Morgunblaðið - 06.10.2011, Side 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Norrænir músíkdagar er elsta há-
tíð sinnar tegundar í heiminum, en
stofnað var til hennar árið 1888. Það
er því sérlega skemmtilegt að hún
skuli nú haldin í yngsta tónlistarhúsi
heims, þ.e. Hörpunni,“ segir Pétur
Jónasson, listrænn stjórnandi Nor-
rænna Músíkdaga, en hátíðin hefst í
dag og lýkur á sunnudagskvöld. Alls
verða fjórtán tónleikar á hátíðinni,
allt frá sinfóníutónleikum til kamm-
er-, kór-, raf- og barnatónleika. Seg-
ist Pétur búast við góðri aðsókn
enda sýni reynslan af t.d. Myrkum
músíkdögum að aðsóknin aukist ár
frá ári. „Það er sístækkandi hópur
fólks sem hefur víðan sjóndeild-
arhring og vill heyra eitthvað nýtt,“
segir Pétur og bendir á að öll eigi
verkin á hátíðinni það sameiginlegt
að vera yngri en tíu ára. „Hátíðin
sýnir þannig það nýjasta og fram-
sæknasta á öllum Norðurlöndunum
á hverju ári.“
Hátíðin var síðast haldin hér-
lendis fyrir fimm árum, en Norð-
urlöndin skiptast á að halda hátíð-
ina. Tónskáldafélag Íslands er
aðalskipuleggjandi hátíðarinnar í
nánu samstarfi við Norræna tón-
skáldaráðið.
Valið úr rúmlega 400 inn-
sendum tónverkum
Að sögn Péturs munu hundrað og
sextíu listamenn flytja rúmlega sex-
tíu tónverk eftir fleiri en fimmtíu
norræn tónskáld hátíðinni í ár og
verða flest tónskáldin viðstödd þeg-
ar verkin eru flutt. „Ný kynslóð tón-
skálda og tónlistarfólks verður áber-
andi á hátíðinni, m.a. ungt fólk sem
hefur haslað sér völl á sviðum sem
hingað til hafa þótt ósamrýmanleg,
s.s. klassísk nútímatónlist, djass og
popptónlist,“ segir Pétur. Tekur
hann fram að verkefnavalsnefnd hafi
staðið í ströngu við að velja inn verk
á hátíðina því alls voru send inn
rúmlega 400 verk eftir fleiri en 350
tónskáld og hafa umsóknir aldrei
verið fleiri. „Svo skemmtilega vill til
að aldrei hafa verið send inn fleiri
sinfónísk verk,“ segir Pétur og telur
ljóst að það skýrist af staðsetningu
hátíðarinnar í Hörpu og því hversu
hróður Sinfóníuhljómsveitar Íslands
hafi borist víða.
Meðal viðburða á hátíðinni má
nefna tónleika í Norðurljósum annað
kvöld kl. 19.00 þar sem 90 tónlist-
arnemar úr þremur tónlistarskólum
taka þátt í flutningi á nýju tónverki
eftir Østen Mikal Ore sem nefnist
Velodrom.
Fjöldi þekktra flytjenda
Á laugardagskvöld verða tón-
leikar í Eldborg kl. 19.00 þar sem
m.a. verður frumflutt tónverk og
hljóðgjörningar eftir Ragnhildi
Gísladóttur, Hafdísi Bjarnadóttur
og Sólrúnu Sumarliðadóttur. Á
sömu tónleikum mun Víkingur Heið-
ar Ólafsson frumflytja píanókonsert
eftir Hauk Tómasson. Af öðrum tón-
skáldum sem eiga verk á hátíðinni
má nefna Kaija Saariaho, Peter Bru-
un sem hlaut Tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs árið 2008, en
Haukur hlaut þau árið 2004, Hildi-
gunnur Rúnarsdóttir, Hugi Guð-
mundsson og Þóra Marteinsdóttir,
Á meðal flytjenda eru Caput-
hópurinn, Kammersveit Reykjavík-
ur og Aldubáran Sinfonietta frá
Færeyjum og fjöldinn allur af ein-
leikurum s.s. Einar Jóhannesson á
klarínettu, Eva Alkula á kantele,
Tomoya Nakai á koto, Hélène Na-
vasse á bassaflautu, Hrafnkell Orri
Egilsson á selló, Tui Hirv sópr-
ansöngkona, og Una Sveinbjarn-
ardóttir á fiðlu.
