Morgunblaðið - 15.07.2011, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 196. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Sævar Ciesielski látinn
2. Glæsihýsi Lilju Pálma í NY Times
3. Talinn hafa svikið út milljónir
4. Átta ára drengur myrtur í NY
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Uppselt er á hvora tveggja Biophil-
ia tónleika Bjarkar á Iceland Airwaves
en almenn sala hófst í hádeginu í
gær. Enn eru til miðar á aðra tónleika
Bjarkar en hún heldur alls sex tón-
leika í Silfurbergi í Hörpu í október.
Skipuleggjendur Airwaves hafa auk
þess tekið til hliðar 200 miða á hvora
Bjarkartónleikana á Iceland Airwaves
sem verður útdeilt eftir „fyrstur kem-
ur, fyrstur fær“ reglunni á tónleika-
dögunum 12. og 16. október.
Uppselt á tónleika
Bjarkar á Airwaves
Síðasta Föstu-
dagsfiðrildi lista-
hópa Hins hússins
fer fram í dag kl.
12-14 í miðbæ
Reykjavíkur. Boð-
ið er upp á klass-
íska tónlist, þjóð-
lagatónlist, götu-
leikhús, gjörning í búðargluggum,
hljóðverk og fleira. Fiðrildin hafa
dansað í miðbæ Reykjavíkur í sumar
við góðar undirtektir vegfarenda.
Föstudagsfiðrildi
í síðasta sinn í dag
Dansskotna popphljómsveitin Cut
Copy heldur tónleika á Nasa miðviku-
daginn 20. júlí nk. Tónleikarnir eru
liður í tónleikaferð þeirra um heiminn
í kjölfar út- gáfu nýrr-
ar breiðskífu
þeirra
Zonoscope
en platan
er sú fjórða
í röðinni.
Hægt er að
nálgast
miða á midi-
.is og í Brim.
Hin ástralska Cut
Copy til Íslands
Á laugardag Norðan 5-10 m/s, en hæg breytileg átt sunnanlands.
Léttskýjað á S- og SV-landi, annars skýjað að mestu.
Á sunnudag Fremur hæg breytileg átt eða hafgola. Skýjað með
köflum og skúrir, einkum síðdegis. Hiti yfirleitt 10 til 16 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlægar áttir og lítilsháttar rigning á NA-
og A-landi fram eftir degi. Bjartviðri S- og V-lands. Hiti 8 til 18 stig.
VEÐUR
KR-ingar eiga frábæra möguleika á að slá út slóvakíska liðið Zilina í forkeppni
Evrópudeildar UEFA í fótbolta eftir magnaðan sigur, 3:0, á KR-vellinum í gær.
Slóvakarnir léku í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu fyrir ári en eru nú með
bakið uppi við vegg fyrir seinni leikinn í Slóvakíu næsta fimmtudag. Takist KR-
ingum að komast áfram verða þeir aðeins annað íslenska liðið frá upphafi til
að slá út tvo andstæðinga í sömu Evrópukeppninni og eiga að auki von á tug-
milljóna króna greiðslum frá Knattspyrnusambandi Evrópu. »1, 2, 3.
KR-ingar eru með tugmilljónir í sigtinu
Ásbjörn Friðriksson, leikstjórnandi
Íslandsmeistara FH í handknattleik,
er á leið til Svíþjóðar þar sem hann
hefur samið við toppliðið Alingsås til
tveggja ára. Ásbjörn segir að þetta sé
rökrétt skref á sínum ferli, hvorki of
stórt né of lítið. »4
Hvorki of stórt
skref né of lítið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Janus Arn Guðmundsson
janus@mbl.is
„Það var svolítið kalt og það rigndi
örlítið,“ segir Magnús Gunnar Sig-
urbjörnsson, 13 ára, sem kom heim
frá Hong Kong í Kína til að láta
ferma sig. Athöfnin fór fram í Við-
eyjarkirkju í gær og gerði Magnús
sér lítið fyrir og synti sjósund inn í
fullorðinna manna tölu.
Magnús er líklega eini fermingar-
pilturinn sem hefur þreytt svokallað
Viðeyjarsund á þessum merkisdegi.
