Morgunblaðið - 07.07.2011, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 07.07.2011, Qupperneq 20
bílar20 7. júlí 2011 FYRIRFERÐALÍTIÐ. UMHVERFISVÆNT. NÝTÍSKULEGT. PCX VERÐ KR. 629.000 KOMDU Í HEIMSÓKN OG SKOÐAÐU ÚRVAL AUKAHLUTA, KYNNTU ÞÉR LÁNAKJÖR OG SÉRKJÖR Í ÖKUKENNSLU FYRIR NÝJA EIGENDUR HONDA PCX. Úr hljóðlátari og umhverfisvænni virkni vélarinnar til laufléttrar meðhöndlunar og nútíma ímynd hjólsins, þá er PCX bæði hagnýtt, snöggt og skemmtilegt að aka, með mjúkri og hljóðlátri 125 rúmsentimetra vél. Létt og lipurt en samt furðulega aflmikið, skilar hjólið góðri hröðun – alveg fullkomið til að halda í við mikla umferð. Eldsneytiseyðslan kemur einnig á óvart – aðeins 2,2L/100km, þökk sé nýjum hægagangsrofa með Start/Stop tækni sem drepur sjálfkrafa á vélinni eftir þrjár sekúndur í lausagangi. Um leið og hjólinu er gefið inn, fer það síðan sjálfkrafa í gang aftur. Allt er þetta til viðbótar við mjúka virkni hjólsins sem og örugga og afslappaða setu, þökk sé lítilli sætishæð og langri og rúmgóðri fóthvílu. TÆKNIUPPLÝSINGAR Vél: Vatnskæld fjórgengisvél, 2ja ventla SOHC Slagrými: 124.9 cm3 Hámarks kraftur: 11.33 hö / 8.000 mín-1 Eldsneytiseyðsla: 2,2L/100km Eigin þyngd: 124.4 kg (F: 52.2 kg; A: 72.2 kg) CBS EURO 3 V-MATICPGM FI Pearl Himalayas WhiteAsteroid Black Metallic Seal Silver Vatnagörðum 24 - 26 • Reykjavík • Sími 520 1100 • www.bernhard.iswww.honda.is 2,2 L /100 k m Blandaður akstur „Dauður“ Opel Spurt: Ég þurfti að stöðva á Kefla- víkurveginum til að svara far- símanum. Þegar ég ætlaði af stað aftur fór vélin ekki í gang – tók ekki við sér svo mikið sem eitt púst. Þetta er 7 ára gamall Opel Astra og var í góðu lagi fram að þessu. Ég skildi bílinn eftir og sendi þér fyr- irspurn með netbréfi. Þú sagðir að þar sem þessi bilun hefði ekki haft neinn aðdraganda né bilunarljós kviknað gæti líkleg orsök verið bilun í bensíndælu sem er í bensíngeym- inum. Að þínu ráði tók ég með mér góðan hamar og eftir að hafa gefið bensíngeyminum gott drag (undir hægra aftursætinu) datt vélin í gang og ég ók heim án vandræða. En til að eiga þetta ekki á hættu á ný fór ég einnig að þínum ráðum og fjár- festi í nýrri bensíndælu og end- urnýjaði samkvæmt leiðbeiningum. En þá bregður svo við að vélin er „steindauð“ þótt greinilega heyrist í nýju dælunni. Hvað er nú til ráða? Getur verið að nýja dælan sé biluð? Svar: Þú hefur sjálfsagt tæmt gömlu bensíndæluna eins og vera ber. Þér hefur hins vegar láðst að fylla þá nýju („præma“ á vondu máli). Hvíti plasthólkurinn á dæl- unni, sá hluti sem gengur niður í geyminn, rúmar um 1 lítra af bens- íni sem ekki lekur niður af. Það er aukaforði sem girðir fyrir að hreyf- ingar bílsins valdi því að dælan „grípi í tómt“. Sé hann tómur nær dælan ekki upp þrýstingi. Þú þarft ekki að taka dæluna aftur úr. Taktu aftursætið úr og aftengdu grennri lögnina á dælunni. Útbúðu slöngu sem passar upp á stútinn og settu