Morgunblaðið - 15.07.2011, Side 37

Morgunblaðið - 15.07.2011, Side 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2011 Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Áhugafólk um miðaldir getur skroppið í árlega ferð aftur í tímann um helgina, með aðstoð íbúa Gása- kaupstaðar, skammt norðan Akur- eyrar. Þessi þriggja daga hátíð, frá laugardegi til mánudags, hefur not- ið vinsælda síðustu ár en á meðal nýjunga nú má nefna að gert verð- ur til kola í fyrsta skipti í Hörgár- sveit í 200 ár og langskip siglir að Gásum. Fólki verður gefinn kostur á að taka sér far með skipinu. „Þung högg eldsmiðsins og há- reysti kaupmanna í bakgrunni ásamt sverðaglamri kappsfullra fornmanna blandast hlátrasköllum barna,“ segir í tilkynningu og það vita þeir sem komið hafa að Gásum að ekki er þar ofsagt. Kolagerð í fyrsta skipti í tvær aldir Kolagerð var algeng í Eyjafirði til forna eins og annars staðar á Ís- landi en verður nú reynd í fyrsta skipti í tvær aldir fyrir norðan, og brennisteinn, sem var mjög mikil- væg útflutningsvara á miðöldum, verður hreinsaður rétt eins og þá var gert. Vonast er til þess að járnsmiður á staðnum geti notað kolin sem gerð verða – en hann hamrar járn við búðir kaupmanna, og verður væntanlega með mörg járn í eld- inum. Brugðið verður á leik þar sem vafasöm verslun leikur stórt hlut- verk í örleikþætti sem byggist á fólki og atburðum sem tengjast staðnum og leikinn verður knatt- leikur líkt og hinir fornu kappar léku með knatttré og hálmbolta. Miðaldamenn munu sýna réttu handtökin en áhugasömum gestum gefinn kostur að taka þátt og sýna hvað í þeim býr í þessum forna leik. Fyrir þá sem skyggnast vilja inn í framtíðina er bent á völvuna sem spáir í rúnir, og börn á öllum aldri geta reynt sig við bogfimi og steina- kast. Auk þess sem börnin geta kynnst spennusögunni Gásagátunni í sögustund með rithöfundinum Brynhildi Þórarinsdóttur. Það er langskipið Vésteinn frá Þingeyri sem siglir seglum þöndum að Gásum á laugardaginn. Hægt verður að fara í siglingu með Vé- steini en í lok dags heldur hann ferð sinni áfram á Sail Húsavík strandmenningarhátíðina. Á Miðaldadögum verður leiðsögn um minjasvæðið sem varðveitir hinn forna verslunarstað á Gásum. Leiðsögumenn: Herdís S. Gunn- laugsdóttir og Sigrún B. Óladóttir. Gásverjar, þátttakendur á Gás- um, verða um 100 manns. Flestir þeirra eru Eyfirðingar, handverks- fólk með óbilandi áhuga á tíma- bilinu og þessum merka sögustað, auk þess sem handverksfólk frá Akranesi, Hafnarfirði, Reykjavík og Þingeyri mun einnig taka þátt. Gásir eru 11 km norðan Akureyr- ar. Kaupstaðurinn verður opinn frá kl. 11 til 17 laugardag, sunnudag og mánudag. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Barist Miðaldamenn á Gásum berjast ekki einungis með vopnum, heldur einnig í knattleik, þó ekki til síðasta blóð- dropa. En ekkert er gefið eftir. Myndin er frá því í fyrrasumar. Með mörg járn í eldinum á Gásum  Skip siglir að Gásakaupstað í fyrsta skipti síðan á 16. öld Ljósmyndarinn Vilhelm Gunnars- son gaf nýverið út ljósmyndabókina Iceland 360° Tíu fallegir staðir. Í bókinni eru 83 myndir af 10 stöðum á Íslandi sem hjartfólgnir eru ljósmyndar- anum. Bókin er önnur ljósmyndabók Vilhelms, en í fyrra kom út sú fyrsta sem fjallaði um eldgosið í Eyjafjallajökli. Í bók- inni sýnir Vilhelm lesendum fegurð hins stóra og smáa við mismunandi birtuskilyrði og aðstæður. ,,Ég hef ferðast svo gríðarlega mikið og mér fannst kominn tími til að safna myndunum mínum saman í eina bók,“ segir Vilhelm Gunnarsson ljós- myndari ,,Margir gefa út myndir af öllu landinu í svona bókum þannig að ég ákvað að taka færri staði og gefa þeim betra rými; sýna betur frá hverjum stað. Ég hef gaman af því að taka myndir af dýrum og ákvað því að brjóta upp bókina með dýramynd af hverjum stað. Í bókinni eru margir af mínum uppáhaldsstöðum á Ís- landi og ég reyni að hafa myndirnar af mismunandi árstíðum og við mis- munandi birtuskilyrði,“ segir Vil- helm. Vilhelm hefur starfað sem ljósmyndari á Fréttablaðinu frá árinu 2003. Myndir eftir hann hafa birst í mörgum af stærstu blöðum og tímaritum úti um allan heim, en hann leggur mesta áherslu á frétta- og landslagsmyndir. Vilhelm hefur tekið þátt í fjölda ljósmyndasýninga og hlotið viðurkenningar fyrir myndir sínar, nú síðast verðlaun fyr- ir umhverfismynd ársins 2010. Ljósmynd/Vilhelm Gunnarsson Vilhelm Gunnarsson Myndir af mis- munandi árstíðum Fegurð Ein myndanna í bók Vilhelms Gunnarssonar, frá Landmannalaugum.  Vilhelm Gunnarsson gefur út ljósmyndabókina Iceland 360° Leikkonan Aldís Davíðsdóttir er nú á ferð um Austurland með einleik- inn Kona einsömul eftir ítalska leik- skáldið Dario Fo og Franca Rame eiginkonu hans. Einleikurinn segir frá Maríu, líf hennar breytist þegar kona flytur inn í íbúð í húsinu á móti. María deilir með nýju nágrannakonunni hversu æðislegt líf hennar sé, en fljótt kemur í ljós að hún er læst inni í íbúðinni og eiginmaðurinn hennar sá eini sem hefur lykil. Á sunnudag verður verkið sýnt í Sláturhúsinu á Egilsstöðum kl. 21.00, í Herðubreið á Seyðisfirði á þriðjudag og í Miklagarði á Vopna- firði á fimmtudag. Aldís þýddi leikritið sjálf en leik- stjóri er Guðjón Þorsteinn Pálm- arsson. Kona ein- sömul á Austurlandi Æðislegt Aldís Davíðsdóttir er Kona einsömul í einleik Darios Fos.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.