Austurland


Austurland - 23.12.1966, Síða 7

Austurland - 23.12.1966, Síða 7
Jólin 1966. AUSTURLANB 7 inum Ögmundi í Fagradal. Þor- grímur hafði átt tvíbura með Sig- ríði systur hennar, og ekki hættu Vopnfirðingar fyrr en hún var búin að eiga 6 iausaieiksbörn! Vigdís var skörungur og mælt var að Carli Örum þætti hún góð kona eins og sagt var um Hall- beru abbadísi. Grímur var auk þess grunaður að vera eitthvað á skjánum hjá henni, en Þorgrím- ur standa í skjóli hennar. Þor- grímur hafði umgang um verzl- unarhús og einhverja umsjón með vörum og nú tók hann upp á því að fara að verzla fyrir eigin reikning, náttúrlega með vörur verzlunarinnacr. Galt hann hinum og þessum skuldir með vörum og datt engum í hug að þær væru teknar ófrjálsri hendi. Voru margir þessara viðskipta aðnjót- andi, er þetta komst í hámæli og síðan rannsókn. Kemur margt fólk við1 sögu í réttarhöldum og vitnaleiðslu og þar á meðal hefð- arkonur, sem ekki gátu á sér setið að fá smáræði hjá Þorgrími, enda var hann kaupdrengur góð- ur og þekkti ekki kaupmanna- sannvirði né markaðsverð. Leitað er fast eftir því í réttarhöldunum hvort Grímur í Leiðarhöfn sé ekki með í spilinu, og er eins og það leiki í grun, að þetta sé eins konar þjófaþrífylking, Grímur Vigdís og Þorgrímur. En Vigdís hreinsar sig og virðist þó vera, að hún hafi vart komizt hjá því að vita um athæfi Þorgríms og það sannast að Grímur hefur hvergi komið nærri þessu, og þykir það næsta undarlegt með slíkan atgjörvismann! Hann hafði engin viðskipti né vinmæli haft viö1 Þorgrím og er hitt líklegra, að Grimur hafi af viti sínu séð það fyrr en aðrir menn, hvaðan Þorgrímur hafði vörurnar og því mátt varast kaupin við hann. Vig- dís giftist svo Runólfi í Fagra- dal, bróður Dómhildar. Var þeirra dóttir Isfold hin sterka, tröllkon- an, sem átti drenginn, sem kaliað- ur var Úlfar fagri. Það var komið fram á haust hið umrædda sumar, þegar þess- um málum lauk með sögðum hætti. Grímur gekk í „arrest" eins og þar segir á Ketilsstöðum á Völlum þar sem sýslumaður, Páll Melsteð sat. Var nú svart í álinn fyrir Grími, og ekki að sjá að gamla álfkonan hefði mælt nógu fastlega um líknsemdirnar við hann. Það kom þó brátt raun- in á, hver mest mátti sín. Páll Melsted var ágætis maður og hann undraðist hvílíkum frábær- um gerfileika margir Austfirðing- ar voru búnir. Hann laðaði að sér margt þessara gerfileikamanna og studdi þá á ýmsan hátt. Grimur var einn þessara manna, sem vann hug Páls með gerfileika sín- um, og kominn var sá tími, að hann hlaut að finna til undan því, . að hafa fellt dauðadóm, og viljað alit til vinna að slíkur dómur stæði ekki. Málið hefur sjálfsagt samstundis gengið til yfirdóms- ins og héraðsdómurinn verið stað- festur. Hitt er víst, að málið gekk fyrir Hæstarétt Dana. Nú hefur Páll Melsted komið til skjalanna. Hann var lögfræðingur frá Hafn- arháskóla og hefur þekkt marga Dani, sem um þetta mál hafa fjallað, og ef til vill hefur Grím- ur sjálfur átt þar einhverja að, sem mátt hafa sín nokkurs. Síðla árs 1821 eða snemma árs 1822 kemur Hæstaréttardómurinn; al- ger sýkna Gríms. Kirkjubókin segir um Grím innkominn í sókn- ina 1822: „Kom frá Ketilsstöðum á Völlum efitir tveggja ára „arr- est“ sýknaður af Hæstarétti Dana“. Álfkonan gamla lét ekki á sig ganga um líknsemdirnar við Grim. Þótti þetta koma mjög á cvart, þeim er þekktu málavexti, en hér var búið að deila við dóm- arann. Móðir hans var enn á lífi og hafði verið dapurt mjög yfir hennar lífi meðan á þessu stóð. Páll Melstad hafði haldið