netta trekt á hinn enda slöngunnar. Helltu 1 lítra af bensíni í dæluna, tengdu lögnina á ný og vélin mun fara í gang. Daewoo Nubira: Stirðar þurrkur Spurt: Ég er með árg. 02 af Nubira. Undanfarið hafa þurrkurnar verið leiðinlegar, hnökra með tilheyrandi óhljóðum. Þær eiga það til að stöðv- ast á miðri rúðunni en fara oftast aftur af stað ýti maður við þeim. Ég lét skipta um þurrkublöð og bera á þau efni sem á að gera þau hál en það breytti engu. Á smurstöð var mér sagt að líklega væri þurrkumót- orinn ónýtur. Mér skilst að hann geti kostað talsvert svo öll góð ráð væru vel þegin. Svar: Þurrkumótorar í þessum bíl- um eru gríðarlega sterkir og bila sjaldan. Í langflestum tilfellum eins og þú lýsir stafar vandinn af stirðum spindlum, en það eru öxl- arnir sem snúa þurrkuörmunum. Þeir eru í hólkum sem í eru stálfóðr- ingar. Í þær sest ryk og óhreinindi þar til spindlarnir festast. Viðgerð er ekki flókin. Merktu með tússi hvar þurrkublöðin setjast á rúðuna. Losaðu rærnar af þurrkuörmunum og þrýstu niður á þá ofan við spin- dilinn en við það losna þeir af. Fjar- lægðu plasthlífina sem er fyrir neð- an framrúðuna. Skrúfurnar á endum hlífarinnar skrúfast niður í nælonklossa og oftast þarf að höggva þær sundur með beittum meitli. Losaðu arm mótorsins af spindildrifi hægri þurrkunnar (slærð hann niður af kúlunni með hamarsskafti) en láttu arminn vera kyrran á mótornum. Losaðu boltana sem halda spindlunum (3 hvorum megin) og farðu með drifbúnaðinn á renniverkstæði og fáðu spindlana losaða úr. Þeir geta verið mjög fast- ir í og hætt við að spindilhólkarnir brotni sé ekki beitt réttum verkfær- um. Yfirleitt þarf ekki viðgerð, ein- ungis að losa spindlana, þrífa þá og fóðringarnar, smyrja og endurnýja o-hring sem er í stútnum undir skífu og splitti. Ísetningin er auðveld og þurrkurnar munu verða eins og nýj- ar. Leó M. Jónsson svarar spurningum um bílamál Ónýt bensíndæla – draugslegar þurrkur Morgunblaðið/Þorkell Útbúðu slöngu og settu trekt endann. Helltu bensíni í dæluna og þá fer allt í gang, segir í bílapistli vikunnar. Leó M. Jónsson véltæknifræðingur leoemm@simnet.is (Ath. Bréf geta verið stytt. Eldri spurningar og ítarlegri svör eru birt á www.leoemm.com) Til að öryggisbúnaður (ABS, stöðugleikakerfi og fleira ) skili bestum árangri þurfa dekk að hafa réttan og jafnan þrýsting. Belgur, sóli og munstur fólksbíladekkja eru frábrugðin því sem var fyrir 25 árum; mörg dekk eru með stefnuvirkt munstur og því ekki sama hvorum megin þau eru undir bíl (merkt með pílu). Hámarksöryggi og sparneytni fólksbíls næst þegar þrýst- ingur í dekkjum er 32 psi (2 kp/fsm). Munsturdýpt getur sýnt hvort þrýstingur sé sá rétti: Slitni sóli meira á miðj- unni er þrýstingur of mikill. Slitni munstrið meira á báð- um jöðrum sólans en á miðj- unni er þrýstingurinn of lítill. Ábending Jafn þrýst- ingur í dekkj- um mikilvægur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.