Morgunblaðið - 06.10.2011, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011
Brasilískir gæludýraeigendur
flykkjast í kirkjur einu sinni á ári
og taka bestu vinina, gæludýrin,
með sér. Þennan dag, sem var gær,
á degi heilags Francis frá Assisi,
eru gæludýrin nefnilega velkomin í
kirkjur og kapellur enda dýrðling-
urinn Francis frá Assisi sagður
verndari gæludýra.
Kirkjugestir í höfuðborginni Sao
Paulo eru því af ýmsum tegundum
en flestir fjórfættir og loðnir. Þó
vilja eigendur páfagauka og ýmissa
annarra dýra einnig fá blessun
kirkjunnar manna.
Dagurinn er orðinn ómissandi
þáttur í lífi margra Brasilíubúa, og
yfirleitt fer allt vel fram og allir
haga sér vel. Þó er varla hjá því
komist að einhverjir gelti eða
skræki í kirkjunnar sölum, en það
er í lagi þennan eina dag.
Mannfólkið virðist þó upptekn-
ara af trúarlegri hlið viðburðarins
en gæludýrin spenntari fyrir um-
hverfinu og hinum dýrunum sem
mætt eru til blessunar ásamt eig-
endum sínum.
Bestu vinirnir hljóta
blessun kirkjunnar
Reuters
Frá jólum verða
teknar upp nýjar
reglur í Hollandi
um að sérstakir
lásar verði settir
á bíla þeirra öku-
manna sem tekn-
ir hafa verið fyr-
ir ölvunarakstur.
Er þetta gert í
þeim tilgangi að torvelda þeim að
aka drukknir að nýju. Lásinn er í
raun öndunarmælir og geta öku-
menn ekki kveikt á vél bíla sinna
séu þeir yfir ákveðnum áfeng-
ismörkum. Til að koma í veg fyrir
svindl þurfa þeir að blása í mælinn
nokkrum sinnum meðan á ökuferð-
inni stendur. Ölvunarakstur kemur
við sögu í yfir 200 banaslysum í um-
ferðinni í Hollandi ár hvert.
Öndunarmælar á
bíla þeirra sem ekið
hafa ölvaðir
HOLLAND
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir
í litla eyríkinu Tuvalu, sem er mitt
á milli Ástralíu og Hawaí. Eyjaklas-
inn var áður bresk nýlenda en er nú
eitt einangraðasta samfélag í
heimi. Eina uppspretta hreins vatns
á Tuvalu er rigningarvatn en nú
hafa þurrkar geisað svo vatnsforði
eyjaskeggja er nánast að engu orð-
inn. Stjórnvöld segja vatnsbirgð-
irnar duga í tvo daga til viðbótar og
hafa óskað eftir aðstoð. Íbúarnir
eru aðeins um 11 þúsund talsins.
Neyðarástand vegna
vatnsskorts
ÁSTRALÍA
Aðeins níu
klukkutímum
eftir að
breski prest-
urinn John
Germon upp-
götvaði að
trjáklippur
og keðjusög voru horfin úr verk-
færaskúrnum hans var búið að
finna þjófinn og handtaka, allt með
hjálp Facebook. Germon segir
þetta sýna hvernig tæknin getur
aðstoðað við að upplýsa mál í litlu
bæjarfélagi. Germon er prestur í
smábænum Ashburton en sonur
hans setti færslu á Facebook um að
faðir hans hefði orðið fyrir barðinu
á innbrotsþjófi. Strax fóru að ber-
ast ábendingar og að lokum var
maður handtekinn, sem hafði þá
verið að stæra sig af því að eiga
nýja keðjusög og trjáklippur.
Fann þjófinn með
hjálp Facebook
BRETLAND