Austurland


Austurland - 23.12.1966, Blaðsíða 5

Austurland - 23.12.1966, Blaðsíða 5
Jólin 1966. AUSTURLANÐ 5 sigra. Það er Ijóst mál, að bjart- sýnin er komin til sögunnar og þjóðin á framtíð. Allt virðist lifna við í von hins nýja tíma. Það er gott árferði og undir því á íslenzka þjóðin jafnan mest. Heilsufarið er gott í sveitinni og nú deyja menn ekki lengur úr hor. Sjálf kirkjubókin er búin að gera þetta útlægt, og það á ekki framar að fá grið á spjöldum hennar. Svo er það 1791 að tveir danskir menn eru á Vopnafirði, báðir ungir, er annar beykir en hinn er nefndur „matros“. Slíka titla höfðu ekki Islendingar. Þessum mönnurn fer að detta skrítið í hug. I Vopnafirði bjó önnur rík ekkja, Ragnheiður Ein- ardóttir á Bustarfelli. Hún missti mann sinn í bólunni 1786, og hafði búið1 síðan á Bustarfelli, ó- gift. Var hún 38 ára er hún varð ekkja, átti 3 mannvænleg börn í ómegð. Maður hennar hét Árni Sigurðsson og við skipti á búinu eru tilgreindar 3 jarðir, er þau áttu, þar á meðal höfuðbólin Bustarfell og Hafrafellstunga í Axarfirði. Nú skeður þetta skrítna, sem Dönunum datt í hug. Þessar ekkjur, Ragnheiður og Ingveldur, giftast þessum dönsku mönnum. Á Ragnheiður beykirinn, sem hét Niels Peder- sen Piil, en Ingveldur matrosinn sem hét Sören Rikhardsen Juul. Stóð brúðkaupið á Hofi h. 11. sept. 1791 og þetta er veglegt brúðkaup. Svaramennirnir eru sýslumaðurinn, kapteinnirm, fact- orinn og hreppstjórinn. Auðséð er hvað hér hefur átt að ske, hvað þessar konur snerti og hvað þessir dönsku menn hafa haft í beitu fyrir þessar vel gjörðu kon- ur. Þeim hefur þetta ekki verið girndarráð. Ingveldur er 35 ára, en Ragnheiður 43, hennar maður Pul var 26 ára gamall. Hér hefur því agni verið beitt af hinum dönsku mönnum að hefja verzlun á Vopnafirði, brjóta einokunina á bak aftur og skapa nýjan tíma í Vopnafirði, sem ekki var vanþörf á í samræmi við nýjan tíma þjóð- arinnar. Með nægilegu grobbi og óskammfeilinni lýgi tekst þeim að fleka konurnar í hjónaband við sig og fá umráð á eigum þeirra. Þeir sigla báðir og minnsta kosti Pul með mikið fé úr búi Ragn- heiðar og Juul hefur heldur ekki farið tómhentur frá Ingveldi. Þeir komu aldrei aftur og hefur Juul lifað stutt, en Púl dó 1799. Hafa þetta sennilega verið óreiðustrák- ar og hefur sagan alltaf hallað á þessar mikilhæfu konur fyrir til- tækið, en aldrei vitað hvað á bak við lá. Hefði og sagan getað verið betri, ef þær hefðu ekki verið svona óheppnar. Enginn veit hvernig þær sluppu frá þessu á fjárhagshliðina, en talið var að Ragnheiður hefði ekki borið sitt barr eftir þetta, og er lítil reisn á heimili hennar árið 1801 í mann- tali. Ekki eru mörg önnur dæmi í sögunni, að konur hafi lagt sig í hugsjónabaráttu þjóðarinnar og ámæli eiga þær sízt skilið, þótt svona tækist til. Danir hafa lengi verið sjálfum sér líkir á Islandi. Ingveldur í Leiðarhöfn var ekki af baki dottin þótt svona færi með þennan danska ,,matrós“. Hún giftist í þriðja sinn Ásmundi Péturssyni, ættuðum af Héraði, bróður Jóns á Refstað afa Sig- fúsar Eymundarsonar og Björns á Hraunfelli. Voru þessi bræður hæfileikamenn og af góðu fólki komnir. Það orðspor er af Ás- mundi að hann var frábær söng- maður og virðist Ingveldur hafa gengizt fyrir slíkri list, þótt eng- inn viti hvernig Juul söng. Ás- mundur var 13 árum yngri en Ingveldur og gjörðist brátt hált í hjónabandinu, átti son um alda- mótin, með Sigríði Gísladóttur, bróðurdóttur Ingveldar og var nú gagn að Stóridómur var úr sög- unni. Eitthvað fiktaði hann við fleira kvenfólk, en var annars duglegur og skemmtilegur