Grími laust og leyft honum að fara heim til sín, að hitta móður sína og til yfirsýnar á búi, sumarið 1821. Var þá ráðskona á búi Gríms, Sigríður Vigfúsdóttir, systir Sveins föður Guðrúnar í Skólanum, sem allir Vopnfirðing- ar, hinir eldri, muna, langömmu Sigríðar Geirsdóttur. Sigríður fæddi Grími barn, sem eins konar uppbót á frelsið, er hann kom frá Ketilsstöðum. Var það dóttir, skírð Kristbjörg, en það niafn gekk mjög í ætt frá Hildibrandi lögrm. Þorgrímssyni lögrm. í Reykjahlíð 1703 Jónssonar. Nú steinþegir kirkjubókin, engin at- hugasemd um, að þetta sé 5. hór- barn Gríms, og var mikið að henni var ofboðið. Hvað er hún líka að steyta sig á móti Hæsta- rétti Dana! Hefur presturinn kannski skilið dóminn á þá leið, að nú væri löglegt að eiga hór- börn, og mun hann hafa fagnað því. Ekki varð samband þeirra Gríms og Sigríðar meira, enda kom nú að Leiðarhöfn stúlka, austan af Völlum, sem kallað var að hefði elt Grím norður. Hún hét Arndís Hildibrandsdóttir. Var Arndísarnafnið mjög útbreitt um langan tíma á Austurlandi, komið frá Arndísi Snorradóttur, konu Einars prests, f. 1498, í Vallanesi Árnasonar. Nú þekkist það ekki þar um slóðir. Arndís var gjörfu- leg stúlka og af góðu fólki kom- in, Hildibrandsættinni frá Ási í Fellum, en móðir hennar var af Hofteigsætt, séra Sigfúsar Tóm- assonar. Arndís var tvítug að aldri er hún elti Grím norður, og auðvitað kom hún ekki til einskis. Árið 1824 fæðir hún Grími barn og dó það strax eða fæddist and- vana. Nú virtist stillast um hagi Grims í kvennamálunum og vildi nú hvorugt öðru sleppa, og dvaldi Arndis í Leiðarhöfn og átti ann- að barn með Grími, sem einnig dó strax, og voru hórbörn Gríms þá orðin sjö. Hafa nú einhverjir góðir menn, og líklegast Páll Mel- sted, slegizt í þetta mál, eins og menn með viti. Voru þau nú Grímur og Guðlaug skilin með dómi 1827 og 7. maí 1828 fékk Grímur konunglegt leyfi itil að kvænast Arndísi. Gengu þau í hjónaband 31. janúar 1829. Sat Arndís vanfær á brúðarbekknum og fæddi barn í apríl. Dó það einnig strax. Mátti þá segja að lokið væri 25 ára kvennastríði Grims og nú var hann 40 að aldri. Hann hafði haft kostnað- arsamt í búi og óeirið heimilis- hald, en sá fyrir öllu áfallalaust og átti Leiðarhöfn. Byssan hans og öngullinn og svo bráðhagar hendur, fleyttu honum y-fir það, sem aðrir hefðu strandað á. Álit hans og persónuleiki stóðst alla múgsins mærð og sleggjudóma um. líf hans. Hann var hvarvetna kvaddur til þar sem einhvers þurfti með og var alls staðar ó- bilandi liðsmaður. Kvenfólkið mun hafa beðið Drottinn að fyrirgefa honum eins og Don Júan. Ævilok Gríms Eins og nú var sagt, var jafnan leitað til Gríms ef einhvers þurfti með, einkum í sjóferðum og smíð- um. Danska verzlunin á Vopna- firði hafði látið gera hús eitt úti í Strandhöfn fyrir fisk og salt, svo hægt væri að landa þar fiski til aðgerðar af bátum, þegar langróið var á fiskinn, sem jafn- an er á Vopnafirði. Var bændum þetta til hagræðis, því jafnan höfðu bændur menn „til sjós“ á vorin, og mönnuðu þá báta 1 fé- lagi, ef ekki fékkst, sem oftast var, skiprúm hjá bændum sem bjuggu á sjávarjörðum og gerðu jafnan út báta. Nú var það haust- ið 1832, að verzlunin ákvað, að rífa þetta hús og flytja viðirna inn á Vopnafjörð. Grimur var fenginn til að rífa húsið, enda mun hann hafa smíðað það, því ekki stóðu þessir hættir langa stund. Átti síðan um veturinn, er út á liði, og veður hægðust, en dagur lengdist, að flytja viðina sjóveg inn á Vopnafjörð og auð- vitað átti Grímur að standa fyr- ir því