Morgunblaðið - 15.07.2011, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.07.2011, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 1 5. J Ú L Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  164. tölublað  99. árgangur  www.ms.is Með D-vítamíni sem hjálpar þér að vinna kalkið úr mjólkinni. Meira fjör með Fjörmjólk! Nú í nýjum umbúðum með skrúftapp a FLAUTUKÓRINN FRUMFLYTUR VERK STEINGRÍMS SYNGJA FYRIR PEUGEOT HÆTT KOMINN Í HAUGABRÆLU Á STRANDVEIÐIBÁT 3 RADDIR OG TAKTKJAFTUR, 40 FÉKK HJARTAÁFALL 14GLENS Á SKÁLHOLTSHÁTÍÐ 36 Morgunblaðið/Einar Falur  Verð á veiðileyfum á landinu hef- ur hækkað og þau eru víðast hvar uppseld. Aukin ferðalög Íslendinga innanlands og áhugi erlendra lax- veiðimanna halda eftirspurninni í hámarki. Haraldur Eiríksson, markaðs- og sölufulltrúi Stangveiðifélags Reykjavíkur, segir að hagstætt gengi laði að útlendinga. „Ég segi það alveg fyrirvaralaust að þessi fyrirtækja- og bankaveiði sem átti sér stað í þessu meinta góð- æri var í raun besta markaðs- setning á íslenskri laxveiði sem hef- ur farið fram, hvort sem okkur hérlendu veiðimönnunum líkar bet- ur eða verr,“ segir Haraldur. Það sem af er sumri er laxveiði langtum minni en á sama tíma í fyrra, sem var metveiðiár. Síðustu tvö sumur þar á undan voru einnig mjög góð. »4 og 8 Veiðileyfin rjúka út en veiðin er töluvert minni en í fyrra Útboð á dælingunni » Stór erlend fyrirtæki buðu í sanddælingu í Landeyjahöfn. » Tilboðin voru frá 1-1,2 millj- arða króna en kostnaðar- áætlun upp á 240 milljónir. Til- boði Íslenska gámafélagsins upp á 325 milljónir var tekið. Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Forstjóri Björgunar ehf., Gunnlaug- ur Kristjánsson, telur það bæði hættulegt og kostnaðarsamt að hafa Landeyjahöfn opna á veturna. Skyn- samlegast sé að nýta höfnina sem sumarhöfn og þá viti Eyjamenn að hverju þeir ganga. Telur Gunnlaugur nær ómögulegt að miða atvinnurekstur út frá stop- ulum vetrarferðum. Hann gjörþekk- ir aðstæður í Landeyjahöfn þar sem Björgun sá um stofn- og viðhalds- dýpkun hafnarinnar. Gunnlaugur segir sandburð í og við höfnina mun meiri en áætlanir hafi gert ráð fyrir, óháð gosinu í Eyjafjallajökli. Mjög erfiðar aðstæður séu til dýpkunar á veturna. Hann efast jafnframt um að dæluskipið Skandia, sem notað hefur verið við dýpkun, sé nægilega öflugt. Þá efast hann um að dýpkunarskip Björgunar gætu staðið sig betur. Að- eins séu til tvö eða þrjú dæluskip í heiminum sem gætu ráðið við þetta verkefni. Þau skip kosti um 80 til 100 milljónir króna á mánuði. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, lítur svo á að Landeyjahöfn sé ekki tilbúin fyrr en hægt verði að sigla þangað allt árið. Fylgja þurfi málinu eftir. MHöfnin er enn ófullgerð »4 Hættuleg höfn að vetri til  Forstjóri Björgunar telur skynsamlegast að nýta Landeyjahöfn aðeins yfir sumarið  Þörf á öflugra dæluskipi  Höfnin ekki tilbúin, segir Elliði Vignisson Morgunblaðið/Kristinn Gögn Vel er fylgst með umferð um viðkvæm persónuleg gögn. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Allar flettingar í upplýsingakerfum banka og fjármálastofnana og í raf- rænum sjúkraskrám eru skráðar og auðvelt er að fylgjast með hvort starfsfólk fjármálastofnana og heil- brigðiskerfisins misnotar aðgang sinn. Fólk á rétt á að fá upplýsingar um hver skoðar sjúkraskrár þess og það sama gildir um vanskilaskrá. Reglulega eru gerðar athuganir á umferð um rafræna sjúkraskrá Landspítalans og gripið til viðeig- andi ráðstafana, komi í ljós að starfsmenn misnoti heimildir sínar. Nils Christensen, formaður eftir- litsnefndar sjúkraskrárinnar, segir að nokkuð sé um að fólk hafi sam- band og vilji vita hvaða heilbrigð- isstarfsmenn hafi skoðað sjúkra- skrá þess. Afar misjafnt er meðal starfs- manna banka og fjármálafyrirtækja hversu mikinn aðgang þeir hafa að fjármálaupplýsingum einstaklinga og fyrirtækja. Auðvelt er að rekja ferðir og athafnir starfsmanna í upplýsingakerfum bankanna. »9 Allar flettingar skráðar  Fólk á rétt á að fá að vita hver skoðar sjúkraskrá þess Hugsanlegt er að hægt verði að opna bráða- birgðabrúna yfir Múlakvísl strax um helgina. Er verkið komið vel á veg og er þegar ljóst að því verður lokið mun fyrr en ætlað hafði verið. Haldið var áfram að ferja fólk og bíla yfir ána í gær og telur lögreglan á Hvolsvelli að um 450 bílar og 1.500 manns hafi verið flutt yfir. Voru ferðamenn uppnumdir yfir þessari svaðilför yfir Múlakvísl. »15 Brúarsmíð yfir Múlakvísl á síðustu metrunum Morgunblaðið/Golli  Um 1.200 manns hafa farið í gönguferðir með Fjörðungum í Fjörður á Gjögraskaga síð- an árið 1996. Svæðið nýtur mikilla vinsælda og er nokkurs konar Horn- strandir þeirra Norðlendinga. Annar undurfagur áfangastaður er Morsárdalur í ná- grenni Skaftafells, en þar er hægt að gleyma sér drykklanga stund við náttúruskoðun. »16 Áfangastaðir norð- an og sunnan heiða Steinar Lækjar- botn í Morsárdal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.