Morgunblaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 18
bílar18 7. júlí 2011 590 2000 - benni.is Porsche Cayenne 250 hö Verð 4.490.000 Nýskráður 17.05.2005 - ekinn 60 þús. Leðuráaklæði, BI-Xenon ökuljós, Tiptronic S sjálfskipting, hiti í framsætum, hiti í stýri, rafstýrð sæti með minni fyrir ökumann o.fl. Porsche Cayenne S 385 hö Verð 7.950.000 Nýskráður 06.03.2007 - ekinn 74.þús Loftpúðafjöðrun, Dökkar hliðarrúður, rafknúin sóllúga, lyklalaust aðgengi, rafknúinn opnun og lokun á skotti , 20“ álfelgur, dráttarbeisli, 3ja arma fjölvirkt stýrishjól, innbygður bílskúrshurðaopnari , Cd-spilari 6 diska, Bose hljóðkerfi, hraðnæmt aflstýri o.fl. Porsche Cayenne Turbo 500 hö Verð 13.900.000 Nýskráður 06.02.2008 - ekinn 44. þús. Nálgunarvörn að aftan og framan, rafknúin sóllúga, dökkar hliðarrúður, lyklalaust aðgengi, leiðsögukerfi, 20” álfelgur, BI-Xenon ökuljós, rafknúin opnun/lokun á skotti, loftpúðafjöðrun með hleðslujafnara, hraðanæmt aflstýri, hiti í framsætum, hiti í stýri, Porsche merki í höfuðpúða, Bose digital surround hljóm- kerfi, áttaviti í mælaborði o.m.fl. Sérfræðingar í bílum Það er tákn um nýja tíma, aðframleiddir séu stórir fjöl-skyldubílar með aðeins 1,6lítra sprengirými vélar. Einn þeirra er þó Peugeot 508 sem Bernhard hefur nýverið tekið til sölu. Það vekur einnig nokkra athygli að umboðið býður aðeins díselútgáfur Peugeot 508 til sölu, þó svo hann sé líka framleiddur með bensínvélum. Díselvélarnar eru fernskonar, allt frá 112 hestöflum til 204 og verðmun- urinn talsverður á milli útgáfna, eru frá 4,8 til 7,2 milljóna króna. Þeim afl- minnsta var reynsluekið á dögunum. Það er með nokkrum ólíkindum að þessi litla 1,6 lítra díselvél dugi þess- um 1,6 tonna bíl og svo var samt raunin. Hann er ekki sérlega spræk- ur en svarar samt nægjanlega fyrir flesta aðra en þá sem setja snerpu efst á óskalistann við kaup á bílum. Tog vélarinnar nemur 199 Nm og það gerir ágæta upptöku bílsins mögu- lega. Þessi litla vél mengar eðlilega lítið eða aðeins 115 g af CO2 og því er frítt fyrir þennan stóra bíl í stæði í miðbænum í allt að 90 mínútum. Rafstýrð beinskipting Reynsluakstursbíllinn var með all- sérstakri ESG sjálfskiptingu sem ekki er eiginleg sjálfskipting heldur skiptir bíllinn sér eins og beinskiptur væri, en með aðstoð rafstýringar. Þessi skipting var ekki reynsluakst- ursmanni að skapi og því frekar hægt að mæla með beinskiptingunni eða aflmeiri útgáfunum sem eru með hefðbundna sjálfskiptingu. Óeðlilega langan tíma tekur þessa skiptingu að koma sér í næsta gír við inngjöf og gríðarlegt hik verður á meðan á því stendur og algjört aflleysi á meðan. Á þessu ber því meira sem fastar er stigið á bensíngjöfina og verður akst- urinn æði skrykkjóttur fyrir vikið. Ef rólega er ekið finnst minna fyrir þessum ókosti og svona útbúinn er einmitt gert ráð fyrir slíku. Þannig á hann að vera mjög sparneytinn bíll umfram allt og alls engin spyrnu- kerra. Langflestir setja þann kost of- ar aflinu nú á dögum dýrtíðar elds- neytis. Með