Morgunblaðið - 06.10.2011, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011
VIÐTAL
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, segir að staðan í Vest-
mannaeyjum sé nú svipuð og þegar
Múlakvísl tók brúna þar yfir í sundur
í sumar. Samgöngur eftir þjóðvegin-
um milli lands og Eyja frá Landeyja-
höfn séu rofnar. Þegar þjóðvegurinn
hafi rofnað í sumar hafi vegfarendur
þurft að fara lengri og erfiðari leið,
um Fjallabaksveg, og nú þurfi Eyja-
menn að sigla lengri og erfiðari leið,
til Þorlákshafnar. Samgönguyfirvöld
hafi brugðist skjótt við í sumar og
Eyjamenn krefjist þess að þeir sitji
við sama borð.
Skipið helsta vandamálið
Siglingar Herjólfs milli Landeyja-
hafnar og Eyja hafa vægast sagt
gengið illa. Meðan Herjólfur var í
slipp í Danmörku var Breiðafjarðar-
ferjan Baldur fengin í staðinn og þá
gekk mun betur. „Vandamálið í
kringum þessa siglingu er fyrst og
fremst skipið,“ segir Elliði. Hann
leggur áherslu á að Herjólfur, sem sé
um 2.000 tonn, sé mjög óhentugur til
siglinga í Landeyjahöfn, bæði í höfn-
inni og fyrir framan hana. Kjölurinn
sé tiltölulega flatur, sérstaklega við
skutinn, sem geri það að verkum að
stjórnhæfni hans sé verulega skert,
þegar aldan komi á aftanvert hornið.
Baldur sé um 600 tonn og með skips-
legri skrokk. Djúprista Herjólfs sé
um 5 metrar en Baldurs rúmlega 3
metrar. Hægt sé að nota Baldur í allt
að 3,5 m ölduhæð í Landeyjahöfn en
fari ölduhæð yfir 2,5 m sé ekki hægt
að nota Herjólf. Frátafir á skipi eins
og Baldri séu innan við 10% á ári en
erfiðustu fimm mánuði ársins séu
frátafir Herjólfs 20-40%. „Það þýðir
að í fimm mánuði á ári þurfum við að
fara Fjallabaksleið syðri, til Þorláks-
hafnar,“ segir hann.
Elliði áréttar að ekki hvarfli að
Eyjamönnum að bæta samgöngur til
Vestmannaeyja á kostnað annarra á
landsbyggðinni. Tveir kostir séu í
stöðunni. Annars vegar að fundið
verði annað skip erlendis sem svipi
til Baldurs eða annað skip sem geti
komið í stað Baldurs á Breiðafirði og
Baldur sigli þá milli Landeyjahafnar
og Eyja.
Aukinn kostnaður 225 milljónir
og 15% hækkun
Mun dýrara er að sigla Herjólfi til
Þorlákshafnar en Baldri til Land-
eyjahafnar. „Það munar um milljón
til einni og hálfri milljón á dag,“ seg-
ir Elliði. Miðað við fimm mánuði get-
ur munurinn því verið um 225 millj-
ónir. Það muni um minna og því sé
mikilvægt að skoða málið af alvöru.
„Við höfum engan tíma til að bíða.
Þetta þarf að gerast hratt.“
Vegna stöðunnar ríkir hálfgert
neyðarástand í Eyjum. Elliði bendir
á að menn hafi lagt í miklar fjárfest-
ingar og samfélagið hafi lagað sig að
nýjum samgöngum. „Þegar þjóðveg-
urinn rofnar notar Vegagerðin tæki-
færið og hækkar gjaldskrána á okk-
ur um 15%. Ferjusiglingar milli
lands og Eyja er þjóðvegurinn milli
lands og Eyja. Það kostar Íslendinga
ekkert að nota þjóðvegakerfið nema
þegar siglt er til Vestmannaeyja.“ Í
þessu sambandi áréttar Elliði að
ekkert kosti að fara um Héðinsfjarð-
argöng, sem hafi kostað um 14,2
milljarða, og Bolungarvíkurgöng,
sem hafi kostað um 6,5 milljarða.
Hann minnir á að samgöngurnar séu
á hendi Vegagerðarinnar og krafa
Eyjamanna sé að farið verði í að
kanna möguleika á nýju skipi.
Rekstur sanddæluskips í Land-
eyjahöfn hefur kostað sitt en Elliði
segir að líkja megi því við snjómokst-
ur. Snjóruðningstæki haldi þjóðvegi
númer 1 opnum á veturna og sá
kostnaður falli ekki á vegfarendur.
Tvöfalt fleiri um Landeyjahöfn
Landeyjahöfn hefur skipt sköpum
fyrir ferðaþjónustu í Eyjum. Elliði
segir að síðasta heila árið sem Herj-
ólfur hafi siglt til Þorlákshafnar hafi
um 127 þúsund manns ferðast með
skipinu milli lands og Eyja, en í ár
stefni í að fjöldinn verði um 270 þús-
und. „Þetta er gríðarleg breyting
fyrir samfélagið í Vestmannaeyj-
um,“ segir hann. „Það er algjör
skylda samgönguyfirvalda að
tryggja að þjóðveginum milli Land-
eyjahafnar og Vestmannaeyja sé
haldið opnum svo að við þurfum ekki
að fara Fjallabaksleið syðri.“
Krafan í Eyjum er nýtt skip
Eyjamenn vilja fá Breiðafjarðarferjuna Baldur eða sambærilegt skip sem fyrst
Lausn innan mánaðar
» Elliði Vignisson er formaður
samráðshóps sem innanríkis-
ráðherra skipaði til að fara yfir
málið. Elliði segir að fái hann
heimild til að leysa það geri
hann það hratt og örugglega
en þetta snúist um krónur og
aura og hópurinn hafi ekki fjár-
heimildir.