mað- ur, og bjuggu þau saman hjónin meðan til vannst. Grímur Grímsson óx nú á legg. Hann var snemma fríður og þroskaimikill og með aldri þótti honum allt til lista lagt, söng- maður góður, smiður og skytta, glaðsinna og gjörfulegur. En snemma þótti bera á ljóði á ráði hans. Það var kvensemi slík, að ærslum þótti sæta, og hefur þó sennilega ekki verið dregið af því orðsporinu. Þjóðtrúin bjó sér til skýringar á þessu, sem hennar var von og vísa, þegar um eitt- hvað afbrigðilegt er að ræða. Álfamey úr hamri við Leiðarhöfn átti að hafa seitt hann til sín á ungum aldri og gegndi Grímur blíðulátum hennar um stund. Þar kom, að álfmeyjan vildi að Grím- ur gengi í hamarinn til sín og kastaði sinu mennska eðli. Ýtt- ust þau á umi þetta þar til Grím- ur þvertók fyrir að sinna slíku. Reiddist þá meyjan og lagði á hann allt ódæmi í sambandi við kvenfólk. Álfkona, móðir meyjar- innar, heyrði þetta og þótti ó- dæmi að heyra. Vildi hún bæta úr fyrir Grími og lagði það á, að ætíð skyldi hann þó sleppa ókranktur á æru og lífi af þeim sökum og þessum ósköpum er dóttir hennar hafði á hann lagt af heift sinni. Þá hefur Grímur verið ungur ef þetta hefur verið forspilið að1 hans ástasögum. Það var hinn 3. október 1805, að vinnukona á Fremra-Nýpi, Ólöf Sigurðardóttir, elur sveinbam er hún kenndi Grími Var hann þá 16 ára og tveim mánuðum betur. Stúlkan var 28 ára, dóttir Sigurð- ar Jónssonar frá Hróaldsstöðum Hjörleifssonar, Ólafssonar prests á Refstað Sigfússonar. Drengur- inn var skírður Jósep og átti Ól- öf síðan Eirík Bjömsson frá Löndum í Stöðvarfirði og ólst Jósep upp með henni á þeim slóð- um og varð þroskamaður. Grímur tók þá til að halda saman við Guðlaugu dóttur Jakobs skrifara í Skálanesi og þegar hann er á 20. ári er hann drifinn í hjóna- band við hana. Var hún 22 ámm eldri, svo hér eru furðulegar ráð- stafanir gerðar, en þetta hefur átt að hefta Grím, sem þótt hef- ur nokkur nauðsyn að gera. Það er stutt komið, þegar þessar ráð- stafanir bila. Þau Guðiaug áttu eitt barn, sem dó strax og Grími verður lítið yndi að Guðlaugu. Stúlka hét Dómhildur, dóttir Ög- mundar sterka í Fagradal Einars- sonar. Hún var sysiturdóttir Guð- laugar konu Gríms. Nú eignast þau Grímur dóttur, sem látin er heita Grímhildur. Var það 1815 og munu þau þó hafa átt barn fyrr, er eigi hefur fæðzt í Vopna- firði eða Grímur átt barn með enn annarri stúlku. Sýnir þetta hversu gjörsamlega hin gömlu Stóradóms forboð eru gengin úr hugmyndaheimi manna, aðeins fáum ámm eftir að slíkar barn- eignir giltu menn lífið. Dómhildur var 3 árum yngri en Grímur og mun þetta hafa verið þeim báðum tilfinningamál. Þau eignuðust enn barn 1817, og þá er sagt að Grím- ur sé búinn að eiga 3 hórbörn og eigi hann hið 4. kosti það líflát, og hékk það enn uppi af Stóra- dómsákvæðum. Fram úr því fór Dómhildur burt úr Vopnafirði. Hún var mikil gjörfuleiksstúlka, sterk sem efldustu karlmenn, lundmikil og hagvirk, reri á há- karl og hafði endaskipti á dönsk- um búðarþjónum á Vopnafirði. Slitið hafa þau hjón samvistum er hér var komið og er Guðlaiug á Ytra-Nýpi 1816 húskona og eigi tekið fram í imanntali að hún sé gift, en Grímur er talinn bóndi í Leiðarhöfn með Ásmundi en ekki á búi hans utan Grimhildur litla og ekki tekið fram að hann sé kvæntur. Virðist þannig kom- ið, að eigi sé litið á þau sem hjón, Grím og Guðlaugu. Stúlka hét Lísebet. Hún er í Fagradal 1816. Hún var einnig systurdóttir Guðlaugar, dóttir Jóns Ólafssonar lögrm. Péturs- sonar, en hann átti að seinni konu, allgamiall, Margréti dóttur Jakobs söguritara og bjó á Felli í