefánsson hjá Nítró á Bíldshöfðanum.
Ódýrara að vera vélhjóli
„Við sjáum að fólk ekur lengri
leiðir á hjólunum og heldur þeim
betur við. Það sjáum við bæði á
verkstæðinu okkar og í sölu vara-
og slithluta.“