Morgunblaðið - 15.07.2011, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.07.2011, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2011 búi að þeirri reynslu. Alls verður brúin 155 metra löng en verið var að leggja síðustu gólfflekana í gær. Jafnframt var unnið að varnar- görðum og vegtengingum að brúnni. Í gærkvöldi stóð svo til að leggja slitgólf og setja upp vegrið. Ef allt fer að óskum verður hægt að hleypa ánni undir brúna í nótt og verður þá hægt að ljúka við síðasta hluta veg- tengingar að henni. Minni umferð en í byrjun Meðan beðið er eftir að bráða- birgðabrúin rísi er haldið áfram að flytja fólk og bíla yfir Múlakvísl á rammgerðum rútum. Minni umferð var í gær en fyrr í vikunni og mynd- uðust nær engar biðraðir við ána. Gengu selflutningarnir eins og smurt fyrir sig og voru erlendir ferðamenn hinir ánægðustu með svaðilförina yfir ána. Morgunblaðið/Golli Selflutningar Greiðlega gekk að flytja bíla og fólk yfir Múlakvísl í gær. Minni umferð var yfir ána en fyrr í vikunni og mynduðust nær engar biðraðir eftir að komast yfir. Byrjað var að ferja far- artæki og fólk á tíunda tímanum í morgun og um miðjan dag þegar ljósmyndari Morgunblaðsins var á staðnum, höfðu hundruð manns þegar verið flutt yfir, margir þeirra erlendir ferðamenn. Brúarsmíð gengur vonum framar  Hugsanlega hægt að opna fyrir umferð yfir Múlakvísl strax um helgina  Vegagerðin býr að reynsl- unni úr Skaftárhlaupi árið 1996 við verkið  Selflutningar yfir ána gengu mjög vel í gær Morgunblaðið/Golli Brúin Um miðjan dag í gær var þegar búið að leggja gólffleka á yfir hundrað metra brúarinnar. Stóð til að klára það verk í gærkvöldi en alls verður brúin 155 metra löng. Þá var eftir að leggja slitgólf og vegrið. VIÐ MÚLAKVÍSL Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Brúarvinnuflokkar Vegagerðar- innar brugðust skjótt við kallinu þegar hlaup hreif með sér brúna yfir Múlakvísl á laugardag og rauf hring- veginn. Sumir þeirra voru komnir í langþráð sumarfrí þegar kallið kom en þeir voru mættir strax á mánu- dag til að hefja störf við bráða- birgðabrú til þess að koma sam- göngum í samt lag. Hefur nótt verið lögð við nýtan dag við verkið og létu verkamenn grenjandi regnið ekkert á sig fá í gær. Upphaflega var talað um að smíð- in tæki tvær til þrjár vikur en nú hvísla menn því að jafnvel verði hægt að opna fyrir umferð yfir brúna um helgina. „Það er ekki búið að tímasetja það alveg en við erum að vona að það verði eitthvað fyrr en gert var ráð fyrir,“ segir Reynir Gunnarsson, rekstrarstjóri Vega- gerðarinnar á Hornafirði og einn umsjónarmanna verksins. Hann þakkar reynslunni úr Skaftárhlaupi árið 1996 þegar brúin yfir Gígju fór að svo hratt hefur gengið nú. Menn Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Þeir erlendu ferðamenn sem tóku sér far með rútunni yfir Múlakvísl í gær voru hæst- ánægðir með þessa óvæntu svaðilför á ferð sinni um hringveginn. Höfðu sumir þeirra á orði að þetta væri hreint ævintýri. Bræðurnir Ismail og Moham- med Qadry frá Kanada voru að koma að austan en þeir voru að klára hringinn á bíla- leigubíl. Lögðu þeir af stað á föstudag og komust að því fyrir tilviljun að brúin hefði farið í sundur. Ætluðu þeir samt að halda áfram og snúa við þegar komið væri að ánni. Afbókuðu þeir gistingu en bókuðu sums staðar aftur fyrir bakaleiðina. Heyrðu þeir aðeins af selflutningunum yfir ána í fyrra- dag. „Við höfðum meiri áhyggjur af því hvaða áhrif þetta hefði á ferðamennskuna hér en á okkur sjálfa. Við vorum mjög ánægðir þegar við heyrðum af flutningum. Ísland á heiður skilinn fyrir að setja allt í botn. Þetta hlýtur að kosta stórfé,“ segir Ismail. Eins og Disneyland Hjónin Tomás Navarro og Pilar Mateo frá Zara- goza á Spáni voru að hefja hringferð sína og voru á leið austur. Bílaleigan hafði sagt þeim að þjóðveg- urinn væri farinn í sundur en að það væru flutningarbílar sem gætu ferj- að þau yfir ána. Þegar rútan leggur af stað út í ána standa farþegarnir upp skælbrosandi og hlæjandi. Pilar segir ekki bóla á hræðslu hjá fólki. „Fyrir ferðamennina er þetta bara skemmtilegt. Þetta er bara einn ferðamanna- staðurinn enn, eins og Disneyland!“ Hún segir þó að þetta hljóti að vera verra fyrir fólkið sem býr á svæðinu og þarf að nota brúna dags daglega. Ævintýri líkast fyrir erlendu ferðamennina Morgunblaðið/Golli Rútan Ferðamenn stíga um borð í rammgerða rútuna austanmegin Múlakvíslar. Bræðurnir Ismail og Mohammed Qadry. Skannaðu kóðann til að sjá mynd- skeið frá brúnni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.