» Elliði segir að finna megi
lausn á málinu innan mánaðar,
en samstöðufundur verður um
málið í Eyjum í dag.
» Þegar samgöngur hófust
um Landeyjahöfn hættu yfir-
völd að niðurgreiða flug til
Vestmannaeyja.
Morgunblaðið/RAX
Sumarið 2010 Herjólfur í sinni fyrstu ferð frá Vestmannaeyjum til Landeyjahafnar. Síðan hafa komið upp mörg vandamál og ljóst að skipið hentar ekki.
Verð aðra leið
*fjölskyldutilboð gildir báðar leiðir
Herjólfur í Landeyjahöfn
börn 12 - 15 ára 500
Fullorðnir 1.000
Bíll undir 5 metrum 1.600
Bíll yfir 5 metrum 2.100
Flugf. Ernir frá Reykjavík
Börn 0 - 2 ára 1.000
Börn 2 - 11 ára 6.300
Afsláttarsæti 8.500
Almennt 11.200
5 manna fjölskyldutilb. 61.000*
Herjólfur til Þorlákshafnar
börn 12 - 15 ára 899
Fullorðnir 2.660
Bíll undir 5 metrum 2.660
Bíll yfir 5 metrum 5.320
Hönnun og smíði
á nýju skipi sem
hentar Landeyja-
höfn tekur um
þrjú ár og kostn-
aður er áætlaður
um 4-4,5 millj-
arðar króna, að
sögn Hreins Har-
aldssonar, vega-
málastjóra.
Þegar Land-
eyjahöfn var hönnuð var gert ráð
fyrir að smíðað yrði nýtt skip en slík-
um áformum var slegið á frest, þeg-
ar bankahrunið skall á þjóðinni fyrir
um þremur árum. Hreinn segir að
málið hafi ekki verið tekið upp á ný
en á næstu vikum eða mánuðum
þurfi að svara því hvort ráðist verði í
smíði nýs skips. Síðan þurfi að huga
að öðrum lausnum. Ekki hafi verið
auðsótt að fá annað skip en Baldur
meðan Herjólfur var í slipp og
reyndar hafi þurft undanþágu til að
fá að nota Baldur. Auk þess sé ekki
hægt að nota skipið að vetri til nema
með nokkrum breytingum í sam-
bandi við brunavarnir og fleira.
Nýtt skip
kostar um
4 milljarða
Hönnun og smíði tek-
ur um þrjú og hálft ár
Hreinn
Haraldsson
Elliði Vignisson
segir mikilvægt
að allt verði gert
til þess að leysa
samgöngu-
vandann, þó ekki
verði nema til
bráðabirgða, þar
til farið verði í að
smíða nýtt skip.
Samráðshópurinn
– þ.e. fulltrúar
Vestmannaeyjabæjar, Vegagerð-
arinnar, Siglingamálastofnunar og
Eimskips – og aðrir sem að málinu
koma hafi of lengi horft á vankantana
við Landeyjahöfn og siglingalagið á
Herjólfi en nú bendi flest til þess að
skipið sjálft sé stærsta vandamálið.
Elliði segir að allt sem snúi að
dýpkuninni í Landeyjahöfn sé ein
sorgarsaga en dregið verði úr þeim
vandamálum með öðru skipi. Hann
hafi margoft rætt við vegamálastjóra,
siglingamálastjóra og innanríkis-
ráðherra um samgöngur milli lands
og Eyja og þeir hafi sýnt fullan skiln-
ing á málinu.
Reynslan af Baldri undanfarnar
vikur hafi varpað nýju ljósi á málið og
við þessum nýju upplýsingum þurfi
að bregðast sem allra fyrst.
Reynslan
mikilvæg
Elliði
Vignisson
Forsetafrúin Dorrit Moussaieff
tyllti sér meðal nemenda í Gilja-
skóla á Akureyri meðan forsetinn,
Ólafur Ragnar Grímsson, gekk á
meðal nemenda. Tilefni heimsókn-
arinnar var forvarnardagurinn í
grunnskólum og framhaldsskólum
landsins, en þau heimsóttu einnig
Lundarskóla, Menntaskólann á
Akureyri og Verkmenntaskólann.
Forsetaembættið stendur að
þessum degi ásamt fleiri aðilum. Á
heimasíðu átaksins segir að ung-
lingar sem verja í það minnsta
klukkustund á dag með fjölskyldum
sínum, séu síður líklegir til að hefja
neyslu fíkniefna. Einnig að ung-
menni sem stunda íþróttir og annað
skipulagt æskulýðsstarf falli mun
síður fyrir fíkniefnum. Á heimasíð-
unni kemur fram að því lengur sem
ungmenni bíða með að hefja
áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra
sé að þau verði fíkniefnum að bráð.
Heimsóttu skóla á Akureyri
Ljósmynd/Kristján Kristjánsson
NÝR ÞÁTTUR Í MBL SJÓNVARPI
ALLA FIMMTUDAGA!