þessari skiptingu eyðir bíllinn minna og mengar minna en beinskiptur og er það að einhverju leyti réttlæting á fyrrnefndum ókosti. Það er í sjálfu sér dálítil synd að búa ekki að meira afli í þessari ódýr- ustu útgáfu af Peugeot 508 því bíllinn er í raun hannaður fyrir miklu meiri átök og aksturshæfni en ná má fram með minnstu vélinni. Sérlega for- vitnilegt væri því að aka honum í GT- útgáfu hans með 2,2 lítra og 204 hest- afla díselvélinni, en sá bíll verður einnig í boði hjá umboðinu. Góður akstursbíll Að öllu öðru leyti en ESG- skipt- ingunni er 508-bíllinn sérlega vel heppnaður bíll og mjög fínn í akstri. Hann er með mjög góða fjöðrun eins og við má búast frá Peugeot, svínligg- ur á vegi og líður áfram eins og sann- ur lúxusbíll. Hljóðeinangrun hans er eins og allra best gerist. Bíllinn er með Start/stop-tækni og er hún ein sú besta og skilvirkasta sem reynslu- ökumaður hefur kynnst. Með henni drepur bíllinn á vélinni rétt áður en bíllinn stöðvast í stað þess að bíða uns hann er alveg stopp eins og algengast er. Einnig er hann mjög fljótur að ræsa þegar sleppt er bremsunni og ekki þarf að bíða uns stigið er á bens- íngjöfina eins og í mörgum öðrum bíl- um. Peugeot 508 er ári-fallegur bíll að utan, höfðinglegur og stór. Hann heldur enn „frönsku“ útlitinu en hef- ur þó líkst þýskum bílum meira en forverinn, sem bar töluna 407. Lang- baksútgáfa Peugeot 508 er eiginlega fallegri en „sedan“-útgáfan og renni- legri. Mjög vel fer um 5 farþega og skottið er mjög stórt svo ekki sé talað um rýmið í langbaknum. Hann er því sannarlega vænn fjölskyldubíll fyrir ríflega vísitölufjölskyldu. Glerþak Einn af stærstu kostum bílsins er glerþak hans og er hann því einkar bjartur að innan. Innréttingin er lát- laus og stílhrein, enginn íburður en öllu vel fyrir komið og greinilega vel smíðað. Gluggar eru í minna lagi. Stórir póstar, ekki síst sá á milli fram- og afturhurðar, skerða útsýni nokkuð og urðu til þess að ökumaður varð tíðum að skekja sér í sætinu til að sannfærast um greiða leið. Sætin eru mjög góð eins og yfirleitt frá Peu- geot og veita mikinn stuðning. Peu- geot 508 er eigulegur bíll og vel smíð- aður og þéttur í alla staði. Honum er ætlað stórt hlutverk, þ.e. að leysa af hólmi bæði 407- og 607-bílana og það hefur honum tekist með stæl. Með honum er kominn stór fjölskyldubíll sem eyðir eins og smábíll. Lágar eyðslutölur hans voru sannreyndar í reynsluakstri. finnurorri@gmail.com Finnur Orri Thorlacius reynsluekur Reynsluakstur Peugeot 508 1,6 eHDi Franskur og fágaður Morgunblaðið/Sigurgeir S. Peugeot 508 1,6 eHDi árg. 2011 • 1,6 l. díselvél/túrbína • 112 hestöfl/199 Nm • Rafstýrð beinskipting • 5 sæti, tau • Glerþak •Tölvustýrðmiðstöð • Eyðsla innanb: 5,3 • Eyðsla utanb: 4,2 • CO2 g/km: 116 • 16” álfelgur • Eiginþyngd 1.609 kg • Frítt í stæði • 0-100: 11,9 sek. •Hámarkshraði: 196 km • Framhjóladrif • Verð: 4.910.000 kr. • Farangursr. 560 l./1.865 l. • Umboð: Bernhard

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.