Synti hann frá hafnarlægi Viðeyjar-
ferjunnar um 900 metra leið út í Við-
ey. Hann var með björgunarbát sér
við hlið alla leiðina og í honum voru
tveir björgunarsveitarmenn ásamt
foreldrum Magnúsar og lækni.
„Eitt kvöldið var ég að tuða eitt-
hvað í pabba mínum, um að ég kynni
ekki að spila á píanó eða trompet
eins og sumir krakkar. Þá sagði
pabbi við mig í einhverju gríni að ég
ætti bara að synda út í Viðey og ég
lét verða af því,“ segir Magnús, glað-
ur með árangurinn.
Faðir Magnúsar, Sigurbjörn Þor-
kelsson, kveðst vera afar stoltur af
stráknum. „Þetta er í raun hans eig-
in hugmynd, eins og hann nefndi var
þetta sagt í gríni. Hann á það til að
taka hugmyndir og láta verða af
þeim. Hann tekur hlutunum mjög al-
varlega og nær þeim markmiðum
sem hann stefnir á í lífinu.“
Afabróðirinn fermdi
Hátíðarhöldin voru mikil þegar
blaðamaður náði tali af afreksmann-
inum og fermingardrengnum, en
hann kveðst hafa skellt sér úr sund-
gallanum eftir sundið og farið
beint í heita sturtu. Um 80
manns voru viðstaddir
veisluhöldin, sem fóru fram í
veislusalnum úti í Viðey. Séra
Karl Sigurbjörnsson biskup
fermdi Magnús, en hann
mun vera afabróðir
sundkappans. Magnús er nýfluttur
frá Hong Kong, þar sem hann bjó í
fjögur ár ásamt fjölskyldu sinni.
Faðir hans, Sigurbjörn, starfaði fyr-
ir banka þar. „Nú erum við í sumar-
fríi á Íslandi og mig langaði að ferm-
ast hér.“
Fjölskyldan mun svo flytjast bú-
ferlum til Lundúna og kveðst Magn-
ús hlakka mikið til þess að prófa að
búa þar. „Ég gat bara bjargað mér á
kínverskunni, en get betur talað
ensku,“ segir hann og bætir við að
það sé alltaf gaman að kynnast nýj-
um skólafélögum. Að lokum segist
Magnús vera ánægður með daginn:
„Dagurinn er búinn að vera frábær
og ég er mjög ánægður með hann,
ég hefði ekki viljað sleppa því að
koma til Íslands,“ segir Magnús að
lokum.
Synti inn í tölu fullorðinna
Ljósmynd/Aðalheiður Magnúsdóttir
Óvenjulegt Magnús Gunnar Sigurbjörnsson ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, en hann synti frá
Reykjavík út í Viðey í gær, svonefnt Viðeyjarsund, og lét svo ferma sig í kirkjunni með tilheyrandi hátíðarhöldum.
Þreytti Viðeyj-
arsund 13 ára á
fermingardaginn
Magnús Gunnar Sigurbjörnsson er
mikill sundgarpur en hann hefur
æft sund síðastliðin fjögur ár í
Kína, eða frá því að hann var níu
ára. Sundklúbburinn sem Magnús
æfir með nefnist Aberdeen Marina
Club. „Ég er búinn að keppa í
Bangkok og víðar um Asíu og hef
ekki tölu á öllum þeim verð-
launum sem ég á. Ég hef þó
unnið nokkrum sinnum gull,
silfur og brons,“ segir hann.
Magnús segist vonast til þess
að geta æft sund af kappi áfram í
Lundúnum.
Spurður hvort hann ætli sér að
verða atvinnumaður í sundi þegar
hann verði eldri, kveðst hann ekki
vita það. Hann segist þó ekki vilja
útiloka þann möguleika. „Kannski
mun ég bara feta í fótspor pabba
míns og gerast bankamaður.“
Magnús segir að lokum að sundferli
hans sé hvergi nærri lokið, enda sé
hann rétt að komast í tölu fullorð-
inna.
Rétt byrjunin á ferlinum
BÚINN AÐ ÆFA SUND FRÁ NÍU ÁRA ALDRI
Magnús G.
Sigurbjörnsson