Vopnafirði. Áttu þau nokkur börn og dó Jón frá þeim ungum, en þau ólust upp með frændum, og Lísebet í Fagradal hjá Ingi- riði móðursystur sinni, móður Dómhildar. Nú fór Lísebet í Leið- arhöfn árið 1817 eða 18 og það er ekki að sökum að spyrja. Grímur þekkti þessa ætt, og áður en varði er Lísebet orðin vanfær eftir hann. Þá var það nú Stóri- dómur, og eins og vant er, þegar hann er annars vegar, að farið er úr öskunni í eldinn til að bjarga sér. Þau Grímur hyggjast leyna barnsburðinum til þess að komast hjá Stóradómi, sem gilti nú um þetta 4. hórdómsbrot. Það hafði verið vitað á heimilinu og víðar, að Lísebet fór kona eigi ein saman og nú er hún allt í einu orðin léttari og enginn hef- ur orðið var við barnsburðinn. Þetta getur eigi legið í þagnar- gildi og rekistefna er þegar gjörð um atburðinn og kemst Lísebet ekki hjá því, að viðurkenna að hún hafi barn átt, en segir að það hafi fæðzt andvana og Grím- ur húsbóndi sinn muni hafa graf- ið það. Nú kemst alit í háaloft. Kirkjubókin segir frá fæðingu barnsins í dul og faðir þess sé Grímur í Leiðarhöfn. Þetta er hans 4. hórdómsbrot „og er hann því líflaus" segir þar. Hert er nú á allri rannsókn málsins og kem- ur sýslumaðurinn sjálfur, Páll Melsteð, til skjalanna. Grími er skipað að segja til þess hvar hann hafi grafið barnið og var það í melbarði þar skammt frá og er það nú grafið upp. Sent er eftir lækninum, Jörgen Kerúlf á Brekku í Fljótsdal, og skoðar hann líkið. Hann gefur ákaflega loðinn vitnisburð. Þessi útlendi maður virðist kunna að fara svo vel með íslenzkt mál, að á vitn- isburði hans verður ekkert að græða, hann er svo skemmtilega loðinn, tvíræður og marklaus, að sýnt er, að Jörgen Kerúlf hefur ekki ætlað að láta byggja dauða- dóm á sínum orðuimi. Var hér og ekki gott til úrskurðar, þar sem likið hafði legið tímakom í jörð. Það sannast, að Lísebet hefur alið barnið í úthýsi nokkm, engin nærkona tilkvödd, en þó hafði Grímur verið nærstaddur, en það var honum m. a. til lista lagt að vera heppinn ljósfaðir, ef ein- hvers þurfti með. Rannsókn máls- ins er löng og leiðinleg og með smámuna ýtarlegheitum, sem einkenndi hið gamla réttarfar, og allt málið ógeðslegt. Verður það ekki frekar rakið, enda hér öll meginatriði rakin. Það er einfalt mál hvernig þetta allt skeður. Að rannsókn lokinni er málið tekið til dóms á staðnum af Páli sýslu- manni. Nefnir hann í dóminn með sér 4 valinkunna bændur í sveit- inni og var einn Jón á Þorbrands- stöðum Jónsson, en hann hafði sjálfur verið dæmdur af lífi 1793 eftir Stóradómi, fyrir að eiga barn með konu, sem átt hafði barn með bróður hans. Uppgjöf saka hafði hann fengið og leyfi til að kvænast bamsmóður sinni og bjó svo með henni langa tíð á Þorbrandsstöðum. Annar var Jón á Vakursstöðum Jónsson. Það er ekki mikillar undankomu auðið þegar Stóridómur er á ferð- inni og þessi dómur dæmir Grím af lífi, en Lísebet sýsluræka. Hún fór þá norður í Fnjóskadal og dvaldi þar til dánardægurs eftir 1850, og á sitt blað í þingeying- unum hans Konráðs Vilhjálmsson- ar. Allt skeði þetta sumarið 1819. Grímur hefur sennilega átt litlu áliti að fagna á þessum tíma í sinni sveit. Það sýnir mál eitt og sakferli, sem til bar í Vopnafirði árið 1817. Þorgrímur Sigurðsson, bróðir Ólafar, er átti barnið með Grími, var vinnumaður hjá Carli Örum kaupmanni þetta ár. Þar var þá ráðskona Vigdí-s Gissurar- dóttir, ein af mörgu fátæku syst- kinunum frá Vatnsdalsgerði og hið eina sem komst til verulegs þroska, enda var hún yngst og ólst eitthvað upp hjá kempukarl-

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.