Morgunblaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Ómar
Mannfræðingur Daniel Miller segir samskiptavefi á borð við Facebook komna til að vera.
borgarar. Það fólk mun vilja vita
hversu góð nettengingin þeirra sé
og hvernig þau tengist við fólk.
Facebook mun auðvelda fólki sem
kemst ekki ferða sinna auðveld-
lega eða er veikt að halda sam-
bandi við annað fólk.
Einn af viðmælendum mínum
í bókinni minn er til að mynda
mjög mikil félagsvera en sökum
fötlunar sinnar dvelur hann heima
fyrir allan daginn og er þá á Fa-
cebook.
Sama er að segja um nýbak-
aðar mæður sem vilja geta fylgst
með og verið áfram hluti af vina-
hópnum þó að þær komist ekki í
partí. Það er líka saga í bókinni
um mjög feiminn strák sem átti
erfitt uppdráttar í samskiptum við
hitt kynið en eftir að hann byrjaði
að spila tölvuleikinn Farmville á
Facebook fór hann að eiga auð-
veldra með samskiptin. Þetta er
framtíð samskiptavefja eins og
Facebook af augljósum ástæðum,“
segir Miller.
Færir fortíðina nær
Miller er því ekki á því að
samskiptavefir líkt og Facebook
muni líða undir lok. Sama hvort
fyrirtækið í kringum Facebook
muni halda velli eður ei. Hann yrði
mjög undrandi ef slík sam-
skiptanet væru ekki komin til að
vera og slík þjónusta eigi eftir að
vaxa og þróast með hverju árinu
sem líður.
„Ég tel að Facebook hafi haft
fremur róttæk áhrif en það er at-
hyglisvert að flestir líta á síðuna
sem einhvers konar dægurflugu.
Ég held að Facebook-vefurinn sé
vinsæll meðal annars vegna þess
að hann færir okkur nær fortíð-
inni. Flestir njóta þeirra forrétt-
inda að eiga sitt einkalíf og sjálfs-
forræði. En um leið saknar fólk
tengsla af ýmsum toga og finnst
það að einhverju leyti hafa misst
nándina úr lífi sínu. Þetta sér mað-
ur vel í því að eitt það fyrsta sem
fólk gerir á Facebook er að bæta
gömlum skólafélögum og ætt-
ingjum á vinalistann. Þetta er leið
fólks til að bæta upp fjarlægðina
sem líf í nútímasamfélagi hefur
skapað og koma aftur á hug-
myndum um fjölskyldu og sam-
félag,“ segir Miller.
Útbreiðsla mannfræðinnar
Spurður um neikvæðar hliðar
Facebook segir Miller að allt í
okkar menningarlega umhverfi
hafi jákvæðar og neikvæðar hliðar.
Friðhelgi einkalífsins sé að vissu
leyti rofin en helsta umræðan nú
sé í kringum þá pólitík sem tengist
Facebook.
„Fólk segir að Facebook sé
dásamleg því þar geti allir tengst
og notað vefinn til frelsunar. Til að
mynda í löndum þar sem órói og
ófriður ríkir. En á sama tíma hef-
ur Facebook hins vegar auðveldað
yfirvöldum landanna að smala
saman þeim aðgerðarsinnum sem
þykja til trafala og auðveldað að
setja þá í fangelsi. Það er því allt
of mikil einföldun að ákveða að
Facebook sé annaðhvort góð eða
slæm,“ segir Miller. Síðastliðin ár
hefur Miller einbeitt sér að því að
skrifa bækur um mannfræðitengt
efni fyrir hinn almenna lesanda.
Hann lýsir nýju bókinni sem bók
með 12 smásögum en öllu akadem-
ískari endi. Fólki finnist gaman að
lesa skáldsögur og eitthvað sem
það geti tengt sig við. Slíkt form
geti því passað vel til að kynna
mannfræði fyrir fólki.
„Í raun færir Facebook okkur
aftur til þess sem við mannfræð-
ingar höfum talað um að fólk sé.
Það er að segja að við skoðum
aldrei einstaklinga heldur skiljum
fólk í raun sem samskiptanet þar
sem allir eru tengdir öðru fólki. Út
frá þessu má segja að Facebook
og aðrir slíkir vefir séu í raun fólk-
ið sjálft,“ segir Miller.
Facebook er nú tekin að
breiðast út um allan heim en í
löndum eins og t.d. Kína, þar sem
sem Facebook er bönnuð, nýtir
fólk sér annars konar sam-
skiptavefi.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011
Mannfræðingurinn Daniel Mill-
er hefur stundað rannsóknir á
Trinidad, Jamaica, Indlandi og
London. Þær hafa einkum
beinst að efnismenningu,
neyslu og tengslum fólks við
hluti á borð við gallabuxur,
heimili, fjölmiðla og bíla.
Miller hefur gefið út fjölda
greina og bóka, til að mynda
The Comfort of Things (2008),
The dialect of shopping
(2001), Anthropology and the
Individual (2009) og Stuff
(2009). Nýjasta bók Miller, Ta-
les from Facebook, sem kom
út á þessu ári, fjallar um rann-
sóknir hans á samskiptavefn-
um Facebook. Bókin byggist
upp á frásögnum 12 viðmæl-
enda og eru í raun eins konar
smásögur sem allar fjalla á
einn eða annan hátt um
Facebook.
Facebook-
ævintýri
RANNSÓKN
Undrandi Margt leynist á Facebook.