verki. Hann var allra manna kunnugastur sjó og sjó- leiði á Vopnafirði, svo þetta verk átti að vera í öruggum höndum. Leið nú fram á vetur og fór Grím að dreyma stóra drauma, en hann þótti draumspakur og forspár, og jafnan eitthvað dul- legt í fari hans. Segir þjóðsagan, að hann hafi dreymt það mi. a., að maður kæmi innan að Leiðar- höfn frá Skálanesi. Sá var mikill vexti og eigi dællegur né trúleg- ur á svip og reið föngulegum hesti. Var sem Grímur kenndi uggs af gesti þessum, skiptir samt við hann orðum, og býður honum að koma inn. Gestur tók þvert fyrir það í þetta sinn, en kvaðst koma aftur eftir hálfan mánuð. Grímur hugleiddi draum- inn og hugði að hér mundi dauð- inn vera á ferð og vitja sín eftir hálfan mánuð. Olli Grími þetta hugarangri og nú var hann sem jafnan hraustur maður og ókvell- issjúkur, svo hér mundi eitthwað nýtt til bera, ef hann lyki lífi eftir hálfan mánuð1. Nú stóð til að flytja timbrið og komið yfir jafndægur en tíð góð og sjóleiði jafnan gott. Átti Grímur von á skipi til verzlunarinnar á hverj- um morgni, en alltaf drógst úr hömlu að það kæmi. Var nú liðið nær hálfum mánuði frá því Grím dreymdi drauminn og hann bjóst til að vera var um sig á þessu tímamarki. En er liðinn var rétt- ur hálfur mánuður, sá Grímur hvar skip kom út með landinu og bjóst til að taka hann. Grímur ætlaði að skjóta sér undan ferð- inni og kvaðst lasinn og óferða- fær. Segir sagan að þá hafi Dóm- hildur verið á búi hans sem, ótrú- legt má þykja, þótt hún dvelji þá í Vopnafirði því þar átti hún sitt 6. og síðasta lausaleiksbarn árið 1830. Bauðst nú Dómhildur til að fara fyrir Grím, og mátti það gilt heita, því ekki var henni síður treystandi á ár og vi'ð stýri en Grími. En er Dómhildur gekk til skips hrasaði hún og skaðað- ist allmikið, svo ekki mátti hún ferðinni fram koma. Brá þá Grími og sagðist sjá hvað verða vildi. Gekk hann á skipið og urðu þeir félagar vel reiðfara til Strandhiafnar og báru viði um borð. Voru þeir 4 saman, allt ung- ir menn og duglegir. Grímur sigldi inn með landi, hefur orðið að fara grunnt til að hafa vind og ætlað síðan að beita þvert yfir Nýpsfjörð, fyrir Leiðarhafn- artanga og inn á legu í Skálanesi. Eu stutt fyrir innan Strandhöfn siglir Grímur á sker. Hefur skip- ið sennitega verið háhlaðið og Grímur við stýrið, séð illa til leið- ar. Valt skipið um og drukknaði þar Grímur og tveir fylgjarar hans, Jósep Sigurðsson frá Torfa- stöðum, systursonur Stefáns bónda og Rafn Jónsson frá Há- mundarstöðum, Rafnssonar. Einn komst af, Eiríkur Eyjólfsson, ætt- aður austan af Héraði. Hann varð síðan faðir Björns á Hauksstöð- um. Þótti þetta undarlega hafa til borið í góðu veðri og kunnug- ur maður á ferð. Lík þeirra náð1- ust, og voru þau jarðsett á Hofi h. 3. apríl 1833, en slysið varð h. 26. marz. Þá var Grímur á 44. ári en Arndís 30 ára og fylgdi hún Grími vanfær til grafar, eins og á brúðarbekkinn. Amdís giftist aft- ur Páh Pálssyni, ættuðum af Fjöllum og bjó við virðingu í Leiðarhöfn laniga stund. Dóttir þeirra m. fl. var Guðrún, er átti Eymund Eymundsson, bróður Sigfúsar. Þeirra dætur voru Ág- ústa er átti séra Jes Gíslason og Guðrún er átti Halldór úrsmið Sigurðsson. Getið toama Gríms. Grímur mun alls hafa eignazt 14 börn og dóu 7 þeirra nýfædd. Hin sem komust upp voru: 1. Jósep f. 3. okt. 1805, vinnu- maður á Sævarenda í Fáskrúðs- firði 1838 með son sinn Sigurð. Átti Sigríði Jónsdóttur f. 1797 á Streiti í Breiðdal. 2. Grímhildur, f. 1815, átti Jó-

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.