Hátíðinni lýkur með loka-
tónleikum í Norðurljósum á sunnu-
dag kl. 16.00 þar sem Kammersveit
Reykjavíkur leikur undir stjórn
Bernharðs Wilkinsonar en að tón-
leikum loknum verður siglt út í Við-
ey þar sem tendrað verður á frið-
arsúlu Yoko Ono.
Allar nánari upplýsingar um há-
tíðina, þ.e. dagskrá, tónleika, ráð-
stefnur og miðasölu má nálgast á:
www.nordicmusicdays.is.
Það nýjasta og framsæknasta hljómar
Hundrað og sextíu listamenn flytja rúmlega sextíu tónverk eftir fleiri en fimmtíu norræn tónskáld
Norrænir músíkdagar elsta hátíð sinnar tegundar í heiminum enda stofnað til hennar árið 1888
Kaija Saariaho tónskáld. Ragnhildur Gísladóttir tónskáld. Hélène Navasse flautuleikari. Hugi Guðmundsson tónskáld.
Norrænir músíkdagar verða settir í
kvöld með tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands í Eldborg
Hörpu kl. 19.30. Á efnisskránni er
m.a. konsert fyrir harmónikku og
fiðlu eftir finnska tónskáldið Uljas
Pulkkis, en einleikarar eru Minna
Pensola á fiðlu og og Janne Rättyä á
harmónikku. Hljómsveitarstjórn er í
höndum Martyn Brabbins. Þá verð-
ur frumflutt nýtt tónverk eftir ungt
íslenskt tónskáld, Einar Torfa Ein-
arsson, sem pantað var sérstaklega
fyrir Norræna músíkdaga.
„Við búum svo vel á Íslandi að eiga
svona frábæra hljómsveit sem er til í
að taka þátt í þessari hátíð með okk-
ur. Það er mjög sérstakt,“ segir Pét-
ur Jónasson, listrænn stjórnandi
Norrænna músíkdaga. Bendir hann
á að engin sinfónísk verk hafi verið
flutt á Norrænum músíkdögum þeg-
ar þeir voru haldnir í Kaupmanna-
höfn á síðasta ári og sama verði upp
á teningnum þeg-
ar hátíðin verði
haldin í Stokk-
hólmi á næsta ári.
Segir Pétur mikið
ánægjuefni
hversu mikinn
áhuga stjórn-
endur Sinfón-
íuhljómsveitar Ís-
lands hafi á nýrri
tónlist.
Að tónleikum loknum verður boð-
ið upp á dagskrá í Silfurbergi með
gjörningum eftir Andrus Kallastu,
Per Magnus Lindborg og Þuríði
Jónsdóttur þar sem tölvu- og marg-
miðlunartækni er nýtt til hins ýtr-
asta til að skapa nýstárlegan hljóð-
heim og einstaka upplifun.
Flytjendur eru Rein Laos leikari,
Sverrir Guðjónsson kontratenor og
Ólöf Nordal myndlistarkona. Dag-
skráin í Silfurbergi hefst kl. 22.00.
Finnar Janne Rättyä harmónikkuleikari og Minna Pensola fiðluleikari.
Fjögurra daga
tónlistarveisla
Sinfóníuverk í forgrunni á opnunar-
tónleikum Norrænna músíkdaga
Einar Torfi
Einarsson